
Leikjavarpið – Hlaðvarp Nörd Norðursins
- Episodios
- 77
- Se publica
- cada dos semanas
- Último episodio
- 17 Nov 2026
Sobre el podcast
Hlaðvarp þar sem fjallað er um það helsta úr heimi tölvuleikja. Umsjónarmenn þáttar eru þeir Bjarki Þór Jónsson, Daníel Rósinkrans og Sveinn Aðalsteinn.
Episodios 77
Leikjavarpið #75 – GTA VI upphitun og The Legend of Zelda: Ocarina of Time
Hitum upp fyrir útgáfu Grand Theft Auto VI og ræða um allt milli himins og jarðar, eins og spenninginn sem fylgir útgáfunni, ýmiskonar fróðleik eins og stærðina á kortinu, útgáfukvöld Elko, kóða í boxi og …
Notas del episodio
Hitum upp fyrir útgáfu Grand Theft Auto VI og ræða um allt milli himins og jarðar, eins og spenninginn sem fylgir útgáfunni, ýmiskonar fróðleik eins og stærðina á kortinu, útgáfukvöld Elko, kóða í boxi og fleira. Einnig er fjallað um hvað foreldrar þurfa að hafa í huga við útgáfu GTA VI - og hvort samband við tölvuleikjakarakter geti mögulega flokkast sem framhjáhald í raunveruleikanum!?
Annað stórt viðfangsefni þáttarins er The Legend of Zelda: Ocarina of Time. Nintendo sérfræðingurinn Daníel Rósinkrans segir sína skoðun á leiknum en hann er mikill aðdáandi Zelda-leikjaseríunnar og búinn að spila alla leikina. Stenst leikurinn væntingar sem einn af betri Zelda-leikjum? Hvaða breytingar er að finna á milli upprunalega leiksins frá árinu 1998 og nýja leiksins (sem kemur eingöngu út á Switch 2)?
Leikjavarpið #74 – Spennandi leikjaútgáfa í nóvember og gervigreind part 2
Sveinn, Bjarki og Daníel fara yfir það helsta úr heimi tölvuleikja og ræða komandi leikjamánuð. Nóvember mun bjóða upp á svakalega leikjaútgáfu en í þeim mánuði koma þrír risaleikir: The Legend of Zelda …
Notas del episodio
Sveinn, Bjarki og Daníel fara yfir það helsta úr heimi tölvuleikja og ræða komandi leikjamánuð. Nóvember mun bjóða upp á svakalega leikjaútgáfu en í þeim mánuði koma þrír risaleikir: The Legend of Zelda: Ocarina of Time endurgerðin, Grand Theft Auto VI og World of Warcraft: Forever.
Stóra umræðuefnið er - aftur - gervigreindin. Í síðasta þætti Leikjavarpsins var rætt um fjölbreytt áhrif gervigreindar á heim tölvuleikja og höldum við þeirri umræðu áfram í þessum þætti. Margir Steam-notendur kvörtuðu yfir gríðarlegu magni AI-leikja á Steam Next Fest og spurning hvort það þurfi ekki að herða gæðaeftirlit eða merkja AI-leiki með einhverjum hætti. Og hvar drögum við línuna hvaða leikir flokkast sem AI-leikir og hverjir ekki?
Daníel kláraði The Blood of Dawnwalker og Bjarki er að spila Star Wars: Galactic Racer þessa dagana. Fjallað stuttlega um leikina tvo í þættinum. Einnig er rætt er um fjölbreytt fréttaefni, þar á meðal lokun BioWare leikjafyrirtæksins, Sýndarvík og væntanlega afmælisveislu Tölvuleikjaspjallsins.
