
Með lífið í lúkunum
- Episodios
- 181
- Se publica
- cada semana
- Último episodio
- 7 Nov 2026
Sobre el podcast
Í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum fær HeilsuErla til sín einstaklinga úr ýmsum áttum sem hafa þekkingu á fjölbreyttum sviðum heilsu og einnig fólk sem hefur á einn eða annan hátt jákvæð áhrif á samferðafólk sitt.
Markmiðið er að skapa rými fyrir einlægt og opið spjall til þess að kynnast sem fjölbreyttustum leiðum til þess að huga að heilsunni. t.d. varðandi geðheilsu, líkamlega heilsu, mataræði, svefn, raddheilsu, tannheilsu, fjárhagslega heilsu, sköpunargleði, kynheilbrigði og margt fleira.
Episodios 181
131. Skömmin var aldrei mín. (Áföll, fíkn, meðvirkni, meðvitund, hugrekki og sjálfsvinna). Hrund Ottósdóttir
Í þættinum ræðir Erla við Hrund Ottósdóttur, höfund bókarinnar Skömmin var aldrei mín.Í þessari sjálfsævisögu deilir Hrund sögu sem snertir djúpt. Saga um fjölskyldubönd, þögn, áföll, fíkn, sorg og missi, en …
Notas del episodio
Í þættinum ræðir Erla við Hrund Ottósdóttur, höfund bókarinnar Skömmin var aldrei mín.
Í þessari sjálfsævisögu deilir Hrund sögu sem snertir djúpt. Saga um fjölskyldubönd, þögn, áföll, fíkn, sorg og missi, en ekki síður um hugrekki, sjálfsvinnu, að rjúfa gömul mynstur og finna leiðina út úr gömlum vítahring.
Þetta er samtal sem minnir okkur á að við berum ekki ábyrgð á því sem við urðum fyrir en á sama tíma að við berum ábyrgð á okkur og okkar hegðun.Takk til ykkar sem hlustið og sérstakar þakkir til samstarfsaðila minna sem hafa trúað á þetta verkefni frá upphafi:
🌱 -SPÍRAN. Besti brunch í bænum! Allar helgar milli kl.11-15.
🐘 -VIRKJA. Bókaðu frían 20 mínútna kynningarfund á virkja.is
💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar.
💦 -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í gjöf.
Gjafabréf frá einu af þessum fyrirtækjum er tilvalið í jólapakkann!
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
130. Dugnaður drepur. (Heilsuorlof, ofurkonan, mygla og leitin að heilsunni). Guðrún Hafþórs
Í þessum þætti ræðir Erla við alveg hreint dásamleg stelpukonu, Guðrúnu Hafþórs, um lífið og tilveruna, heilsumissi, streitu, myglu, áhrif áfalla, leitina að heilsunni, um ofurkonuna og dugnaðinn sem drepur!Á …
Notas del episodio
Í þessum þætti ræðir Erla við alveg hreint dásamleg stelpukonu, Guðrúnu Hafþórs, um lífið og tilveruna, heilsumissi, streitu, myglu, áhrif áfalla, leitina að heilsunni, um ofurkonuna og dugnaðinn sem drepur!
Á Instagram síðu sinni deilir Guðrún raunveruleikanum á einlægan og hispurslausan hátt undir slagorðinu „vott jú sí is vott jú get“. Þar fjallar hún um lífið eins og það er í heilsuorlofi, bæði hæðir og lægðir og reynir að smita gleði og dreifa glimmeri.
Þessi þáttur er einnig í mynd og var tekinn upp í Klakinn studio.
Takk til ykkar sem hlustið og sérstakar þakkir til samstarfsaðila minna sem hafa trúað á þetta verkefni frá upphafi:
🌱 -SPÍRAN. Besti brunch í bænum! Allar helgar milli kl.11-15.
🐘 -VIRKJA. Bókaðu frían 20 mínútna kynningarfund á virkja.is
💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar.
💦 -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í gjöf.
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Eru skjáir að ræna okkur félagslegum töfrum? Viðar Halldórsson (Heilsumoli 50)
Í þessum Heilsumola ræðir Erla við Viðar Halldórsson, prófessor í félagsfræði við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands um nýju bókina hans “How Digital Screen Use Alienates Human Societies: A treatise on social …
Notas del episodio
Í þessum Heilsumola ræðir Erla við Viðar Halldórsson, prófessor í félagsfræði við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands um nýju bókina hans “How Digital Screen Use Alienates Human Societies: A treatise on social magic and its decadence”.
Bókin fjallar um neikvæð áhrif skjábyltingarinnar og varpar ljósi á þá þversögn hvernig fjölbreyttari og víðtækari samskiptahættir hafa stuðlað að auknu samskiptaleysi og firringu, sem birtist meðal annars í auknum einmanaleika og angist, pólariseringu og átökum.
Hlustaðu einnig á viðtalið sem Erla tók við Viðar í júlí 2024. Félagslegir töfrar. (Tilfinningaleg smitun, félagslegt heilbrigði, stemmning og hlutverk íþrótta). Viðar Halldórsson.
Þar ræða Erla og Viðar um hvernig tæki og tól hafa aukið samskipti við fjærsamfélagið en gallinn er að þau hafa takmarkanir og minnka mannleg tengsl. Snjalltæki soga mennskuna úr og eftir stendur bara það sem er skrifað. Það er ekki bara það sem við segjum (eða skrifum) heldur þetta ósýnilega, líkamstjáning, raddblær ofl sem skiptir svo miklu máli. Við erum ekki eins meðvituð um nærumhverfi okkar og þá tapast augnsamband ofl.
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
129. Þú getur ekki hafnað þér til heilsu. Guðni Gunnarsson
Í þættinum ræðir Erla við Guðna Gunnarsson um vitund, athygli, ábyrgð, viðnám, höfnun, þakklæti og hvað þarf að gera til þess að vera virkur þátttakandi í eigin lífi.Guðni hefur verið áberandi í umræðunni um …
Notas del episodio
Í þættinum ræðir Erla við Guðna Gunnarsson um vitund, athygli, ábyrgð, viðnám, höfnun, þakklæti og hvað þarf að gera til þess að vera virkur þátttakandi í eigin lífi.
Guðni hefur verið áberandi í umræðunni um heilsu, hreyfingu, jóga og sjálfsrækt um árabil.
