Saltar al contenido
Kratinn

Kratinn

NuevoS309: Gervihagræðingarhópur, farsahöfundurinn Sigurður Ingi og menntamál13 de noviembre de 2026 · 1 h 3 min
Episodios
49
Se publica
cada semana
Último episodio
13 Nov 2026

Sobre el podcast

Vettvangur til að upplýsa um skilaboð jafnaðarfólks.

Episodios 49

  1. S309: Gervihagræðingarhópur, farsahöfundurinn Sigurður Ingi og menntamál

    1 h 3 min

    Hlaðvarpsþáttur vikunnar er kominn út á öllum helstu veitum. Í þættinum voru helstu mál vikunnar tekin fyrir. Nýjasti kaflinn í farsahandriti Sigurðar Inga og stjórnarandstöðunnar varðandi stjórn Landsvirkjunar …

    Notas del episodio

    Hlaðvarpsþáttur vikunnar er kominn út á öllum helstu veitum. Í þættinum voru helstu mál vikunnar tekin fyrir. Nýjasti kaflinn í farsahandriti Sigurðar Inga og stjórnarandstöðunnar varðandi stjórn Landsvirkjunar voru í deiglunni eftir að í ljós kom að fjármálaráðherrann fyrrverandi ber ábyrgð á fyrirkomulaginu sem hann hefur kvartað sig hásan yfir og neitaði svo að taka ábyrgð á því í viðtali. Þáttastjórnendur ræddu úrsögn Péturs Marteinssonar úr hagræðingarhópi Reykjavíkurborgar og fóru yfir ferðir sínar í baðlón á síðustu árum. Þá var umferðarteppan sem stíflað hefur borgina síðustu daga greind og leynivopn gegn umferðinni opinberað.


    Í síðari hluta þáttarins mættu Anna María Jónsdóttir, kennari og varaþingmaður og Arna Lára Jónsdóttir, þingkona og Ísfirðingur langt aftur í ættir, í spjall til Arnars Þórs og Þórhalls Vals. Þær ræddu fundi í málefnanefndum flokksins sem eru allar mjög virkar um þessar mundir. Anna María lýsti fundi málefnanefndar um menntamál sem haldinn var á heimavelli hennar, Háteigsskóla, fyrr í vikunni. Þá fór hún yfir sína sín á menntastefnu flokksins og hvernig þróa þurfi hana til framtíðar. Arna Lára fór yfir byggðaáætlun sem rædd var í þinginu í vikunni og þau góðu verk sem ríkisstjórnin hefur leitt og er að setja á dagskrá fyrir byggðir landsins.


    Við hvetjum hlustendur til að taka virkan þátt á fundum málefnahópa flokksins sem eru á fleygiferð þessi misserin. Samfylkingin er sterkust þegar hún stendur saman. Hægt er að fylgjast með fundum á heimasíðu flokksins, Facebook eða með því að skrá sig á póstlista Samfylkingarinnar.

  2. S308: Ýkt hægrisveifla, fæðingarorlofsmál og nýi Pírataflokkurinn

    1 h 16 min

    Í hlaðvarpsþætti vikunnar voru stóru málin tekin fyrir,góðri venju samkvæmt. Í fyrri hluta þáttarins ræddu Þórður Snær, Ásta Guðrún, Arnar Þór og Þórhallur Valur um hvort tölvur ættu heima í pontu Alþingis …

    Notas del episodio

    Í hlaðvarpsþætti vikunnar voru stóru málin tekin fyrir,góðri venju samkvæmt.

    Í fyrri hluta þáttarins ræddu Þórður Snær, Ásta Guðrún, Arnar Þór og Þórhallur Valur um hvort tölvur ættu heima í pontu Alþingis. Ótrúverðug atlaga stjórnarandstöðunnar gegn Daða Má Kristóferssyni fjármálaráðherra vegna uppsagnar forstjóra Landsvirkjunar var krufin og framganga nýja Pírataflokksins, sem áður var kenndur við sjálfstæði, var gagnrýnd. Þórður Snær greindi fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar af sinni alkunnu snilld og kosningasigur Demókrata í nýliðnum þingkosningum í Bandaríkjunum var tekinn fyrir.

    Í síðari hluta þáttar mættu þau Ragna Sigurðardóttirþingkona og Egill Hermannsson, ritari Ungs jafnaðarfólks og varabæjarfulltrúi á Seltjarnarnesi, í viðtal til Arnars Þórs og Þórhalls Vals og var stúdíóið því fullmannað mis-ungu jafnaðarfólki. Egill fór yfir efni greinar sinnar umhægrisveifluna ýktu, aðdraganda hennar og viðbrögð. Ragna fór vel yfir þingsályktunartillögu sína um viðmiðunartímabil fæðingarorlofsgreiðslna, viðbrögð ráðherra og stjórnarandstöðu við henni, ýmsa aðra bresti í kerfinu ogreynslu sína af því að taka fæðingarorlof. Þá ræddu þau stöðu umhverfismála í umræðunni og hvort samfélagið væri að missa augun af umhverfisboltanum.