Umsjónarmenn eru Daníel Rósinkrans, Sveinn Aðalsteinn og Bjarki Þór
Leikjavarpið #73 - Gervigreind, leikjaútgáfan og meira af Control Resonant
Farið er yfir leikjaútgáfuna í nýjasta þætti Leikjavarpsins en leikir á borð við Hellraiser og Star Wars: Galactic Racer komu út fyrir skemmstu. Fleiri og fleiri leikjafyrirtæki nota gervigreind í auknum mæli …
Notas del episodio
Farið er yfir leikjaútgáfuna í nýjasta þætti Leikjavarpsins en leikir á borð við Hellraiser og Star Wars: Galactic Racer komu út fyrir skemmstu. Fleiri og fleiri leikjafyrirtæki nota gervigreind í auknum mæli, nýverið tilkynnti Capcom að þeir ætla að nota gervigreind í auknum mæli og það sama má segja um Google og Unity. Er þetta jákvæð eða neikvæð þróun? Fjallað er nánar um Control Resonant og tekið fram hvað stóð upp úr og hvað hefði mátt fara betur.
Allt þetta og fleira í nýjasta þætti Leikjavarpisins!
Umsjónarmenn eru Daníel Rósinkrans, Sveinn Aðalsteinn og Bjarki Þór
Leikjavarpið #72 – Wolverine, Control Resonant og Resident Evil bíómyndin
Sveinn, Daníel og Bjarki ræða um það helsta úr heimi tölvuleikja. Sveinn rýnir í nýja Wolverine leikinn og segir að leikurinn sé töluvert betri en margir vilja meina og að sum gagnrýni sem leikurinn hefur …
Notas del episodio
Sveinn, Daníel og Bjarki ræða um það helsta úr heimi tölvuleikja. Sveinn rýnir í nýja Wolverine leikinn og segir að leikurinn sé töluvert betri en margir vilja meina og að sum gagnrýni sem leikurinn hefur fengið sé að hluta til ósanngjörn. Bjarki er byrjaður á Control Resonant og segir frá fyrstu hughrifum sínum á leiknum eftir að hafa spilað fyrstu tvo klukkutímana. Daníel er í skýjunum - eða öllu heldur geimnum - eftir að hafa klárað Outer Wilds og aukapakkann.
Nýlegar leikjafréttir eru einnig til umræðu. Má þar nefna nýjan heim í Minecraft, breytingar hjá Bungie, stöðuna hjá Microsoft og Halo svo eitthvað sé nefnt.
Í lok þáttar fjöllum við um nýju Resident Evil bíómyndina en þeir Sveinn og Daníel mættu á sérstaka forsýningu í boði GameTíví.
Leikjavarpið #71 - Zelda 40 ára, BlizzCon og Onimusha: Way of the Sword
Farið er um víðan völl í nýjasta þætti Leikjavarpsins. Fyrir nokkrum dögum hélt Nintendo ekki eina - heldur tvær leikjakynningar. Í annari þeirra var endurgerðin af The Legend of Zelda: Ocarina of Time kynnt …
Notas del episodio
Farið er um víðan völl í nýjasta þætti Leikjavarpsins. Fyrir nokkrum dögum hélt Nintendo ekki eina - heldur tvær leikjakynningar. Í annari þeirra var endurgerðin af The Legend of Zelda: Ocarina of Time kynnt nokkuð ítarlega í tilefni 40 ára afmælis The Legend of Zelda leikjaseríunnar. Nintendo kynntir fleiri leiki, þar á meðal Kirby and the World Beyond og Metroid Ravenous, ásamt varningi eins og amiibos og sérstakri Zelda útgáfu af Switch 2 leikjatölvunni.
Daníel og Sveinn ræða um Onimusha: Way of the Sword sem þeir hafa verið að spila undanfarna daga. Við snertum aðeins á BlizzCon þar sem stór World of Warcraft uppfærsla var kynnt til sögunnar, Diablo V og nýr væntanlegur StarCraft skotleikur. Sveinn prófaði nýja uppfærslu á Xbox sem leyfir Xbox eigendum að fá stafrænt eintak af þeim leikjum sem spilarar eiga í diskaformi, Sveinn segir frá hvernig sú tækni virkar.
Allt þetta og miklu fleira í nýjasta þætti Leikjavarpsins!