Guðni sem notar íslenskuna svo fallega með skilgreingum á orðum sem við notum hugsunarlaust, hefur meðal annars skrifað bækurnar Máttur athyglinnar, Máttur viljans og Máttur þakklætis.
Hann hefur í gegnum tíðina talað mikið um athygli, ábyrgð, nærveru, val og það hvernig við sjálf getum haft áhrif á það hvernig við upplifum lífið.
Takk til ykkar sem hlustið og sérstakar þakkir til samstarfsaðila minna sem hafa trúað á þetta verkefni frá upphafi:
🌱 -SPÍRAN. Besti brunchinn í bænum! Allar helgar milli kl.11-15.
🐘 -VIRKJA. Töfrandi nám í markþjálfun- næsta lota heft 15.október.
💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar.
💦 -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf.
Ekki missa af Kvennakvöldi HeilsuErlu sem haldið verður á Spírunni 10.október í samstarfi við Femarelle og Nutrilenk. Fræðsla, skemmtun og góður matur. Miðar hér!
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
128. Hvernig fjölgum við heilbrigðum æviárum? Kristján Þór Gunnarsson
Í þættinum ræðir Erla við Kristján Þór Gunnarsson, heimilislækni um áhrif lífsstíls á heilsu, samfélagssjúkdóma, skaðsemi gjörunninna matvæli á almenna heilsu, næringarlæsi, stöðu heilbrigðiskerfisins á Íslandi …
Notas del episodio
Í þættinum ræðir Erla við Kristján Þór Gunnarsson, heimilislækni um áhrif lífsstíls á heilsu, samfélagssjúkdóma, skaðsemi gjörunninna matvæli á almenna heilsu, næringarlæsi, stöðu heilbrigðiskerfisins á Íslandi og hver eða hvað ber ábyrgð á versnandi heilsu þjóðarinnar, hvernig við getum mögulega snúið þeirri þróun við og um leið fjölgað heilbrigðum æviárum.
Erla og Kristján ræða einnig um heildræna heilsu og hvernig þættir eins og svefn, mataræði, hreyfing, streitustjórnun, félagsleg samskipti, tilgangur og fleira séu allt jafn mikilvægir þættir til þess að upplifa heilbrigði.
Kristján Þór sem hefur sérhæft sig í offitu, næringu og lýðheilsu bendir einnig á mikilvægi þess að finna rót vandans í langvinnum krónískum sjúkdómum til þess að hægt sé að snúa við þróun þeirra.
Takk til ykkar sem hlustið og sérstakar þakkir til samstarfsaðila minna sem hafa trúað á þetta verkefni frá upphafi:
💙 -HEILSUHILLAN. HeilsuErla mælir með Nutrilenk og Femarelle.
🌱 -SPÍRAN. Besti brunchinn í bænum! Allar helgar milli kl.11-15.
🐘 -VIRKJA. Töfrandi nám í markþjálfun- næsta lota heft 15.október.
💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar.
💦 -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf.
Ekki missa af Kvennakvöldi HeilsuErlu sem haldið verður á Spírunni 10.október í samstarfi við Femarelle og Nutrilenk. Fræðsla, skemmtun og góður matur. Miðasala er hafin hér!
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
127. Að virða ekki eigin mörk endar með kulnun. (Kærleikur, umhverfisvernd, hormónaraskandi efni og meðvitund). Heiðrún Birna Rúnarsdóttir.
Í þættinum ræðir Erla við Heiðrúnu Birnu Rúnarsdóttur. Heiðrún hefur verið ötull talsmaður fyrir umhverfisvernd og er stofnandi og eigandi Grænu stofunnar sem er eina umhverfisvottaða hárgreiðslustofan á …
Notas del episodio
Í þættinum ræðir Erla við Heiðrúnu Birnu Rúnarsdóttur. Heiðrún hefur verið ötull talsmaður fyrir umhverfisvernd og er stofnandi og eigandi Grænu stofunnar sem er eina umhverfisvottaða hárgreiðslustofan á Íslandi.
Þær stöllur ræðu um áhrif þess að alast upp í sveit, hvaðan áhuginn og virðingin fyrir umhverfinu spratt, hvernig gildi okkar geta verið leiðarvísir í lífi og starfi og hve mikilvægt það er að setja sér og öðrum mörk.
Við ræddum einnig um muninn milli á umhverfisvottaðra vara og vara sem eru það ekki og áhrif þeirra á náttúruna og heilsuna. Bæði heilsu þeirra sem vinna með efnin og þeirra sem nota þau.
Kvennakvöld HeilsuErlu 10.október. Kvöld sem þú vilt ekki missa af!
Fræðsla, skemmtun og góður matur. Miðasala er hafin hér!
Takk til ykkar sem hlustið og sérstakar þakkir til samstarfsaðila minna sem hafa trúað á þetta verkefni frá upphafi:
💙 -HEILSUHILLAN. HeilsuErla mælir með Nutrilenk og Femarelle.
🌱 -SPÍRAN. Besti brunchinn í bænum! Allar helgar milli kl.11-15.
🐘 -VIRKJA. Töfrandi nám í markþjálfun- næsta lota heft 15.október.
💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar.
💦 -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf.
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Kvennakvöld HeilsuErlu (Heilsumoli 49)
Kvennakvöld HeilsuErlu í samstarfi við Femarelle og Nutrilenk verður haldið á Spírunni í Garðheimum laugardaginn 10.október.Þetta verður ekkert venjulegt kvöld… því get ég lofað. 😉 Hlátur. Fræðsla. Tónlist …
Notas del episodio
Kvennakvöld HeilsuErlu í samstarfi við Femarelle og Nutrilenk verður haldið á Spírunni í Garðheimum laugardaginn 10.október.
Þetta verður ekkert venjulegt kvöld… því get ég lofað. 😉 Hlátur. Fræðsla. Tónlist. Matur. Stemmning.
Miðasala er hafin hér.
Húsið opnar kl.18:15
Fordrykkur og kvöldmatur* innifalinn.
Formleg dagskrá hefst kl.19 og lýkur um kl.22.
- Erla Guðmundsdóttir- Heildræn heilsa
- Edda Björgvins- Húmor og heilsa
- Elísabet Reynis- Næring og heilsa
- Halldóra Skúla- Hormónar og heilsa
- Kvöldið endar svo á sjúklega skemmtilegu Tingó með Hrund Scheving (Tónlistarbingó)
Að dagskrá lokinni er gestum velkomið að sitja áfram og spjalla og skemmta sér fram á kvöld.
