
Checkpoint Podcast
- Épisodes
- 15
- Parution
- hebdomadaire
- Dernier épisode
- 10 Nov 2026
À propos du podcast
Checkpoint Podcast er hlaðvarp þar sem við ræðum tölvuleiki og tækni á léttu nótunum. Nýr þáttur alla þriðjudaga! 🎮🎙️
Épisodes 15
E.15 - Marvel með Gumma Sósu
Marvel leikir, DC, Mcu, Zelda og margt fleira i þætti dagsins sem er því miður ekki í mynd að þessu sinni!
E.14 - Dune: Awakening með Sigga og Eyþóri
Dune: Awakening er frábær leikur sem enginn ætti að láta framhjá sér fara!
E.13 - Birgir Egils er almennt frekar jákvæð týpa!
Biggi mætti til mín í spjall og hann hefur oftast bara jákvætt að segja um flesta leiki!
E.12 - Ghost of Yotei með Hafsteini Sæmunds
Við fórum djúpt í hlutina varðandi Ghost of Yotei og bárum hann saman við aðra svipaða leiki.
E.11 - Lífið og leikir með Benna Vals
Hlaðfrétta-Benni kom og við ræddum um ýmislegt tengt lífinu og tölvuleikjum!
E.10 - Rósa ''Goonhunter'' Björk
Rósa Björk aka Goonhunter er CS spilari og hún hafði afar áhugaverðar sögur að segja! Mæli með að horfa á þáttinn þar sem við sýnum frá nokkrum skjáskotum af netáreiti sem hún hefur orðið fyrir.
E.09 - Óli Jóels frá Game Tíví
Afi tölvuleikjanna kom í heimsókn og ræddi við mig um tölvuleiki, upphaf Game Tíví og margt fleira!
E.08 - Handrit í tölvuleikjum og D&D með Daða Einars
Daði er handritshöfundur, bæði fyrir tölvuleiki og kvikmyndir, hann er Dungeon Master í D&D og margt fleira. Hann kíkti til mín í skemmtilegt spjall!
E.07 - Fortnite með El Jóhanni
El Jóhann kom og spjallaði við mig um Fortnite. Leikur sem ég hef aldrei spilað!
E.06 - Ari Ólafs elskar tónlist og RPG leiki
Listamaðurinn Ari Ólafsson kom til mín í spjall og við ræddum meðal annars tónlist í tölvuleikjum, RPG leiki og margt, margt fleira!
E.05 - Búningar, hjálmar og gaming almennt með Eyþóri
Eyþór Úlfar eigandi Hljóðfoss kíkti til mín í gott spjall um alls konar varðandi tölvuleiki, búninga og margt fleira!
E.04 - GTA VI Extended Look á Netflix
Gummi og Hafsteinn komu til mín og við fórum yfir það helsta sem við viljum sjá úr stiklunni sem Netflix ætlar að sýna okkur, fyrstir allra!
E.03 - Nýjir og væntanlegir leikir með Hafsteini
Hafsteinn mætti aftur og í þetta skipti ræddum við nýja og væntanlega leiki sem við erum spenntir fyrir.
E.02 – Brynjar Rafn: Competitive gamer
Brynjar Rafn var guild master í World of Warcraft, mjög góður Counter-Strike spilari og almennt frekar competitive gamer. Hann kom til mín og við ræddum allt milli himins og jarðar tengt tölvuleikjum.
E.01 - Nördaspjall með Hafsteini Sæmunds
Hafsteinn Sæmundsson, hlaðvarpsstjórnandi Bíóblaðurs, kíkti til mín og við tókum stutt spjall um tölvuleiki almennt. Þátturinn er einnig í mynd.
Podcasts similaires
Plus de podcasts : LoisirsC’est votre podcast ?
Confirmez-le avec une entrée dans votre flux : vous recevez ici un code, vous l’ajoutez comme podcast:txt dans le canal de votre flux, et nous le vérifions. Votre podcast apparaît ensuite comme « vérifié » sur SoundNode.