    Umræðan var innihaldsrík, lífleg og vonandi upplýsandi fyrirjafnaðarfólk um allt land.

  3. S307: Öxin hennar Hildar, Alþýðusambandið og meintur miðjuflokkur

    55 min

    Vegna tæknilegra örðugleika er hlaðvarpið seint á ferðinni þessa vikuna. Í fyrri hluta þáttar mættu til Þórðar Snæs og Þórhalls Vals þær Bjarnveig Birta Bjarnadóttir og Regína Ásvaldsdóttir úr …

    Notas del episodio

    Vegna tæknilegra örðugleika er hlaðvarpið seint á ferðinni þessa vikuna. Í fyrri hluta þáttar mættu til Þórðar Snæs og Þórhalls Vals þær Bjarnveig Birta Bjarnadóttir og Regína Ásvaldsdóttir úr borgarstjórnarhópi flokksins. Þær höfðu ýmislegt að segja um uppsagnir Reykjavíkurborgar, enda með fjölbreyttan bakgrunn úr rekstri. Framsóknarflokkurinn var afhjúpaður sem stækur hægri íhaldsflokkur og rekstur Reykjavíkurborgar var krufinn af fagmanni í rekstri sveitarfélaga, líklega í fyrsta sinn í sögu íslenskra hlaðvarpa.


    Í síðari hluta þáttarins kom Georg Páll Skúlason, nýkjörinn forseti Alþýðusambands Íslands, í viðtal til Þórhalls Vals og Arnars Þórs. Hann fór yfir feril sinn í verkalýðsmálum, hver hann er og hvað hann hefur fram að færa auk þess að tíunda hvaða framtíð hann sér Alþýðusambandið sigla inn í með sjálfan sig við stýrið. Þeir ræddu hvaða samlegð er með sterkum jafnaðarflokki og verkalýðshreyfingunni, hvernig þessi öfl geta snúið bökum saman og náð árangri fyrir íslenska alþýðu. Stemningin á nýliðnu þingi ASÍ var krufin og hvernig sameina þurfi hreyfinguna. Þá var hinni klassísku spurningu velt upp: Hvernig virkjum við fólk til þátttöku í verkalýðsbaráttu og stjórnmálum?

  4. S306: Er ofurkonan að örmagnast?

    1 h 1 min

    Í þætti vikunnar mættu Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi og formaður Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar, og Dagbjört Hákonardóttir þingmaður í viðtal. Þær gerðu upp vel heppnaðan fund …

    Notas del episodio

    Í þætti vikunnar mættu Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi og formaður Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar, og Dagbjört Hákonardóttir þingmaður í viðtal. Þær gerðu upp vel heppnaðan fund Kvennahreyfingarinnar í vikunni sem bar yfirskriftina „Ofurkonan vs. tradwife“.

    Í viðtalinu ræddu þær við Sonju og Þórhall Val um jafnréttisbaráttuna, uppgang úreltra kynjahugmynda, ýmsar ranghugmyndir um leikskólavist, þátttöku karla í jafnréttisumræðunni og margt fleira.

    Í fyrri hluta þáttarins ræddu Ásta Guðrún, Þórður Snær og Þórhallur Valur um lélegustu reiknivél sögunnar sem Framsókn kynnti til leiks í vikunni, villandi framsetningu kvótakóngs um þróun veiðigjalda, hvað ríkisstjórnin hefur gert í málefnum barna og bjartsýna hagspá Landsbankans.

  5. S305: Jafnaðarstefnan kjörnuð og drottningarviðtal við Guðmund Ara

    55 min

    Í hlaðvarpi vikunnar mætti nýr varaformaður Samfylkingarinnar, Guðmundur Ari Sigurjónsson, í sannkallað drottningarviðtal til Arnars Þórs og Þórhalls Vals. Drengirnir gengu hart að honum og kröfðu hann um að …

    Notas del episodio

    Í hlaðvarpi vikunnar mætti nýr varaformaður Samfylkingarinnar, Guðmundur Ari Sigurjónsson, í sannkallað drottningarviðtal til Arnars Þórs og Þórhalls Vals. Drengirnir gengu hart að honum og kröfðu hann um að útskýra sína pólitísku sýn, hvað hann langaði að afreka sem varaformaður og hvernig hann fór frá því að vera utangátta unglingur yfir í að öðlast tilgang og finna til ábyrgðar gagnvart samfélaginu.


