
Grjótkastið
- Épisodes
- 81
- Parution
- hebdomadaire
- Dernier épisode
- 11 Nov 2026
À propos du podcast
Grjótkastið. Fréttaskýringar, pistlar og viðtöl um málefni líðandi stundar. Dagbókarbrot.
Épisodes 81
Vitringarnir tveir (sá þriðji er í fríi)
Hvað er eiginlega að gerast í Landsvirkjun og hefur staðan þar áhrif á væntanlega samninga við Alcoa? Er stemning fyrir útboðinu í Bláa lóninu á þessu gengi? Hverjir lifa af frostaveturinn sem framundan er í …
Notes de l’épisode
Hvað er eiginlega að gerast í Landsvirkjun og hefur staðan þar áhrif á væntanlega samninga við Alcoa? Er stemning fyrir útboðinu í Bláa lóninu á þessu gengi? Hverjir lifa af frostaveturinn sem framundan er í atvinnulífinu og hver er staða efnahagsmálanna almennt? Hörður Ægisson og Sigurður Már Jónsson spá í spilin.
Alvörutímar — fyrr og nú
Þungavigtarumræða á dýptina um alvörutíma fyrr og nú með Dr. Guðna Th. Jóhannessyni prófessor í sagnfræði og fv forseta og þeim Agnari Tómasi Möller og Þorbirni Atla Sveinssyni. Þjóðarsagan um þorskastríðin og …
Notes de l’épisode
Þungavigtarumræða á dýptina um alvörutíma fyrr og nú með Dr. Guðna Th. Jóhannessyni prófessor í sagnfræði og fv forseta og þeim Agnari Tómasi Möller og Þorbirni Atla Sveinssyni. Þjóðarsagan um þorskastríðin og sigrana á Bretum, staða alþjóðamála, er eftirsjá að forsetaembættinu, hversu alvarleg staða er að teiknast upp í efnahagsmálum (hversu svört er staðan). Skylduhlustun fyrir þá sem vilja ekki bara vita hvað er að gerast og hvers vegna, heldur líka allt um það sem framundan er. Og með hæfilegri blöndu af sögulegum fróðleik.
Dramatíkin í Viðreisn og næstu skref
Þrír þungavigtarþingmenn; Bergþór Ólason, Jens Garðar Helgason og Stefán Vagn Stefánsson ræða stöðuna í pólitíkinni; vanda Viðreisnar eftir brotthvarf Jóns Gnarr -- eru frekari tíðindi framundan af flokknum? …
Notes de l’épisode
Þrír þungavigtarþingmenn; Bergþór Ólason, Jens Garðar Helgason og Stefán Vagn Stefánsson ræða stöðuna í pólitíkinni; vanda Viðreisnar eftir brotthvarf Jóns Gnarr -- eru frekari tíðindi framundan af flokknum? Hagkerfið hefur snöggkólnað, skattar hækka og gjöld og spurningar vakna um það hve lendingin verður hörð. Hvað er eiginlega framundan og hver verða áhrifin á ríkisstjórnina og stjórnarsamstarfið? Og: Hver er (enn) varaformaður Flokks fólksins?
Grjótharðar gegn ríkisvæðingu á öllum sviðum
Þingkonurnar Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir og Rósa Guðbjartsdóttir og útgefandinn Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir ræða samdráttinn í samfélaginu, hina endalausu útþenslu báknsins, ríkisvæðingu á öllum sviðum …
Notes de l’épisode
Þingkonurnar Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir og Rósa Guðbjartsdóttir og útgefandinn Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir ræða samdráttinn í samfélaginu, hina endalausu útþenslu báknsins, ríkisvæðingu á öllum sviðum, sjálfkeyrandi bíla, erfðafjárskatt, samkeppnisstöðu fjölmiðla og stöðuna í pólitíkinni.
Skrítin stemning og skellur framundan
Bjarnheiður Hallsdóttir og Jón Karl Ólafsson þekkja íslenskt atvinnulíf og ferðaþjónustuna sérstaklega út og inn. Þau hafa áhyggjur af því að framundan sé skellur í atvinnulífinu, furða sig á gengi krónunnar og …
Notes de l’épisode
Bjarnheiður Hallsdóttir og Jón Karl Ólafsson þekkja íslenskt atvinnulíf og ferðaþjónustuna sérstaklega út og inn. Þau hafa áhyggjur af því að framundan sé skellur í atvinnulífinu, furða sig á gengi krónunnar og afstöðu stjórnvalda til ferðaþjónustunnar og skorti á langtímasýn og spá í spilin fyrir næsta ár.
