Saltar al contenido
Video rekkinn

Video rekkinn

Nuevo#133 Er þetta eins og bókin? The Hunger Games: Sunrise on the Reaping (2026)23 de noviembre de 2026 · 1 h 24 min
Episodios
134
Se publica
cada semana
Último episodio
23 Nov 2026

Sobre el podcast

Video Rekkinn er þáttur sem kemur út alla mánudaga í umsjón Hildar og Ragnars.

Þau gasa um lífið og tilveruna og gasa síðan ennþá meira – með talsvert litlu viti – um nýjustu myndina sem þau voru á í Laugarásbíó.

www.videorekkinn.is er heimasíðan okkar.

Fylgist endilega með á Facebook-síðu Video Rekkans:
https://www.facebook.com/videorekkinn
Eða á Instagram
https://www.instagram.com/videorekkinn1/
Eða Tiktok
https://www.tiktok.com/@videorekkinn
Eða Letterboxd
https://letterboxd.com/Videorekkinn/

Episodios 134

  1. #133 Er þetta eins og bókin? The Hunger Games: Sunrise on the Reaping (2026)

    1 h 24 minEpisodio 134

    Í þætti dagsins fáum við til okkar góða gesti, þau Írisi Árnadóttur og Birgi Snæ Hjaltason, en þau eru bæði miklir aðdáendur Hunger Games-bókanna og -myndanna. Í þættinum ræðum við seríuna almennt, en að …

    Notas del episodio

    Í þætti dagsins fáum við til okkar góða gesti, þau Írisi Árnadóttur og Birgi Snæ Hjaltason, en þau eru bæði miklir aðdáendur Hunger Games-bókanna og -myndanna.
    Í þættinum ræðum við seríuna almennt, en að sjálfsögðu verjum við mestum tíma í nýjustu myndina úr þessum heimi, The Hunger Games: Sunrise on the Reaping.

  2. #132 Hvenær má jólaskrautið fara upp, Ebenezer (2026) og Wildwood (2026)

    1 h 1 minEpisodio 133

    Í þætti dagsins ræðum við hvenær sé í lagi að setja upp jólaskraut og Borgartúnspjakka á rafmagnshlaupahjólum. Mestum tíma verjum við þó í frumsýningar síðustu viku: jólamyndina Ebenezer, sem er ný og myrkari …

    Notas del episodio

    Í þætti dagsins ræðum við hvenær sé í lagi að setja upp jólaskraut og Borgartúnspjakka á rafmagnshlaupahjólum.

    Mestum tíma verjum við þó í frumsýningar síðustu viku: jólamyndina Ebenezer, sem er ný og myrkari útgáfa af Jólasögu Dickens (A Christmas Carol), og stopp-hreyfimyndina (e. stop motion) Wildwood.

  3. #131 Samstarfsþáttur með Bíófíklum, Wild Horse Nine (2026) og Wicker (2026)

    2 h 18 minEpisodio 132

    Smá tæknilegri örðuleikar urðu til þess að þátturinn kom aðeins seinna út en áætlað var. Þáttur vikunnar er sérstakur samstarfsþáttur með Bíófíklum. Við heimsóttum stúdíóið þeirra Atla, Tomma og Kjartans og …

    Notas del episodio

    Smá tæknilegri örðuleikar urðu til þess að þátturinn kom aðeins seinna út en áætlað var.

    Þáttur vikunnar er sérstakur samstarfsþáttur með Bíófíklum. Við heimsóttum stúdíóið þeirra Atla, Tomma og Kjartans og fórum yfir tvær myndir sem voru frumsýndar í síðustu viku: annars vegar Wicker, ævintýramynd með kynferðislegum undirtóni, og hins vegar Wild Horse Nine, sem er virkilega vönduð tímabilsmynd.

