
Þáttur #15 - Þuríður Sigurðardóttir
Notas del episodio
Í dag ætlum við að fjalla um TINNU, virkniúrræði Reykjavíkurborgar sem hefur í tíu ár stutt einstæða foreldra sem hafa verið utan vinnumarkaðar og glímt við langvarandi félagslegan vanda.
Verkefnið byggir á þeirri einföldu en öflugu hugmynd að þegar foreldrar fá stuðning, traust og tækifæri til að efla eigin styrkleika skilar það sér ekki aðeins til þeirra sjálfra heldur einnig til barna þeirra og samfélagsins alls.
Gestur okkar er Þuríður Sigurðardóttir, félagsráðgjafi og verkefnastjóri TINNU frá upphafi.