Skuggabankastjórnin okt/26
Skuggabankastjórnin greinir stöðu og horfur fyrir vaxtaákvörðun Seðlabankans í október 2026. Þórður Pálsson er mættur að venju og Konráð S. Guðjónsson situr fundinn að þessu sinni í fjarveru Sigurðar …
Notes de l’épisode
Skuggabankastjórnin greinir stöðu og horfur fyrir vaxtaákvörðun Seðlabankans í október 2026. Þórður Pálsson er mættur að venju og Konráð S. Guðjónsson situr fundinn að þessu sinni í fjarveru Sigurðar Hannessonar. Að venju er margt að ræða. Staða á vinnumarkaði, gengi krónunnar, umrót á alþjóðamörkuðum, fjárlögin, atvinnuleysið og blessuð verðbólgan, svo eitthvað sé nefnt. Skylduhlustun fyrir þá sem vilja vita hvað er framundan.
Hvað verður um Icelandair? Og niðursveiflan framundan
Það var ekki töluð vitleysan þegar Hermann Guðmundsson, Hörður Ægisson og Sigurður Már Jónsson settust á rökstóla í Grjótkastinu um stöðu og horfur í íslensku hagkerfi. Mjög djúp niðursveifla virðist í vændum …
Notes de l’épisode
Það var ekki töluð vitleysan þegar Hermann Guðmundsson, Hörður Ægisson og Sigurður Már Jónsson settust á rökstóla í Grjótkastinu um stöðu og horfur í íslensku hagkerfi. Mjög djúp niðursveifla virðist í vændum, en þó er ofsagt að allt sé að fara í skrúfuna. Miklu skiptir hvað verður um Icelandair á næstu vikum. Af hverju styrkist krónan enn? Hvað gerist þegar atvinnuleysi rýkur upp? Er ríkisstjórnin með augun á boltanum eða einhverju allt öðru?
Kreppa í kortunum
Kannski ekki skemmtiefni, en samt skylduhlustun. Agnar Tómas Möller og Þorbjörn Atli Sveinsson rýna í fjárlagafrumvarpið og möguleg áhrif þess, en líka í ískyggilega þróun á ávöxtunarkröfu ríkisskuldabréfa sem …
Notes de l’épisode
Kannski ekki skemmtiefni, en samt skylduhlustun. Agnar Tómas Möller og Þorbjörn Atli Sveinsson rýna í fjárlagafrumvarpið og möguleg áhrif þess, en líka í ískyggilega þróun á ávöxtunarkröfu ríkisskuldabréfa sem margir telja vísbendingu um yfirvofandi alvarlega kreppu á Vesturlöndum og víðar.
Á núna að troða okkur bakdyramegin í ESB?
Frosti Logason og Hjörtur J. Guðmundsson ræða viðbrögðin við NEI-inu, ummæli stækkunarstjóra ESB, stöðu ríkisstjórnarinnar og utanríkisráðherrans sérstaklega, alla þá sem sáu feitt djobb í útlöndum í hillingum …
Notes de l’épisode
Frosti Logason og Hjörtur J. Guðmundsson ræða viðbrögðin við NEI-inu, ummæli stækkunarstjóra ESB, stöðu ríkisstjórnarinnar og utanríkisráðherrans sérstaklega, alla þá sem sáu feitt djobb í útlöndum í hillingum og margt fleira.
Allt undir fyrir Þorgerði Katrínu og Viðreisn
Andrea Sigurðardóttir þingfréttamaður Morgunblaðsins spáir í spilin fyrir komandi þjóðaratkvæði; Þorgerður Katrín leggur allt undir að já-ið verði niðurstaðan, Flokkur fólksins er í felum, Katrín Jakobsdóttir …
Notes de l’épisode
Andrea Sigurðardóttir þingfréttamaður Morgunblaðsins spáir í spilin fyrir komandi þjóðaratkvæði; Þorgerður Katrín leggur allt undir að já-ið verði niðurstaðan, Flokkur fólksins er í felum, Katrín Jakobsdóttir tekur á sig gusur fyrir að fylgja sannfæringu sinni og er ríkisstjórnin öðrum þræði að fá á sig mælingu á laugardaginn?