  4. #130 Óvæntur liðsauki, Sóli Hólm í viðtali og Iceguys: The Movie (2026)

    46 minEpisodio 131

    Í þætti dagsins berst Hildi óvæntur liðsauki í umræðunni um ágæti myndarinnar Fjord. Þungamiðja þáttarins er þó umfjöllun um myndina Iceguys: The Movie, sem frumsýnd var í síðustu viku. Okkur til halds og …

    Notas del episodio

    Í þætti dagsins berst Hildi óvæntur liðsauki í umræðunni um ágæti myndarinnar Fjord.
    Þungamiðja þáttarins er þó umfjöllun um myndina Iceguys: The Movie, sem frumsýnd var í síðustu viku. Okkur til halds og trausts í þeirri umræðu er enginn annar en Sóli Hólm, annar handritshöfunda myndarinnar.

  5. #129 Kynjaskipt salerni, Fjord(2026) og Clayface (2026)

    51 minEpisodio 130

    Video Rekka-tvíeykið fór aftur tvisvar í bíó þessa vikuna, annars vegar á Fjord í Bíó Paradís og hins vegar á Clayface í Smárabíói. Það er varla hægt að segja að myndirnar tvær eigi mikið sameiginlegt, annað en …

    Notas del episodio

    Video Rekka-tvíeykið fór aftur tvisvar í bíó þessa vikuna, annars vegar á Fjord í Bíó Paradís og hins vegar á Clayface í Smárabíói.
    Það er varla hægt að segja að myndirnar tvær eigi mikið sameiginlegt, annað en að báðar hafa leikstjóra, leikara og handrit. Meira um það í nýjasta þætti Video Rekkans.

  6. #128 Arnór kemur í viðtal, AKA Saltkeisarinn, Hope(2026) Street fighter (2026)

    56 minEpisodio 129

    Í þessari viku fór Video Rekka tvíeykið tvisvar í bíó annarsvegar á suður kóresku myndina Hope og síðan á tölvuleikjamyndina Street Fighter. En við fáum einmitt aðstoð frá góðum gest, honum Arnóri AKA …

    Notas del episodio

    Í þessari viku fór Video Rekka tvíeykið tvisvar í bíó annarsvegar á suður kóresku myndina Hope og síðan á tölvuleikjamyndina Street Fighter.

    En við fáum einmitt aðstoð frá góðum gest, honum Arnóri AKA Saltkeisaranum, einum stjórnanda FGCiceland til að kryfja Streetfighter myndina og leikina með okkur.

  7. #127 Óþolandi fólk í bíó, viðtal við Rósu Magnúsdóttir, Heart of the Beast (2026) The Brink of War (2026)

    59 minEpisodio 128

    Í þætti dagsins tökum við fyrir viðfangsefni sem er mörgum Íslendingum í fersku minni, þegar Gorbatsjov og Reagan hittust í Höfða árið 1986. Önnur myndin sem við fjöllum um, The Brink of War, fjallar einmitt um …

    Notas del episodio

    Í þætti dagsins tökum við fyrir viðfangsefni sem er mörgum Íslendingum í fersku minni, þegar Gorbatsjov og Reagan hittust í Höfða árið 1986. Önnur myndin sem við fjöllum um, The Brink of War, fjallar einmitt um hvað gerðist á bak við luktar dyr í Höfða í október 1986.

    Til að varpa enn frekar ljósi á kalda stríðið og mikilvægi fundarins fengum við Rósu Magnúsdóttur, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands, í viðtal, bæði til að ræða myndina og kalda stríðið almennt.

    Í lok þáttar fjöllum við einnig um nýjustu mynd Brads Pitt, Heart of the Beast, hugljúfa sögu um mann og hundinn hans sem lenda í ýmiss konar hrakförum.


  8. #126 Onslaught (2026), Coyote vs ACME (2026) og Digger (2026)

    1 h 20 minEpisodio 127

    Í þætti dagsins er eiginlega bara bíó. Við fjöllum um B+ myndina Onslaught, 80´s splatter thriller (ný mynd samt 😂 )sem engin aðdáandi slíkra mynda ætti að láta framhjá sér fara. Við fjöllum um Coyote vs ACME …

    Notas del episodio

    Í þætti dagsins er eiginlega bara bíó. Við fjöllum um B+ myndina Onslaught, 80´s splatter thriller (ný mynd samt 😂 )sem engin aðdáandi slíkra mynda ætti að láta framhjá sér fara.