Verð 10900kr. Aðeins 100 miðar í boði.
Ég hvet alla til að mæta tímanlega og njóta matarins eða kíkja á kynningarbása hjá samstarfsaðilum hlaðvarpsins, Virkja, Þín fegurð, Nutrilenk og Femarelle áður en formleg dagskrá hefst.
p.s. ef þig vantar dress fyrir kvöldið mæli ég með að kíkja í verslunina Systur og makar í Síðumúla 21 eða skoða vefverslun þeirra systurogmakar.is
*Matseðill. Þú getur valið um:
1. Heilsusalat „Heilsu Erlu“ með blönduðu salati, spínati, avókadó, agúrkum, fetaost, papríku, eggi, kjúklingi, kjúklingabaunum, hnetum og hindberja dressingu.
2. Confit önd á ristuðu foccacia með döðlusultu, feyki og pikkluðum rauðlauk.
3. Grænmetisútgáfa af Heilsusalati HeilsuErlu.Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Sterkur september- heilsuáskorun (Heilsumoli 48)
Langar þig að koma þér aftur í þínar góðu venjur eftir sumarfrí og þarft smá aðhald?Taktu þátt í Sterkum september og nærðu þig andlega, líkamlega og félagslegasterkur líkami 💪🏻sterkur hugur 🧠sterk næring …
Notas del episodio
Langar þig að koma þér aftur í þínar góðu venjur eftir sumarfrí og þarft smá aðhald?
Taktu þátt í Sterkum september og nærðu þig andlega, líkamlega og félagslegasterkur líkami 💪🏻
sterkur hugur 🧠
sterk næring 🌱
sterk tengsl 🫶= Sterk heild!
Taktu þátt! Þetta er afar auðvelt.
- Hér er hlekkur á sniðmátið af áskoruninni.
- Prentaðu út blaðið
- Skrifaðu inn þær venjur sem þig langar að tileinka þér í september. (1-10 venjur)
- Merktu við daglega.
Þetta snýst ekki um fullkomnun, bara að gera sitt besta og hafa gaman.
✨ Settu 10.október í dagatalið! ✨
Kvennakvöld HeilsuErlu á Spírunni. Það verður ekkert venjulegt kvöld…því get ég lofað. 😉 Hlátur. Fræðsla. Tónlist. Matur. Stemmning.
Hin eina sanna Edda Björgvins, Beta Reynis og Halldóra Skúla verða með fræðslu og Hrund Scheving hjá Sche Events sér um að halda uppi stuðinu. Aðeins 100 miðar í boði. Allar nánari upplýsingar verða birtar á @heilsuerla
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
126. Að treysta líkamanum aftur. (Saga um meiðsli, mótlæti, seiglu og sjálfsmynd). Sara Sigmundsdóttir
Í þessu viðtalið ræðir Erla við Söru Sigmundsdóttur afrekskonu í CrossFit um ótrúlega þrautargöngu hennar síðastliðin ár.Saga Söru snýst alls ekki bara um CrossFit heldur einnig um meiðsli, mótlæti, seiglu …
Notas del episodio
Í þessu viðtalið ræðir Erla við Söru Sigmundsdóttur afrekskonu í CrossFit um ótrúlega þrautargöngu hennar síðastliðin ár.
Saga Söru snýst alls ekki bara um CrossFit heldur einnig um meiðsli, mótlæti, seiglu, pressu, sjálfsmynd, andlegt þol og það að læra að þekkja sjálfa sig og treysta líkama sínum aftur. Síendurtekin meiðsli og mótlæti hafa breytt sýn hennar á lífið og hún hefur nú fundið nýjan tilgang.
✨ Settu 10.október í dagatalið! ✨
Kvennakvöld HeilsuErlu á Spírunni. Það verður ekkert venjulegt kvöld…því get ég lofað. 😉 Hlátur. Fræðsla. Tónlist. Matur. Stemmning.
Hin eina sanna Edda Björgvins, Beta Reynis og Halldóra Skúla verða með fræðslu og Hrund Scheving hjá Sche Events sér um að halda uppi stuðinu. Aðeins 100 miðar í boði. Allar nánari upplýsingar verða birtar á @heilsuerla
Takk til ykkar sem hlustið og sérstakar þakkir til samstarfsaðila minna sem hafa trúað á þetta verkefni frá upphafi:
💙 -HEILSUHILLAN. HeilsuErla mælir með Nutrilenk.
🌱 -SPÍRAN. Besti brunchinn í bænum!
🐘 -VIRKJA. Töfrandi nám í markþjálfun- næsta lota heft 15.október.
💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar.
💦 -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf.
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
125. Fordómar þrífast í þögninni. (Fíkn, jaðarsetning, meðvirkni, viðhorfsbreyting, meðvitund og von). Hlynur Kristinn Rúnarsson
Í þessum þætti ræðir Erla við Hlyn Kristinn Rúnarsson, pabba, lögfræðing, fíkniráðgjafa og stofnanda félagasamtakanna Það er Von um fíkn, hvað hún er í raun og veru, hvernig hún getur haft áhrif á …
Notas del episodio
Í þessum þætti ræðir Erla við Hlyn Kristinn Rúnarsson, pabba, lögfræðing, fíkniráðgjafa og stofnanda félagasamtakanna Það er Von um fíkn, hvað hún er í raun og veru, hvernig hún getur haft áhrif á einstaklinginn sjálfan og fólkið í kringum hann og hvers vegna við þurfum að tala um hana með meiri skilningi og minni skömm.
Þetta er ekki auðveld umræða en hún er mikilvæg. Ég vona að þetta samtal veki upp samkennd og skilning en kannski fyrst og fremst minnki fordóma.Takk til ykkar sem hlustið og sérstakar þakkir til samstarfsaðila minna sem hafa trúað á þetta verkefni frá upphafi:
💙 -HEILSUHILLAN. HeilsuErla mælir með Nutrilenk.
🌱 -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu?
🐘 -VIRKJA. Töfrandi nám í markþjálfun
💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar.
💦 -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf.
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
124. Konur eru alls konar. (Áhrif næringar, svefns, streitu, álags og endurheimtar á frammistöðu og heilsu). Lára Hafliðadóttir.