    Það er óhætt að segja að þema þáttarins hafi verið jafnaðarstefnan, hvað í henni felst og hvernig hún spilar þátt í því þeim aðferðum sem Samfylkingarfólk beitir í stjórnmálum.


    Í fyrri hluta þáttarins ræddu starfsmenn þingflokks Samfylkingarinnar helstu mál vikunnar en þar má nefna hertar reglur um au-pair dvalarleyfi og hvernig hátekjuhópar brugðust við því, líflegar og upplýsandi umræður um erfðafjárskatt í pontu Alþingis, augljóst handbragð jafnaðarmanna á kjarasamningagerð og nýliðinn flokksstjórnarfund í Sandgerði.

  6. S304: Kolbrún Bergþórsdóttir í viðtali við meintan fjölmiðil

    41 min

    Í inngangi þáttar ræddu Þórhallur Valur, Arnar Þór og Ásta Guðrún um skráningarskyldu fjölmiðla en Kratinn hefur óskað eftir áliti fjölmiðlanefndar um skráningarskyldu sína til að friða sinn virkasta …

    Notas del episodio

    Í inngangi þáttar ræddu Þórhallur Valur, Arnar Þór og Ásta Guðrún um skráningarskyldu fjölmiðla en Kratinn hefur óskað eftir áliti fjölmiðlanefndar um skráningarskyldu sína til að friða sinn virkasta hlustendahóp, þingmenn Sjálfstæðisflokksins.

    Síðar mætti Kolbrún Bergþórsdóttir, blaðamaður til áratuga, með hnífabrýnið á lofti í viðtal til strákanna. Kolbrún lýsti því yfir að hún upplifði ekki meintar skattahækkanir ríkisstjórnarinnar í heimilisbókhaldinu. Valur krafðist afsökunarbeiðnar vegna skrifa Kolbrúnar um fótbolta í gegnum tíðina, erfðafjárskattur bar á góma, hvernig woke-ið fældi Kolbrúnu frá Samfylkingunni og að allir stjórnmálamenn ættu að hafa upplifað að eiga ekki fyrir leigu um mánaðarmót.

    Kolbrún fór yfir feril sinn á fjölmiðlum, en hún hefur starfað á flestum fjölmiðlum sem reknir hafa verið á Íslandi síðustu áratugi, nú síðast á Morgunblaðinu og DV. Að endingu fengu strákarnir ábendingar um bækur sem allir jafnaðarmenn þurfi að lesa.

  7. S303: Making Reykjavík boring again og kálfarnir á Ulf Kristersson

    53 min

    Þessa vikuna fengu Arnar og Valur góða gesti í hús, tvo ung-krata, þá Arnar Inga Ingason, tónlistarmann og Jóhannes Óla Sveinsson, forseta Ungs jafnaðarfólks. Til umræðu voru tímamótaræða Andy Burnham …

    Notas del episodio

    Þessa vikuna fengu Arnar og Valur góða gesti í hús, tvo ung-krata, þá Arnar Inga Ingason, tónlistarmann og Jóhannes Óla Sveinsson, forseta Ungs jafnaðarfólks.

    Til umræðu voru tímamótaræða Andy Burnham, yfirlýsing formanns Sjálfstæðisflokks um að það styttist mögulega í kosningar, staðan í stjórnarmyndun hjá sænsku Sossunum og því tengt, kálfarnir á Ulf Kristersson, úttekt Vinnueftirlitsins á stólum borgarfulltrúa og tilraunir nýs meirihluta í Reykjavíkurborg til þess að gera borgina leiðinlegri með því að vísa listamönnum á dyr.

    Löngu-tímabært framlag Kratans til manosphere-bylgjunnar.

  8. S302: Lygar, afbakanir og möguleg endalok Pírata?

    49 minTemporada 3 · Episodio 2

    Tíu milljarðar fóru til bílaleiganna, en lítill árangur hefur náðst hjá þeim í að fækka bílum sem ganga fyrir jarðefniseldsneyti. Ásta veltir fyrir sér hvort endalok Pírata séu í sjónmáli, en í nýjustu könnun …

    Notas del episodio

    Tíu milljarðar fóru til bílaleiganna, en lítill árangur hefur náðst hjá þeim í að fækka bílum sem ganga fyrir jarðefniseldsneyti.

    Ásta veltir fyrir sér hvort endalok Pírata séu í sjónmáli, en í nýjustu könnun Maskínu mælist flokkurinn með 3,5% fylgi.

    Bókun 35, Miðflokkurinn og fjármál sveitarfélaga koma líka við sögu, ásamt ýmsu fleiru.




  9. S301: Hanskarnir af

    37 minTemporada 3 · Episodio 1

    Kratinn mætir úr lærdómsríku sumarfríi með hanskana af. Þjóðaratkvæðagreiðslan var gerð upp og því velt upp af hverju stjórnarandstaðan hættir ekki að tala um hana eins og hún lofaði. Skattastefna …

    Notas del episodio

    Kratinn mætir úr lærdómsríku sumarfríi með hanskana af.

