Aller au contenu
Auðnast

Auðnast

NouveauUppsagnir og sálfélagsleg skuld á vinnustöðum2 novembre 2026 · 38 min
Épisodes
35
Parution
mensuelle
Dernier épisode
2 Nov 2026

À propos du podcast

Auðnast er hlaðvarp um heilsu, samskipti og menningu í vinnu og lífi. Við ræðum það sem raunverulega mótar líðan fólks: tengsl, mörk, vald, ábyrgð, streitu, samskipti, tilfinningar og sálfræðilegt öryggi – bæði á vinnustað og í einkalífi. Í hverjum þætti ræða Ragnhildur og Hrefna, málefni sem spretta beint úr þeirra daglegu störfum í vinnuvernd, meðferð og ráðgjöf. Samtölin byggja á faglegri þekkingu, klínískri reynslu og rannsóknum – en líka á raunverulegum aðstæðum sem fólk þekkir úr eigin lífi. Auðnast er fyrir þau sem vilja: - skilja eigin líðan og samskipti betur - takast á við krefjandi aðstæður af ábyrgð - byggja heilbrigðari vinnustaði og tengsl - sinna sjálfsvinnu með uppbyggilegum hætti Ragnhildur er klínískur sálfræðingur, fjölskyldufræðingur og sérfræðingur í vinnuvernd. Hrefna Hugosdóttir er hjúkrunar- og fjölskyldufræðingur, sérfræðingur í vinnuvernd og sáttamiðlari. Saman stofnuðu þær Auðnast árið 2014 með það að markmiði að efla heilsu, öryggi og velsæld fólks – með áherslu á sálfélagslegt öryggi, sjálfbærni og heilbrigð samskipti.

Épisodes 35

  1. Uppsagnir og sálfélagsleg skuld á vinnustöðum

    38 minÉpisode 35

    Í þessum þætti ræða Ragnhildur og Hrefna hvað gerist þegar fólki fækkar á vinnustað en verkefnin, ábyrgðin og væntingarnar standa eftir. Þær kynna til leiks hugtakið sálfélagsleg skuld og fara yfir algengar …

    Notes de l’épisode

    Í þessum þætti ræða Ragnhildur og Hrefna hvað gerist þegar fólki fækkar á vinnustað en verkefnin, ábyrgðin og væntingarnar standa eftir. Þær kynna til leiks hugtakið sálfélagsleg skuld og fara yfir algengar mýtur um uppsagnir. Að lokum fara þær yfir spurningar sem vinnustaðir þurfa að geta svarað þegar uppsagnir hafa átt sér stað.

  2. þegar gervigreindin mætir í vinnuna, hvað verður um okkur?

    41 minÉpisode 34

    Ragnhildur og Hrefna ræða hvað gerist innra með fólki þegar gervigreind kemur inn á vinnustaðinn. Sama breyting getur vakið létti og forvitni hjá einum en óöryggi og ótta hjá öðrum. Þær skoða einnig hvernig …

    Notes de l’épisode

    Ragnhildur og Hrefna ræða hvað gerist innra með fólki þegar gervigreind kemur inn á vinnustaðinn. Sama breyting getur vakið létti og forvitni hjá einum en óöryggi og ótta hjá öðrum. Þær skoða einnig hvernig óvissa um framtíð starfsins getur haft áhrif á faglega sjálfsmynd, hvers vegna fólk þarf að upplifa að það hafi áfram rödd og áhrif og hvað gerist þegar gervigreind verður ráðgjafi sem er alltaf sammála okkur. Áherslan er á sálfélagslegt öryggi, mannleg samskipti og hlutverk stjórnenda í breytingum sem enginn sér alveg fyrir endann á.

  3. Erfið samskipti og áhrif þeirra

    34 minÉpisode 33

    Erfið samskipti eru ekki bara óþægileg heldur líka orkufrek. Við skoðum ólíkar útgáfur af erfiðum samskiptum og hvernig þau hafa áhrif á líkamlega og andlega heilsu. Við rýnum í rannsóknir og kynnum gagnleg ráð …

    Notes de l’épisode

    Erfið samskipti eru ekki bara óþægileg heldur líka orkufrek. Við skoðum ólíkar útgáfur af erfiðum samskiptum og hvernig þau hafa áhrif á líkamlega og andlega heilsu. Við rýnum í rannsóknir og kynnum gagnleg ráð þegar samskipti reyna á.

