
X977 - Mín skoðun - 27.þáttur.19102026
Notas del episodio
Heil og sæl. Í dag hringi ég til Þýskalands og heyri í landsliðsfyrirliðanum í handbolta, Ómari Inga Magnússyni leikmanni Magdeburg. Við tölum um landsliðið og væntingar þar á bæ, Magdeburg, leikjaálag og margt fleira. Ian David Jeffs þjálfari kvennaliðs Breiðabliks í fótbolta er á línunni en Breiðablik getur í dag orðið Íslandsmeistari þegar liðið mætir Stjörnunni. Þá hringi ég í Guðmund Torfason formann knattspyrnudeildar Fram en í kvöld mætast Fram og ÍA og verða leikmenn Fram í sérstaklega hönnuðum treyjum til styrktar PÍETA-samtökunum. Takk POULSEN og LENGJAN.