
Ormstungur
- Episodios
- 104
- Se publica
- a diario
- Último episodio
- 24 Sep 2026
Sobre el podcast
Íslendingasögurnar! Ormstungur er umræðuþáttur þar sem tveir kennarar, Hjalti Halldórsson og Oddur Ingi, ræða helstu Íslendingasögurnar á léttu nótunum. Tilgangur hlaðvarpsins er að styðja við lestur og upplifun á Íslendingasögunum.
Episodios 104
7. Gunnlaugs saga ormstungu - Uppgjör
Sagan gerð upp. Farið er yfir hetjuskap og kvarði smíðaður til að meta hann í Íslendingasögunum. Hjalti kveður Odd í kútinn. Hvaða máltíð væri Gunnlaugs saga? Hvaða lag? Stóru spurningunum er svarað í þessum …
Notas del episodio
Sagan gerð upp. Farið er yfir hetjuskap og kvarði smíðaður til að meta hann í Íslendingasögunum. Hjalti kveður Odd í kútinn. Hvaða máltíð væri Gunnlaugs saga? Hvaða lag? Stóru spurningunum er svarað í þessum rosalega uppgjörs þætti! Einnig lagðar línur fyrir framtíðina.
6. Gunnlaugs saga ormstungu - Örlögin bíta
Sagan nær hámarki. Draumar og blóð. Stirt er á milli Helgu og Hrafns. Þungt yfir þrátt fyrir partýhald.. Lágskýjað. Ský dregin fyrir sólu. Gulli og Hrafn eiga í basli að finna stað fyrir hólmgöngu því þær hafa …
Notas del episodio
Sagan nær hámarki. Draumar og blóð. Stirt er á milli Helgu og Hrafns. Þungt yfir þrátt fyrir partýhald.. Lágskýjað. Ský dregin fyrir sólu. Gulli og Hrafn eiga í basli að finna stað fyrir hólmgöngu því þær hafa verið bannaðar á Íslandi. Af hverju? Rætist draumur Þorsteins? Hverjir munu liggja í valnum? Það er allavega dramatískt lokauppgjör milli Gulla og Hrafns!
5. Gunnlaugs saga ormstungu - Þótti þér hann ei drápunnar verður?
Það eru sænskir dagar hjá Gulla. Sem er slæmt því Hjalti er einn helsti áhugamaður um tilvistarkreppu Svía og orðið ,,lagom”. Leikar fara að æsast í sögunni þegar Gulli og Hrafn fara að kveðast á fyrir framan konung.
4. Gunnlaugs saga ormstungu - Eigi skal haltur ganga
Gulli slær í gegn en sullur hefur myndast á fæti hans. Ekkert virðist þó geta stöðvað hann í leið sinni til heimsfrægðar. Eða hvað? Áhugaverðar umræður fara á flug um skikkjur og primaloft úlpur.
3. Gunnlaugs saga ormstungu - Skáldið vill út
Gulli Ormstunga stimplar sig inn í söguna ásamt Helgu fögru. Ástin svífur yfir vötnum. Grasið er samt alltaf grænna hinum meginn. Gulli reynir hvað hann getur að komast á vit ævintýranna og sýna hvað í honum …
Notas del episodio
Gulli Ormstunga stimplar sig inn í söguna ásamt Helgu fögru. Ástin svífur yfir vötnum. Grasið er samt alltaf grænna hinum meginn. Gulli reynir hvað hann getur að komast á vit ævintýranna og sýna hvað í honum býr. Það ætlar þrautinni þyngra að komast af landi.
2. Gunnlaugs saga ormstungu - Ekki er mark að draumum
Persónur sem leggja jarðveginn fyrir aðalpersónur sögunnar seinna meir eru kynntar til leiks. Syni Egils Skallagrímssonar, Þorsteini Egilssyni, dreymir draum og fær Austmann til að ráða. Það boðar ekki gott!
