
#24 - Jódís Skúladóttir
Notas del episodio
Í þættinum í dag er gestur minn Jódís Skúladóttir.
Jódís segist hafa gengið með guðfræðinámið í maganum frá því hún var ung kona, en leiðin þangað varð allt önnur en hún hafði kannski séð fyrir sér. Í samtalinu förum við frá trú, kirkju og samfélagi yfir í sögu þar sem ábyrgðin kom mjög snemma og lífið krafðist þess að hún yrði fullorðin áður en hún var í raun tilbúin til þess.
Þetta er meðal annars samtal um að eignast barn mjög ung, standa með sjálfri sér þegar barnið veikist, reyna að fóta sig í kerfum sem voru ekki gerð fyrir aðstæður hennar og hvernig miklar kröfur á sjálfa sig geta bæði borið mann áfram og tekið sinn toll.
Við ræðum meðal annars:
– hvers vegna guðfræðin togaði í hana árum saman
– samband hennar við kirkjuna og hugmyndina um að breyta stofnunum innanfrá
– að verða móðir mjög ung og taka ábyrgð á veiku barni
– nám, vinnu og fjármál þegar lítið svigrúm var til staðar
– kröfurnar sem hún gerði til sjálfrar sín og hvað þær kostuðu
Mjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna.
Þátturinn er í boði VÍS, Hjá Línu og Austurfréttar.