    Við fjöllum um Coyote vs ACME, eina skemmtilegustu fjölskyldumynd ársins.

    Síðast ekki síst fjöllum við um Digger, mynd sem virðist ætla að tvístra fólki í tvær fylkingar, meistarastykki eða hörmung! :) ATH það er algjörlega bannað að hlusta á þáttinn eftir mínútu 56 ef þú ert ekki búin að sjá Digger, BANNAÐ 🙈

    Við viljum líka nota tækifærið og benda fólki á heimasíðuna okkar sem var að fara í loftið. En þar kennir ýmisa grasa, endilega kíkið á www.videorekkinn.is

  9. #125 Borðaskipulag MH, The Invite (2026) og Primetime (2026)

    1 h 8 minEpisodio 126

    Í þætti dagsins fáum við til okkar góða gesti, en það eru MH-ingarnir Ragnheiður Gréta og Egill Arnarsson. Við fáum aðeins að skyggnast inn í MH lífið, fáum að kynnast borða skipulaginu og hvort týpuálagið sé …

    Notas del episodio

    Í þætti dagsins fáum við til okkar góða gesti, en það eru MH-ingarnir Ragnheiður Gréta og Egill Arnarsson.

    Við fáum aðeins að skyggnast inn í MH lífið, fáum að kynnast borða skipulaginu og hvort týpuálagið sé mikið. En mestum tíma verjum við í að fjalla um bíómyndina Primetime. En sökum þess að aðeins þáttastjórnendur höfðu farið á The Invite í vikunni fékk hún aðeins minna rými en hún átti skilið í lok þáttar.

  10. #124 Sérstakur gestur Óskar Styrmir - Resident Evil (2026)

    1 h 22 minEpisodio 125

    Í þætti vikunnar fjöllum við um nýjustu Resident Evil-myndina, sem kom út fyrir skemmstu. Við treystum okkur ekki ein í þetta verkefni og fengum því mesta tölvuleikjasérfræðing sem við þekkjum í þáttinn til að …

    Notas del episodio

    Í þætti vikunnar fjöllum við um nýjustu Resident Evil-myndina, sem kom út fyrir skemmstu. Við treystum okkur ekki ein í þetta verkefni og fengum því mesta tölvuleikjasérfræðing sem við þekkjum í þáttinn til að hjálpa okkur að kryfja málin.

  11. #123 Viðtal við Höskuld, leikstjóra Hvar er draumurinn og Pressure (2026)

    54 minEpisodio 124

    Það er af nógu að taka í þessum nýjasta þætti Video Rekkans. Við byrjum þáttinn á stuttu viðtali við Höskuld Þór Jónsson, leikstjóra Hvar er draumurinn, en við fjölluðum einmitt um þá mynd í síðasta þætti. Við …

    Notas del episodio

    Það er af nógu að taka í þessum nýjasta þætti Video Rekkans. Við byrjum þáttinn á stuttu viðtali við Höskuld Þór Jónsson, leikstjóra Hvar er draumurinn, en við fjölluðum einmitt um þá mynd í síðasta þætti.

    Við fjöllum einnig stuttlega um heimildarmyndina Þetta er ekkert mál sem nú fagnar 20 ára afmæli og er af því tilefni aftur komin í bíó.

    En mestum tíma verjum við í umfjöllun okkar um hina stórkostlegu bíómynd Pressure, eða Loftþrýstingur á íslensku, æsispennandi mynd um veðurfræðing sem bjargar mannslífum.

  12. #122 Aftur næstum bara bíó og Tony (2026) og Hvar er draumurinn? (2026)

    52 minEpisodio 123

    Þetta er orðið að nær vikulegum viðburði hjá okkur að skella sér tvisvar í bíó, og að þessu sinni tókum við fyrir Tony, sem fjallar um eitt sumar í lífi lífskúnstnersins Anthony Bourdain. Svo var ekki verra að …

    Notas del episodio

    Þetta er orðið að nær vikulegum viðburði hjá okkur að skella sér tvisvar í bíó, og að þessu sinni tókum við fyrir Tony, sem fjallar um eitt sumar í lífi lífskúnstnersins Anthony Bourdain.