  4. Fjarvistir á vinnustað

    48 minÉpisode 32

    Fjarvistir eru ekki bara kostnaður. Þær eru skilaboð.Í þessum þætti skoðum við hvað fjarvistir og óheilbrigð viðvera geta sagt okkur um menningu, stjórnun og sálfélagslegt öryggi á vinnustaðnum. Við veltum því …

    Notes de l’épisode

    Fjarvistir eru ekki bara kostnaður. Þær eru skilaboð.Í þessum þætti skoðum við hvað fjarvistir og óheilbrigð viðvera geta sagt okkur um menningu, stjórnun og sálfélagslegt öryggi á vinnustaðnum. Við veltum því einnig fyrir okkur hvers vegna stærsta vandamálið er stundum ekki hverjir eru frá vinnu, heldur hverjir mæta og líður ekki vel.

  5. Þegar eitthvað vantar upp á - Um tómleika í nánum samböndum

    55 minÉpisode 31

    Þátturinn fjallar um þá tilfinningu sem mörg pör kannast við en fá tala opinskátt um: Að vera í sambandi þar sem allt virðist í lagi á yfirborðinu en samt ríkir fjarlægð og einmanaleiki. Við skoðum hvað gerist …

    Notes de l’épisode

    Þátturinn fjallar um þá tilfinningu sem mörg pör kannast við en fá tala opinskátt um: Að vera í sambandi þar sem allt virðist í lagi á yfirborðinu en samt ríkir fjarlægð og einmanaleiki.

    Við skoðum hvað gerist þegar nándin dofnar hægt og rólega, hvers vegna pör detta úr takti og hvernig daglegt álag, samskiptamynstur og óuppfylltar þarfir geta skapað fjarlægð. Við ræðum hvað rannsóknir segja um tengsl og öryggi í samböndum og hvað hjálpar pörum að finna taktinn á ný.

    Þátturinn er fyrir öll sem hafa einhvern tímann spurt sig: "Verður þetta bara svona?" og fyrir þau sem eru í vangaveltu um hvort þau séu að ganga í gegnum tímabundna fjarlægð í sambandinu eða hvort þau séu jafnvel komið á endastöð.

  6. Stjórnun í breytingum: Að leiða í gegnum óvissu og krefjandi tíma

    39 minÉpisode 30

    Í þessum þætti ræða Ragnhildur og Hrefna hvernig stjórnendur geta leitt fólk í gegnum óvissu, breytingar og erfiða tíma. Þær skoða hvað gerist hjá fólki þegar tilfinningin um öryggi breytist, hvaða mistök …

    Notes de l’épisode

    Í þessum þætti ræða Ragnhildur og Hrefna hvernig stjórnendur geta leitt fólk í gegnum óvissu, breytingar og erfiða tíma. Þær skoða hvað gerist hjá fólki þegar tilfinningin um öryggi breytist, hvaða mistök stjórnendur gera gjarnan og hvað rannsóknir segja um traust, skýrleika, sýnileika og samkennd í stjórnun.

    Þátturinn er fyrir stjórnendur, mannauðsfólk og alla sem vilja skilja betur hvernig hægt er að skapa öryggi, halda utan um teymi og leiða á mannlegan hátt.

    Heimildir:

    Bakker & Demerouti: Job Demands-Resources Model

    Amy Edmondson: Psychological Safety, Harvard Business School,

    Dan Siegel: Interpersonal Neurobiology

    Brené Brown: Dare to Lead

  7. Þættinum hefur borist bréf: Álag, stjórnun og ábyrgð á vinnustað

    44 minÉpisode 29

    Í þessum þætti svörum við spurningum frá hlustendum um margvíslegar áskoranir á vinnustað. Við förum beint í það sem raunverulega mótar líðan og samskipti; kulnun, álag, stjórnun og ábyrgð. Við ræðum: Er kulnun …

    Notes de l’épisode

    Í þessum þætti svörum við spurningum frá hlustendum um margvíslegar áskoranir á vinnustað. Við förum beint í það sem raunverulega mótar líðan og samskipti; kulnun, álag, stjórnun og ábyrgð.

