
#28 – Einar Birgir Kristjánsson
Notas del episodio
Í þættinum í dag er gestur minn Einar Birgir Kristjánsson.
Einar kom austur til að prófa eitt ár á togara. Það ár varð að áratugum og leiðin lá úr sjómennsku yfir í fyrirtækjarekstur þar sem fátt hefur verið alveg fyrirsjáanlegt.
Tandraberg hefur tekið á sig ýmsar myndir í gegnum tíðina. Sum verkefni gengu upp, önnur ekki og stundum þurfti einfaldlega að finna eitthvað nýtt að gera. Í dag snýst stór hluti starfseminnar um timbur, nýtingu hráefnis og verkefni sem Einar hefði líklega ekki séð fyrir þegar hann byrjaði.
Við ræðum meðal annars:
Hvernig eitt ár á togara varð að ævi á Austurlandi.
Upphaf Tandrabergs og verkefnin sem héldu rekstrinum gangandi.
Tilraunirnar sem gengu ekki og ákvarðanirnar sem þurfti að taka.
Brettaframleiðslu og möguleika íslensks timburs.
Viðarkol og hugmyndirnar sem Einar er enn að prófa.
Mjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna.
Þátturinn er í boði VÍS, Hjá Línu, River og Austurfréttar.