    Þjóðaratkvæðagreiðslan var gerð upp og því velt upp af hverju stjórnarandstaðan hættir ekki að tala um hana eins og hún lofaði.

    Skattastefna Sjálfstæðisflokksins var tekin fyrir og af hverju í ósköpunum Vinstri græn samþykktu 330 milljarða skattalækkanir á meðan þau skiluðu 866 milljarða halla á ríkissjóði.

    Fyrsta umræða fjárlaga var dregin saman og teymið ræddi hræðslu sína við amerísku úthverfahugsjónina sem er að baki útvíkkuðum borgarmörkum.

  10. S236: Eldhúsdagsumræður, viðkvæmir hægrimenn og hækkað í ofnunum á Alþingi

    36 min

    Þáttur vikunnar er seinna á ferðinni en vanalega vegna eldhúsdagsumræðunnar á Alþingi sl. miðvikudag. Ræðumenn Samfylkingarinnar, sem voru Jóhann Páll Jóhannsson og Ása Berglind Hjálmarsdóttir, fóru þar yfir …

    Notas del episodio

    Þáttur vikunnar er seinna á ferðinni en vanalega vegna eldhúsdagsumræðunnar á Alþingi sl. miðvikudag. Ræðumenn Samfylkingarinnar, sem voru Jóhann Páll Jóhannsson og Ása Berglind Hjálmarsdóttir, fóru þar yfir farinn veg á þessu þingári og ýmis afrek sem unnist hafa á vettvangi þingsins.

    Þáttastjórnendur fóru yfir bestu og verstu frammistöðurnar. Þá sagði Ásta Guðrún sögu af krullhærðum Pírata í gjaldeyrishöftum ásamt því að fara yfir býsna góða tölfræði úr þingstörfunum. Arnar Þór fór yfir þekkta tækni til að flýta fyrir þinglokum, sem virðist hafa virkað vel hjá honum. Viðbrögð hægri snjókornanna við efnismiklum og upplýsandi Silfursþætti voru krufin til mergjar. Þórður Snær náði að ranta um hagstjórn og Þórhallur Valur lýsti andúð sinni á umræðu um Evrópusambandið.

  11. S235: Sigurjón, Áslaug Arna og borgin

    42 min

    Þátturinn hófst á óvæntri gestakomu, Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins, kíkti í stutt innlit og fór yfir innviðafélag sem er á dagskrá Alþingis í dag.Rætt var um samgönguáætlun, brotthvarf Áslaugar …

    Notas del episodio

    Þátturinn hófst á óvæntri gestakomu, Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins, kíkti í stutt innlit og fór yfir innviðafélag sem er á dagskrá Alþingis í dag.

    Rætt var um samgönguáætlun, brotthvarf Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur af Alþingi og fyrstu verk nýrrar borgarstjórnar ásamt fleiru.

  12. S234: Fjölkæri í Hafnarfirði, tryllingur yfir borginni og já við ESB!

    46 min

    Farið var yfir meirihlutamyndanir í Reykjavík og Hafnarfirði, rætt var um brakandi ferskar og lækkandi verðbólgutölur og svo um væntanlega þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið.

  13. S233: Uppgjör eftir kosningar

    43 min

    Farið var yfir sveitarstjórnarkosningarnar, rætt um kosningabaráttuna og niðurstöður í Reykjavík og á landsvísu.

  14. S232: Það er eins og allir flokkar séu jafnaðarflokkar í sveitarstjórnarkosningum

    43 min

    Í hlaðvarpsþætti vikunnar mættu þær Hildur Rós Guðbjargardóttir frambjóðandi okkar í Hafnarfirði og Vilborg Anna Strange Garðarsdóttir, frambjóðandi okkar í Garðabæ, í Kratakompuna til Arnars og Vals. Þær fóru …

    Notas del episodio

    Í hlaðvarpsþætti vikunnar mættu þær Hildur Rós Guðbjargardóttir frambjóðandi okkar í Hafnarfirði og Vilborg Anna Strange Garðarsdóttir, frambjóðandi okkar í Garðabæ, í Kratakompuna til Arnars og Vals.

    Þær fóru yfir stöðuna hjá framboðunum og hvað hefur verið á oddinum síðustu vikur. Rætt var um sund og meira sund fyrir unga sem aldna og af hverju í ósköpunum þær þurfi að fara í kvöldsund í Reykjavík. Grunnskólamálin voru líka tekin rækilega fyrir og mikilvægi úrbóta í þeim málaflokki.