    Svo var ekki verra að hin myndin sem við sáum var ný, íslensk söngvamynd með lögum Sálarinnar hans Jóns míns, Hvar er draumurinn?

    En meira um þetta allt saman í nýjasta þætti Video Rekkans.

  13. #121 Eiginlega bara bíó, Motor City (2026) og Um tímann og vatnið (2026)

    1 hEpisodio 122

    Að þessu sinni tekur Video Rekka tvíeykið fyrir tvær mjög ólíkar myndir sem voru frumsýndar í vikunni. Annars vegar Motor City, sem er tilraun til að gera 90mín hasarmynd án þess að talað sé í myndinni …

    Notas del episodio

    Að þessu sinni tekur Video Rekka tvíeykið fyrir tvær mjög ólíkar myndir sem voru frumsýndar í vikunni. Annars vegar Motor City, sem er tilraun til að gera 90mín hasarmynd án þess að talað sé í myndinni, hinsvegar fórum við á frumsýningu á nýrri íslenskri heimildarmynd, Um tímann og vatnið.


  14. #120 Menningarnótt, berjamó og The End of Oak Street (2026)

    59 minEpisodio 121

    Í þætti dagsins ræðum við nýafstaðna Menningarnótt, haustið sem er að fara að byrja og pökkun í ferðatösku. En mestu tíma verjum við í að fjalla um myndina The End of Oak Street, en þar til aðstoðar fáum við …

    Notas del episodio

    Í þætti dagsins ræðum við nýafstaðna Menningarnótt, haustið sem er að fara að byrja og pökkun í ferðatösku.
    En mestu tíma verjum við í að fjalla um myndina The End of Oak Street, en þar til aðstoðar fáum við Bíófíkilinn Kjartans Rúnarsson.

    ATH að það koma spoilers frá 38 mínútu.

  15. #119 Í andakt yfir dumbung sólmyrkvans og One Night Only (2026)

    48 minEpisodio 120

    Í þætti dagsins ræðum við stóru mál vikunnar sem nú er að líða, sólmyrkvann, Stjörnu-Sævar og ESB. Hildur er með stutt íslenskunámskeið fyrir Ragga og að lokum fjöllum við um rómantísku gamanmyndina One Night …

    Notas del episodio

    Í þætti dagsins ræðum við stóru mál vikunnar sem nú er að líða, sólmyrkvann, Stjörnu-Sævar og ESB.
    Hildur er með stutt íslenskunámskeið fyrir Ragga og að lokum fjöllum við um rómantísku gamanmyndina One Night Only, en við höfðum sitthvað um hana að segja.

  16. #118 Verslunarmannahelgi, Hinsegin dagar og Mamma Mia (2008)

    32 minEpisodio 119

    Ekkert messufall í dag, bara smá sein, en í þessum extra stutta þætti ræðum við heima og geima eins og vanalega. Endilega kíki á þetta. En mynd vikunnar er Mamma Mia sem við fórum á í Bíó Paradís :)

  17. #117 Bæjarhátíðir, útilegur og Spider-Man: Brand New Day (2026)

    1 h 4 minEpisodio 118

    í þætti dagsins ræðum við útilegur, bæjarhátíðir og margt annað. En fyrst og fremst ræðum við nýjustu Marvel myndina Spider-Man: Brand New Day. Í lok þáttar förum við yfir það allra nauðsynlegasta sem þú þarft …

    Notas del episodio

    í þætti dagsins ræðum við útilegur, bæjarhátíðir og margt annað.
    En fyrst og fremst ræðum við nýjustu Marvel myndina Spider-Man: Brand New Day.

    Í lok þáttar förum við yfir það allra nauðsynlegasta sem þú þarft að horfa á áður en næsta Marvel veisla dettur í hús Doomsday.

