
Synir Egils 22. nóv - Hallalaus fjármál, atvinnuleysi, hjólabúar, leiðtogafundur og biðlistar
Shownotes
Sunnudagurinn 22. nóvember Synir Egils: Hallalaus fjármál, atvinnuleysi, hjólabúar, leiðtogafundur og biðlistar Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við góða gesti; fyrst koma þau Björn Ingi Hrafnsson aðstoðarmaður formanns Miðflokksins, Þóra Kristín Ásgeirsdóttir blaðamaður og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir framkvæmdastjóri BSRB og ræða helstu fréttir og stöðu mála í samfélaginu okkar og heiminum. Síðan kemur Runólfur Pálsson forstjóri Landspítala og ræðir við okkur um biðlista í heilbrigðiskerfinu, áhrif á fólk, kerfið og samfélagið og hvað gæti verið til bóta. Í lokin fara þeir bræður, Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, yfir pólitíkina með sínu nefi.