Í þættinum ræðir Erla við Láru Hafliðadóttir um konur í íþróttum og áhrif næringar, svefns, streitu, kvenheilsu, álags og endurheimtar á frammistöðu og almenna heilsu, bæði andlega og líkamlega.Þær stöllur ræða …
Notas del episodio
Í þættinum ræðir Erla við Láru Hafliðadóttir um konur í íþróttum og áhrif næringar, svefns, streitu, kvenheilsu, álags og endurheimtar á frammistöðu og almenna heilsu, bæði andlega og líkamlega.
Þær stöllur ræða um alls kyns mýtur varðandi þjálfun og hreyfingu, hvort að það sé munur á konum og körlum, hvort að æfa þurfi á mismunandi hátt eftir því hvar konar er stödd í tíðarhringnum, hvernig æfingar henta á breytingarskeiði og fleira.
Á vef verkefnisins má finna fjölda faglegra fræðslumyndbanda sem ég hvet ykkur til að skoða nánar.
Einnig má finna verkefnið á Instagram
Sérstakar þakkir til samstarfsaðilanna minna sem hafa trúað á þetta verkefni frá upphafi:
💙 -HEILSUHILLAN. HeilsuErla mælir með Nutrilenk.
🌱 -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu?
🐘 -VIRKJA. Töfrandi nám í markþjálfun
💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar.
💦 -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf.
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Hugleiðingar um venjur - ertu fórnarlamb eigin væntinga? (Heilsumoli 47)
Hlaðvarpið er orðið 3 ára og Season 4 er mætt. TAKK öll fyrir að hlusta!Í þessum heilsumola velti ég upp spurningunum: Af hverju er svona erfitt að breyta venjum? Hvernig get ég gert góða hegðun auðveldari og …
Notas del episodio
Hlaðvarpið er orðið 3 ára og Season 4 er mætt. TAKK öll fyrir að hlusta!
Í þessum heilsumola velti ég upp spurningunum: Af hverju er svona erfitt að breyta venjum? Hvernig get ég gert góða hegðun auðveldari og slæma hegðun erfiðari? Hvar á ég að byrja? Hvernig á ég að byrja? Hvernig verður eitthvað að venju?
Venjur móta líf okkar meira en við gerum okkur grein fyrir.
Við hugsum oft um stórar ákvarðanir sem það sem mótar lífið okkar. Hvar við búum. Hvað við lærum. Hvaða starf við veljum en í raun eru það litlu hlutirnir sem við gerum á hverjum degi sem hafa mest áhrif á hegðun okkar og líf.
Venja er einfaldlega hegðun sem við endurtökum svo oft að hún verður næstum sjálfvirk. Og þess vegna geta venjur annaðhvort orðið okkar sterkasti bandamaður eða versti óvinur.
Ég mæli með að lesa bókina Atomic Habits eftir James Clear. Hann bendir á að markmið segja okkur hvert við viljum fara, en það eru daglegu venjurnar sem ráða því hvort við komumst þangað.
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
123. Ekki láta samviskubitið éta þig. (Uppeldi, mörk, samskipti, skjánotkun og hegðunarvandi). Jasmín Guðrún Abu Libdeh
Í þessum þætti ræðir Erla við Jasmín Guðrúnu foreldraþjálfa um samskipti, uppeldi, skjánotkun, mörk, tengsl, samviskubitið fræga og áhrif þess á velferð og heilsu barna. Virkiega skemmtilegt og fræðandi spjall …
Notas del episodio
Í þessum þætti ræðir Erla við Jasmín Guðrúnu foreldraþjálfa um samskipti, uppeldi, skjánotkun, mörk, tengsl, samviskubitið fræga og áhrif þess á velferð og heilsu barna. Virkiega skemmtilegt og fræðandi spjall.
Þið finnið Jasmín á TikTok þar sem hún setur inn alls konar fræðsluefni og er einnig nýbyrjuð með hlaðvarpið Orlofið þar sem rætt er um foreldrahlutverkið af einlægni.
Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins:
💙 -HEILSUHILLAN. HeilsuErla mælir mikið með vörum frá New Nordic.
🌱 -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu?
🐘 -VIRKJA. Töfrandi nám í markþjálfun
💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar.
💦 -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf.
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Það er ekki til hættulaus kyrking! María Hjálmtýsdóttir. (Heilsumoli 46)
Í þessum heilsumola kom hún María Hjálmtýsdóttir kynjafræðikennari í spjall til Erlu til að ræða um nýtt átak og vitaundavakningu varðandi hættu kyrkinga, en átakið ber sama heiti og hlaðvarpið og vakti því …
Notas del episodio
Í þessum heilsumola kom hún María Hjálmtýsdóttir kynjafræðikennari í spjall til Erlu til að ræða um nýtt átak og vitaundavakningu varðandi hættu kyrkinga, en átakið ber sama heiti og hlaðvarpið og vakti því sérstakan áhuga minn.
Samtök og stofnanir sem vinna með brotaþolum ofbeldis hafa haft vaxandi áhyggjur af kyrkingartökum hin síðari ár, bæði sem hluta af öðru ofbeldi en líka sem hluta af kynlífi þar sem klámáhrifa gætir. Slík valdbeiting er iðulega kynbundin, þ.e. karlar eða drengir að kyrkja konur eða stúlkur.
Ranghugmynda gætir um að eitthvað sé til sem heitir öruggar kyrkingar en nýlegar rannsóknir leiða í ljós meiri hættu við að þrengja að blóðflæði til heilans en áður hefur verið talið.
Hver einasta sekúnda sem flæði blóðs er heft hefur áhrif á heilann og lítið átak þarf til að valda skemmdum (töluvert minna átak en þrýstingurinn við venjulegt handaband). Það geta orðið alvarlegar skemmdir á heila þótt engin ummerki sjáist og alvarleikinn kemur jafnvel ekki ljós fyrr en mörgum dögum síðar. Í hálsinum eru viðkvæm bein og beingerð brjósk sem geta brotnað við þrýsting án þess að það sé sýnilegt eða uppgötvist strax. Að kyrkja aðra manneskju er alltaf hættuspil og getur haft mjög alvarlegar afleiðingar hvort sem það er meðvitað eða ómeðvitað ofbeldi, kynferðislegt eða ekki.