  18. #116 Bæjarhátíðir, Bíó Paradís og Muriel's Wedding(1994)

    45 minEpisodio 117

    Það var engin bíómynd frumsýnd á Íslandi í nýliðinni viku þannig Video rekka tvíeykið skellti sér á föstudagspartísýningu í Bíó Paradís og kultklassíkina Muriels Wedding.

  19. #115 Bæjarhátíðir og meistaraverkið The Odyssey (2026)

    1 h 18 minEpisodio 116

    Í þætti dagsins höldum við yfirferð okkar um bæjarhátíðir áfram, við ræðum stóra tröppumálið en mestu tíma verjum við í hina epísku ræmu, The Odyssey.

  20. #114 Bæjarhátíðir 2 kafli, ESB og Evil Dead Burn (2026)

    1 h 2 minEpisodio 115

    Í þætti dagsins ræðum við um þegar frægir hitta fræga, bæjarhátíðir um land allt næstu helgi. Við ræðum evrópusambandið á mjög grunnan máta en mestum tíma verjum við að ræða um nýjustu Evil dead myndina Evil Dead Burn.

  21. #113 HM hornið, bæjarhátíðir og Minions & Monsters (2026)

    47 minEpisodio 114

    Í þætti dagsins förum við á dýptina um bæjarhátíðir sem eru haldnar um allt land. Við ræðum HM í fótbolta og tölum svo smá um nýjustu Minions myndina, Minions & Monsters. Þetta er svona meira bæjarhátíðarþáttur …

    Notas del episodio

    Í þætti dagsins förum við á dýptina um bæjarhátíðir sem eru haldnar um allt land. Við ræðum HM í fótbolta og tölum svo smá um nýjustu Minions myndina, Minions & Monsters. Þetta er svona meira bæjarhátíðarþáttur þessa vikuna frekar en kvikmyndahlaðvarp 😂

  22. #112 Bæjarhátíðir og Supergirl (2026

    49 minEpisodio 113

    Í þætti dagsins ræðum við bæjarhátíðir á Íslandi af mikilli ástríðu, aðallega af því að okkur finnst myndin sem við ræddum svo afspyrnu leiðinleg. En svona er þetta: nýr mánudagur, nýr þáttur

  23. #111 HM í fótbolta, Cruise er góður maður og The Furious (2026)

    54 minEpisodio 112

    Í þætti dagsins tölum við um 17 júní, æsta aðdáendur, HM í fótbolta og eina rosalegustu kung fu mynd sem þetta tvíeyki hefur nokkurn tíma séð.

  24. #110 Stöð 2 heimili, útilegur, Obsession og Disclosure day (2026)

    1 h 46 minEpisodio 111

    Sérstakur samstarfsþáttur með Bíófíklum — og við erum tvöfalt fleiri en venjulega, svo við tökum okkur tvöfalt meiri tíma! Á dagskrá eru tjaldstæði, bíóhús og Obsession, en stærsta málið er nýjasta …

    Notas del episodio

    Sérstakur samstarfsþáttur með Bíófíklum — og við erum tvöfalt fleiri en venjulega, svo við tökum okkur tvöfalt meiri tíma! Á dagskrá eru tjaldstæði, bíóhús og Obsession, en stærsta málið er nýjasta Spielberg-myndin, Disclosure Day!

  25. #109 Listgjörningar, frægðarsól Jóhannes Hauks og Masters of the Universe (2026)

    1 hEpisodio 110

    Í þætti dagsins ræðum við listgjörninga, hetjur samtímans og hetju hvíta tjaldsins — He-Man! Mynd vikunnar er Masters of the Universe .

  26. #108 Láréttur tjáningardans, BBQ hátíð, Útskriftir og Backrooms (2026)

    59 minEpisodio 109

    Í þætti dagsins fjöllum við um Listahátíð í Reykjavík, grillhátíð í Reykjavík, útskriftir í Reykjavík en svo sögur af landsbyggðinni. Að lokum fjöllum við um sálræna tryllinginn sem er Backrooms.

