
Hallgrímur Helgason: Ónæmur fyrir hakkavélinni
Notes de l’épisode
Hallgrímur Helgason rithöfundur hefur átt gott ár erlendis og er orðin stórstjarna í Noregi með sextíu kílóa þríleikinn sinn. Hann hefur verið lengst allra höfunda á topp tíu metsölulistum þar í landi allt frá því í byrjun þessa árs. Hann segist aldrei hafa búist við þessum viðtökum en hann hafi alltaf dreymt um að loka hringnum með útgáfu þríleiksins í Noregi einkum í ljósi þess hversu mikið er fjallað um samskipti Norðmanna og Íslendinga í bókunum. Þrátt fyrir miklar annir og veru erlendis vegna kynningarstarfs náði hann engu að síður að skrifa sína nýjustu bók fyrir jólin sem ber þann óvenjulega titil ENGINN DEYR Í IKEA. Þetta er samtímasaga um Alvar, eldri föður sem lokast inni í IKEA með þriggja ára dóttur sinni yfir nótt og eftir það breytist heimurinn í einhvers konar and -veruleika eins og sögupersónan lýsir sjálf. Bókin er reyfarakennd táknsaga um samtímann, helskrun, ofbeldi, valdasýki stórfyrirtækjanna og doðann sem við finnum öll fyrir í vímukenndu stjórnlausu skruni og stingum höfðinu í sandinn þegar við horfum á stríðsátök, sveltandi fólk og börn í sárri neyð í gegnum litla símtækið okkar. Helga Arnardóttir ræddi við Hallgrím meðal annars um nýju bókina, þríleikinn og ævintýrið í Noregi, hakkavélina í athugasemdakerfinu, einsleitt fjölmiðlaumhverfi hér á landi og föðurhlutverkið en Hallgrímur sem er 67 ára á fjögur börn af ólíkum kynslóðum það elsta er 42 ára og yngsta er 8 ára.
- Skáldsögurnar Sextíu kíló af sólskini og kjaftshöggum komu báðar út í Noregi á þessu ári og hafa verið á topp tíu metsölulistanum frá því í byrjun janúar.
- 30 ára eru frá því skáldsaga Hallgríms 101 Reykjavík kom út og í tilefni af vinsældum hans í Noregi verða hún og aðrar eldri bækur hans endurútgefnar þar í landi.
- Vinsældir Hallgríms hafa haft áhrif á sölu bókanna út um allan heim og hefur rétturinn af þeim verið seldur til tíu svæða þar á meðal Bandaríkjanna.
- Ný bók Hallgríms Enginn deyr í IKEA sem kemur út fyrir þessi jól er táknræn samtímasaga sem fjallar um Alvar, eldri föður sem lokast inni í IKEA með þriggja ára dóttur sinni yfir nótt og eftir það breytist söguheimurinn í einhvers konar and-veruleika.