Saltar al contenido

Gerður Kristný, Páll Ragnar og Tui Hirv og Púðlusafnið

2 de noviembre de 2026 · 51 min

Notas del episodio

Hjónin Páll Ragnar Pálsson og Tui Hirv hafa lagt margt á vogaskálar íslensks tónlistarlífs í getnum tíðina en hafa ekki áður gert heila plötu í sameiningu. Skífan Layers, sem inniheldur blöndu af eistneskum, íslenskum, skandinavískum og enskum þjóðlögum, kom út á dögunum og Páll og Tui mættu í hljóðstofu til að segja frá samstarfinu, ferlinu og hvernig rætur þeirra úr pönki og kórastarfi birtast í tónlistinni. "Líf mitt var eins og að spila míkadó þar sem hver prjónninn var veiddur á fætur öðrum án þess að hrúgan hryndi." Stendur aftan á skáldsögunni Míkadó sem rithöfundurinn Gerður Kristný var að senda frá sér en í verkinu fáum við að kynnast fjölskyldu á erfiðum tímamótum í gegnum sjónarhorn 11 ára stúlku. Gerður Kristný kemur í hljóðstofu og segir frá bókinni. Púðlusafnið er nýtt sviðsverk sem sýnt er á fjölum Tjarnarbíós. Verkið er samið og flutt af systrunum Olgu Sonju og Salóme Sól, og er það innblásið af bókinni Night Bitch eftir Rachel Yoder. Sjöfn Asare gerði sér ferð á Púðlusafnið og segir frá í þættinum.

Todos los episodios de Víðsjá

Ajustes

Visualización

Idioma

Determina qué emisoras ves primero en la página de inicio.

Historial

Las emisoras y episodios escuchados recientemente y tus últimas búsquedas solo se guardan en este navegador.

Avisos

Un breve aviso cuando un pódcast que sigues tiene un episodio nuevo. Puedes desactivar pódcast concretos con la campana de su página.

Cuenta

Guarda tus favoritos: en la app y en la web.

Atajos de teclado

/
Abrir búsqueda
Espacio
Reproducir o pausar
← →
En el reproductor: 15 s atrás, 30 s adelante (episodios) · en una fila: siguiente tarjeta
↑ ↓
En una fila: destino dentro de la tarjeta
Inicio / Fin
En una fila: primera o última tarjeta
Esc
Cerrar ventana o menú
?
Este resumen
Reproduciendo ahora

Ir a la emisora

A continuación

    Añade episodios con «A continuación»: sonarán después del episodio actual.