    Við ræðum:

    1. Er kulnun stundum misskilin sem skortur á þrautseigju?
    2. Eru stjórnendur gerðir ábyrgir fyrir líðan starfsfólks?
    3. Hvers vegna eru konur ekki teknar jafn alvarlega í ágreiningi?
    4. Hvað á stjórnandi að gera þegar virðing fyrir starfsmanni hverfur?

    Heiðarlegur og einlægur þáttur um flókin mál.

  8. Einelti og óheilbrigð samskipti á vinnustað

    45 minÉpisode 28

    Í þessum þætti ræða Ragnhildur og Hrefna um óheilbrigð samskipti og einelti á vinnustað, hvernig það verður til og í hvers konar starfsumhverfi það þrífst. Þær fara yfir muninn á ágreiningi og einelti, ræða …

    Notes de l’épisode

    Í þessum þætti ræða Ragnhildur og Hrefna um óheilbrigð samskipti og einelti á vinnustað, hvernig það verður til og í hvers konar starfsumhverfi það þrífst. Þær fara yfir muninn á ágreiningi og einelti, ræða valdaójafnvægi og mynstur í samskiptum og skoða hvaða þættir í menningu og stjórnun geta ýtt undir eða dregið úr áhættu. Að lokum fara þær yfir hvað er hægt að gera þegar mál koma upp og hvaða forvarnir Skipta mestu máli.

  9. Reiði – ógn eða leiðarvísir?

    46 minÉpisode 27

    Reiði er oft misskilin tilfinning bæði í einkalífi og starfi. Í þessum þætti kryfjum við reiðina og hvernig hún tengist mörkum, sjálfsvirðingu, valdaleysi og tengslum – og af hverju hún situr svona lengi í …

    Notes de l’épisode

    Reiði er oft misskilin tilfinning bæði í einkalífi og starfi. Í þessum þætti kryfjum við reiðina og hvernig hún tengist mörkum, sjálfsvirðingu, valdaleysi og tengslum – og af hverju hún situr svona lengi í okkur. Við skoðum fræðin og hagnýt skref til að vinna með reiði á uppbyggilegan hátt.

    https://www.harrietlerner.com/

    https://hbr.org/2013/11/emotional-agility

    https://drdansiegel.com/

  10. Hamingja í vinnu - Markmið eða óraunhæf krafa?

    50 minÉpisode 26

    Hvað þýðir hamingja í vinnu og ertu með raunhæfar væntingar um hamingju? Við skoðum bæði mannlega og fræðilega sjónarhornið og veltum því fyrir okkur hvort hamingja sé frekar orðin krafa en markmið. Við skoðum …

    Notes de l’épisode

    Hvað þýðir hamingja í vinnu og ertu með raunhæfar væntingar um hamingju? Við skoðum bæði mannlega og fræðilega sjónarhornið og veltum því fyrir okkur hvort hamingja sé frekar orðin krafa en markmið. Við skoðum hvað vísindin segja og kynnum praktískt verkfæri bæði fyrir einstaklinga og stjórnendur.

    https://skemman.is/handle/1946/40537

    https://www.mdpi.com/2076-3387/15/9/351

  11. Sjálfstraust

    43 minÉpisode 25

    Hvað er raunverulegt sjálfstraust? Í þessum þætti ræðum við hvað sjálfstraust er, hvernig það mótast og hvernig það getur birst í ólíkum myndum - bæði heilbrigðum og óheilbrigðum. Við skoðum sjálfstraust út frá …

    Notes de l’épisode

    Hvað er raunverulegt sjálfstraust? Í þessum þætti ræðum við hvað sjálfstraust er, hvernig það mótast og hvernig það getur birst í ólíkum myndum - bæði heilbrigðum og óheilbrigðum. Við skoðum sjálfstraust út frá sálfræðinni, tengslamyndun, fjölskyldumynstrum og lífeðlisfræðinni, með það að markmiði að hjálpa þér að þekkja sjálfstraustið þitt og efla það á heilbrigðan hátt.