1. Gunnlaugs saga ormstungu - Lagt á borð
Ormstungur eru alltaf að breyta og bæta. Hér er ein gömul og góð. Enduhljóðblönduð. Gunnlaugs saga sagan hefur allt! Af nógu er að taka; ást, draumar, hetjuskapur, öfund og hefnd. Um þessar mundir er líka …
Notas del episodio
Ormstungur eru alltaf að breyta og bæta. Hér er ein gömul og góð. Enduhljóðblönduð. Gunnlaugs saga sagan hefur allt! Af nógu er að taka; ást, draumar, hetjuskapur, öfund og hefnd. Um þessar mundir er líka söngleikurinn Ormstunga á fjölum Þjóðleikhússins. Um að gera að rifja þessa snilld upp.
14. Gísla saga Súrssonar - Uppgjör
Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.Gíslinn gerður upp og við förum í sjálfskipaða útlegð frá Vestfjörðum.
13. Gísla saga Súrssonar - Einhamar
Kaflar 34-38 í skólaútgáfu.Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.Lokaorustan harðnar. Gísli fer upp á Einhamar og fellur þaðan. Við föllum öll með honum og Ormstungur falla endanlega á prófinu.
12. Gísla saga Súrssonar - Fé er best eftir feigan
Kaflar 31-33 í skólaútgáfuÞáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.Njósnar-Helgi fær háðuglega útreið, en ekki verri en Eyjólfur grái þegar feðraveldið fær á snúðinn. Gísla er orðið svo …
Notas del episodio
Kaflar 31-33 í skólaútgáfu
Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.
Njósnar-Helgi fær háðuglega útreið, en ekki verri en Eyjólfur grái þegar feðraveldið fær á snúðinn. Gísla er orðið svo illt í maganum að hann fær sturlaða drauma.
11. Gísla saga Súrssonar - Draumfarir slæmar
Kaflar 28-30 í skólaútgáfu.Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.Þorkell fellur, ekki fyrir eigin hendi en þó fyrir eigin sverði. Gestur hinn spaki er farinn að toga í spotta …
Notas del episodio
Kaflar 28-30 í skólaútgáfu.
Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.
Þorkell fellur, ekki fyrir eigin hendi en þó fyrir eigin sverði. Gestur hinn spaki er farinn að toga í spotta. Magaverkir Gísla ágerast og valda honum slæmum draumförum. Hann er þó háll sem áll og ólíklegt að Ormstungur geti nokkurn tímann fangað hann.
10. Gísla saga Súrssonar - Hasar í Hergilsey
Kaflar 25-27 í skólaútgáfu.Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.Njósnar-Helgi sýnir hvers hann er megnugur en Gísli er snjallari. Hann er nú orðinn frægur enda enginn hraustari eða …
Notas del episodio
Kaflar 25-27 í skólaútgáfu.
Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.
Njósnar-Helgi sýnir hvers hann er megnugur en Gísli er snjallari. Hann er nú orðinn frægur enda enginn hraustari eða hugrakkari. Ekki er hann þó gæfumaður.
9. Gísla saga Súrssonar - Útlaginn
Kaflar 23-24 í skólaútgáfu.Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.Ormstungum hefur ekki tekist að fanga Gísla. Þá er kynntur til sögunnar 007 Íslands, útsendari Eyjólfs gráa, sjálfur …
Notas del episodio
Kaflar 23-24 í skólaútgáfu.
Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.
Ormstungum hefur ekki tekist að fanga Gísla. Þá er kynntur til sögunnar 007 Íslands, útsendari Eyjólfs gráa, sjálfur Njónsar-Helgi. Gísli reynir enn að fá bróður sinn til að hjálpa sér en Þorkell hafði ekki lesið 152. kafla Njálu og skilur við bróður sinn beran að baki.
8. Gísla saga Súrssonar - Draumkonur
Kaflar 20-22 í skólaútgáfu.Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.Ormstungur missa Gísla frá sér og hann hrekst að heiman og fer í leiðinni illa með þrælinn Þórð. Hann er dæmdur sekur og …
Notas del episodio
Kaflar 20-22 í skólaútgáfu.
Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.
Ormstungur missa Gísla frá sér og hann hrekst að heiman og fer í leiðinni illa með þrælinn Þórð. Hann er dæmdur sekur og fer að finna fyrir ónotum í maganum.
