
Heimur í orðum – Menningararfur á pappír
Notas del episodio
Forverðir gegna mikilvægu hlutverki á hvers kyns listasöfnum, forngripasöfnum og handritasöfnum. Forvörðurinn er sú manneskja innan varðveislustofnunarinnar sem gerir við skemmdir og spyrnir á móti eyðingunni hljóðu sem er stöðugt að verki.
Í þessum þætti er rætt við Hildi Ploder Vigfúsdóttur, pappírsforvörð á Landsbókasafni Íslands.