Leikjavarpið #70 - GTA VI sýnishornið og diskalaus framtíð Sony
Leikjavarpið er mætt aftur til leiks eftir ljúft og gott sumarfrí! Í þættinum rýnum við í nýjasta sýnishornið úr Grand Theft Auto VI sem var frumsýnt á Netflix á dögunum, þar er um að ræða yfir 20 mínútur af …
Notas del episodio
Leikjavarpið er mætt aftur til leiks eftir ljúft og gott sumarfrí! Í þættinum rýnum við í nýjasta sýnishornið úr Grand Theft Auto VI sem var frumsýnt á Netflix á dögunum, þar er um að ræða yfir 20 mínútur af nýju efni. Einnig tökum við fyrir ákvörðun Sony um diskalausa framtíð fyrir PlayStation, breytir það einhverju eða er algjör óþarfi að bjóða upp á diska? Daníel Rósinkrans, Bjarki Þór og Sveinn Aðalsteinn segja sínar skoðanir á málinu.
Þetta og margt fleira í sjötugasta þætti Leikjavarpsins!
Leikjavarpið #69 - Fyrstu hughrif á Crimson Desert, DLSS 5 umræða og Pokopia
Daníel Rósinkrans og Sveinn Aðalsteinn ræða um allt það helsta úr heimi tölvuleikja. Þeir ræða tölvuleikinn Crimson Desert og segja frá fyrstu hughrifum á leiknum, taka góða og nauðsynlega umræðu um DLSS 5 …
Notas del episodio
Daníel Rósinkrans og Sveinn Aðalsteinn ræða um allt það helsta úr heimi tölvuleikja. Þeir ræða tölvuleikinn Crimson Desert og segja frá fyrstu hughrifum á leiknum, taka góða og nauðsynlega umræðu um DLSS 5, tæknina frá Nvidia, og síðast en ekki síst fjalla um Pokopia - nýja Pokémon leikinn sem hefur notið mikilla vinsælda á Switch 2 leikjatölvunni. Allt þetta og fleira til í nýjasta þætti Leikjavarpsins!
Leikjavarpið #68 - God of War Sons of Sparta og Phil Spencer kveður Xbox
Daníel Rósinkrans og Bjarki Þór fara yfir það helsta úr heimi tölvuleikja. Daníel segir okkur frá God of War Sons of Sparta sem er heldur óhefðbundinn God of War leikur í platformer-stíl. Einnig er rætt um …
Notas del episodio
Daníel Rósinkrans og Bjarki Þór fara yfir það helsta úr heimi tölvuleikja. Daníel segir okkur frá God of War Sons of Sparta sem er heldur óhefðbundinn God of War leikur í platformer-stíl. Einnig er rætt um stórar fréttir úr heimi Microsoft Xbox og Sony PlayStation; Phil Spencer kveður Microsoft og Sony lokar Bluepoint Games leikjastúdíóinu. Ýmislegt fleira er til umræðu, þar á meðal byrjendaráð fyrir nýjan Switch 2 eiganda, Pokémon fréttir, leikir í spilun, nýr leikur væntanlegur frá nýju íslensku leikjafyrirtæki, upphitun fyrir gjafaleik og margt fleira.
Leikjavarpið #67 - State of Play og Nioh 3
Daníel Rósinkrans, Steinar, Bjarki og Sveinn fara yfir allt það helsta úr heimi tölvuleikja í þætti 67 af Leikjavarpinu. Okkar helsti Nintendo sérfræðingur fer yfir það helsta frá Nintendo Direct: Partner …
Notas del episodio
Daníel Rósinkrans, Steinar, Bjarki og Sveinn fara yfir allt það helsta úr heimi tölvuleikja í þætti 67 af Leikjavarpinu. Okkar helsti Nintendo sérfræðingur fer yfir það helsta frá Nintendo Direct: Partner Showcase þar sem væntalegir Switch og Switch 2 leikir voru kynntir. Steinar og Sveinn rýna í Nioh 3 og fjalla um nýjunga, helstu kosti og galla leiksins ásamt því að segja frá sínu áliti. Að lokum rennum við yfir leiki sem voru kynntir á State of Play kynningu Sony, þar sem við fengum meðal annars nýjar God of War fréttir! Einnig förum við yfir það helsta sem við erum að spila þessa dagana, ræðum Cairn stuttlega, minnumst á nýja Diablo II viðbót og margt fleira.