    Þær stöllur voru spurðar um afstöðu sína til sameiningar Hafnarfjarðar og Garðabæjar sem og samstarfsverkefni ýmis á milli sveitarfélaganna. Hildur Rós lét gamminn geisa um næturstrætó, sem Hafnfirðingar vildu en Garðbæingar ekki, og mikilvægi þess að samgöngumál séu unnin í góðu samstarfi.

    Einnig ræddum við af hverju í ósköpunum allir flokkar láti eins og jafnaðarflokkar í kosningum en standi svo ekki við stóru orðin (lesist Framsóknarflokkurinn sérstaklega).

    Þá fór Vilborg Anna yfir stöðuna á Álftanesi og hvernig Sjálfstæðisflokkurinn hefur vanrækt það mikilvæga svæði. Að lokum vaknaði spurningin: Hvað kemst maður langt á einu skópari? Kosningabarátta er frábært tækifæri til að láta reyna á það.

  15. S231: Bensínbann til 1. maí, staðan í Árborg og auglýst eftir framtíðarsýn fyrir Reykjavík

    1 h 5 min

    Í þætti vikunnar fóru strákarnir yfir skánandi verðbólguhorfur, ársreikning Reykjavíkurborgar og yfirprjón helstu andstæðinga okkar í gagnrýni á hann. Þá ræddu þeir skattalækkun á bensíni og olíu sem tekur …

    Notas del episodio

    Í þætti vikunnar fóru strákarnir yfir skánandi verðbólguhorfur, ársreikning Reykjavíkurborgar og yfirprjón helstu andstæðinga okkar í gagnrýni á hann. Þá ræddu þeir skattalækkun á bensíni og olíu sem tekur gildi 1. maí og afhverju það er mikilvægt að geta ráðist í verðlagseftirlit á þessum markaði.


    Arnar sagði frá ferð á eilítið einhliða ráðstefnu um samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu þar sem skortur á jákvæðri framtíðarsýn fyrir höfuðborgarsvæðið var ríkjandi og einn þeirra sem sat í pallborði virtist harma það að Fossvogsdalurinn hefði ekki verið malbikaður á sínum tíma.


    Í seinni hluta þáttarins er svo rætt við Sigurjón Vídalín Guðmundsson oddvita okkar fólks í Árborg um stöðu mála í sveitarfélaginu.

  16. S230: Fyrstu skrefin tekin í sameiningu Seltjarnar- og Akraness og staðan í Ölfusi

    1 h 3 min

    Myndi eitthvað stórfyrirtæki ráða bæjarstjórann á Seltjarnarnesi sem framkvæmdastjóra með hliðsjón af rekstri og þjónustu bæjarins síðustu ár? Þessari spurningu og ýmsum öðrum er velt upp í spjalli við þau Auði …

    Notas del episodio

    Myndi eitthvað stórfyrirtæki ráða bæjarstjórann á Seltjarnarnesi sem framkvæmdastjóra með hliðsjón af rekstri og þjónustu bæjarins síðustu ár?

    Þessari spurningu og ýmsum öðrum er velt upp í spjalli við þau Auði Höllu Rögnvaldsdóttur frambjóðanda S-listans á Seltjarnarnesi og Sigurð Vopna Vatnsdal oddvita Samfylkingarinnar í Akraneskaupstað. Arnar Þór og Þórhallur Valur tóku þau tali.

    Gunnsteinn R. Ómarsson oddviti Samfylkingar og félaga í Ölfusi er svo gestur í síðari hluta þáttarins og fer yfir stöðu mála fyrir kosningar í sveitarfélaginu.

  17. S229: Allt klárt í Kópavogi með Jónasi og Eydísi

    41 min

    Oddviti Samfylkingar í Kópavogi, Jónas Már Torfason og Eydís Inga Valsdóttir sem skipar 2. sæti listans kíktu í heimsókn og ræddu málin við þá Arnar og Val.Farið var yfir nýtt útspil Samfylkingarinnar sem kynnt …

    Notas del episodio

    Oddviti Samfylkingar í Kópavogi, Jónas Már Torfason og Eydís Inga Valsdóttir sem skipar 2. sæti listans kíktu í heimsókn og ræddu málin við þá Arnar og Val.

    Farið var yfir nýtt útspil Samfylkingarinnar sem kynnt var í síðustu viku og ber heitið Tökum ábyrgð hvert á öðru en Jónas leiddi þá vinnu. Barnaskatturinn í Kópavogi er eitthvað sem þau vilja afnema og þau vilja breyta opnunartíma sundlauga.

    Kosningabaráttan sem er að hefjast var auðvitað fyrirferðamikil og nú er mánuður í herlegheitin.

