Aller au contenu
Besta sætið
PodcastSportsAnglais

Besta sætið

Nouveau9. nóv - Væll í Stjörnumönnum og Man. Utd í fallsæti9 novembre 2026 · 28 min
Épisodes
100
Parution
quotidienne
Dernier épisode
9 Nov 2026

À propos du podcast

Besta sætið er hlaðvarp íþróttadeildar Sýnar. Þar er fjallað um allt sem skiptir máli í íþróttaheiminum.

Épisodes 100

  1. 9. nóv - Væll í Stjörnumönnum og Man. Utd í fallsæti

    28 minÉpisode 226

    Staðan í ensku úrvalsdeildinni er afar áhugaverð er deildin fer aftur í landsleikjafrí. Man. Utd mun sitja í fallsæti næstu daga á meðan Man. City er í frjálsu falli. Stjörnumenn kvarta yfir að fá ekki að æfa í …

    Notes de l’épisode

    Staðan í ensku úrvalsdeildinni er afar áhugaverð er deildin fer aftur í landsleikjafrí. Man. Utd mun sitja í fallsæti næstu daga á meðan Man. City er í frjálsu falli. Stjörnumenn kvarta yfir að fá ekki að æfa í hádeginu en fá enga vorkunn í Besta sætinu. Handboltalandsliðið fær hrós og NFL-hornið er á sínum stað.

  2. Jökull Elísabetarson: Spennandi starf í Kópavogi og Halldór Árna þarf að hafa sig hægan

    18 minÉpisode 225

    Jökull Elísabetarson tók í dag við sem þjálfari karlaliðs Breiðabliks í fótbolta. Jökull þekkir vel til í Kópavogi en hann var leikmaður liðsins sem vann fyrstu titla í sögu þess og varð bikarmeistari 2009 og …

    Notes de l’épisode

    Jökull Elísabetarson tók í dag við sem þjálfari karlaliðs Breiðabliks í fótbolta. Jökull þekkir vel til í Kópavogi en hann var leikmaður liðsins sem vann fyrstu titla í sögu þess og varð bikarmeistari 2009 og Íslandsmeistari 2010. Hann þjálfaði þá annan flokk hjá liðinu og hóf sinn þjálfaraferil hjá venslafélaginu Augnabliki.

    Jökull hefur stýrt Stjörnunni undanfarin ár en var sagt upp á miðju nýliðnu sumri vegna slaks árangurs. Hann tekur því fagnandi að fá nýja áskorun á nýjum stað. Við settumst niður með Jökli og ræddum nýtt starf.

  3. 6. nóv - Jökull í Blika, Tufa í KA og KR með læti í körfunni

    25 minÉpisode 224

    Tíðindi á þjálfaramarkaði í dag. Jökull Elísabetarson tekinn við Blikum og Srdjan Tufegdzic tekur við KA væntanlega í næstu viku. KR vann stórslaginn á Álftanesi í gær og slökkti í ofpeppinu í garð Álftnesinga.

  4. 5. nóv - Ronaldo kveður og getur KR unnið Álftanes?

    24 minÉpisode 223

    Cristiano Ronaldo tilkynnti í dag að hann hefði leikið sinn síðasta landsleik. Ótrúlegur 23 ára landsliðsferill hjá honum. KR sækir Álftanes heim í kvöld en bæði lið eru með fullt hús. Eitthvað þarf undan að láta.

  5. 4. nóv - Skyldusigur í kvöld hjá strákunum okkar og áhugaverð ummæli hjá Arnari Gunnlaugs

    21 minÉpisode 222

    Landslið eru í brennidepli í dag. Strákarnir okkar í handboltalandsliðinu eiga heimaleik í kvöld og svo var Arnar Gunnlaugsson að kynna hópinn hjá fórboltalandsliðinu. Man. Utd vann fótboltaleik og …

    Notes de l’épisode

    Landslið eru í brennidepli í dag. Strákarnir okkar í handboltalandsliðinu eiga heimaleik í kvöld og svo var Arnar Gunnlaugsson að kynna hópinn hjá fórboltalandsliðinu. Man. Utd vann fótboltaleik og Meistaradeildin rúllar áfram í kvöld.

  6. 3. nóv - Áhugaverð ummæli Teits krufin og vinnur Man. Utd loksins leik?