  12. Allt sem þú þarft að vita fyrir aðventuna

    41 minÉpisode 24

    Í þessum þætti ætlum við að vera á ljúfu og léttu nótunum - Við förum yfir væntingar, tenglslamyndun og könnum hvers konar aðventutýpa þú ert. Að lokum förum yfir við nokkur atriði sem undirbúa taugkerfið þitt …

    Notes de l’épisode

    Í þessum þætti ætlum við að vera á ljúfu og léttu nótunum - Við förum yfir væntingar, tenglslamyndun og könnum hvers konar aðventutýpa þú ert. Að lokum förum yfir við nokkur atriði sem undirbúa taugkerfið þitt fyrir komandi vikur. Ef þu vilt gera aðventuna enn betri, hlustaðu þá á þennan þátt því hinn raunverulegi undirbúningur hefst með því að virkja sefkerfið. 

  13. Ágreiningur - allt sem þú þarft að vita

    51 minÉpisode 23

    Ef þú vilt skilja ágreining þá er þetta þáttur fyrir þig. Við rýnum í hugtakið, skoðum hvers vegna hann vekur svona sterk viðbrögð og hvernig við getum farið úr forðun yfir í færni. Við ræðum ágreining í vinnu …

    Notes de l’épisode

    Ef þú vilt skilja ágreining þá er þetta þáttur fyrir þig. Við rýnum í hugtakið, skoðum hvers vegna hann vekur svona sterk viðbrögð og hvernig við getum farið úr forðun yfir í færni. Við ræðum ágreining í vinnu, parsamböndum, vináttu og upprunafjölskyldu og förum yfir hvað er algengast að fari úrskeiðis. Við fyllum á verkfærakassann með hagnýtum aðferðum - meðal annars hvernig er best að bregðast við óvæntum ágreiningi.

    Þátturinn er fyrir öll sem vilja eiga heiðarlegri, hlýlegri og skýrari samskipti – hvort sem er heima fyrir, í vinnu eða í mikilvægum samböndum.

  14. Hver er þinn fjölskylduarfur? Sagan sem mótar samböndin okkar

    47 minÉpisode 22

    Ef þú vilt skilja þig og þín sambönd betur – skaltu hlusta. Í þessum þætti skoðum við hvernig sagan okkar og tengsl í barnæsku hafa áhrif á samskipti og heilsu á fullorðinsárum. Við skoðum líka hvernig gömul …

    Notes de l’épisode

    Ef þú vilt skilja þig og þín sambönd betur – skaltu hlusta. Í þessum þætti skoðum við hvernig sagan okkar og tengsl í barnæsku hafa áhrif á samskipti og heilsu á fullorðinsárum. Við skoðum líka hvernig gömul mynstur frá fyrri kynslóðum og tilfinningakerfi fjölskyldunnar móta viðbrögð okkar og hafa áhrif bæði á ástarsambönd sem og önnur sambönd í þínu lífi.

    Lesefni:

    https://www.amazon.com/Love-Never-Enough-Misunderstandings-Relationship/dp/0060916044

    https://www.thebowencenter.org/introduction-eight-concepts

  15. Frá innri ró til ytri áhrifa: sjö lykilþættir í leik og starfi

    44 minÉpisode 21

    Við förum yfir sjö hæfniþætti sem gott er að tileinka sér bæði í leik og starfi. Sum vilja kalla þetta mjúka hæfileika – okkur finnst þetta vera mikilvægu hæfileikarnir. Hlustaðu á þáttinn og kannaðu hvort það …

    Notes de l’épisode

    Við förum yfir sjö hæfniþætti sem gott er að tileinka sér bæði í leik og starfi. Sum vilja kalla þetta mjúka hæfileika – okkur finnst þetta vera mikilvægu hæfileikarnir. Hlustaðu á þáttinn og kannaðu hvort það liggi sóknartækifæri hjá þér.

  16. Bjargráð: Lausnamiðuð, tilfinningaleg og minna gagnleg

    46 minÉpisode 20

    „Bjargráð eru ekki töfrabrögð – þau eru verkfæri. Í þesstum þætti förum við yfir tilfinningamiðuð, lausnamiðuð og minna gagnleg bjargráð, og tölum heiðarlega um það hvernig kynslóðararfurinn og karaktereinkenni …

    Notes de l’épisode

    „Bjargráð eru ekki töfrabrögð – þau eru verkfæri. Í þesstum þætti förum við yfir tilfinningamiðuð, lausnamiðuð og minna gagnleg bjargráð, og tölum heiðarlega um það hvernig kynslóðararfurinn og karaktereinkenni hafa áhrif. 

