Aller au contenu
Heimskviður
PodcastIS

Heimskviður

Épisode 1226 - 20 ár frá Katrínu og spennandi þingkosningar í Noregi6 septembre 2025 · 40 min
Épisodes
280
Format
Série – à écouter depuis le début
Dernier épisode
7 Nov 2026

À propos du podcast

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Épisodes 280

  1. 270 - Jared Kushner og kosningar í Evrópu

    43 minÉpisode 280

    Kosningar og Kushner verða í aðalhlutverki í þættinum í dag. Það eru nýafstaðnar spennandi kosningar í Serbíu, Brasilíu og í Ísrael og þingkosningarnar í Bandaríkjunum. En við ætlum að huga að því sem er fram …

    Notes de l’épisode
    Kosningar og Kushner verða í aðalhlutverki í þættinum í dag. Það eru nýafstaðnar spennandi kosningar í Serbíu, Brasilíu og í Ísrael og þingkosningarnar í Bandaríkjunum. En við ætlum að huga að því sem er fram unda. Hægri flokkar eru líklegir til að sigra í þingkosningum á Spáni um næstu mánaðamót og næsta vor kemur í ljós hvort Marine Le Pen verði næsti forseti Frakka. Komandi kosningar í nokkrum af stærstu ríkjum Evrópu gætu haft víðtækar afleiðingar í för með sér - ekki aðeins fyrir valdahlutföll innan viðkomandi ríkja, heldur einnig fyrir Evrópusambandið sjálft. Spánverjar ganga að kjörborðinu í þingkosningum í lok þessa mánaðar, á Ítalíu verður kosið ekki seinna en í nóvember; sömuleiðis í Póllandi, og afdrifaríkustu kosningarnar - um nýjan forseta - verða í Frakklandi í apríl og maí. Og titringur í aðdraganda þessara kosninga er þegar byrjaður að hafa áhrif í Brussel. Við skoðum líka valdatíð Trumps í Bandaríkjunum og árin sem hann á eftir í embætti. En Trump, og fólkið hans hafa nýtt tímann sinn vel á valdastóli og verða fæst alveg áhrifalaus þegar hann flytur úr hvíta húsinu. Við ætlum að beina sjónum okkar að tengdasyni forsetans í fyrri hluta þáttarins í dag. Sá heitir Jared Kushner. Hann hefur vakið athygli síðustu ár en á sér um margt áhugaverða sögu, því faðir hans var í nánum tengslum við toppana í demókrataflokknum á níunda og tíunda áratugnum. Inn á heimilið ráku Bill og Hillary Clinton oft inn nefið og þegar Kushner var unglingur var hann látinn sofa í kjallaranum því gesti var hleypt í rúmið hans, það var Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels. Meðal annars þegar unglingurinn Kushner lánaði Benjamin Netanyahu herbergið sitt.
  2. 269 - Lyfjarisinn Novo og maðurinn sem er að kaupa Sierra Leone

    42 minÉpisode 279

    Danski lyfjarisinn Novo, sem hét áður Novo Nordisk, stendur á krossgötum. Fyrirtækið hefur notið ævintýralegrar velgengni vegna sykursýkis- og þyngdarstjórnunarlyfjanna Ozempic og Wegovy en hefur verið í gegnum …

