
Græna borðið - 28. þáttur: Vindorkuvæðing Íslands
Notas del episodio
Miðvikudagur 11. nóvember Græna borðið - 28. þáttur: Vindorkuvæðingu Íslands "Sú orka sem þarf til að hrekja kjaftæði er margfalt meiri en orkan sem þarf til að búa það til," segir lögmál Bardólinis. En það er einmitt inntakið í samtalinu um vindorkuvæðingu Íslands við Græna borðið hjá Kristínu Helgu Gunnarsdóttur og Andrési Skúlasyni. Gestir þeirra eru Thelma Harðardóttir, bóndi í Norðurárdal og fyrrum sveitarstjórnarfulltrúi í Borgarbyggð og Elvar Árni Lund, sviðsstjóri skipulags og umhverfis í Norðurþing. Elvar Árni sagði af sér í liðinni viku vegna andstöðu við risavaxin vindorkuáform á Melrakkasléttu. Íbúar í fámennum byggðalögum þurfa nú að slást við vindorkurisana í boði stjórnvalda. Byggðaráð Borgarbyggðar hafnar nú vindorkuveri á Grjóthálsi og vill hálsinn í vernd eftir margra ára baráttu íbúa. Sveitarstjórnar Norðurþing vill vindorkuver á Melrakkasléttu en andstaða þar fer ört vaxandi.