
Bound (1996)
Notes de l’épisode
“Hvað ertu að gera?”
-“Er það ekki augljóst? Ég er að reyna að draga þig á tálar.”
Bound er lesbískur glæpatryllir úr smiðju Wachowski systranna víðfrægu. Þar verður sjóðheit ástarsaga tveggja kvenna að æsispennandi bardaga upp á líf eða dauða þegar þær reyna að stela peningum af mafíósakærasta annarrar þeirra.
Þetta var fyrsta mynd þeirra systra og athyglisvert er að sjá stílbrögð í fæðingu sem við þekkjum úr þeirra þekktari verkum, til að mynd Matrix-seríunni. Hún var einstök á sínum tíma af því að hinsegin myndir voru sjaldgæf sjón og hinsegin glæpamynd óhugsandi. En Wachowski systurnar börðust fyrir þeirra sýn og þeim erum við ævinlega þakklát.
Íris fær Svanhvíti Ödu Sif Björnsdóttur til sín í stúdíóið og þær ræða um þessa mynd frá mörgum vinklum: Hvaða stílbrögð eru það sem einkenna þessa mynd, hvaða máli skiptir að segja lesbískar sögur, hvað einkennir feril Wachowski systranna, er réttlætanlegt að gaslýsa gæja ef hann er í mafíunni og hvor er heitar, Corky eða Violet?
Best er að njóta þáttarins uppi í sófa eða inni í bíl með góðri “vinkonu”.
Efnisyfirlit:
00:00 - Bound á sviði!
06:18 - Þema og litaskema
11:21 - Veldi Sesars
19:19 - Warhammer pælingar
27:47 - Tilly og Gershon
34:17 - Matrix-teik Lönu
48:38 - Ógn mafíunnar
57:28 - Samantekt