  17. Sálfélagslegt öryggi á vinnustað

    48 minÉpisode 19

    Hvað þarf til þess að fólki líði vel á vinnustað? Kannski er það ekki bara jógasalur eða hópefli heldur grunnstoðir í skipulagi og vel upplýstir stjórnendur. Við tölum um það sem Auðnast stendur fyrir alla …

    Notes de l’épisode

    Hvað þarf til þess að fólki líði vel á vinnustað? Kannski er það ekki bara jógasalur eða hópefli heldur grunnstoðir í skipulagi og vel upplýstir stjórnendur. Við tölum um það sem Auðnast stendur fyrir alla daga: Sálfélagslegt öryggi. 

    Lesefni sem við mælum með:  

     https://bmcpublichealth.biomedcentral.com/articles/10.1186/s12889-023-16246-x?utm 

  18. Tilfinningagreind

    42 minÉpisode 18

    Við ræðum hvað tilfinningagreind er út frá mismunandi sjónarhornum og hvernig við getum verið misgóð í henni eftir því í hvaða hlutverkum við sinnum. Við skoðum líka mat á eigin tilfinningagreind og hvernig við …

    Notes de l’épisode

    Við ræðum hvað tilfinningagreind er út frá mismunandi sjónarhornum og hvernig við getum verið misgóð í henni eftir því í hvaða hlutverkum við sinnum. Við skoðum líka mat á eigin tilfinningagreind og hvernig við getum eflt hana í daglegu lífi. Hlustaðu og vertu í takt við tilfinningar þínar!

  19. Stöðutékk - á þér...

    39 minÉpisode 17

    Við ræðum einfaldar leiðir til að taka stöðu á sér persónulega og hvers vegna við erum líkleg til þess að festast í sama mynstrinu aftur og aftur. Við skoðum vanabrautir og hvernig sjálfsmildi getur varðað …

    Notes de l’épisode

    Við ræðum einfaldar leiðir til að taka stöðu á sér persónulega og hvers vegna við erum líkleg til þess að festast í sama mynstrinu aftur og aftur. Við skoðum vanabrautir og hvernig sjálfsmildi getur varðað veginn í átt að farsælli breytingu. Það er að segja ef það er eitthvað sem þú vilt breyta. 

    https://www.youtube.com/watch?v=hiiEeMN7vbQ – Carol dweck 

    https://self-compassion.org/wp-content/uploads/2022/08/PsychReviewInPress.pdf 

    https://www.thebowencenter.org/multigenerational-transmission-process 

  20. Sumarfrí sem streituvaldur

    29 minÉpisode 16

    Við ræðum hvers vegna sumarfrí er stundum streituvaldur bæði út frá starfshlutverkinu en ekki síður út frá fjölskyldulífinu. Við skoðum líka fjögur gagnleg ráð sem geta nýst þér og þínum …

    Notes de l’épisode

    Við ræðum hvers vegna sumarfrí er stundum streituvaldur  bæði út frá starfshlutverkinu en ekki síður út frá fjölskyldulífinu. Við skoðum líka fjögur gagnleg ráð sem geta nýst þér og þínum.  

     https://hrreview.co.uk/har-news/wellbeing-news/majority-of-working-brits-feel-pressure-to-check-company-emails-while-on-holiday/371705? 

    https://www.sciencedaily.com/releases/2018/08/180810091553.htm?utm_source 

  21. Að vinna með einhverjum sem þér líkar ekki við.

    29 minÉpisode 15

    Í þessum þætti förum við yfir reynslu sem mörg þekkja en fá kannski ræða opinskátt. Hvað gerum við þegar okkur líkar ekki vel við samstarfsfélaga. Við köfum beint í kjarnann, reynum að skilja og skoða þær …

    Notes de l’épisode

    Í þessum þætti förum við yfir reynslu sem mörg þekkja en fá kannski ræða opinskátt. Hvað gerum við þegar okkur líkar ekki vel við samstarfsfélaga. Við köfum beint í kjarnann, reynum að skilja og skoða þær tilfinningar sem skjóta upp kollinum þegar okkur finnst einhver pirrandi, ekki starfi sínu vaxinn eða bara leiðinlegur.