  18. S228: Bjart yfir Reykjavík með Steinunni og Regínu

    42 min

    Frambjóðendurnir Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir og Regína Ásvaldsdóttir sem sitja í 3. og 7. sæti lista Samfylkingarinnar fyrir komandi borgarstjórnarkosningar komu í spjall um borgina og kosningabaráttuna …

    Notas del episodio

    Frambjóðendurnir Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir og Regína Ásvaldsdóttir sem sitja í 3. og 7. sæti lista Samfylkingarinnar fyrir komandi borgarstjórnarkosningar komu í spjall um borgina og kosningabaráttuna framundan.

    Rætt var um jákvæða hluti í borginni eins og frístundamiðstöðvar og græn svæði, reksturinn og leikskólamálin.


    Nú eru fimm vikur til kosninga og baráttan er að fara á fullt. Þær hvetja alla hlustendur Kratans til að leggja baráttunni lið!


  19. S227: Karate, húfueftirlit ríkisins og gremjupólitíkusar á jaðrinum

    1 h 15 minTemporada 2 · Episodio 27

    Krati vikunnar er þéttpakkaður af oddvitum og gæðaefni. Pétur H. Marteinsson, leiðtogi Samfylkingarinnar í Reykjavíkurborg, er gestastjórnandi í þetta sinn og fer yfir það hvernig takturinn er í framboðinu nú …

    Notas del episodio

    Krati vikunnar er þéttpakkaður af oddvitum og gæðaefni. Pétur H. Marteinsson, leiðtogi Samfylkingarinnar í Reykjavíkurborg, er gestastjórnandi í þetta sinn og fer yfir það hvernig takturinn er í framboðinu nú þegar einn og hálfur mánuður er til kosninga.

    Pétur ræðir meðal annars um Breiðholtið, mikilvægi íslenskukennslu, hvað sundlaugar og íþróttastarf sem miðja hverfa gefur Íslandi mikla sérstöðu í heiminum þegar kemur að lífsgæðum og allt sem hann er búinn að læra um karate. Svo er rætt um fjármálaáætlun, efnahagslega helgarpabbann Sjálfstæðisflokk sem er að reyna að gera allt til að láta engan taka sig alvarlega og öfugar dyggðarskreytingartilraunir Miðflokksins sem eru orðnar að aðhlátursefni og fórnarlambavæðingu gremjupólitíkusa á jaðrinum, svo fátt eitt sé nefnt.

    Í síðari hluta þáttarins mætir Kjartan Atli Kjartansson, oddviti Samfylkingarinnar í Garðabæ og Álftanesgoðsögn, í viðtal við Arnar Þór Ingólfsson og segir honum frá því hvað hann ætli að gera til að kratavæða Garðabæ.

  20. S226: Eru ekki allir forvitnir?

    53 minTemporada 2 · Episodio 26

    Um helgina fór fram afar vel heppnaður flokksstjórnarfundur.Hvað er flokkstjórnarfundur? Við fórum yfir það og stæla í stjórnarandstöðunni varðandi vindmyllur og bændamóttökur ásamt almennri …

    Notas del episodio

    Um helgina fór fram afar vel heppnaður flokksstjórnarfundur.Hvað er flokkstjórnarfundur? Við fórum yfir það og stæla í stjórnarandstöðunni varðandi vindmyllur og bændamóttökur ásamt almennri Evrópu-umræðu.


    Viðmælandinn í dag er oddviti Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ, Ólafur Ingi Óskarsson.

  21. S225: Stýrivaxtahækkun og ein lengsta umræða um fyrri þingsályktunartillögu í sögunni

    54 min

    Í nýjasta þætti Kratans förum við yfir helstu mál vikunnar. Seðlabankinn hækkaði stýrivexti bæði vegna innri og ytri þátta. Þingsályktun um þjóðaratkvæðagreiðslu var ein sú lengsta í sögunni og Evrópumálin því …

    Notas del episodio

    Í nýjasta þætti Kratans förum við yfir helstu mál vikunnar. Seðlabankinn hækkaði stýrivexti bæði vegna innri og ytri þátta. Þingsályktun um þjóðaratkvæðagreiðslu var ein sú lengsta í sögunni og Evrópumálin því aðeins rædd aftur.


    Í síðari hluta þáttar má heyra viðtal Arnars Þórs við oddvita Samfylkingarinnar á Akureyri.


  22. S224: Stjórnarandstaða sem óttast að sumarfríið styttist

    55 min

    Þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi viðræður um aðild að Evrópusambandinu hefur verið sett á dagskrá þann 29. ágúst. Stjórnarandstaðan er hrædd um sumarfríið sitt. Við fórum yfir hegðun og atferli …

    Notas del episodio

    Þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi viðræður um aðild að Evrópusambandinu hefur verið sett á dagskrá þann 29. ágúst. Stjórnarandstaðan er hrædd um sumarfríið sitt. Við fórum yfir hegðun og atferli stjórnarandstöðunnar undanfarna daga ásamt því að ræða um kosti Evrópusambandsins.