7. Gísla saga Súrssonar - Skammt er þá milli illra verkra og stórra
Kaflar 17-19 í skólaútgáfu.Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.Nefið belgir út nasirnar og hnusar í allar áttir. Það hefur voveiflegar afleiðingar síðar meir en fyrst er Nefinu komið …
Notas del episodio
Kaflar 17-19 í skólaútgáfu.
Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.
Nefið belgir út nasirnar og hnusar í allar áttir. Það hefur voveiflegar afleiðingar síðar meir en fyrst er Nefinu komið fyrir kattarnef. Þess á milli játar Gísli á sig morð.
6. Gísla saga Súrssonar - Eigi kann ég helskó að binda ef þessir losna
Kaflar 14-16 í skólaútgáfu.Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.Þorgrímur reimar skó... já það er merkilegt! Grásíða fær að væta sig blóði í annað sinn og það í höndum manns á nærbuxunum.
5. Gísla saga Súrssonar - Nú falla öll vötn til Dýrafjarðar
Kaflar 11-13 í skólaútgáfu.Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.Allt vitlaust fyrir vestan! Vötn renna öll til Dýrafjarðar, reflar eru gefnir en ekki þegnir og að lokum er framið morð …
Notas del episodio
Kaflar 11-13 í skólaútgáfu.
Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.
Allt vitlaust fyrir vestan! Vötn renna öll til Dýrafjarðar, reflar eru gefnir en ekki þegnir og að lokum er framið morð. Síðast en ekki síst mætir Nefið til leiks.
4. Gísla saga Súrssonar - Oft stendur illt af kvennahjali
Kaflar 7-10 í skólaútgáfu.Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.Nú dregur til tíðinda. Bræður skipta búi og eftir stendur spurningin: Stendur oft illt af kvennahjali?
3. Gísla saga Súrssonar - Vestfirðir 952
Kaflar 4-6 í skólaútgáfu.Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.Vestfirðir 952. Það er súld. Lönd eru keypt, fólk giftist og vinir skera sig á púls. Basic.
2. Gísla saga Súrssonar - Allt er vænt sem byrjar í Noregi
Kaflar 1-3 í skólaútgáfu.Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.Eins og allar góðar sögur byrjar Gísla saga í Noregi. Nánar tiltekið í Súrnadal. Stemmningin er eins og nafn dalsins gefur …
Notas del episodio
Kaflar 1-3 í skólaútgáfu.
Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.
Eins og allar góðar sögur byrjar Gísla saga í Noregi. Nánar tiltekið í Súrnadal. Stemmningin er eins og nafn dalsins gefur til kynna - súr.
1. Gísla saga Súrssonar - Lagt á borð
Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026Varúð! Hjalti og Oddur eru komnir til Vestfjarða. Það eru blikur á lofti. Útlaginn sjálfur er á skurðarborðinu og það súrnar í stúdíóinu um leið og …
Notas del episodio
Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026
Varúð! Hjalti og Oddur eru komnir til Vestfjarða. Það eru blikur á lofti. Útlaginn sjálfur er á skurðarborðinu og það súrnar í stúdíóinu um leið og krufningin hefst.
x Flosi Þorgeirsson
Viðtalið var upprunalega tekið árið 2021 en endurhljóðblandað árið 2026. Flosi Þorgeirsson er sagnfræðingur, tónlistarmaður og sérlegur áhugamaður um Íslendingasögurnar. Flosi og félagi hans, Baldur Ragnarsson …
Notas del episodio
Viðtalið var upprunalega tekið árið 2021 en endurhljóðblandað árið 2026.
Flosi Þorgeirsson er sagnfræðingur, tónlistarmaður og sérlegur áhugamaður um Íslendingasögurnar. Flosi og félagi hans, Baldur Ragnarsson, héldu úti hlaðvarpsþáttunum Draugar Fortíðar sem var eitt vinsælasta íslenska hlaðvarp landsins. Í þáttunum fjölluðu þeir um alls kyns söguleg viðfangsefni allt frá mönnum sem skjóta sér út í geim í garðstól yfir í aðra sem festa sig í holu neðanjarðar. Það vakti athygli Ormstungna þegar Flosi og Baldur gerðu atburði Njáls sögu einstaklega lifandi fyrir hlustendum sínum og gátum við ekki annað en fengið Flosa í smá spjall. Farið var um víðan völl; sannleiksgildi sagnanna, formið sem Íslendingasögurnar eru og kennslu þeirra í skólum.