     Greinar  sem við mælum með:  

    https://www.frontiersin.org/journals/aging-neuroscience/articles/10.3389/fnagi.2016.00074/full 

  22. Framhjáhald – út frá sjónarhóli þess sem haldið er framhjá

    44 minÉpisode 14

    Í þessum þætti förum við yfir algenga upplifun og líðan hjá fólki sem haldið er framhjá. Viðfangsefnið er sannarlega viðkvæmt og sársaukafullt en engu að síður mikilvægt.

  23. Samskipti - Mikilvægasta verkfærið á vinnustaðnum

    33 minÉpisode 13

    Í þessum þætti förum við yfir víðan völl þegar kemur að samskiptum á vinnustað, hvaða áhrif ógagnleg samskipti hafa á líðan starfsfólks og hvaða leiðir eru farsælar til þess að efla samskipti á vinnustað …

    Notes de l’épisode

    Í þessum þætti förum við yfir víðan völl þegar kemur að samskiptum á vinnustað, hvaða áhrif ógagnleg samskipti hafa á líðan starfsfólks og hvaða leiðir eru farsælar til þess að efla samskipti á vinnustað.  

    Lesefni sem við mælum með:

    https://www.shrm.org/in/topics-tools/news/organizational-employee-development/cost-poor-communication? 

     https://www.mckinsey.com/locations/mckinsey-client-capabilities-network/our-work/strategic-and-change-communications/the-communications-exchange/unlocking-organizational-communication-five-ways-to-ignite-employee-engagement? 

  24. Hvar tilheyrir þú og skiptir það máli fyrir heilsuna?

    34 minÉpisode 12

    Í þessum þætti förum við yfir það að tilheyra og hversu djúpstæð þörf það er innra með okkur. Við skoðum hvað gerist ef við upplifum að við tilheyrum ekki bæði í einkalífi og starfi og svo skoðum við gagnlegar …

    Notes de l’épisode

    Í þessum þætti förum við yfir það að tilheyra og hversu djúpstæð þörf það er innra með okkur. Við skoðum hvað gerist ef við upplifum að við tilheyrum ekki  bæði í einkalífi og starfi og svo skoðum við gagnlegar leiðir til þess að tilheyra.

    Grein sem við mælum með:  

    The article "The Need to Belong: Desire for Interpersonal Attachments as a Fundamental Human Motivation" by Roy F. Baumeister and Mark R. Leary was published in the journal Psychological Bulletin in 1995 (Volume 117, Issue 3, Pages 497–529) 

  25. Skugggahliðar stjórnenda - einkenni og afleiðingar

    35 minÉpisode 10

    Í þessum þætti förum við yfir þegar styrkleikar stjórnenda breytast í skuggahliðar og hvaða afleiðingar það hefur á starfsfólk. Grein sem við mælum með: Twenty years on the dark side: Six lessons about bad …

    Notes de l’épisode

    Í þessum þætti förum við yfir þegar styrkleikar stjórnenda breytast í skuggahliðar og hvaða afleiðingar það hefur á starfsfólk.   

     

    Grein sem við mælum með:  

    Twenty years on the dark side: Six lessons about bad leadership. 

    By Hogan, Robert,Kaiser, Robert B.,Sherman, Ryne A.,Harms, Peter D. 

  26. Framhjáhald – sá sem heldur framhjá

    39 minÉpisode 11

    Í þessum þætti förum við yfir hvers vegna fólk heldur framhjá. Viðfangsefnið er sannarlega viðkvæmt og sársaukafullt en engu að síður mikilvægt. Grein sem við mælum með: Love and Infidelity: Causes and …

    Notes de l’épisode

    Í þessum þætti förum við yfir hvers vegna fólk heldur framhjá. Viðfangsefnið er sannarlega viðkvæmt og sársaukafullt en engu að síður mikilvægt.   