Landsbyggðin skeptískari á ESB-aðild
Dr. Birgir Guðmundsson prófessor emeritus um mismunandi viðhorf íbúa landsbyggðarinnar gagnvart aðild að ESB og íbúa höfuðborgarsvæðisins, stöðu málsins innan stjórnmálaflokkanna, þátt fjölmiðla í aðdraganda …
Notes de l’épisode
Dr. Birgir Guðmundsson prófessor emeritus um mismunandi viðhorf íbúa landsbyggðarinnar gagnvart aðild að ESB og íbúa höfuðborgarsvæðisins, stöðu málsins innan stjórnmálaflokkanna, þátt fjölmiðla í aðdraganda þjóðaratkvæðis og margt fleira.
ESB vill Ísland inn til að þrýsta á Noreg
Fáir þekkja innviði Evrópusambandsins betur en Dr. Gunnar Pálsson sem starfaði í utanríkisþjónustu Íslands í fjörtíu ár og var meðal annars sendiherra hjá NATO, Sameinuðu þjóðunum og Evrópusambandinu sjálfu …
Notes de l’épisode
Fáir þekkja innviði Evrópusambandsins betur en Dr. Gunnar Pálsson sem starfaði í utanríkisþjónustu Íslands í fjörtíu ár og var meðal annars sendiherra hjá NATO, Sameinuðu þjóðunum og Evrópusambandinu sjálfu. Hann veitir okkur einstaka innsýn í það valdatafl sem er að baki áhuga ESB á aðild Íslands og hvernig farið er með umsóknir ríkja og aðildarviðræður. Skylduhlustun.
Viðreisn hefur hina stjórnarflokkana að fíflum
Símtal dagsins er við Guðmund Fetram Sigurjónsson athafnamann á Ísafirði um komandi þjóðaratkvæði um aðildarviðræður við ESB.
Hefur ESB-atkvæðagreiðslan áhrif á Peningastefnunefnd?
Skuggabankastjórnin kemur saman til að ræða stöðu og horfur, enda vaxtaákvörðun framundan í vikunni. Hefur þjóðaratkvæðagreiðslan um ESB áhrif á þá sem sitja í peningastefnunefnd? Verða viðfangsefnin hin sömu í …
Notes de l’épisode
Skuggabankastjórnin kemur saman til að ræða stöðu og horfur, enda vaxtaákvörðun framundan í vikunni. Hefur þjóðaratkvæðagreiðslan um ESB áhrif á þá sem sitja í peningastefnunefnd? Verða viðfangsefnin hin sömu í haust hvort sem þjóðin segir nei eða já? Ummæli forsætisráðherra um atvinnulífið og verðbólguna koma við sögu, sem og fjárlög næsta árs sem eiga að verða hallalaus. Þýðir það alvöru hagræðingu eða enn frekari skattahækkanir?
Vaxtaákvörðun og úrslit kosninga
Skuggabankastjórn kemur saman að loknum sveitarstjórnarkosningum og rýnir í úrslitin og ræðir ákvörðun peningastefnunefndar sem kynnt verður seinna í vikunni. Sigurður Hannesson og Þórður Pálsson liggja ekki á …
Notes de l’épisode
Skuggabankastjórn kemur saman að loknum sveitarstjórnarkosningum og rýnir í úrslitin og ræðir ákvörðun peningastefnunefndar sem kynnt verður seinna í vikunni. Sigurður Hannesson og Þórður Pálsson liggja ekki á skoðunum sínum frekar en fyrri daginn.
Ríkisstjórnin sem vill ekki hlusta
Bergþór Ólason og Ingibjörg Ísaksen um ríkisstjórnina sem hlustar bara alls ekki á nein varnaðarorð, hvaðan sem þau koma, óvænt brotthvarf varaformannsins úr Flokki fólksins, skoðanakannanir og komandi …
Notes de l’épisode
Bergþór Ólason og Ingibjörg Ísaksen um ríkisstjórnina sem hlustar bara alls ekki á nein varnaðarorð, hvaðan sem þau koma, óvænt brotthvarf varaformannsins úr Flokki fólksins, skoðanakannanir og komandi sveitarstjórnarkosningar og magnaðan blaðamannafund forsætisráðherra fyrir utan Jysk í Kópavogi.
Baráttan um Ísland
Björgvins Halldórssonar minnst. Baráttan um Ísland framundan, komandi sveitarstjórnarkosningar, veröld sem var í alþjóðamálum, staða efnahagsmála og margt, margt fleira.