Leikjavarpið #66 - Xbox Developer Direct og Ólafur Darri í God of War
Sveinn, Rósinkrans og Bjarki fara yfir það helsta og heitasta úr heimi tölvuleikjanna í 66. þætti Leikjavarpsins. Stóra viðfangsefni þáttarins er Xbox Developer Direct leikjakynningin sem fór í loftið 22 …
Notas del episodio
Sveinn, Rósinkrans og Bjarki fara yfir það helsta og heitasta úr heimi tölvuleikjanna í 66. þætti Leikjavarpsins. Stóra viðfangsefni þáttarins er Xbox Developer Direct leikjakynningin sem fór í loftið 22. janúar síðasliðinn þar sem fjórir væntanlegir leikir fengu ítarlega kynningu, þar á meðal leikurinn sem strákarnir bíða spenntir eftir - FABLE! Rætt er um nýlega og væntanlega sjónvarpsþætti sem byggja á tölvuleikjum í kjölfar þess að tilkynnt var að Ólafur Darri mun fara með hlutverk Þórs í God of War sjónvarpsþáttum! Það gleymdist að nefna nokkra áhugaverða leikjatitla í seinasta þætti þegar farið var yfir væntanlega tölvuleiki á árinu 2026, þau mistök eru plástruð í lok þáttar <3
Ást, friður og tölvuleikir.
Leikjavarpið #65 - Væntanlegir leikir 2026
Daníel Rósinkrans, Sveinn Aðalsteinn og Bjarki Þór fara yfir það sem er væntanlegt á árinu sem var að hefjast. Þar á meðal má nefna leiki á borð við GTA VI og nýjan James Bond leik. Strákarnir ræða einnig hvað …
Notas del episodio
Daníel Rósinkrans, Sveinn Aðalsteinn og Bjarki Þór fara yfir það sem er væntanlegt á árinu sem var að hefjast. Þar á meðal má nefna leiki á borð við GTA VI og nýjan James Bond leik. Strákarnir ræða einnig hvað stóð upp úr á árinu sem var að líða og hvaða leikir voru spilaðir yfir jólahátíðina. Þetta og margt fleira í þætti #65 af Leikjavarpinu!
Leikjavarpið #64 - Allt það helsta frá The Game Awards 2025
Við förum yfir allt það helsta frá einni stærstu tölvuleikjaverðlaunahátíð heims - The Game Awards! Rennum yfir hvaða leikir unnu í stærstu verðlaunaflokkunum en hlutverkaleikurinn Clair Obscur: Expedition 33 …
Notas del episodio
Við förum yfir allt það helsta frá einni stærstu tölvuleikjaverðlaunahátíð heims - The Game Awards! Rennum yfir hvaða leikir unnu í stærstu verðlaunaflokkunum en hlutverkaleikurinn Clair Obscur: Expedition 33 vann flest verðlaun þetta árið. Hvað stóð upp úr og hvað vantaði? Einnig segjum við frá helstu leikjakynningum kvöldsins þar sem nýir leikir voru kynntir til sögunnar, þar á meðal nýr væntanlegur leikur frá Larian Studios, leikjafyrirtækinu sem gerði Baldur's Gate 3. Þetta og margt margt fleira.
Leikjavarpið #63 - Icelandic Game Fest og The Game Awards
Bjarki og Sveinn mættu á Icelandic Game Fest tölvuleikjaveisluna í Arena og segja frá því sem stóð upp úr en þar voru fjölmargir leikir frá íslenskum leikjastúdíóum til sýnis. Búið er að tilkynna hvaða leikir …
Notas del episodio
Bjarki og Sveinn mættu á Icelandic Game Fest tölvuleikjaveisluna í Arena og segja frá því sem stóð upp úr en þar voru fjölmargir leikir frá íslenskum leikjastúdíóum til sýnis. Búið er að tilkynna hvaða leikir eru tilefndir til The Game Awards og er farið yfir valda verðlaunaflokka en Clair Obscur: Expedition 33 er tilnefndur til flestra verðlauna. Fleira er til umræðu eins og leikir í spilun, Golden Joystick Awards og margt fleira.