    Notes de l’épisode
    Danski lyfjarisinn Novo, sem hét áður Novo Nordisk, stendur á krossgötum. Fyrirtækið hefur notið ævintýralegrar velgengni vegna sykursýkis- og þyngdarstjórnunarlyfjanna Ozempic og Wegovy en hefur verið í gegnum mikinn öldudal í rúmt ár. Nú hefur fyrirtækið farið í mikla endurskipulagingu með fækkun starfsfólks. Velgengnin hefur breytt heilbrigðiskerfum heimsins og aukið hagvöxt Danmerkur. Hallgrímur Indriðason skoðaði fyrirtækið og víðtæk áhrif þess. Maður er nefndur Jos Leijdekkers, kallaður Bolle Jos, eða feiti Jos. Honum er að takast að búa til alvarlega milliríkjadeilu, því núna í byrjun mánaðarins þá hættu Hollendingar öllum fjárstyrkjum til Vestur-Afríkuríkisins Sierra Leone því þar heldur hann til núna. Hann er sagður hafa keypt Vestur-Afríkuríkið til þess að tryggja sér frið frá evrópskum lögregluyfirvöldum og að hann verði ekki framseldur, en þar hefur hann verið dæmdur í samtals hátt í 100 ára fangelsi. Og frá Afríku stýrir hann einum stærstu glæpasamtökum Evrópu.
  3. 268 - Auðir stólar og fjölþáttaógnir

    42 minÉpisode 278

    Fjölþáttaógnir, fjölþáttaárásir og fjölþáttastríð hafa heyrst mikið í fréttum undanfarið og ekki að ástæðulausu því samhliða innrásarstríði Rússlands í Úkraínu hafa þessar ógnir og árásir aukist í Evrópu. Að …

    Notes de l’épisode
    Fjölþáttaógnir, fjölþáttaárásir og fjölþáttastríð hafa heyrst mikið í fréttum undanfarið og ekki að ástæðulausu því samhliða innrásarstríði Rússlands í Úkraínu hafa þessar ógnir og árásir aukist í Evrópu. Að sumra mati segja þessi orð þó ekki nákvæmlega hvað felst í fyrirbærinu. Framkvæmdastjóri NATO segir að fjölþáttaógnir séu allt of krúttlegt orð miðað við hvað það eigi að ná yfir og utanríkisráðherra Svíþjóðar segir það helst minna á umhverfisvænan bíl. Við skoðum orðið, merkinguna og ógnirnar í þættinum í dag. Svo fjöllum við um auða stóla. Einmanaleiki eykst, þetta heyrum við aftur og aftur. Í nýlegri rannsókn kemur fram að hlutfall breskra ungmenna sem upplifa sig einmana hefur fimmfaldast á undanförnum tólf árum. Við ætlum að segja sögu manns sem sagði einmanaleikanum stríð á hendur. Í minningu besta vinar síns reynir hann að fylla tóma stóla á börum í Bretlandi og framtakið hans hefur breiðst út til fleiri landa. Birta talaði við Dean Perryman um einmanaleikann, auðu stólana og vin hans Rob.
  4. 267 - Spennandi kosningar í Serbíu og sigurvegarinn í landslénalottóinu

    45 minÉpisode 277

    Þetta verður síðasta tækifærið til þess að leiða landið aftur á braut lýðræðis, segir viðmælandi Heimskviða um komandi þingkosningar í Serbíu. Þetta hljómar dramatískt en hann er ekki einn á þeirri skoðun …

    Notes de l’épisode
    Þetta verður síðasta tækifærið til þess að leiða landið aftur á braut lýðræðis, segir viðmælandi Heimskviða um komandi þingkosningar í Serbíu. Þetta hljómar dramatískt en hann er ekki einn á þeirri skoðun. Kosningunum er lýst sem þjóðaratkvæðagreiðslu milli mannsins sem nýverið sagði af sér sem forseti og vill núna verða forsætisráðherra og svo fjöldahreyfingar stúdenta sem hefur teflt fram sínum lista. Ólöf Ragnarsdóttir segir okkur frá tímamótakosningum í Serbíu. Auðlindir heimsins taka á sig ýmsar myndir. Sum ríki hafa byggt auð sinn á olíu sem sótt er djúpt úr jörðu. Önnur reiða sig á gjöful fiskimið, frjósamt land eða ferðamenn sem koma í leit að sól og ævintýrum. Slíkar atvinnugreinar hafa oft vaxið og þróast í áratugi og byggja jafnvel á aldagömlum hefðum. En stundum þarf hvorki að leita að olíu né sækja verðmæti úr sjó. Stundum nægja tveir bókstafir og dálítil heppni. Angvilla er lítil eyja og breskt yfirráðasvæði í Karíbahafi, austur af Púertó Ríkó og rétt norðan við eyjuna Sankti Martin. Þar búa um sextán þúsund manns, svipaður fjöldi og í Mosfellsbæ. Þegar Angvilla fékk landslénið sitt á veraldarvefnum fékk það endinguna punktur ai. Lengi vel voru þetta einfaldlega tveir bókstafir sem vísuðu til nafns eyjunnar. Síðan varð gervigreind að einni stærstu tæknibyltingu samtímans og bókstafirnir ai fengu allt aðra merkingu. Hinrik Wöhler segir okkur frá landslénunum verðmætu.
  5. 266 - Leiðtogafundir þá og nú og furstadæmið Lichtenstein