Hvar ertu litla saklausa Ísland?
Í þessum þætti:Staða mála í borgarpólitíkinni, er hægt að bjarga borginni?Ná borgaralegu öflin saman um breytingar, eða vilja sumir sjálfstæðismenn vinna með Samfylkingunni þrátt fyrir allt?Borgarlínan og …
Notes de l’épisode
Í þessum þætti:
Staða mála í borgarpólitíkinni, er hægt að bjarga borginni?
Ná borgaralegu öflin saman um breytingar, eða vilja sumir sjálfstæðismenn vinna með Samfylkingunni þrátt fyrir allt?
Borgarlínan og skipulagsmál og óhófleg yfirbygging borgarkerfisins með fjölda atvinnustjórnmálamanna.
Hvaða áhrif hafa Evrópumálin á kosningabaráttuna fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar?
Munu kjósendur vilja nota tækifærið og refsa stjórnarflokkunum fyrir sífellt óvinsælli ríkisstjórn?
Af hverju fáum við ekki betri skóla og kennslu, þegar við setjum meira fjármagn í þennan málaflokk en aðrar þjóðir?
Hamas-frétt Moggans og átök í undirheimunum, erum við að lenda á sama stað og hin Norðurlöndin?
Solaris-málsóknin gegn formanni Sjálfstæðisflokksins, þingsályktunartillaga Karls Gauta ofl um bann við að hylja andlit í opinberu rými.
Hundrað ára afmælis landsmálafélagsins Varðar minnst í nýrri bók.
Hvað meinar Tony Blair með því að vinstrið verði að gera upp dálæti sitt á íslamistum, sem vilja ekki aðlagast vestrænum samfélögum?
Féllust seðlabankastjóra hendur?
Í fyrri hluta Grjótkastsins greinir Agnar Tómas Möller stöðu efnahagsmála eftir vaxtahækkun í síðustu viku. Féllust Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra hendur í Silfrinu í gær, þegar hann reyndi að útskýra horfur …
Notes de l’épisode
Í fyrri hluta Grjótkastsins greinir Agnar Tómas Möller stöðu efnahagsmála eftir vaxtahækkun í síðustu viku. Féllust Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra hendur í Silfrinu í gær, þegar hann reyndi að útskýra horfur framundan? Hversu slæm er staðan í reynd? Af hverju er húsnæðisverð og leiguverð að fara að lækka á næstunni og hvað þýðir þessi staða fyrir umræðuna um aðild Íslands að Evrópusambandinu?
Í seinni hluta þáttarins koma þau Einar Jóhannes Guðnason og Signý Tryggvadóttir og ræða stöðu mála í Kópavogi og Hafnarfirði í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga, þar sem þau eru bæði í framboði.
Skuggabankastjórnin: Kreppuverðbólga í kortunum
Þeir eru mættir í Skuggabankastjórninni Þórður Pálsson og Sigurður Hannesson og spá í spilin fyrir vaxtaákvörðun Seðlabankans í vikunni. Rætt er um hugtakið kreppuverðbólgu (stagflation), íslenska …
Notes de l’épisode
Þeir eru mættir í Skuggabankastjórninni Þórður Pálsson og Sigurður Hannesson og spá í spilin fyrir vaxtaákvörðun Seðlabankans í vikunni. Rætt er um hugtakið kreppuverðbólgu (stagflation), íslenska vinnumarkaðsmódelið, Evrópuleiðangur ríkisstjórnarinnar, óvissuna á alþjóðamarkaði, vöxt báknsins og gengi krónunnar svo eitthvað sé nefnt.
Sótt að landsbyggðinni úr öllum áttum
Sótt er að landsbyggðinni úr öllum áttum af ríkisstjórninni, er samdóma álit þeirra Jens Garðars Helgasonar, varaformanns Sjálfstæðisflokksins, Gunnars Braga Sveinssonar varaþingmanns Miðflokksins og fv …
Notes de l’épisode
Sótt er að landsbyggðinni úr öllum áttum af ríkisstjórninni, er samdóma álit þeirra Jens Garðars Helgasonar, varaformanns Sjálfstæðisflokksins, Gunnars Braga Sveinssonar varaþingmanns Miðflokksins og fv. ráðherra og Þórarins Inga Péturssonar þingmanns Framsóknarflokksins. Þeir fara yfir pólitíska sviðið, stefnu og stöðu ríkisstjórnarinnar og sóknarfæri stjórnarandstöðunnar í snörpu spjalli.