  27. #107 Á Magnús Hlynur heima í Landanum?- kosningaloforð, sól og The Mandalorian and Grogu (2026)

    1 hEpisodio 108

    Í þætti dagsins fjöllum við um nýliðnar kosningar og greinum ástandið aðeins. Við fjöllum einnig um mikilvægi sólarinnar og hversu vel Magnús Hlynur passar inn á Landann, sumir segja meira að segja að Landinn …

    Notas del episodio

    Í þætti dagsins fjöllum við um nýliðnar kosningar og greinum ástandið aðeins. Við fjöllum einnig um mikilvægi sólarinnar og hversu vel Magnús Hlynur passar inn á Landann, sumir segja meira að segja að Landinn hafi verið stofnaður honum til höfuðs á sínum tíma.

    Að lokum fjöllum við um hina stórskemmtilegu Star Wars mynd The Mandalorian and Grogu, mynd sem ætti ekki að svíkja neinn.

  28. #106 Stjórnmál, landsbyggðarlíf og In the Grey (2026)

    60 minEpisodio 107

    Eftir óvænt hlé tökum við aftur upp þráðinn þar sem frá var horfið! Í þætti dagsins ræðum við lífið síðustu vikurnar og förum yfir samskipti systkina. Við gerum kosningabaráttu undanfarinna daga góð skil og að …

    Notas del episodio

    Eftir óvænt hlé tökum við aftur upp þráðinn þar sem frá var horfið! Í þætti dagsins ræðum við lífið síðustu vikurnar og förum yfir samskipti systkina. Við gerum kosningabaráttu undanfarinna daga góð skil og að lokum ræðum við nýjustu mynd Guy Ritchie, In the Grey – en þar er mikið um fallegt fólk í fallegum fötum! :)

  29. #105 Vorið, bíll.is og Lee Cronins The Mummy (2026)

    55 minEpisodio 106

    Jæja góðir hálsar! Vorið er mætt, sumarið er handan við hornið og hryllingsmyndirnar farnar að láta á sér kræla. Við fórum á eina slíka, Lee Cronin´s The Mummy . Það er óhætt að segja að ýmislegt sé um þessa …

    Notas del episodio

    Jæja góðir hálsar!
    Vorið er mætt, sumarið er handan við hornið og hryllingsmyndirnar farnar að láta á sér kræla.
    Við fórum á eina slíka, Lee Cronin´s The Mummy .

    Það er óhætt að segja að ýmislegt sé um þessa mynd að segja – og það er ekki allt fallegt 👀

  30. #104 Umpottun, jarðtenging og I Swear (2025)

    39 minEpisodio 105

    Í þætti vikunnar ræðum við umpottun, jarðtengingar á Austurlandi og fólk sem er salt jarðar. En þorra þáttarins verjum við í að ræða hina frábæru I Swear, mynd sem ætti ekki að skilja neinn eftir ósnortin.

Aquí están los 40 episodios más recientes de 134. Los anteriores están en el feed del podcast.

Podcasts similares

Más podcasts de Arte
¿Es tu podcast?

Confírmalo con una entrada en tu feed: aquí recibes un código, lo añades como podcast:txt en el canal de tu feed y nosotros lo comprobamos. Después tu podcast aparecerá como «verificado» en SoundNode.

Ajustes

Visualización

Idioma

Determina qué emisoras ves primero en la página de inicio.

Historial

Las emisoras y episodios escuchados recientemente y tus últimas búsquedas solo se guardan en este navegador.

Avisos

Un breve aviso cuando un pódcast que sigues tiene un episodio nuevo. Puedes desactivar pódcast concretos con la campana de su página.

Cuenta

Guarda tus favoritos: en la app y en la web.

Atajos de teclado

/
Abrir búsqueda
Espacio
Reproducir o pausar
← →
En el reproductor: 15 s atrás, 30 s adelante (episodios) · en una fila: siguiente tarjeta
↑ ↓
En una fila: destino dentro de la tarjeta
Inicio / Fin
En una fila: primera o última tarjeta
Esc
Cerrar ventana o menú
?
Este resumen
Reproduciendo ahora

Ir a la emisora

A continuación

    Añade episodios con «A continuación»: sonarán después del episodio actual.