Saltar al contenido

14102021 - FLakk - Flakk um Smárann í Kópavogi - nýtt blokkar hverfi

14 de octubre de 2021 · 48 min

Notas del episodio

Árið 1957 keypti Kópavogsbær land Digraness og Kópavogs og gat þá skipulagt það til lengri tíma. Á áratugunum á eftir var hröð uppbygging í innviðum svo sem menntun og heilbrigðis- og félagsþjónustu. Á sama tíma varð mikill vöxtur í ýmiss konar iðnaði og þjónustu í bænum. Í lok 9. áratugarins voru aðalatvinnugreinar í Kópavogi húsgagnaiðnaður, matvælaiðnaður, bifreiðaumboð og almenn verslun. Árið 1958 var lokið við fyrsta skipulagsuppdrátt Kópavogs. Á næstu áratugum voru talsverðar deilur um skipulagsmál í bænum, einkum vegna hraðrar umskiptingar úr sveit í þéttbýli en einnig vegna landadeilna við Reykjavík. Miðbær Kópavogs var hannaður í áföngum á 8. áratugnum og framkvæmdum við Hamraborg var að mestu lokið árið 1984.[10] Frá 1990 hefur íbúafjöldi Kópavogs tvöfaldast og stórt verslunar- og þjónustuhverfi risið í Kópavogsdal. Austan Reykjanesbrautar hefur verið mikil uppbygging og þar risið íbúðahverfi kennd við Lindir, Salir, Kórar, Þing og Hvörf. Smáratorg var opnað árið 1997, verslunarmiðstöðin Smáralind árið 2001 og hinn 20 hæða turn á Smáratorgi 3 árið 2008. Og þá erum við mætt á svæðið sem fjallað verður um í þætti dagsins, og fengið hefur nafnið Smárinn. Rætt verður við Ingva Jónasson framkvæmdastjóra Klasa, en Klasi hefur unnið að þróun og uppbyggingu á svæðinu og Helgu Hauksdóttur formann skipulagsráðs Kópavogs. En við byrjum með arkitektunum að hluta húsanna, en það eru þau Halldór Eiríksson og Sóley Lilja Brynjarsdóttir hjá Tark og við höldum í Hátúnið

Todos los episodios de Flakk

Ajustes

Visualización

Idioma

Determina qué emisoras ves primero en la página de inicio.

Historial

Las emisoras y episodios escuchados recientemente y tus últimas búsquedas solo se guardan en este navegador.

Avisos

Un breve aviso cuando un pódcast que sigues tiene un episodio nuevo. Puedes desactivar pódcast concretos con la campana de su página.

Cuenta

Guarda tus favoritos: en la app y en la web.

Atajos de teclado

/
Abrir búsqueda
Espacio
Reproducir o pausar
← →
En el reproductor: 15 s atrás, 30 s adelante (episodios) · en una fila: siguiente tarjeta
↑ ↓
En una fila: destino dentro de la tarjeta
Inicio / Fin
En una fila: primera o última tarjeta
Esc
Cerrar ventana o menú
?
Este resumen
Reproduciendo ahora

Ir a la emisora

A continuación

    Añade episodios con «A continuación»: sonarán después del episodio actual.