Skuggabankastjórnin spáir óvæntri vaxtalækkun
Skuggabankastjórn Grjótkastsins kemur saman á mikilvægum fundi og spáir í spilin fyrir vaxtaákvörðun Seðlabankans. Hvaða staða er að teiknast upp í íslensku efnahagslífi og hvernig þarf að bregðast við? Þáttur …
Notes de l’épisode
Skuggabankastjórn Grjótkastsins kemur saman á mikilvægum fundi og spáir í spilin fyrir vaxtaákvörðun Seðlabankans. Hvaða staða er að teiknast upp í íslensku efnahagslífi og hvernig þarf að bregðast við? Þáttur sem telst skylduhlustun.
Það er töff að vera trúaður
Söngkonan Dagbjört Rúriks varð fyrir trúarlegri frelsun sem hjálpaði henni að verða edrú. Verkfræðingurinn og athafnamaðurinn Gunnlaugur Jónsson opnaði á alvöru spurningar um trúna og fann svör sem skiptu hann …
Notes de l’épisode
Söngkonan Dagbjört Rúriks varð fyrir trúarlegri frelsun sem hjálpaði henni að verða edrú. Verkfræðingurinn og athafnamaðurinn Gunnlaugur Jónsson opnaði á alvöru spurningar um trúna og fann svör sem skiptu hann máli. Hvers vegna er aukinn trúarleg vakning meðal ungs fólks? Hvaða áhrif hafði morðið á Charlie Kirk? Hversu miklu máli skiptir kristin trú í okkar daglega lífi og er ekki bara allt í lagi að tala um trúna?
Allt um botnfrosinn fasteignamarkað á mannamáli
Ómar Rafnsson er byggingaverktaki til áratuga og gömul knattspyrnukempa. Hannes Steindórsson hefur selt fasteignir um árabil. Þeir vita hvað þeir syngja, þegar kemur að stórfurðulegri stöðu á íslenskum …
Notes de l’épisode
Ómar Rafnsson er byggingaverktaki til áratuga og gömul knattspyrnukempa. Hannes Steindórsson hefur selt fasteignir um árabil. Þeir vita hvað þeir syngja, þegar kemur að stórfurðulegri stöðu á íslenskum fasteignamarkaði og deila pælingum sínum og stöðumati með þjóðinni.
Vinstri femínistar eiga ekki jafnréttisumræðuna
Félagsfræðingurinn Heiðdís Geirsdóttir og foreldrafræðingurinn og uppeldisráðgjafinn Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir Waage ræða jafnréttismál í víðum skilningi, velferð og nám barna, símabann í skólum …
Notes de l’épisode
Félagsfræðingurinn Heiðdís Geirsdóttir og foreldrafræðingurinn og uppeldisráðgjafinn Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir Waage ræða jafnréttismál í víðum skilningi, velferð og nám barna, símabann í skólum, leikskólamál í Kópavogi og í Reykjavík, skóla án aðgreiningar, líðan barnanna okkar og margt fleira í sérlega áhugaverðu spjalli.
Pólitísk vakning og ferðalag ungrar konu frá VG og Stundinni yfir í Miðflokkinn
Félagsfræðingurinn Hlédís Maren var í ungliðastarfi VG og blaðamaður á Stundinni, en lætur nú til sín taka í Miðflokknum og sat landsþing hans um helgina. Þar var líka hlaðvarparinn Þórarinn Hjartarson sem …
Notes de l’épisode
Félagsfræðingurinn Hlédís Maren var í ungliðastarfi VG og blaðamaður á Stundinni, en lætur nú til sín taka í Miðflokknum og sat landsþing hans um helgina. Þar var líka hlaðvarparinn Þórarinn Hjartarson sem einnig er stjórnmálafræðingur og hnefaleikaþjálfari. Þau ræða aukinn áhuga ungs fólks á stjórnmálum, nýjar áherslur kvenna í jafnréttismálum, komandi sveitarstjórnarkosningar og margt fleira í stórfróðlegu spjalli sem vekja mun mikla athygli.
Hvað er eiginlega að gerast?