    27 minÉpisode 221

    Teitur Örlygsson var með áhugaverða yfirlýsingu um lið Álftaness í körfuboltanum fyrir helgi. Álit sem hefur skapað mikla umræðu og umtal. Besta sætið hellir sér í umræðuna. Svo fer Meistaradeildin aftur á …

    Notes de l’épisode

    Teitur Örlygsson var með áhugaverða yfirlýsingu um lið Álftaness í körfuboltanum fyrir helgi. Álit sem hefur skapað mikla umræðu og umtal. Besta sætið hellir sér í umræðuna. Svo fer Meistaradeildin aftur á fullt í kvöld og pressan er á Man. Utd.

  7. Hólmar Örn Eyjólfsson: Vandræði Vals, bankahrun í West Ham og pabbi sem þjálfari

    42 minÉpisode 219

    Hólmar Örn Eyjólfsson, fráfarandi fyrirliði Vals í fótbolta, hefur lagt knattspyrnuskóna á hilluna eftir langan feril. Hólmar hóf ferilinn hjá HK hér á landi en fór ungur til West Ham á Englandi. Hann átti sín …

    Notes de l’épisode

    Hólmar Örn Eyjólfsson, fráfarandi fyrirliði Vals í fótbolta, hefur lagt knattspyrnuskóna á hilluna eftir langan feril. Hólmar hóf ferilinn hjá HK hér á landi en fór ungur til West Ham á Englandi. Hann átti sín bestu ár í Rosenborg fyrir smá brölt í Ísrael og Búlgaríu áður en hann sneri aftur til Rosenborgar fyrir heimför.

    Hann var um tíma leikjahæsti U21 árs landsliðsmaður Íslands og var fyrirliði liðs sem fór á EM í aldurflokknum í fyrsta sinn og var stýrt af föður hans, fyrrverandi landsliðs- og atvinnumanninum Eyjólfi Sverrissyni. Það lið taldi til að mynda Gylfa Sigurðsson, Aron Einar Gunnarsson og fleiri sem voru í gullaldarliði Íslands sem fór síðar á EM 2016 og HM 2018.

    Hólmari tókst ekki að vinna Íslandsmeistaratitil á sex árum með liði Vals sem átti erfitt sumar. Hólmar gerir upp ferilinn, sigrana og vonbrigðin og ræðir stöðuna á Val er hann gerir upp ferilinn.

  8. Andri Lucas Guðjohnsen um frábært gengi sitt hjá Blackburn og landsliðið

    14 minÉpisode 220

    Andri Lucas Guðjohnsen hefur verið að slá í gegn hjá Blackburn enda hefur hann raðað inn mörkum og er næstmarkahæsti leikmaður enski Championship deildarinnar. Hann ræðir Guðjohnsen fárið í Blackburn, drauma …

    Notes de l’épisode

    Andri Lucas Guðjohnsen hefur verið að slá í gegn hjá Blackburn enda hefur hann raðað inn mörkum og er næstmarkahæsti leikmaður enski Championship deildarinnar. Hann ræðir Guðjohnsen fárið í Blackburn, drauma fyrir framtíðina og íslenska landsliðið.

  9. 30. okt - Emil vill vera hjá Rúnari og hvað segir mamma hans Magga?

    25 minÉpisode 218

    Emil Atlason er að fara til Fram þar sem hann hittir fyrir sinn gamla þjálfara, Rúnar Kristinsson. Magnús Már má ekki fara til Breiðabliks og spurning hvað mamma hans, Hanna Símonardóttir, segir við því. Man …

    Notes de l’épisode

    Emil Atlason er að fara til Fram þar sem hann hittir fyrir sinn gamla þjálfara, Rúnar Kristinsson. Magnús Már má ekki fara til Breiðabliks og spurning hvað mamma hans, Hanna Símonardóttir, segir við því. Man. Utd þarf að sanna sig og stórleikur milli Liverpool og Arsenal.

  10. 29. okt - Einkennileg yfirlýsing Fylkis og Blikar eru enn að leita

    22 minÉpisode 217

    Yfirlýsing Fylkis frá í gær er félagið tilkynnti að Heimir Guðjónsson væri á förum frá félaginu var einkennileg svo ekki sé meira sagt. Besta sætið fer yfir hana en Heimir er svo að skrifa undir hjá ÍA …

    Notes de l’épisode

    Yfirlýsing Fylkis frá í gær er félagið tilkynnti að Heimir Guðjónsson væri á förum frá félaginu var einkennileg svo ekki sé meira sagt. Besta sætið fer yfir hana en Heimir er svo að skrifa undir hjá ÍA. Stuðullinn á Magnús Má Einarsson sem næsti þjálfari Blika lækkaði hratt eftir viðtal Vísis í gær. Liverpool slapp svo með skrekkinn í deildabikarnum.