     

    Grein  sem við mælum með:  

    Love and Infidelity: Causes and Consequences Höf: Ami Rokach og Sybil H. Chan  

     

    What Do People Do, Say, and Feel When They Have Affairs? Association between Extradyadic Infidelity Motives with Behavioral, Emotional, and Sexual Outcomes. Höf: Dylan Selterman, Justin R. Garcia og Irene Tsapelas 

  27. Gremja – gagnlegt verkfæri eða gallagripur

    40 minÉpisode 8

    Í þessum þætti förum við yfir hvað gremja er og hver er algeng uppspretta hennar. Við stiklum líka á stóru hvernig hægt er að draga úr gremju þegar hún er okkur ógagnleg og Hrefna segir okkur gremjusögu úr sínu …

    Notes de l’épisode

    Í þessum þætti förum við yfir hvað gremja er og hver er algeng uppspretta hennar. Við stiklum líka á stóru hvernig hægt er að draga úr gremju þegar hún er okkur ógagnleg og Hrefna segir okkur gremjusögu úr sínu lífi.  

    Bækur sem við mælum með:  

    The Destructive Power of Resentment: 30 Techniques to Overcome Relationship Resentment eftir Nancy Fagan 

    Ressentiment: Its Phenomenology and Clinical Significance eftir John White

  28. Heilsustraumar á vinnustöðum - Hvað hefur verið vinsælt og hvað mun gerast á næstu árum?

    27 minÉpisode 9

    Í þessum þætti rýnum við í hvað hefur verið ríkjandi á vinnustöðum í heilsu og velferðarúrræðum síðastlðin ár. Við kíkjum líka örlítið í spádómskúluna og spáum fyrir líklegum straumum á komandi árum. Ef þú …

    Notes de l’épisode

    Í þessum þætti rýnum við í hvað hefur verið ríkjandi á vinnustöðum í heilsu og velferðarúrræðum síðastlðin ár. Við kíkjum líka örlítið í spádómskúluna og spáum fyrir líklegum straumum á komandi árum. Ef þú hefur áhuga á heilsu á vinnustöðum - skaltu leggja við hlustir.

  29. Hvíld - Mikilvægasta verkfærið til þess að ná árangri?

    41 minÉpisode 7

    Hvíld er mikilvæg grunnforsenda þegar kemur að því að nýta sköpunargleði, efla þrautseigju og komast farsællega gegnum streituvaldandi tímabil. Í þessum þætti verður farið yfir margvíslegar útgáfur af hvíld og …

    Notes de l’épisode

    Hvíld er mikilvæg grunnforsenda þegar kemur að því að nýta sköpunargleði, efla þrautseigju og komast farsællega gegnum streituvaldandi tímabil. Í þessum þætti verður farið yfir margvíslegar útgáfur af hvíld og hvernig þær nýtast með ólíkum hætti eftir því hvaða verkefni þú ert að fást við hverju sinni.  

  30. Mörk - Mýtur og praktísk ráð

    43 minÉpisode 6

    Að setja mörk er eitthvað sem við þekkjum öll en i þessum þætti förum við yfir það hvernig mörk eru mikilvæg þegar kemur að heilbrigði og vellíðan.

C’est votre podcast ?

Confirmez-le avec une entrée dans votre flux : vous recevez ici un code, vous l’ajoutez comme podcast:txt dans le canal de votre flux, et nous le vérifions. Votre podcast apparaît ensuite comme « vérifié » sur SoundNode.

Paramètres

Affichage

Langue

Détermine les stations affichées en premier sur la page d’accueil.

Historique

Les stations et épisodes écoutés récemment et tes dernières recherches sont seulement enregistrés dans ce navigateur.

Notifications

Un court message quand un podcast que tu suis publie un nouvel épisode. Désactive un podcast précis avec la cloche sur sa page.

Compte

Enregistrez vos favoris – dans l’app et sur le site.

Raccourcis clavier

/
Ouvrir la recherche
Espace
Lecture ou pause
← →
Dans le lecteur : 15 s en arrière, 30 s en avant (épisodes) · dans une rangée : tuile suivante
↑ ↓
Dans une rangée : cible dans la tuile
Début / Fin
Dans une rangée : première ou dernière tuile
Esc
Fermer la fenêtre ou le menu
?
Cet aperçu
En cours de lecture

Voir la station

À suivre

    Ajoutez des épisodes avec « À suivre » – ils seront lus après l'épisode en cours.