Leikjavarpið #62 - Steam Machine og GTA VI seinkað
Leikjavarpið vaknar aftur til lífsins eftir ljúfan (og aðeins of langan) sumardvala. Þeir Daníel Rósinkrans, Sveinn Aðalsteinn og Bjarki Þór ræða um það helsta úr heimi tölvuleikja í 62. þætti Leikjavarpsins …
Notas del episodio
Leikjavarpið vaknar aftur til lífsins eftir ljúfan (og aðeins of langan) sumardvala. Þeir Daníel Rósinkrans, Sveinn Aðalsteinn og Bjarki Þór ræða um það helsta úr heimi tölvuleikja í 62. þætti Leikjavarpsins. Helsta umræðuefni þáttarins er nýr vélbúnaður sem Valve kynnti til sögunnar fyrir skemmstu - Steam Machine, Steam Controller og Steam Frame. Mun Valve breyta leikjatölvumarkaðnum eins og við þekkjum hann? Hvaða áhrif mun nýja tölvan hafa á til dæmis Xbox leikjatölvuna frá Microsoft? …Leikjavarpið #61 - Switch 2 útgáfa, Elden Ring Nightreign og Clair Obscur: Expedition 33
Bjarki, Steinar og Sveinn þurrka rykið af hljóðnemunum og ræða allt það helsta úr heimi tölvuleikja. Meðal annars er rætt um útgáfu nýjustu leikjatölvu Nintendo, Switch 2, og ákveðinn fídus sem virðist ekki …
Notas del episodio
Bjarki, Steinar og Sveinn þurrka rykið af hljóðnemunum og ræða allt það helsta úr heimi tölvuleikja. Meðal annars er rætt um útgáfu nýjustu leikjatölvu Nintendo, Switch 2, og ákveðinn fídus sem virðist ekki virka hér á Íslandi í þeirri tölvu. Bjarki og Sveinn heimsóttu íslenska leikjafyrirtækið Myrkur Games á dögunum og segja frá leiknum Echoes of the End sem er nýr hasar- og ævintýraleikur sem er væntanlegur í sumar. …Leikjavarpið #60 - Nintendo Switch 2
Sextugi þáttur Leikjavarpsins er helgaður Nintendo Switch 2. Á dögunum hélt Nintendo nokkuð ítarlega kynningu á Switch 2 þar sem farið var yfir öll helstu atriði. Daníel, Sveinn og Bjarki fara yfir það helsta …
Notas del episodio
Sextugi þáttur Leikjavarpsins er helgaður Nintendo Switch 2. Á dögunum hélt Nintendo nokkuð ítarlega kynningu á Switch 2 þar sem farið var yfir öll helstu atriði. Daníel, Sveinn og Bjarki fara yfir það helsta og ræða tæknileg atriði, leikjaúrval, nýja möguleika, verð, tollastríð og margt fleira.
Tónlist:
"Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com)
Licensed under Creative Commons: By Attribution 4.0 License
http://creativecommons.org/licenses/by/4.0/Leikjavarpið #59 - Assassin’s Creed Shadows og næsta Xbox leikjatölvan
Í nýjasta þætti Leikjavarpsins fjalla þeir Sveinn, Rósinkrans og Bjarki um allt það helsta úr heimi tölvuleikja. Við fjöllum ítarlega um Assassin's Creed Shadows sem er nýjasti leikurinn í hinni frægu AC-seríu …
Notas del episodio
Í nýjasta þætti Leikjavarpsins fjalla þeir Sveinn, Rósinkrans og Bjarki um allt það helsta úr heimi tölvuleikja. Við fjöllum ítarlega um Assassin's Creed Shadows sem er nýjasti leikurinn í hinni frægu AC-seríu og Sveinn hefur verið að spila undanfarna daga. Þátturinn inniheldur enga spilla! Einnig ræðum við um Lost Records: Bloom & Rage sem Rósinkrans byrjaði nýlega spila að spila og Unnur Sól gagnrýndi á vef Nörd Norðursins. …Leikjavarpið #58 - Avowed og State of Play
Í þættinum segir Sveinn okkur frá hlutverkaleiknum Avowed sem kom út fyrr í þessum mánuði en hann hefur verið að spila leikinn og deilir sinni skoðun á honum. Einnig förum við yfir allt það helsta frá State of …
Notas del episodio
Í þættinum segir Sveinn okkur frá hlutverkaleiknum Avowed sem kom út fyrr í þessum mánuði en hann hefur verið að spila leikinn og deilir sinni skoðun á honum. Einnig förum við yfir allt það helsta frá State of Play kynningunni sem haldin var þann 12. febrúar. Þar voru væntanlegir leikir á PlayStation kynntir, þar á meðal er nýr leikur frá Housemarque (þeim sömu og gerðu Returnal) og endurbætt útgáfa af zombí-leiknum Days Gone. Auk þess ræðum við um Mario Con sem haldið verður í Next Level Gaming í Egilshöll í mars og fleira skemmtilegt.
