
1. þáttur - kynning, áhrif svefns á heilaheilsu
Notas del episodio
Í þessum fyrsta þætti ræða stjórnendur hlaðvarpsins, Sigþrúður Guðmundsdóttir og Brynhildur Jónsdóttir, um það sem koma skal, af hverju þær eru með heilabilun á heilanum, rokkstjörnurnar sem við eigum eftir að ræða við, mismunandi birtingarmyndir heilabilunar og ýmislegt fleira.
Margrét Karlsdóttir, móðir Sigþrúðar, hefði orðið 90 ára gömul í dag, hefði hún lifað og völdum við þessa dagsetningu til að senda út fyrsta þátt henni til heiðurs <3
Í heilahreystihorninu ræðum við um góðan svefn sem verndandi þátt fyrir heilaheilsu.