Saltar al contenido

Lífsreynslusögur Vikunnar

17 de febrero de 2021 · 38 min

Notas del episodio

Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:


- Ég var minn versti óvinur:

„Öll eigum við mjög auðvelt með að ráðleggja öðrum og leysa þeirra vandamál en þegar kemur að okkar eigin er lausnin aldrei jafn einföld. Ég er engin undantekning frá þessu en það þurfti óvenjulega hreinskilna vinkonu til að opna augu mín fyrir því að ég var sjálf minn versti óvinur.“


- Svikin af vinkonu:

„Ég átti í ástarsambandi við giftan samstarfsmanninn í þrjú ár. Sambandið endaði þegar vinkona mín fór til konu hans og sagði honum hvað væri í gangi. Í kjölfarið ákvað maðurinn að reyna á hjónabandið og ég var skilin eftir með brostið hjarta. Það leið heldur ekki á löngu þar til ég hrökklaðist úr vinnunni.“


- Ástin á sextugsaldri:

„Ég var komin hátt á fimmtugsaldur þegar ég skildi. Í tíu ár var ég ein og fannst stöðugt ólíklegra að ástin bankaði aftur upp á í lífi mínu. Þegar ég kynntist Gunnari fannst mér lífið dásamlegt og eiginlega of gott til að vera satt. Það kom líka á daginn að hann var ekki sá sem ég hélt hann væri.“


- Leikskólafasistinn:

„Skömmu eftir að sonur minn varð þriggja ára gekk barnsfaðir minn út af heimili okkar með ferðatösku. Hann tilkynnti mér að líf okkar gæfi honum enga hamingju og hann yrði að fá að leita hennar annars staðar. Þetta var mér mikið áfall en mín fyrstu viðbrögð voru að leita leiða til að leggja grunn að góðri framtíð okkar mæðgina. Mér var gert erfitt fyrir í þeirri viðleitni þegar leikskólakennari sonar míns hóf að ofsækja mig.“


- Trúin splundraði hjónabandinu:

„Árum saman var ég gift miklum dellukarli. Hann Ásgeir minn fann sér alltaf eitthvað nýtt og fljótlega blómstraði ástríðan. Það dró hins vegar yfirleitt jafnfljótt úr henni og eitthvað annað tók við. Alla tíð sýndi ég áhugamálum hans og vafstri í kringum þau mikla þolinmæði, enda finnst mér hjón ekki þurfa að deila hugðarefnum á öllum sviðum. Við eigum tvö börn og mér nægði að hann sýndi þeim og heimilinu umhyggjusemi líka.“

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Todos los episodios de Lífsreynslusögur Vikunnar

Ajustes

Visualización

Idioma

Determina qué emisoras ves primero en la página de inicio.

Historial

Las emisoras y episodios escuchados recientemente y tus últimas búsquedas solo se guardan en este navegador.

Avisos

Un breve aviso cuando un pódcast que sigues tiene un episodio nuevo. Puedes desactivar pódcast concretos con la campana de su página.

Cuenta

Guarda tus favoritos: en la app y en la web.

Atajos de teclado

/
Abrir búsqueda
Espacio
Reproducir o pausar
← →
En el reproductor: 15 s atrás, 30 s adelante (episodios) · en una fila: siguiente tarjeta
↑ ↓
En una fila: destino dentro de la tarjeta
Inicio / Fin
En una fila: primera o última tarjeta
Esc
Cerrar ventana o menú
?
Este resumen
Reproduciendo ahora

Ir a la emisora

A continuación

    Añade episodios con «A continuación»: sonarán después del episodio actual.