Flosi Þorgeirsson - gjörið þið svo vel!
x Brynhildur Þórarinsdóttir
Hinn margverðlaunaði rithöfundur Brynhildur Þórarinsdóttir hefur legið yfir Íslendingasögunum í gegnum tíðina og miðlað þeim til barna. Hún fór yfir af hverju þessar sagnir eiga erindi enn þann dag í …
Notas del episodio
Hinn margverðlaunaði rithöfundur Brynhildur Þórarinsdóttir hefur legið yfir Íslendingasögunum í gegnum tíðina og miðlað þeim til barna. Hún fór yfir af hverju þessar sagnir eiga erindi enn þann dag í dag, jafnt við unga sem aldna.
Viðtalið var upprunalega tekið árið 2020 en endurhljóðblandað árið 2026.
x Einar Kárason
Viðtalið var upprunalega tekið árið 2020 en endurhljóðblandað árið 2026. Einar Kárason er rithöfundur, ljóðskáld og sérstakur áhugamaður um Íslendingasögurnar. Gerðar hafa verið kvikmyndir og leikverk …
Notas del episodio
Viðtalið var upprunalega tekið árið 2020 en endurhljóðblandað árið 2026.
Einar Kárason er rithöfundur, ljóðskáld og sérstakur áhugamaður um Íslendingasögurnar. Gerðar hafa verið kvikmyndir og leikverk eftir bókum Einars og ber þar til dæmis nefna Djöflaeyjuna. Einar er einn mesti sérfræðingur okkar í Sturlungu og hefur hann gefið út bækurnar Óvinafagnaður, Ofsi, Skáld og Skálmöld þar sem hann gefur atburðum Sturlungaaldar skáldlegan blæ.
Í spjalli okkar við Einar fórum við víða. Við leituðum af höfundi Íslendingasagnanna, ræddum um sannleiksgildi þeirra og uppáhaldssögu Einars.
Hlustið og hlýðið!
x Vala Garðarsdóttir
Viðtalið var upprunalega tekið árið 2020 en endurhljóðblandað árið 2026. Vala Garðarsdóttir, fornleifafræðingur, kom og fræddi okkur um fornminjar og lifnaðarhætti víkingaaldar. Hvar er silfur Egils, bogi …
Notas del episodio
Viðtalið var upprunalega tekið árið 2020 en endurhljóðblandað árið 2026.
Vala Garðarsdóttir, fornleifafræðingur, kom og fræddi okkur um fornminjar og lifnaðarhætti víkingaaldar. Hvar er silfur Egils, bogi Gunnars og Grásíða? Kannski finnur þú svör við þessum spurningum í þættinum!
x Ármann Jakobsson
Viðtalið var upprunalega tekið árið 2020 en endurhljóðblandað árið 2026. Ormstungur eru peð á taflborði Íslendingasagnanna en kynna til leiks kónginn til að hefja skákina. Ármann Jakobsson, prófessor í …
Notas del episodio
Viðtalið var upprunalega tekið árið 2020 en endurhljóðblandað árið 2026.
Ormstungur eru peð á taflborði Íslendingasagnanna en kynna til leiks kónginn til að hefja skákina. Ármann Jakobsson, prófessor í miðaldabókmenntum, tók Ormstungur í stutta kennslustund.
Hlustið og hlýðið!
x Benedikt Erlingsson
Einn gamall og góður í betri hljómgæðum!Benedikt Erlingsson þarf varla að kynna fyrir landsmönnum. Leikari, leikstjóri, leikskáld, sjómaður og sjóbissnessmaður. Þekktastur er hann þó fyrir hlutverk sitt sem …
Notas del episodio
Einn gamall og góður í betri hljómgæðum!