Leikjavarpið #57 - Kingdom Come: Deliverance II og PSN aftengist
Bjarki, Sveinn og Daníel fara yfir það helsta sem stóð upp úr í leikjaheiminum síðastliðnar tvær vikur. Helstu viðfangsefni þáttarins eru fyrstu hughrif á miðaldar-hlutverkaleiknum Kingdom Come: Deliverance II …
Notas del episodio
Bjarki, Sveinn og Daníel fara yfir það helsta sem stóð upp úr í leikjaheiminum síðastliðnar tvær vikur. Helstu viðfangsefni þáttarins eru fyrstu hughrif á miðaldar-hlutverkaleiknum Kingdom Come: Deliverance II, frestun á næsta Football Manager og PSN vesenið mikla sem varð til þess að fjöldi spilara gat ekki spilað netleiki á PlayStation leikjatölvunni sinni. …Leikjavarpið #56 - Væntanlegir leikir 2025
Leikjvarpið fer yfir allt það helsta sem er væntanlegt á leikjaárinu 2025 - nýr GTA leikur! Mafia! Doom! Hobbita-kósíleikur! og margt margt fleira. Einnig er fjallað um nýjustu fréttir sem tengjast útgáfu næstu …
Notas del episodio
Leikjvarpið fer yfir allt það helsta sem er væntanlegt á leikjaárinu 2025 - nýr GTA leikur! Mafia! Doom! Hobbita-kósíleikur! og margt margt fleira. Einnig er fjallað um nýjustu fréttir sem tengjast útgáfu næstu leikjatölvu Nintendo: Switch 2.
Leikjavarpið #55 - Leikir ársins 2024 og Switch 2 orðrómar
Leikjavarpið hefur göngu sína aftur eftir jólafrí. Í þessum fyrsta þætti ársins fara þeir Daníel Rósinkrans, Bjarki Þór, Sveinn Aðalsteinn og Steinar Logi yfir þá leiki sem stóðu upp úr á árinu. Þar má nefna …
Notas del episodio
Leikjavarpið hefur göngu sína aftur eftir jólafrí. Í þessum fyrsta þætti ársins fara þeir Daníel Rósinkrans, Bjarki Þór, Sveinn Aðalsteinn og Steinar Logi yfir þá leiki sem stóðu upp úr á árinu. Þar má nefna leiki á borð við Astro Bot, Balatro, Like a Dragon: Infinite Wealth og Silent Hill II. Leikjalistann í heild sinni má finna á heimasíðunni okkar. CES tæknisýningunni í Bandaríkjunum lauk fyrir nokkrum dögum en þar fóru af stað orðrómar um útgáfu Switch 2. …Leikjavarpið #54 – Hápunktar frá Game Awards og Indiana Jones and the Great Circle
Sveinn Aðalsteinn, Daníel Rósinkrans og Bjarki Þór fara yfir allt það helsta úr heimi tölvuleikja í 54. þætti Leikjavarpsins. Rætt er um hápunkta frá The Game Awards 2024 þar sem farið er yfir hvaða leikir unnu …
Notas del episodio