Stígamót, Samtök um kvennaathvarf, Bjarkarhlíð- miðstöð fyrir þolendur ofbeldis, Vitund – samtök gegn kynbundnu ofbeldi, Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu, Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Félag kynjafræðikennara hafa blásið til samfélagsmiðlaátaks til að vekja athygli á þessum hættum, miðla nýjustu þekkingu og hvetja til fræðslu og umræðu. Átakið ber heitið „Með lífið í lúkunum” og miðlar staðreyndum um hættu kyrkingartaka.
Með lífið í lúkunum fór af stað 22. júní og verður kynnt fyrir öllum aldurshópum en þess ber að geta að ungt fólk á Íslandi hefur sérstaklega kallað eftir meiri fræðslu um kynhegðun og kynbundið ofbeldi.
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
122. Spilafíkn er dauðans alvara. (Kvíði, þunglyndi, skömm og sjálfsvígshugsanir). Börkur Reykjalín Brynjarsson
Nýlega settumst við Börkur Reykjalín Brynjarsson niður og ræddum um kvíða og þunglyndi, burnout, spilafíkn, skömm, sjálfsvígshugsanir og fleira. Hann segir í viðtalinu á einlægan hátt frá fallegri en sorgleg …
Notas del episodio
Nýlega settumst við Börkur Reykjalín Brynjarsson niður og ræddum um kvíða og þunglyndi, burnout, spilafíkn, skömm, sjálfsvígshugsanir og fleira.
Hann segir í viðtalinu á einlægan hátt frá fallegri en sorgleg lífsreynslu þegar hann leitaði til Píeta samtakanna eftir að lífið hafði leikið hann grátt.
Berki finnst mikilvægt að ræða opinskátt um hlutina í stað þess að byrgja þá inni og fela. Það er skömmin sem dregur allt of marga til dauða en einungis 10% þeirra sem eru með spilafíkn leita sér aðstoðar.
Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins:
💙 -HEILSUHILLAN. HeilsuErla mælir mikið með vörum frá New Nordic.
🌱 -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu?
🐘 -VIRKJA. Töfrandi nám í markþjálfun
💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar.
💦 -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf.
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
121. Það velur enginn að vera með offitu. (Sjúkdómurinn offita, megrunarmenning, matarsuð, átkastaröskun og fordómar). Rut Eiríksdóttir
í þættinum ræðir Erla við Rut Eiríksdóttur hjúkrunarfræðing um sjúkdóminn offitu. Rut segir frá megrunarmenningu í æsku, erfiðum bróðurmissi og hvers vegna hún stofnaði SFO samtök fólks með offitu. Þær stöllur …
Notas del episodio
í þættinum ræðir Erla við Rut Eiríksdóttur hjúkrunarfræðing um sjúkdóminn offitu.
Rut segir frá megrunarmenningu í æsku, erfiðum bróðurmissi og hvers vegna hún stofnaði SFO samtök fólks með offitu. Þær stöllur ræða um skilgreininguna á sjúkdómnum, hlutverk erfða og umhverfis, matarsuð, átkastaröskun og fordóma.
Rut hefur glímt við offitusjúkdómin frá barnæsku og alin upp í megrunarmenningu. Aðeins þrettán ára gömul þróaði Rut með sér átröskun og eftir að hafa barist áfram í áraraðir og prófað alla megrunakúra undir sólinni, leitaði hún sér hjálpar og fór í efnaskiptaaðgerð sem bjargaði heilsu hennar.
Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins:
💙 -HEILSUHILLAN. Breytingarskeið? Femarelle sem fyrsta meðferð.
🌱 -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu?
🐘 -VIRKJA. Töfrandi nám í markþjálfun
💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar.
💦 -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf.
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Djúpslökun 2 (Heilsumoli 45)
Ég fékk ósk um að gera Djúpslökun án undirspils/tónlistar og varð að sjálfsögðu við þeirri beiðni. Í amstri dagsins er nauðsynlegt að gefa sér tíma til þess að ,,hlaða batteríin" okkar reglulega, bæði andlega …
Notas del episodio
Ég fékk ósk um að gera Djúpslökun án undirspils/tónlistar og varð að sjálfsögðu við þeirri beiðni.
Í amstri dagsins er nauðsynlegt að gefa sér tíma til þess að ,,hlaða batteríin" okkar reglulega, bæði andlega og líkamlega. Við pössum flest að ræftæki okkar séu hlaðin fyrir daginn enn munum við eftir því að hlaða okkur sjálf?
Til eru margar leiðir til þess að ,,hlaða" sig en djúpslökun er afar áhrifarík leið til þess að öðlast innri ró og losa um spennu og eða streitu sem situr í líkamanum.
Þessi djúpslökun er rúmlega 30 mínútna leidd hugleiðsla sem er einföld en afar áhrifarík leið til að gleyma stað og stund, beina athyglinni inn á við, vera í meðvitund og auka vellíðan.Njótið vel!
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
120. Geðhvarfasýki og heilsa. (Geðrof, bataferli, umræða og fordómar). Anna María Jónsdóttir
Í þættinum ræðir Erla við Önnu Maríu Jónsdóttur um Geðhvarfasýki og heilsu en Anna María fór í sitt fyrsta geðrof fyrir um ári síðan. Hún segir okkur frá sjúkdómnum og bataferlinu og hvað það er mikilvægt að …
Notas del episodio
Í þættinum ræðir Erla við Önnu Maríu Jónsdóttur um Geðhvarfasýki og heilsu en Anna María fór í sitt fyrsta geðrof fyrir um ári síðan. Hún segir okkur frá sjúkdómnum og bataferlinu og hvað það er mikilvægt að tala opinskátt um andlega sjúkdóma til þess að minnka fordóma.
Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins:
💙 -HEILSUHILLAN. Breytingarskeið? Femarelle sem fyrsta meðferð.
🌱 -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu?
🐘 -VIRKJA. Töfrandi nám í markþjálfun
💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar.
💦 -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf.
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Hvað er hugrekki? Laufey Haraldsdóttir (Heilsumoli 44)
Þar sem að Hugrekki hefur verið mér ofarlega í huga síðan ég lauk námi mínu hjá Virkja og þau voru að byrja með hlaðvarpið Virkja spjallið, fékk ég leyfi til þess að deila þessum fallegu hugleiðingum Laufeyjar …
Notas del episodio
Þar sem að Hugrekki hefur verið mér ofarlega í huga síðan ég lauk námi mínu hjá Virkja og þau voru að byrja með hlaðvarpið Virkja spjallið, fékk ég leyfi til þess að deila þessum fallegu hugleiðingum Laufeyjar með ykkur.