  11. 28. okt - Leitin að þjálfara Blika og umhverfissóðar eltir uppi

    23 minÉpisode 216

    Leit Blika að nýjum þjálfara er í hámarki og margir um hituna. Besta sætið fer yfir stöðuna í þjálfaramálunum. Ræðir einnig óvænt tap Arsenal í gær og svo er Orri Steinn orðaður við Everton. Passið ykkur svo ef …

    Notes de l’épisode

    Leit Blika að nýjum þjálfara er í hámarki og margir um hituna. Besta sætið fer yfir stöðuna í þjálfaramálunum. Ræðir einnig óvænt tap Arsenal í gær og svo er Orri Steinn orðaður við Everton. Passið ykkur svo ef þið kastið rusli út um gluggann. Besta sætið mun elta ykkur uppi.

  12. 27. okt - Þjálfaramál Blika og Stjörnunnar og hvað með Carrick?

    22 minÉpisode 215

    Stjarnan er búin að tilkynna nýjan þjálfara formlega sem og nýjan yfirmann knattspyrnumála. Blikar eru í þjálfaraleit og standa á tímamótum. Michael Carrick lifði gærdaginn af sem þjálfari Man Utd og mun stýra …

    Notes de l’épisode

    Stjarnan er búin að tilkynna nýjan þjálfara formlega sem og nýjan yfirmann knattspyrnumála. Blikar eru í þjálfaraleit og standa á tímamótum. Michael Carrick lifði gærdaginn af sem þjálfari Man Utd og mun stýra liðinu um næstu helgi.

  13. Veigar Páll fer yfir lyfjaprófsmálið

    9 minÉpisode 214

    Körfuboltamaðurinn Veigar Páll Alexandersson hefur verið dæmdur í tólf mánaða keppnisbann eftir að hafa fallið á lyfjaprófi síðastliðið vor. Hann spilar því líklega ekkert með Njarðvík á þessari leiktíð í …

    Notes de l’épisode

    Körfuboltamaðurinn Veigar Páll Alexandersson hefur verið dæmdur í tólf mánaða keppnisbann eftir að hafa fallið á lyfjaprófi síðastliðið vor. Hann spilar því líklega ekkert með Njarðvík á þessari leiktíð í Bónusdeildinni.

    Veigar tók ADHD-lyf í tengslum við próflestur síðasta vor og það mældist í lyfjaprófi eftir leik með Njarðvík gegn Grindavík í úrslitakeppninni síðastliðið vor. Við hittum Veigar á heimili hans í Njarðvík.

  14. 26. okt - Leikmenn Man. Utd eru vandamálið og hvað gerist eiginlega hjá KA?

    24 minÉpisode 213

    Michael Carrick hefur væntanlega stýrt sínum síðasta leik með Man. Utd. Stuðningsmenn kenna honum ekki um lélegt gengi liðsins. Besta deild karla er búin og KA stendur frammi fyrir stórum spurningum á næstu vikum.

  15. Amin Cosic - Frá Lengjudeild í Meistaradeild á 15 mánuðum

    13 minÉpisode 212

    Amin Cosic varð í vikunni nítjándi Íslendingurinn til að spila í Meistaradeild Evrópu er hann kom inn á sem varamaður með Noregsmeisturum Viking gegn Aston Villa á Villa Park. Aðeins 15 mánuðir eru síðan hann …

    Notes de l’épisode

    Amin Cosic varð í vikunni nítjándi Íslendingurinn til að spila í Meistaradeild Evrópu er hann kom inn á sem varamaður með Noregsmeisturum Viking gegn Aston Villa á Villa Park.

    Aðeins 15 mánuðir eru síðan hann lék með Njarðvík í Lengjudeildinni hér á landi og uppgangur hans verið hreint lygilegur, enda kominn í Meistaradeildina með viðkomu í KR á skömmum tíma.

    Að baki er mikil vinna en Amin bætti á sig átta kílóum af vöðvum á undirbúningstímabilinu með KR síðasta vetur og tala menn í Vesturbænum um að þeir hafi vart séð leikmann bæta sig eins ört á skömmum tíma.

    Valur Páll Eiríksson ræddi þennan öra uppgang við Amin stuttlega í Besta sætinu.

