Saltar al contenido

Kæri fáviti og Ursula K. Le Guin

14 de febrero de 2026 · 50 min

Notas del episodio

Í upphafi fjöllum við um Ursulu K. Le Guin bandaríska furðusagnahöfundinum sem lést árið 2018, en hún átti langan og merkilegan feril að baki og braut blað í því að færa vísindaskáldskap og fantasíur upp um virðingarflokk. Rætt verður við aðdáanda bóka Le Guin, Þórhall Auð Helgason óperusöngvara sem hefur lesið verkin sum hver oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. Það verða einnig nokkur viðtalsbrot úr innslagi í Lestinni á sínum tíma, stuttu eftir að Le Guin lést. Í síðari hluta þáttar beinum við sjónum okkar að Frakklandi. Nýjasta bók rithöfundarins og kvikmyndagerðarkonunnar Virginie Despentes, Cher Connard frá 2022 sem nú hefur komið út hjá Benedikt útgáfu og ber titilinn Kæri fáviti. Við hringjum í Kristínu Jónsdóttur sem búsett er í París og ræðum bókina og Despentes. Bækur þessa alræmda franska höfundar hafa aldrei verið þýddar á íslensku áður en þær hafa alltaf vakið gríðarlegt umtal í Frakklandi. Í bókum sínum tekst hún á við viðkvæm efni; vændi, kynferðisofbeldi, fátækt, fíkn og jaðarsetningu. Kæri fáviti er bréfaskáldsaga, gerist að mestu í einkaskilaboðum á instagram og er uppgjör við #metoo og alkahólisma svo fátt eitt sé nefnt. Viðmælendur: Þórhallur Auður Helgason, Brynhildur Björnsdóttir, Eyja Margrét Brynjarsdóttir og Kristín Jónsdóttir. Lesarar: Lóa Björk Björnsdóttir, Kristján Guðjónsson og Anna Gyða Sigurgísladóttir.

Todos los episodios de Bara bækur

Ajustes

Visualización

Idioma

Determina qué emisoras ves primero en la página de inicio.

Historial

Las emisoras y episodios escuchados recientemente y tus últimas búsquedas solo se guardan en este navegador.

Avisos

Un breve aviso cuando un pódcast que sigues tiene un episodio nuevo. Puedes desactivar pódcast concretos con la campana de su página.

Cuenta

Guarda tus favoritos: en la app y en la web.

Atajos de teclado

/
Abrir búsqueda
Espacio
Reproducir o pausar
← →
En el reproductor: 15 s atrás, 30 s adelante (episodios) · en una fila: siguiente tarjeta
↑ ↓
En una fila: destino dentro de la tarjeta
Inicio / Fin
En una fila: primera o última tarjeta
Esc
Cerrar ventana o menú
?
Este resumen
Reproduciendo ahora

Ir a la emisora

A continuación

    Añade episodios con «A continuación»: sonarán después del episodio actual.