Aller au contenu

95. Börn með krabbamein

12 novembre 2026 · 1 h 35 min

Notes de l’épisode

Við höldum áfram að fjalla um börn með krabbamein erfitt málefni en gríðarlega þarft að ræða um það. Það komu til okkur 2 yndislegar konur sem báðar voru til í að deila einlæglega sinni reynslu og fræða okkur um starfið sem er unnið með börnum sem veikjast af krabbameini og fjölskyldum þeirra.

Louisa Sif Mønster hefur komið til okkar áður og sagt okkur frá Team Rynkeby hjóla hópnum sem hún hefur verið partur af og sem safnar styrkjum fyrir langveik börn. Louisa er sjálf móðir barns sem var með bráðahvítblæði- og þekkir því vel hvað stuðningur skiptir miklu máli og kom til okkar til að deila lífsreynslu sinni og fjölskyldunnar þegar dóttir þeirra hjóna veiktist aðeins 3 og hálfs árs gömul. Louisa starfar í dag sem iðjuþjálfi hjá félaginu börn með krabbamein við að styðja foreldra sem stóðu í sömu erfiðu sporum og þau.

Gréta Ingþórsdóttir er að vinna hjá félaginu börn með krabbamein, styrktarfélagi sem var stofnað 1991. Hún upplifði það sem ekkert foreldri á að þurfa að upplifa, að missa barnið sitt. Stelpan hennar var mjög ung þegar hún greindist með heilaæxli. Þessi erfiða lífsreynsla varð til þess að hún vildi starfa með foreldrum og fjölskyldum sem standa í þeim sporum að barn veikist af illvígum sjúkdómi.

Árlega greinast 12-14 börn á Íslandi á aldrinum 0-18 ára, með krabbamein. Hvítblæði og heilaæxli eru algengust.

Börn með krabbamein greiða ýmsa þjónustu fyrir skjólstæðinga sína og má þá helst nefna sálfræðiþjónustu en einnig ýmiss konar endurhæfingu.

Sem betur fer lifa alltaf fleiri og fleiri það af að greinast með krabbamein en meðferð við krabbameini getur haft ýmsar aukaverkanir og síðbúnar afleiðingar í för með sér, líkamlegar, andlegar og félagslegar. Og börnin sem læknast, foreldrar þeirra og systkini geta þurft margs konar aðstoð í mörg ár eftir að meðferð lýkur.

https://www.bornmedkrabbamein.is/is
Þessi þáttur er í boði:

-Góðvildar - Styrktarfélagið Góðvild hefur það markmið að styðja við verkefni sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna á Íslandi og fjölskyldna þeirra. Hægt er að styrkja Góðvild og með því er verið að styðja við fjöldann allan af verkefnum sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna.

godvild.is - Kt. 660117-2020 Reikn. 0301-26-660117

Mobility Aid:

Mobility er með bæði verslun sem er staðsett í Urriðaholtsstræti 24 - og hjálpartækjaleiga sem býður uppá ýmis hjálpartæki til leigu. Til að skoða úrvalið í verslun kíktu inn á mobility.is

Childs Farm

Childs Farm er margverðlaunuð bresk húð- og hreinlætislína.

Í henni eru nær eingöngu náttúruleg innihaldsefni og kjarnaolíur.

Vörurnar eru einstaklega mildar, ilma vel og henta einstaklega vel viðkvæmri húð.

Sölustaðir:

Childs Farm fæst í Hagkaup, Krónunni, Fjarðarkaupum og apótekum um land allt. Vöruúrval getur verið

ögn breytilegt eftir verslunum.


Tous les épisodes de 4. vaktin

Paramètres

Affichage

Langue

Détermine les stations affichées en premier sur la page d’accueil.

Historique

Les stations et épisodes écoutés récemment et tes dernières recherches sont seulement enregistrés dans ce navigateur.

Notifications

Un court message quand un podcast que tu suis publie un nouvel épisode. Désactive un podcast précis avec la cloche sur sa page.

Compte

Enregistrez vos favoris – dans l’app et sur le site.

Raccourcis clavier

/
Ouvrir la recherche
Espace
Lecture ou pause
← →
Dans le lecteur : 15 s en arrière, 30 s en avant (épisodes) · dans une rangée : tuile suivante
↑ ↓
Dans une rangée : cible dans la tuile
Début / Fin
Dans une rangée : première ou dernière tuile
Esc
Fermer la fenêtre ou le menu
?
Cet aperçu
En cours de lecture

Voir la station

À suivre

    Ajoutez des épisodes avec « À suivre » – ils seront lus après l'épisode en cours.