„Virkja Spjallið“ er podcast um markþjálfun, meðvitund og mannlegan vöxt. Við ræðum uppbyggileg málefni, skoðum eiginleika markþjálfunar og veltum fyrir okkur hvernig við getum innleitt markþjálfahugarfarið í daglegt líf og starf.
Hlý og innihaldsrík spjöll fyrir þau sem vilja vaxa, tengjast sjálfum sér og öðrum og skapa meiri meðvitund í daglegu lífi.
Að baki podcastinu stendur Virkja sem er markþjálfunarskóli, þar starfa hópur reyndra markþjálfa með ástríðu fyrir vexti, mannlegum tengslum og því að styðja fólk í að efla innri styrk sinn og meðvitund.
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
119. The transformative power of strength. (Nutrition, macros, mental toughness, menopause and lifestyle). Pia Marangoni
In this insightful interview, Pia Marangoni shares her journey from banking to health and strength coaching, emphasizing the importance of personalized nutrition, resilience, and the transformative power of …
Notas del episodio
In this insightful interview, Pia Marangoni shares her journey from banking to health and strength coaching, emphasizing the importance of personalized nutrition, resilience, and the transformative power of strength sports. Discover practical tips on pre- and post-workout nutrition, managing menopause and hormonal changes through lifestyle and living in alignment with your true self.
A huge shoutout to the podcasts sponsors:
💙 -HEILSUHILLAN an Icelandic company that focuses on promoting and selling health and wellness products like Femarelle.
🌱 -SPÍRAN a cozy and beautiful restaurant in Iceland serving incredibly healthy, homemade food. It’s a place that truly nourishes your body and supports your health journey. My favourite on the menu these days is the rsalad that I designed in collaboration with Spíran. (Heilsusalat Heilsuerlu)
🐘 -VIRKJA the life coach school that changed my life. I learned so much about myself, and has helped me grow in every part of my life, as a mom, a wife, a person, and even as a podcaster.
💗 - ÞÍN FEGURÐ. Located in Hafnarfjörður, Iceland, it is a comprehensive beauty salon offering a wide range of professional treatments. The name uses the Icelandic words Þín (Your) fegurð (beauty).
💦 -UNGBARNASUND ERLU (Erla's Baby Swimming) is my swim school. Based in Hafnarfjörður, it offers professional, varied, and friendly classes focusing on bonding, play and water safety for infants and children up to 2,5 years of age.
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
118. Beinþynning er hinn þögli sjúkdómur. (Næring, hreyfing, þyngdarstjórnunaraðgerðir, lyf og beinþéttni). Dr.Sigríður Björnsdóttir
Í þættinum ræðir Erla við Sigríði Björnsdóttur, innkirtla- og efnaskiptalækni um beinheilsu, hvað ákvarðar beinþéttni og hvers vegna við töpum beinþéttni í kringum tíðahvörf, hinn þögla sjúkdóm sem beinþynning …
Notas del episodio
Í þættinum ræðir Erla við Sigríði Björnsdóttur, innkirtla- og efnaskiptalækni um beinheilsu, hvað ákvarðar beinþéttni og hvers vegna við töpum beinþéttni í kringum tíðahvörf, hinn þögla sjúkdóm sem beinþynning er og hvað við getum gert með lífstíl okkar til þessa að fyrirbyggja eða snúa við þeirri þróun.
Þær ræða einnig um áhrif ofþjálfunar, átröskunar, þyngdarstjórnunaraðgerða og lyfja á beinheilsu okkar og hversu mikilvægt það er að reyna að koma í veg fyrir að beinþéttni minnki til þess að tryggja góða almenna heilsu og góð og sterk bein alla ævi.
Sigríður stofnaði síðuna Beinheilsa.is þar sem hægt er að nálgast fræðslu, aðstoð, næringar ráðleggingar og æfingarmyndbönd.
Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins:
💙 -HEILSUHILLAN. Nutrilenk- Vantar þig öflugan liðstyrk?
🌱 -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu?
🐘 -VIRKJA. Töfrandi nám í markþjálfun
💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar.
💦 -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf.
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
117. How Challenges Fuel Growth. (Resilience, self-sabotage, self-love and building habits). Katie Boshko
In this inspiring interview, Katie shares her journey through injury, mental health, and resilience, offering deep insights into mindset, habits, and holistic health. Discover how her experiences shaped her …
Notas del episodio
In this inspiring interview, Katie shares her journey through injury, mental health, and resilience, offering deep insights into mindset, habits, and holistic health.
Discover how her experiences shaped her approach to coaching and life, emphasizing the importance of self-love, connection, and perseverance.
She also shares practical strategies to enhance your well-being, performance, and self-love through stories and expert advice, helping you build habits for a fulfilling life.
Follw Katie on Instagram
A huge shoutout to the podcasts sponsors:
💙 -HEILSUHILLAN an Icelandic company that focuses on promoting and selling health and wellness products like Nutrilenk.
🌱 -SPÍRAN a cozy and beautiful restaurant in Iceland serving incredibly healthy, homemade food. It’s a place that truly nourishes your body and supports your health journey. My favourite on the menu these days is the rsalad that I designed in collaboration with Spíran. (Heilsusalat Heilsuerlu)
🐘 -VIRKJA the life coach school that changed my life. I learned so much about myself, and has helped me grow in every part of my life, as a mom, a wife, a person, and even as a podcaster.
💗 - ÞÍN FEGURÐ. Located in Hafnarfjörður, Iceland, it is a comprehensive beauty salon offering a wide range of professional treatments. The name uses the Icelandic words Þín (Your) fegurð (beauty).
💦 -UNGBARNASUND ERLU (Erla's Baby Swimming) is my swim school. Based in Hafnarfjörður, it offers professional, varied, and friendly classes focusing on bonding, play and water safety for infants and children up to 2,5 years of age.
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
116. Við þurfum að finna veikleikana okkar til að finna hugrekkið. (Mia Magic, langveik börn, hugarfar og andleg heilsa). Þórunn Eva G. Pálsdóttir
Viðmælandi þáttarins er hin dásamlega Þórunn Eva stofnandi Mía Magic. Þær Erla ræða um lífið og tilveruna, andlega heilsu, heilsubrest, langveik börn, hugarfar, hugrekki og margt fleira. Hvað er Mia Magic? Það …
Notas del episodio
Viðmælandi þáttarins er hin dásamlega Þórunn Eva stofnandi Mía Magic. Þær Erla ræða um lífið og tilveruna, andlega heilsu, heilsubrest, langveik börn, hugarfar, hugrekki og margt fleira.