    Í síðari hluta þáttar má heyra viðtal við Kristinn Ólafsson “Seltjarnarneskempu” sem leiðir S listann þar.


  23. S223: Fylgiskannanahlaðborð, ævintýri í kjördæmaviku og GÁS ræðir Kratabylgjuna í Hafnarfirði

    1 h 7 minTemporada 2 · Episodio 22

    Í þætti dagsins fórum við yfir þær kannanir sem birtar voru í síðustu viku, lögðum mat á niðurstöðurnar og ræddum nýjustu tíðindi af framboðslistum. Þá sérstaklega ferskleika Framsóknar og framboð Brynjars …

    Notas del episodio

    Í þætti dagsins fórum við yfir þær kannanir sem birtar voru í síðustu viku, lögðum mat á niðurstöðurnar og ræddum nýjustu tíðindi af framboðslistum. Þá sérstaklega ferskleika Framsóknar og framboð Brynjars Níelssonar sem bætti síðast við sig fylgi árið 2017.

    Björgunarsveitin Kofri í Súðavík fær „shoutout“ fyrir frækna frammistöðu við björgun þingmanna í Skötufirði í síðustu viku og sú saga sögð frá fyrstu hendi. Þórður Snær sagði frá fundinum þegar Davíð Oddsson var kynntur sem ritstjóri Morgunblaðsins.

    Í seinni hluta þáttar mætti Guðmundur Árni Stefánsson, varaformaður flokksins og oddviti í Hafnarfirði, og fór yfir víðan völl. Meðal annars framboðslistann í Hafnarfirði, helstu málefni í bænum, handabandið hans Obama og hvernig hann öðlaðist virðingu Davíðs Oddssonar.


  24. S222: Siðrof í kjördæmaviku

    36 minTemporada 2 · Episodio 21

    Það er kjördæmavika og þingmenn og starfsfólk því á fleygiferð um kjördæmin. Farið var yfir dagskrána framundan og það sem hefur drifið á daga okkar undanafarið.Rætt var um Vinstrið, Brynjar Nielsson og Loga …

    Notas del episodio

    Það er kjördæmavika og þingmenn og starfsfólk því á fleygiferð um kjördæmin. Farið var yfir dagskrána framundan og það sem hefur drifið á daga okkar undanafarið.

    Rætt var um Vinstrið, Brynjar Nielsson og Loga Einarsson sem virðist hafa komið heim á töfrateppi frá Indlandi.

  25. S221: Er Framsókn vídjóleiga nútímans?

    56 minTemporada 2 · Episodio 21

    Í Kratavarpinu þessa vikuna er rætt ítarlega um nýtt formannskjör í Framsóknarflokknum, hvort formaður stjórnmálaflokks geti virkilega setið utan þings árum saman og því velt upp hvort að það hlutskipti að …

    Notas del episodio

    Í Kratavarpinu þessa vikuna er rætt ítarlega um nýtt formannskjör í Framsóknarflokknum, hvort formaður stjórnmálaflokks geti virkilega setið utan þings árum saman og því velt upp hvort að það hlutskipti að verða formaður í þeim flokki sé sambærilegt og að erfa vídjóleigu árið 2026. Önnur framboðsmál eru rædd, Píratahornið er á sínum stað, velt er upp hvert Sjálfstæðisflokkurinn ætti helst að flytja og línur lagðar fyrir kjördæmaviku.


    Í seinni hluta þáttarins er rætt við Skúla Helgason borgarfulltrúa um þær nýjungar í leikskólamálum sem kynntar voru í höfuðborginni í vikunni og hafa mælst afar vel fyrir.

  26. S220: Gusumeistarar, nýju jógakennararnir og Framsókn í sjálfsmyndarkrísu

    46 minTemporada 2 · Episodio 20

    Í Kratanum í dag er rætt um prófkjör í Kópavogi og áhyggjur af verðskrárhækkunum í gusum landsins. Miðflokkurinn ber á góma og misheppnaðar tilraunir Framsóknar til að vera "hip og kúl".Í seinni hluta þáttarins …

    Notas del episodio

    Í Kratanum í dag er rætt um prófkjör í Kópavogi og áhyggjur af verðskrárhækkunum í gusum landsins. Miðflokkurinn ber á góma og misheppnaðar tilraunir Framsóknar til að vera "hip og kúl".


    Í seinni hluta þáttarins má heyra viðtal Arnars Þórs Ingólfssonar við Jónas Má Torfason, oddvita Samfylkingarinnar í Kópavogi, þar sem farið er nánar yfir prófkjörið og næstu skref.