    44 minÉpisode 276

    Það eru 40 ár liðin frá leiðtogafundinum í Höfða og margs að minnast. Af hverju var fundurinn haldinn á Íslandi? Var það fyrir tilstilli íslenskra barna sem skrifuðu Raisu Gorbachevu bréf, var það stjörnuspá …

    Notes de l’épisode
    Það eru 40 ár liðin frá leiðtogafundinum í Höfða og margs að minnast. Af hverju var fundurinn haldinn á Íslandi? Var það fyrir tilstilli íslenskra barna sem skrifuðu Raisu Gorbachevu bréf, var það stjörnuspá eða vegna öryggissjónarmiða? Við skoðum líka í hvaða andrúmslofti fundurinn átti sér stað, bæði hér á landi og í heiminum öllum. Svo ætlum við til Lichtenstein, lands sem við heyrum reglulega nefnt á nafn. Við beinum sjónum okkar að þessu smáríki milli Austurríkis og Sviss, furstadæminu þar sem erfðaprinsinn Alois fer með mikil völd og hefur mikil áhrif. Þau völd hafa til dæmis komið í ljós þegar umræða um aukin réttindi kvenna til þungunarrofs hefur borið á góma í Lichtenstein, nú síðast í sumar.
  6. 265 - Úkraínumenn leiðandi í hergagnaiðnaði og aðstoðaði norskt símafyrirtæki herforingjastjórnina í Mjanmar?

    40 minÉpisode 275

    Norski fjarskiptarisinn Telenor er í vandræðum. Lögreglan gerði húsleit í höfuðstöðvum þess vegna gruns um hlutdeild í glæpum gegn mannkyni með því að láta herforingjastjórninni í Mjanmar í té upplýsingar um …

    Notes de l’épisode
    Norski fjarskiptarisinn Telenor er í vandræðum. Lögreglan gerði húsleit í höfuðstöðvum þess vegna gruns um hlutdeild í glæpum gegn mannkyni með því að láta herforingjastjórninni í Mjanmar í té upplýsingar um viðskiptavini þar eftir valdarán hersins árið 2021. Leiðtogi landsins fyrir valdaránið var meðal þessara viðskiptavina. Fyrirtækið segist ekki hafa átt annarra kosta völ, en mannréttindasamtök eru því ekki sammála. Hallgrímur Indriðason kynnti sér þetta áhugaverða mál, og ræddi einnig við forsprakka einna þessara samtaka sem gagnrýna Telenor. Valerí Salúsný, sendiherra Úkraínu í Bretlandi og fyrrum yfirmaður Úkraínuhers, lét þau orð falla að Úkraína væri langt á undan NATO-ríkjum í nýjungum í hernaði. Innan NATO væri einblínt á hugmyndafræði seinni heimsstyrjaldar og menn þar svifaseinir að tileinka sér nýjungar. Því væri ólíklegt að Úkraína ætti nokkurn tíma eftir að ganga þangað inn. Tíminn verður að leiða í ljós hvort Úkraína gangi einn daginn í NATO, en við ætlum nú að kynna okkur nýsköpun Úkraínumanna í hernaði, sem hefur verið töluverð síðan Rússlandsher hóf allsherjarinnrás í landið 2022. Dagný Hulda Erlendsdóttir fjallar um málið.
  7. 264 - Staðan á Kúbu og réttarhöldin sem allir eru að tala um