Sveinn Aðalsteinn, Daníel Rósinkrans og Bjarki Þór fara yfir allt það helsta úr heimi tölvuleikja í 54. þætti Leikjavarpsins. Rætt er um hápunkta frá The Game Awards 2024 þar sem farið er yfir hvaða leikir unnu í stóru verðlaunaflokkunum og síðast en ekki síst hvaða nýju leikir voru kynntir á verðlaunahátíðinni, þar má meðal annars nefna nýjan The Witcher leik! …Leikjavarpið #53 - The Game Awards og S.T.A.L.K.E.R. 2
Daníel, Sveinn og Bjarki ræða það heitasta úr heimi tölvuleikja í þessum þætti Leikjavarpsins. Við förum yfir þá leiki sem tilnefndir eru til verðlauna á The Game Awards 2024, þar má nefna leiki á borð við …
Notas del episodio
Daníel, Sveinn og Bjarki ræða það heitasta úr heimi tölvuleikja í þessum þætti Leikjavarpsins. Við förum yfir þá leiki sem tilnefndir eru til verðlauna á The Game Awards 2024, þar má nefna leiki á borð við Astro Bot, Hellblade II og Final Fantasy VII: Rebirth. Sveinn segir okkur frá því hvernig PlayStation Portal virkar eftir nýja uppfærslu sem opnar fyrir þann möguleika að streyma tölvuleikjum beint í gegnum skýið í stað PlayStation 5. …Leikjavarpið #52 - PlayStation 5 Pro og umdeild Xbox auglýsing
Bjarki Þór, Daníel Rósinkrans og Sveinn Aðalsteinn ræða allt það helsta úr heimi tölvuleikja. Stutt er síðan að PlayStation 5 Pro leikjatölvan kom á markað og í þættinum er ítarleg umfjöllun á tölvunni. Við …
Notas del episodio
Bjarki Þór, Daníel Rósinkrans og Sveinn Aðalsteinn ræða allt það helsta úr heimi tölvuleikja. Stutt er síðan að PlayStation 5 Pro leikjatölvan kom á markað og í þættinum er ítarleg umfjöllun á tölvunni. Við þökkum Sony og Senu fyrir aðgang að tölvunni til rýnis. Nördarnir segja sínar skoðanir á tölvunni eftir prófanir og fara yfir helstu kosti og galla. …Leikjavarpið #51 - Black Ops 6 og Dragon Age: The Veilguard
Sveinn Aðalsteinn, Daníel Rósinkrans og Bjarki Þór fara yfir það helsta úr heimi tölvuleikja. Í þættinum er m.a. fjallað um Call of Duty: Black Ops 6 og Dragon Age: The Veilguard. Auk þess er fjallað um …
Notas del episodio
Sveinn Aðalsteinn, Daníel Rósinkrans og Bjarki Þór fara yfir það helsta úr heimi tölvuleikja. Í þættinum er m.a. fjallað um Call of Duty: Black Ops 6 og Dragon Age: The Veilguard. Auk þess er fjallað um tölvuleikina Landnámu, Horizon Zero Dawn Remastered og minnst á tvær nýjar heimildarmyndir sem tengjast tölvuleikjum.