Benedikt Erlingsson þarf varla að kynna fyrir landsmönnum. Leikari, leikstjóri, leikskáld, sjómaður og sjóbissnessmaður. Þekktastur er hann þó fyrir hlutverk sitt sem Þjóðólfur í Fóstbræðrum.
Hann hefur sett á Íslendingasögurnar á svið og miðlað þeim til samtímafólks. Fyrst var það Ormstunga og svo Mr. Skallagrímsson. Við fórum yfir víðan völl, frá manni að nafni Mel yfir í umræður um hvort að það eigi að skrifa barnabækur um sækópata.
Inn- og útgöngustef: Reynir Haraldsson
x Söngleikurinn Ormstunga (Hafsteinn Níelsson og Ólíver Þorsteinsson
Við fengum höfunda söngleiksins Ormstunga, þá Hafstein Níelsson og Ólíver Þorsteinsson í spjall til okkar. Söngleikurinn er sýndur á Stóra sviði Þjóðleikhússins um þessar mundir og er meistaraverk. Þá er vægt …
Notas del episodio
Við fengum höfunda söngleiksins Ormstunga, þá Hafstein Níelsson og Ólíver Þorsteinsson í spjall til okkar. Söngleikurinn er sýndur á Stóra sviði Þjóðleikhússins um þessar mundir og er meistaraverk. Þá er vægt til orða tekið. Við ræddum að leika sér með formið sem Íslendingasögurnar eru, söngleikinn sjálfan og svo margt, margt fleira.
Nálgast má miða á Ormstungu hér:
https://leikhusid.is/syningar/ormstunga/
Hlustið og hlýðið!
4. Reykdæla saga & Víga Skútu
Víga-Skúta mætir á klakann og hefur bara eitt í huga. Að hefna pabba gamla og nú duga engin vettlingatök, hvorki hjá honum né tungunum. Þessi hluti sögunnar hefur allt: dulargervi, leynibirgi, tilræði á tilræði …
Notas del episodio
Víga-Skúta mætir á klakann og hefur bara eitt í huga. Að hefna pabba gamla og nú duga engin vettlingatök, hvorki hjá honum né tungunum. Þessi hluti sögunnar hefur allt: dulargervi, leynibirgi, tilræði á tilræði ofan og mann bundinn nakinn við staur í hólma út á miðju Mývatni. Lifir hann það af? Jah, bölvaðu ekki blessaðri flugunni sagði afi en vargurinn gefur … og vargurinn tekur. Hlustið og hlýðið.
Styrktu Ormstungur:
https://www.patreon.com/c/ormstungur
3. Reykdæla saga & Víga Skútu -
Vémundur Fjörleifsson! Hvað er hægt að segja? Geitin í slæmum hugmyndum, skeytingarleysi og forréttindahyggju? Jókerinn? Eða bara ljótur hálfviti? Allavega er maðurinn harðákveðinn í að gera sem mest vesen á …
Notas del episodio
Vémundur Fjörleifsson! Hvað er hægt að segja? Geitin í slæmum hugmyndum, skeytingarleysi og forréttindahyggju? Jókerinn? Eða bara ljótur hálfviti? Allavega er maðurinn harðákveðinn í að gera sem mest vesen á þeim blaðsíðum sem hann lifir í sögunni. Og honum er ekkert heilagt hvort sem það eru hvalföng, þingbúðir, nautgripir eða tilvonandi brúðir. Áskell hefur ekki undan að sópa upp eftir hann og tungurinar skilja hvorki upp né niður í þessum gaur. En það er ekkert nýtt. Hlustið og hlýðið.
Styrktu Ormstungur:
https://www.patreon.com/c/ormstungur
Aquí están los 40 episodios más recientes de 104. Los anteriores están en el feed del podcast.
Podcasts similares
Más podcasts de Arte¿Es tu podcast?
Confírmalo con una entrada en tu feed: aquí recibes un código, lo añades como podcast:txt en el canal de tu feed y nosotros lo comprobamos. Después tu podcast aparecerá como «verificado» en SoundNode.