  16. 23. okt - Lyfjamál Veigars, hvort fellur KA eða Þór og jólasöngur

    26 minÉpisode 211

    Besta sætið er komið í hátíðarskap og tók nokkur vel valin jólalög. Lyfjamál Veigars Páls í Njarðvík var útskýrt í þaula, spáð í botnbaráttu Bestu deildar karla og einnig rennt yfir körfuboltann.

  17. 22. okt - Ruglið hjá Man. Utd krufið og er Grindavík búið að ná botninum?

    22 minÉpisode 210

    Það er hver höndin upp á móti hver annarri hjá Man. Utd og frammistaðan gegn Como í gær var hreinasta hörmung. Grindavík og Stjarnan eru í leit að fyrsta sigrinum í körfunni og Aron Sigurðarson þarf að skora um helgina.

  18. 21. okt - Van Dijk í ruglinu, ÍA fær að heyra það og hættið að skrifa á ensku

    20 minÉpisode 209

    Skammarbréf mótanefndar KSÍ til ÍA var stórskemmtilegt en ekki verður aftur spilað á einu sögufrægasta grasi Íslands. Meistaradeildin var frábær og leikmenn sem leggja skóna á hilluna og skrifa það á ensku fá skammir.

  19. 20. okt - Grindjánar pakksaddir, Blikastelpur bestar og bilun í Bakgarðinum

    23 minÉpisode 208

    Ömurleg byrjun á körfuboltavetrinum hjá Íslandsmeisturum Grindavíkur, Breiðablik tók af okkur úrslitaleikinn í Bestu kvenna, ótrúlegt bakgarðshlaup, hræðileg meðferð á Jalen Hurts og Meistaradeildin.

  20. 19. okt - Kane lentur, enski, Besta og Bakgarðurinn

    21 minÉpisode 207

    Af nægu að taka í dag. Þór getur fellt KA, United getur ekkert í enska, Kane lentur og gæti spilað fyrir Grindavík í kvöld og ótrúlegir Bakgarðshlauparar.

  21. 16. okt - Óvænt lausir miðar á HM og fótbolti í fárviðri

    22 minÉpisode 206

    Leikir helgarinnar í Bestu deildunum gætu orðið skrautlegir enda hljómar spáin upp á mikið rok og búið að færa fjölda leikja til. Það gæti ekki dugað til að sleppa við veðurofsann. Bakgarðurinn er einnig í …

    Notes de l’épisode

    Leikir helgarinnar í Bestu deildunum gætu orðið skrautlegir enda hljómar spáin upp á mikið rok og búið að færa fjölda leikja til. Það gæti ekki dugað til að sleppa við veðurofsann. Bakgarðurinn er einnig í beinni á Vísi og verður áhugavert að sjá okkar bestu bakgarðshlaupara berjast við vindinn. Viðtalið íþróttadeildar við Arnar Gunnlaugsson ber einnig á góma og svo kom í ljós að það eru til miðar á HM í handbolta.

  22. Arnar Gunnlaugs ræðir agabrot landsliðsmanna

    33 minÉpisode 205

    Aga­brot lands­liðs­manna á dögunum er ekki í fyrsta skipti sem upp hefur komið mál í lands­liðsþjálfaratíð Arnars Gunn­laugs­sonar. Hans fyrstu viðbrögð voru að reka um­rædda leik­menn heim en ljóst sé að …

    Notes de l’épisode

    Aga­brot lands­liðs­manna á dögunum er ekki í fyrsta skipti sem upp hefur komið mál í lands­liðsþjálfaratíð Arnars Gunn­laugs­sonar. Hans fyrstu viðbrögð voru að reka um­rædda leik­menn heim en ljóst sé að skömm þeirra sé nægi­lega mikil refsing. Arnar er sáttur við hvernig tekið hefur verið á málinu, því sé nú lokið en hafi haft áhrif á frammistöðu liðsins í leik gegn Eistum.

  23. 15. okt - Arnar Gunnlaugsson opnar sig og hvað er Inga Sæland að spá?

    16 minÉpisode 204

    Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari fer ítarlega yfir agabrot íslenska landsliðsins í viðtali við íþróttadeild Sýnar í dag. Besta sætið fer yfir málið, gerir upp Meistaradeildina og skammar Ingu Sæland fyrir …

    Notes de l’épisode

    Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari fer ítarlega yfir agabrot íslenska landsliðsins í viðtali við íþróttadeild Sýnar í dag. Besta sætið fer yfir málið, gerir upp Meistaradeildina og skammar Ingu Sæland fyrir að leyfa ekki atvinnuhnefaleika á Íslandi.

