
#31 - Herdís Gunnarsdóttir
Notas del episodio
Í þættinum í dag er gestur minn Herdís Magna Gunnarsdóttir.
Herdís ólst upp á Egilsstaðabúinu. Eftir skóla gat hún komið við hjá afa sínum í fjósinu og svo gengið á æfingu eins og aðrir krakkar í bænum. Sextán ára fór hún norður í Menntaskólann á Akureyri og langaði að sjá meira af heiminum. Á þeim tíma var langt frá því sjálfgefið að hún ætti eftir að koma heim og taka við búinu.
Mig langaði að heyra hvernig það gerðist. Hvenær fer maður að hafa sitt að segja um það hvernig hlutirnir eru gerðir heima? Og hvernig er að vinna við hliðina á pabba sínum á meðan það er að breytast?
Við ræðum meðal annars:
– hvernig sveitin og bærinn runnu saman í æsku hennar
– árið í viðskiptafræði og hvað fékk hana til að leita aftur í landbúnaðinn
– hvernig ábyrgðin á búinu færðist smám saman milli kynslóða
– hvað það tekur á að missa kýr sem maður hefur annast árum saman
Mjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna.
Þátturinn er í boði VÍS, Hjá Línu, M Fitness og Austurfréttar.