
S2E6 | Andreas hjá Sahara - Fleiri fylgjendur eru ekki markmiðið
Notas del episodio
Andreas Aðalsteinsson hjá auglýsingastofunni Sahara veit sannarlega eitt og annað um markaðssetningu, ekki síst þegar kemur að samfélagsmiðlum. Hann fer yfir það sem virkar í dag: hvað grípur athygli, hvað skapar tengingu og hvað hjálpar vörumerkjum að vaxa.
Umræðuefni þáttarins eru meðal annars:
- Er „branding vs. sala“ röng spurning?
- Af hverju segir fylgjendatala ekki alla söguna?
- Hvaða íslensku áhrifavaldar standa sig best?
- Hvernig nær maður athygli fólks á fyrstu 3 sekúndunum?
- Hvað gerir content áhrifaríkt?
- Skiptir rétta tilfinningin meira máli en „súpa dagsins“?
Andreas hjálpar okkur að setja hlutina í samhengi þegar kemur að skilaboðum, samfélagsmiðlum, auglýsingum og vexti.
Þetta er þáttur fyrir frumkvöðla, fyrirtækjaeigendur, markaðsfólk og alla sem hafa einhvern tímann hugsað:
„Við þurfum að vera virkari á samfélagsmiðlum… en hvað eigum við eiginlega að gera?“
--
💛 Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skór.is, Kristall Plús, Góa, Tekk, Miðbær Selfoss og Oche.
💡 Sería 2 af VÖRUMERKI er framleidd með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu.
🎶Sérstakar þakkir fyrir hljóð og myndvinnslu: Eyþór Úlfar Þórisson
📲 Fylgdu okkur á Instagram @vorumerki