  24. 14. okt - Heimir sagður á leið til ÍA

    23 minÉpisode 203

    Heimir Guðjónsson er sagður vera næsti þjálfari ÍA og svo gerði Lisandro Martinez, leikmaður Man. Utd, allt vitlaust eftir leik gegn Atletico í gær. Stelpurnar okkar afgreiddu svo Króatíu með miklum glæsibrag.

  25. 13. okt - Meistaradeildin, landsleikur, formúla og ballet... já, ballet

    19 minÉpisode 202

    Það er svo sannarlega víða komið við í Besta sætinu í dag. Stelpurnar okkar spila landsleik á eftir og eiga að klára það verkefni. Man. Utd fær risaverkefni í Meistaradeildinni og Hákon Arnar heimsækir Arsenal …

    Notes de l’épisode

    Það er svo sannarlega víða komið við í Besta sætinu í dag. Stelpurnar okkar spila landsleik á eftir og eiga að klára það verkefni. Man. Utd fær risaverkefni í Meistaradeildinni og Hákon Arnar heimsækir Arsenal. Formúlan til Afríku og svo er rætt um balletviðburð ársins.

  26. 12. okt - Áhugalausir Valsmenn og endalaust þrot hjá Man. Utd

    26 minÉpisode 201

    Enski boltinn, Besta deildin, NFL og körfubolti í þætti dagsins.

  27. 9. okt - Agabrot landsliðsmanna og boltinn rúllar á ný

    20 minÉpisode 200

    Agabrot leikmanna karlalandsliðsins hafa verið í fréttum í dag en lítið kemur um málið frá KSÍ. Landsliðsþjálfarinn ætlar ekki að tjá sig strax. Enski boltinn og Besta deildin fara aftur í gang um helgina og …

    Notes de l’épisode

    Agabrot leikmanna karlalandsliðsins hafa verið í fréttum í dag en lítið kemur um málið frá KSÍ. Landsliðsþjálfarinn ætlar ekki að tjá sig strax. Enski boltinn og Besta deildin fara aftur í gang um helgina og því fagna mjög margir.

  28. 8. okt - Upphitun fyrir Bónus karla

    25 minÉpisode 199

    Bónus-deild karla hefst í kvöld. Besta sætið vill mæk á dómarana og enginn virðist vita hvar DeAndre Kane er.

  29. 7. okt - Uppgjör á slökum leik gegn Eistum

    25 minÉpisode 198

    Ísland gerði markalaust jafntefli gegn Eistlandi ytra í gær. Leikurinn var arfaslakur af hálfu íslenska liðsins. Lionel Messi kvaddi svo argentínska landsliðið formlega í gær.

  30. 6. okt - Krefjumst sigurs í Tallin

    24 minÉpisode 197

    Ísland sækir Eistland heim þar sem toppsætið er undir. Sigur er líka mikilvægur upp á að komast á næsta stórmót. Sú staða er vel skoðuð og svo er stutt karaoke horn einnig í þættinum.

Voici les 40 derniers épisodes sur 100. Les épisodes plus anciens se trouvent dans le flux du podcast.

1874

1874: The Aston Villa Channel · 1 115 épisodes

C’est votre podcast ?

Confirmez-le avec une entrée dans votre flux : vous recevez ici un code, vous l’ajoutez comme podcast:txt dans le canal de votre flux, et nous le vérifions. Votre podcast apparaît ensuite comme « vérifié » sur SoundNode.

Paramètres

Affichage

Langue

Détermine les stations affichées en premier sur la page d’accueil.

Historique

Les stations et épisodes écoutés récemment et tes dernières recherches sont seulement enregistrés dans ce navigateur.

Notifications

Un court message quand un podcast que tu suis publie un nouvel épisode. Désactive un podcast précis avec la cloche sur sa page.

Compte

Enregistrez vos favoris – dans l’app et sur le site.

Raccourcis clavier

/
Ouvrir la recherche
Espace
Lecture ou pause
← →
Dans le lecteur : 15 s en arrière, 30 s en avant (épisodes) · dans une rangée : tuile suivante
↑ ↓
Dans une rangée : cible dans la tuile
Début / Fin
Dans une rangée : première ou dernière tuile
Esc
Fermer la fenêtre ou le menu
?
Cet aperçu
En cours de lecture

Voir la station

À suivre

    Ajoutez des épisodes avec « À suivre » – ils seront lus après l'épisode en cours.