  27. S219: Kjósendur elska Samfylkinguna sína (staðfest)

    48 min

    Í Kratanum í dag er farið raunveruleikatengt yfir stöðu mála í efnahagsmálum, þann gríðarlega stuðning sem Samfylkingin er með í landsmálunum og mjög sterka stöðu flokksins í borginni eftir vel heppnað …

    Notas del episodio

    Í Kratanum í dag er farið raunveruleikatengt yfir stöðu mála í efnahagsmálum, þann gríðarlega stuðning sem Samfylkingin er með í landsmálunum og mjög sterka stöðu flokksins í borginni eftir vel heppnað prófkjör. Þá er farið á dýptina í umræðu um hvort Íslendingar séu meðvitaðir neytendur og þáttastjórnendur skilgreina sig út frá þeim menntaskóla þeir voru í.

    Í seinni hluta þáttarins er rætt við Guðnýju Birnu Guðmundsdóttur, oddvita Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ.

  28. S218: Verðandi borgarstjóri Reykjavíkur og nýliðið flokksval Samfylkingarinnar

    52 minTemporada 2 · Episodio 18

    Í þættinum fóru Sonja, Ásta, Þórður og Valur yfir vikuna. Þar bar helst á góma flokksvalið síðasta laugardag. Farið var yfir framboð til sveitarstjórnarkosninga hjá Viðreisn og yfirferð á nýlegri könnun …

    Notas del episodio

    Í þættinum fóru Sonja, Ásta, Þórður og Valur yfir vikuna. Þar bar helst á góma flokksvalið síðasta laugardag. Farið var yfir framboð til sveitarstjórnarkosninga hjá Viðreisn og yfirferð á nýlegri könnun Maskínu. Í síðari hluta þáttar má heyra viðtal við Pétur H. Marteinsson, verðandi borgarstjóra Reykjavíkur.

  29. S217: Vinstrið sem gekk í Sönnu og hægrið sem ætlar í stríð um Borgarlínu

    46 min

    Arnar, Ásta, Sonja og Þórður fóru yfir mál sem gengið hafa á undanfarna daga. Rætt var um hálku og handbolta, tilraun vinstrisins til að sameinast og sýn Miðflokks og sumra Sjálfstæðismanna á Borgarlínuna. Í …

    Notas del episodio

    Arnar, Ásta, Sonja og Þórður fóru yfir mál sem gengið hafa á undanfarna daga. Rætt var um hálku og handbolta, tilraun vinstrisins til að sameinast og sýn Miðflokks og sumra Sjálfstæðismanna á Borgarlínuna. Í síðari hluta þáttarins má heyra viðtal við Guðmund Ara Sigurjónsson um menntamálin.

  30. S216: Sveitarstjórnarkosningar og kostnaður hvert atkvæði

    34 minTemporada 2 · Episodio 16

    Kratinn er mættur aftur eftir jólafrí og í þessari viku voru þau þrjú, Arnar Þór Ingólfsson, Sonja Huld Guðjónsdóttir og Þórður Snær Júlíusson. Þau ræddu komandi sveitarstjórnarkosningar, breytingar á …

    Notas del episodio

    Kratinn er mættur aftur eftir jólafrí og í þessari viku voru þau þrjú, Arnar Þór Ingólfsson, Sonja Huld Guðjónsdóttir og Þórður Snær Júlíusson. Þau ræddu komandi sveitarstjórnarkosningar, breytingar á ráðherraskipan og kostnað við hvert atkvæði hjá flokkunum í kosningabaráttunni í hittiðfyrra en stjórnarandstaðan greiddi þrefalt meira fyrir hvert atkvæði en flokkar í stjórn.

Aquí están los 40 episodios más recientes de 49. Los anteriores están en el feed del podcast.

Flekaskil

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir og Dagur B. Eggertsson · 31 episodios

¿Es tu podcast?

Confírmalo con una entrada en tu feed: aquí recibes un código, lo añades como podcast:txt en el canal de tu feed y nosotros lo comprobamos. Después tu podcast aparecerá como «verificado» en SoundNode.

Ajustes

Visualización

Idioma

Determina qué emisoras ves primero en la página de inicio.

Historial

Las emisoras y episodios escuchados recientemente y tus últimas búsquedas solo se guardan en este navegador.

Avisos

Un breve aviso cuando un pódcast que sigues tiene un episodio nuevo. Puedes desactivar pódcast concretos con la campana de su página.

Cuenta

Guarda tus favoritos: en la app y en la web.

Atajos de teclado

/
Abrir búsqueda
Espacio
Reproducir o pausar
← →
En el reproductor: 15 s atrás, 30 s adelante (episodios) · en una fila: siguiente tarjeta
↑ ↓
En una fila: destino dentro de la tarjeta
Inicio / Fin
En una fila: primera o última tarjeta
Esc
Cerrar ventana o menú
?
Este resumen
Reproduciendo ahora

Ir a la emisora

A continuación

    Añade episodios con «A continuación»: sonarán después del episodio actual.