Aller au contenu

Teitur Atlason - Er fjölmenningin að bresta? | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E63

29 octobre 2026 · 19 min

Notes de l’épisode

Frosti Logason og Teitur Atlason ræða mótmæli og óeirðir í Evrópu og velta fyrir sér hvað liggi að baki óánægjunni. Þeir ræða húsnæðisvanda, lífskjör, ferðaþjónustu og innflytjendastefnu og greinir meðal annars á um stöðu innviða álfunnar.

Innflytjendamál eru fyrirferðarmikil í samtalinu. Þeir ræða aðlögun, atvinnuþátttöku, afbrot og velferðarkerfið og kalla eftir gögnum um stöðu ólíkra hópa. Einnig berast brottflutningar og styrkir til heimferða í tal, ásamt þeirri áherslu að aðstoð við nýja íbúa fylgi kröfur um tungumálanám og sjálfsbjörg.

Umræðan beinist jafnframt að stríðinu á Gaza, ábyrgð Hamas, framferði ísraelskra stjórnvalda og hers og stöðu almennra borgara. Þeir ræða notkun hugtaksins þjóðarmorð, stuðning hinsegin fólks við Palestínu og hörð viðbrögð við ólíkum skoðunum á átökunum. Þaðan víkur samtalinu að vinstrinu, pólitískri réttrúnaðarhugsun og mikilvægi þess að geta skipt um skoðun.

Í lokin ræða þeir fjölmenningu, þjóðarvitund og varðveislu tungumáls og menningar. Frosti leggur áherslu á áhrif íslams en Teitur vill fremur skoða menningarlegan og félagslegan bakgrunn og varar við alhæfingum um trúarbrögð. Báðir leggja áherslu á sameiginleg samfélagsgildi og að hjálpa fólki fyrstu skrefin inn í íslenskt samfélag.

Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Tous les épisodes de Brotkast – Brot úr þáttum og opnir þættir

Paramètres

Affichage

Langue

Détermine les stations affichées en premier sur la page d’accueil.

Historique

Les stations et épisodes écoutés récemment et tes dernières recherches sont seulement enregistrés dans ce navigateur.

Notifications

Un court message quand un podcast que tu suis publie un nouvel épisode. Désactive un podcast précis avec la cloche sur sa page.

Compte

Enregistrez vos favoris – dans l’app et sur le site.

Raccourcis clavier

/
Ouvrir la recherche
Espace
Lecture ou pause
← →
Dans le lecteur : 15 s en arrière, 30 s en avant (épisodes) · dans une rangée : tuile suivante
↑ ↓
Dans une rangée : cible dans la tuile
Début / Fin
Dans une rangée : première ou dernière tuile
Esc
Fermer la fenêtre ou le menu
?
Cet aperçu
En cours de lecture

Voir la station

À suivre

    Ajoutez des épisodes avec « À suivre » – ils seront lus après l'épisode en cours.