Hvað er Mia Magic? Það er íslenskt góðgerðarfélag sem einbeitir sér að því að gleðja og styðja langveik börn og foreldra þeirra. Félagið gefur út fræðslubækur um sjúkdóma og aðgerðir sem hjálpa börnum að skilja algenga sjúkdóma og inngrip á þeirra forsendum, svo sem Mía fær lyfjabrunn, Mía fer í blóðprufu og Mía lærir um sykursýki. Félagið sendir einnig út Míubox til að létta undir með fjölskyldum og veitir fagfólk viðurkenningu með Míuverðlaunum.
Þórunn Eva var valinn Framúrskarandi ungur Íslendingur árið 2021 en fyrir framlag sitt til góðgerðarmála.
Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins:
💙 -HEILSUHILLAN. Nutrilenk- Vantar þig öflugan liðstyrk?
🌱 -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu?
🐘 -VIRKJA. Töfrandi nám í markþjálfun
💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar.
💦 -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf.
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Næringarpælingar og heilsulæsi í boði Erlu (Heilsumoli 43)
Erla er að gera smá ,,tilraun" á sjálfri sér þessa dagana. Hún er að breyta til í mataræði sínu og borða eins og ráðlagt er fyrir íþróttakonur á besta aldri (sem eru að lyfta þungt). Þetta er frábrugðið því …
Notas del episodio
Erla er að gera smá ,,tilraun" á sjálfri sér þessa dagana. Hún er að breyta til í mataræði sínu og borða eins og ráðlagt er fyrir íþróttakonur á besta aldri (sem eru að lyfta þungt). Þetta er frábrugðið því mataræði sem hún hefur tamið sér hingað til og talið vera æskilegt fyrir góða heilsu.
Það er nauðsynlegt að gera tilraunir að sjálfum sér og prófa sig áfram því að það er ekki það sama sem hentar öllum.
Við berum ábyrgð á eigin heilsu og það er því mikilvægt að læra að þekkja góðar upplýsingar og ráðleggingar frá öllu bullinu sem er í umferð.
Það er mikilvægt að hlusta á líkamann, innsæið og skynsemina.
Hvað er líkaminn að segja okkur? Erum við þreytt eða slöpp? Getur það verið vegna þess hvernig ég er að gera eitthvað sem hefur þessi neikvæðu áhrif á heilsuna mína? Er ég kannski að sofa allt of lítið? Er ég ekki að hitta fólk/vini? Er ég að borða rusl? Er ég að hreyfa mig of lítið eða of mikið?
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
115. Hvernig lifum við lengur? (Næringarlæsi, gjörunnin matvæli, trefjar, hugleiðsla og bláu svæðin). Helga Arnardóttir
Í þættinum ræðir Erla við Helgu Arnardóttur fjölmiðlakonu, handritshöfund og heilsuáhrifavald um langlífi, próteinæðið í heiminum, mikilvægi trefja, gagnsemi þyngdarstjórnunarlyfja, lífsbreytandi áhrif …
Notas del episodio
Í þættinum ræðir Erla við Helgu Arnardóttur fjölmiðlakonu, handritshöfund og heilsuáhrifavald um langlífi, próteinæðið í heiminum, mikilvægi trefja, gagnsemi þyngdarstjórnunarlyfja, lífsbreytandi áhrif hugleiðslu, gjörunnin matvæli og hvað við getum gert til þess auka líkurnar á því að lifa vel og lengi.
Helga hefur meðal annars gert þættina Lifum lengur og Blóðbönd sem ég mæli mikið með að þið horfið á.Helga hefur einnig gert kvikmyndirnar Birta og Röskun ásamt eiginmanni sínum Braga Þór Hinrikssyni leikstjóra.
Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins:
💙 -HEILSUHILLAN. Nutrilenk- Vantar þig öflugan liðstyrk?
🌱 -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu?
🐘 -VIRKJA. Töfrandi nám í markþjálfun
💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar.
💦 -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf.
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Hver er HeilsuErla 2.0? (Heilsumoli 42)
Hver er HeilsuErla? Er hún enn sama manneskjan og tók upp kynningarþáttinn í júlí 2023? Í þessum Heilsumola veltir Erla því fyrir sér hvernig hún varð ,,jáhrifavaldur" í eigin lífi og hvernig hún hefur vaxið og …
Notas del episodio
Hver er HeilsuErla? Er hún enn sama manneskjan og tók upp kynningarþáttinn í júlí 2023? Í þessum Heilsumola veltir Erla því fyrir sér hvernig hún varð ,,jáhrifavaldur" í eigin lífi og hvernig hún hefur vaxið og þroskast með aukinni þekkingu, reynslu og viðtölum.
Ert þú jáhrifavaldur í eigin lífi? Ert þú með lífið í lúkunum?
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
114. Fjárhagslegt frelsi. (Sjálfstraust, fjármálahegðun og hagnýt ráð). Íris Líf Stefánsdóttir
Viðmælandi þáttarins er Íris Líf Stefánsdóttir bókari og gleðisprengja. Þær Erla ræða um sparnað, fjárhagslegt frelsi, mikilvægi sjálfstrausts, fjármálahegðun Íslendinga, fjárhagslega heilsu og svo veitir Íris …
Notas del episodio
Viðmælandi þáttarins er Íris Líf Stefánsdóttir bókari og gleðisprengja. Þær Erla ræða um sparnað, fjárhagslegt frelsi, mikilvægi sjálfstrausts, fjármálahegðun Íslendinga, fjárhagslega heilsu og svo veitir Íris Líf hlustendum frábær fjármálaráð til að bæta heimilisbókhaldið.
Íris Líf sem er aðeins 25 ára rekur eigið bókhaldsfyrirtæki, Accounta.is, og er meðstofnandi nýsköpunarfyrirtækisins Virkum. Á TikTok og Instagram deilir hún góðum ráðum um fjármál og sparnað fyrir áhugasama.
Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins:
🌈 -SONETT. Lífrænt vottuð hreinsiefni. Án rotvarnarefna, ilmefna og kemískra efna
💙 -HEILSUHILLAN. Bio Kult- góðgerlar eru frábær viðbót inn í daglega rútínu.