Leikjavarpið #50 - The Legend of Zelda: Echoes of Wisdom og Xbox Partner Preview
Daníel Rósinkrans, Sveinn Aðalsteinn, Bjarki Þór og Unnur Sól fara yfir það helsta úr heimi tölvuleikja í fimmtugasta þætti Leikjavarpsins! Í þættinum er kafað í The Legend of Zelda: Echoes of Wisdom og skipst …
Notas del episodio
Daníel Rósinkrans, Sveinn Aðalsteinn, Bjarki Þór og Unnur Sól fara yfir það helsta úr heimi tölvuleikja í fimmtugasta þætti Leikjavarpsins! Í þættinum er kafað í The Legend of Zelda: Echoes of Wisdom og skipst á skoðunum - athugið að umræðan er laus við alla spilla! Einnig er farið yfir valin atriði úr Xbox Partner Preview þar sem Xbox og þeirra samstarfsaðilar kynna væntanlega leiki á Xbox leikjatölvurnar - þar má m.a. nefna Subnautica 2. …Leikjavarpið #49 - The Plucky Squire og State of Play
Sveinn Aðalsteinn, Bjarki Þór og Daníel nokkur Rósinkrans ræða um það helsta úr heimi tölvuleikja. Daníel gagnrýnir The Plucky Squire þar sem söguhetjan hoppar úr ævintýrabók og lendir í allskyns ævintýrum …
Notas del episodio
Sveinn Aðalsteinn, Bjarki Þór og Daníel nokkur Rósinkrans ræða um það helsta úr heimi tölvuleikja. Daníel gagnrýnir The Plucky Squire þar sem söguhetjan hoppar úr ævintýrabók og lendir í allskyns ævintýrum. Strákarnir skoða hvað var fjallað um á State of Play þar sem Sony kynnir væntanlega leiki fyrir PlayStation leikjatölvurnar - Þar má meðal annars nefna samúræ-leikinn Ghost of Yōtei. …Leikjavarpið #48 - Astro Bot og PlayStation 5 Pro
Daníel Rósinskrans, Sveinn Aðalsteinn og Bjarki Þór fjalla um PlayStation 5 Pro sem er væntanleg í verslanir næstkomandi nóvember. Við hverju má búast og hvernig er Pro útgáfan öflugri en hefðbundna PlayStation …
Notas del episodio
Daníel Rósinskrans, Sveinn Aðalsteinn og Bjarki Þór fjalla um PlayStation 5 Pro sem er væntanleg í verslanir næstkomandi nóvember. Við hverju má búast og hvernig er Pro útgáfan öflugri en hefðbundna PlayStation 5? Tríóið ræðir einnig um einn af betri leikjum ársins, Astro Bot, sem er fyrsti leikurinn fær fimm stjörnur af fimm mögulegum hjá okkur nördunum.
Leikjavarpið #47 - Summer Game Fest, Xbox Games Showcase og Nintendo Direct
Daníel Rósinskrans og Bjarki Þór fjalla um þrjár stórar leikjakynningar - Summer Game Fest, Xbox Games Showcase og Nintendo Direct. Til umfjöllunar eru leikir á borð við Starfield, Super Mario Bros. Wonder …
Notas del episodio
Daníel Rósinskrans og Bjarki Þór fjalla um þrjár stórar leikjakynningar - Summer Game Fest, Xbox Games Showcase og Nintendo Direct. Til umfjöllunar eru leikir á borð við Starfield, Super Mario Bros. Wonder, Mortal Kombat 1 og fjöldi annara leikja sem margir hverjir eru væntanlegir á komandi mánuðum.
Upptaka frá 4. júlí 2023.
Tónlist:
"Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com)
Licensed under Creative Commons: By Attribution 4.0 License
http://creativecommons.org/licenses/by/4.0/Leikjavarpið #46 - PlayStation Showcase 2023 og The Legend of Zelda: Tears of the Kingdom
Sveinn, Daníel og Bjarki fara yfir helstu leikina sem kynntir voru á PlayStation Showcase 2023 sýningunni. Undanfarna daga hafa strákarnir svo verið að spila The Legend of Zelda: Tears of the Kingdom og í …
Notas del episodio
Sveinn, Daníel og Bjarki fara yfir helstu leikina sem kynntir voru á PlayStation Showcase 2023 sýningunni. Undanfarna daga hafa strákarnir svo verið að spila The Legend of Zelda: Tears of the Kingdom og í síðari hluta þáttar segja þeir frá sínum fyrstu hughrifum á leiknum (umræður án söguspilla).
Tónlist:
"Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com)
Licensed under Creative Commons: By Attribution 4.0 License
http://creativecommons.org/licenses/by/4.0/
Aquí están los 40 episodios más recientes de 77. Los anteriores están en el feed del podcast.
Podcasts similares
Más podcasts de Ocio¿Es tu podcast?
Confírmalo con una entrada en tu feed: aquí recibes un código, lo añades como podcast:txt en el canal de tu feed y nosotros lo comprobamos. Después tu podcast aparecerá como «verificado» en SoundNode.







