
Þættinum hefur borist bréf: Álag, stjórnun og ábyrgð á vinnustað
Notas del episodio
Í þessum þætti svörum við spurningum frá hlustendum um margvíslegar áskoranir á vinnustað. Við förum beint í það sem raunverulega mótar líðan og samskipti; kulnun, álag, stjórnun og ábyrgð.
Við ræðum:
- Er kulnun stundum misskilin sem skortur á þrautseigju?
- Eru stjórnendur gerðir ábyrgir fyrir líðan starfsfólks?
- Hvers vegna eru konur ekki teknar jafn alvarlega í ágreiningi?
- Hvað á stjórnandi að gera þegar virðing fyrir starfsmanni hverfur?
Heiðarlegur og einlægur þáttur um flókin mál.