🌱 -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu?
🐘 -VIRKJA. Næsta lotunám hefst 30.apríl.
💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar.
💦 -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf.
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
113. Healthy at 98 years. (Diet, attitude, purpose, excercise and never stop moving). Zona Merryman
In this interview Erla speaks with Zona Merryman a remarkable 98 year old lady and inspiration to everyone. She tells us how she has maintained good health over the years.Zona says that we are responsible for …
Notas del episodio
In this interview Erla speaks with Zona Merryman a remarkable 98 year old lady and inspiration to everyone. She tells us how she has maintained good health over the years.
Zona says that we are responsible for our own health and that our mindset is extremely important. In addition to how diet and social factors play a big role in good health, she emphasizes that we should never stop exercising and moving.
She lives by herself, walks her dog several times a day and travels alone by plane from Iowa to Orlando several times a year to visit her daughter and friends.You can see a short video from the interview on Instagram
A huge shoutout to the podcasts sponsors:
💙 -HEILSUHILLAN an Icelandic company that focuses on promoting and selling health and wellness products like Bio-Kult.
🌱 -SPÍRAN a cozy and beautiful restaurant in Iceland serving incredibly healthy, homemade food. It’s a place that truly nourishes your body and supports your health journey. My favourite on the menu these days is the rsalad that I designed in collaboration with Spíran. (Heilsusalat Heilsuerlu)
🐘 -VIRKJA the life coach school that changed my life. I learned so much about myself, and has helped me grow in every part of my life, as a mom, a wife, a person, and even as a podcaster.
💗 - ÞÍN FEGURÐ. Located in Hafnarfjörður, Iceland, it is a comprehensive beauty salon offering a wide range of professional treatments. The name uses the Icelandic words Þín (Your)fegurð (beauty).
💦 -UNGBARNASUND ERLU (Erla's Baby Swimming) is my swim school. Based in Hafnarfjörður, it offers professional, varied, and friendly classes focusing on bonding, play, and water safety for infants and children up to 2,5 years of age.
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
112. Að draga úr ótímabærri öldrun. (Mataræði, hormónar, bætiefni, sykurfíkn, styrktarþjálfun ofl). Þorbjörg Hafsteinsdóttir
Í þættinum ræðir Erla við Þorbjörgu Hafsteinsdóttur, hjúkrunarfræðing, næringarþerapista, rithöfund og lífsstíls þjálfara um hennar bakgrunn og nálgun á heilsu, mýtur í mataræði, hormóna og konur, ótímabæra …
Notas del episodio
Í þættinum ræðir Erla við Þorbjörgu Hafsteinsdóttur, hjúkrunarfræðing, næringarþerapista, rithöfund og lífsstíls þjálfara um hennar bakgrunn og nálgun á heilsu, mýtur í mataræði, hormóna og konur, ótímabæra öldrun, sykurfíkn, bætiefni, þarmaflóru, mikilvægi styrktarþjálfunar, breytingarskeið kvenna og margt fleira.
Þorbjörg er einn helsti brautryðjandi landsins á sviði heilsueflingar og mataræðis og hefur í áratugi aðstoðað fólk bæði á Íslandi og í Danmörku, þar sem hún er búsett, að bæta heilsu sína og heilbrigði með fræðslu og ráðgjöf.
Hún hefur gefið út margar bækur og er með ýmis námskeið í boði á thorbjorghafsteins.is💙 -HEILSUHILLAN. Bio Kult- góðgerlar eru frábær viðbót inn í daglega rútínu.
🌱 -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu?
🐘 -VIRKJA. Ertu á krossgötum? Prófaðu tíma í markþjálfun.
💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar.
💦 -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf.
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
111. Öndun er mitt hjartans mál. (Streita, öndunaræfingar, ferðalöngun, ADHD, að eiga barn í óreglu og meðvirkni). Lilja Steingrímsdóttir
Í þætti vikunnar ræðir Erla við Lilju Steingrímsdóttur, hjúkrunarfræðing og öndunarkennara um streitu, gagnsemi öndunaræfinga, mikla ferðalöngun, ADHD, að eiga barn í óreglu, meðvirkni og að snúa neikvæðum …
Notas del episodio
Í þætti vikunnar ræðir Erla við Lilju Steingrímsdóttur, hjúkrunarfræðing og öndunarkennara um streitu, gagnsemi öndunaræfinga, mikla ferðalöngun, ADHD, að eiga barn í óreglu, meðvirkni og að snúa neikvæðum hlutum upp í jákvæða.
Lilja sem hefur starfað sem hjúkrunarfræðingur í 44 ár segir öndun hafa bjargað lífi sínu og geðheilsu þegar hún skildi, flutti og fékk nýja vinnu allt á sama tíma. Hún kynntist þá óvænt öndunaræfingum sem hún gerði daglega í 9 ár og stundar enn 20 árum seinna.
Lilja þurfti að taka þá erfiðu ákvörðun að flytja frá sonum sínum þegar þeir voru aðeins 11 og 14 ára gamlir en eina leiðin til að klippa á andlegt ofbeldi fyrrum maka, var að fara nógu langt í burtu.
Næsta Öndunar námskeið hjá Art of Living/IAHV verður 17.-19. apríl. Kennt er af Lilju í Grundargerði 7. Verð fyrir 42.000 fyrir vinnandi en 32.000 fyrir alla aðra og verkalýðsfélög taka venjulega þátt.
Nánari upplýsingar má finna á: www.artofliving.org, www.IAHV.org og áhugasamir geta haft samband við Lilju í síma +354 6928302 eða sent henni tölvupóst [email protected].
Samstarfsaðilar hlaðvarpsins eru:
💙 -HEILSUHILLAN. Hefur þú prófað GUM Soft Picks PRO?
🌱 -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu?
🐘 -VIRKJA. Ertu á krossgötum? Prófaðu tíma í markþjálfun.
💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar.
💦 -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf.
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Aquí están los 40 episodios más recientes de 181. Los anteriores están en el feed del podcast.
Podcasts similares
Más podcasts de Salud y forma física¿Es tu podcast?
Confírmalo con una entrada en tu feed: aquí recibes un código, lo añades como podcast:txt en el canal de tu feed y nosotros lo comprobamos. Después tu podcast aparecerá como «verificado» en SoundNode.