Er kreppa í kortunum samfara óvissu um stríðsátök? Hvers vegna gengur ekkert að ná verðbólgunni niður? Hvaða vandamál hrjáir íslenska hlutabréfamarkaðinn? Hvers vegna er ákveðnum hópi haldið nauðugum á …
Notes de l’épisode
Er kreppa í kortunum samfara óvissu um stríðsátök? Hvers vegna gengur ekkert að ná verðbólgunni niður? Hvaða vandamál hrjáir íslenska hlutabréfamarkaðinn? Hvers vegna er ákveðnum hópi haldið nauðugum á leigumarkaði? Hvað er eiginlega framundan í efnahagsmálum heimsins og hvaða áhrif hefur það hér á landi. Agnar Tómas Möller fjárfestir og einn okkar helsti greinandi í þeim efnum svarar því á dýptina í áhugaverðu spjalli við Björn Inga Hrafnsson.
Hvað má ræða og hvað ekki? Menningarstríðin hin nýju
Menningarstríðin hin nýju, þar sem margir hreinlega standa á orginu og telja að fólk annarrar skoðunar megi helst hvergi þrífast setja mark sitt á alla umræðu, ekki bara á Íslandi heldur um allan heim. Hvers …
Notes de l’épisode
Menningarstríðin hin nýju, þar sem margir hreinlega standa á orginu og telja að fólk annarrar skoðunar megi helst hvergi þrífast setja mark sitt á alla umræðu, ekki bara á Íslandi heldur um allan heim. Hvers vegna er skautunin svo mikil og óþol fyrir andstæðum skoðunum? Morðið á Charlie Kirk, staða Þjóðkirkjunnar, hin ömurlegu átök fyrir botni Miðjarðarhafs og margt fleira eldfimt til umræðu og gestir eru sr. Örn Bárður Jónsson prestur, Snorri Másson alþingismaður Miðflokksins og Stefán Einar Stefánsson fjölmiðlamaður og siðfræðingur.
„Ég varð að fá að kveðja hana Margréti mína“
Guðni Ágústsson, fv. ráðherra, í einkar einlægu og mannlegu spjalli um makamissinn, en eiginkona hans til áratuga, Margrét Hauksdóttir, féll frá fyrr á árinu. Guðni segir frá Njáluástríðu sinni og stórum …
Notes de l’épisode
Guðni Ágústsson, fv. ráðherra, í einkar einlægu og mannlegu spjalli um makamissinn, en eiginkona hans til áratuga, Margrét Hauksdóttir, féll frá fyrr á árinu. Guðni segir frá Njáluástríðu sinni og stórum verkefnum sem henni tengjast og spáir í spilin í pólitíkinni. Hann segir vá fyrir dyrum í heimsmálunum og hér heima við sé ljóst að Framsóknarflokkurinn þurfi nýjan formann; Sigurður Ingi Jóhannsson geri sér vel grein fyrir því.
Hver eru tækifæri Íslands í gjörbreyttri heimsmynd?
Hér er nú ekki töluð vitleysan! Konráð S. Guðjónsson hagfræðingur og fv. efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar, Álfrún Tryggvadóttir hagfræðingur og sérfræðingur hjá OECD og Bergþóra Halldórsdóttir hjá Borealis …
Notes de l’épisode
Hér er nú ekki töluð vitleysan! Konráð S. Guðjónsson hagfræðingur og fv. efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar, Álfrún Tryggvadóttir hagfræðingur og sérfræðingur hjá OECD og Bergþóra Halldórsdóttir hjá Borealis Data Center og stjórnarmaður í Samtökum iðnaðarins ræða gjörbreytta stöðu í heimsviðskiptunum og tækifæri og ógnir sem Ísland stendur frammi fyrir. Er að koma kreppa ofan á tal um ófrið í heiminum? Hvernig takast ríkisstjórnir hér á landi og annars staðar á við nauðsynlega hagræðingu? Er hagsmunum Íslands betur borgið innan ESB og ber að flýta þjóðaratkvæði? Er lögmál að báknið stækki endalaust? Hverjar eru horfurnar hér á landi og á alþjóðavísu við gjörbreyttar aðstæður? Umræða fyrir þá sem vilja vita meira.
Voici les 40 derniers épisodes sur 81. Les épisodes plus anciens se trouvent dans le flux du podcast.
Podcasts similaires
Plus de podcasts : ActualitésC’est votre podcast ?
Confirmez-le avec une entrée dans votre flux : vous recevez ici un code, vous l’ajoutez comme podcast:txt dans le canal de votre flux, et nous le vérifions. Votre podcast apparaît ensuite comme « vérifié » sur SoundNode.