    50 minÉpisode 274

    Íbúar á Kúbu lifa við alvarlegan eldsneytisskort. Nú er sjóðheitt sumarið senn á enda þar sem lítið var hægt að treysta á loftræstingu. Landið sætir lengstu viðskiptaþvingunum í sögunni en í 75 ár hefur verið í …

    Notes de l’épisode
    Íbúar á Kúbu lifa við alvarlegan eldsneytisskort. Nú er sjóðheitt sumarið senn á enda þar sem lítið var hægt að treysta á loftræstingu. Landið sætir lengstu viðskiptaþvingunum í sögunni en í 75 ár hefur verið í gildi mjög strangt eða algjört viðskiptabann af hálfu Bandaríkjanna. Við ræðum við Hafliða Sævarsson um stöðuna á Kúbu, söguna og framtíðarhorfur. Milljónir hafa fylgst með réttarhöldum yfir bandarísku konunni Lindsey Clancy sem ákærð er fyrir að drepa börnin sín þrjú. Þó málið hafi fengið heljarmikla athygli eru fjölskylduharmleikir sem þessir ekki án fordæma þar vestra. Á þeim sex vikum sem réttarhöldin yfir Clancy stóðu drápu átta karlmenn eiginkonu sína og börn í Bandaríkjunum. Alma Ómarsdóttir kynnti sér málið sem allir eru að tala um.
  8. 263 - Lockerbie og ríkasta kona Rússlands

    44 minÉpisode 273

    Nærri 38 ár eru liðin síðan flugvél Pan Am var sprengd yfir skoska bænum Lockerbie en réttarhöld í málinu eru í undirbúningi. Þeim var þó frestað skyndilega í ágúst þegar ný sönnunargögn komu fram. Kona sem …

    Notes de l’épisode
    Nærri 38 ár eru liðin síðan flugvél Pan Am var sprengd yfir skoska bænum Lockerbie en réttarhöld í málinu eru í undirbúningi. Þeim var þó frestað skyndilega í ágúst þegar ný sönnunargögn komu fram. Kona sem missti föður sinn í hryðjuverkunum telur réttarhöldin geta markað einhvers konar endalok. Ólöf Ragnarsdóttir talar við hana í Heimskviðum í dag. Svo fjöllum við um ríkustu konu Rússlands síðustu fimm árin, en hún á og rekur netverslunarrisann Wildberries. Brynja Dögg Friðriksdóttir kynnti sér sögu þessarar konu og Wildberries, en árásir úkraínuhers frá því um miðjan júlí en árásirnar hafa markað ákveðin þáttaskil í átökunum milli Rússa og Úkraínumanna og hin sértæka hernaðaraðgerð Rússa líkt og innrásin kallast í Rússlandi, er komin mikið nær hinum almenna borgara í Rússlandi.
  9. 262 - Graceland og El Niño

    45 minÉpisode 272

    Vísindamenn spá því að El Niño verði öflugri en nokkru sinni fyrr, nái hámarki fyrir lok árs og valdi methita á heimsvísu á næsta ári. El Niño á sér stað að jafnaði á um fjögurra ára fresti. Þann 30. ágúst …

    Notes de l’épisode
    Vísindamenn spá því að El Niño verði öflugri en nokkru sinni fyrr, nái hámarki fyrir lok árs og valdi methita á heimsvísu á næsta ári. El Niño á sér stað að jafnaði á um fjögurra ára fresti. Þann 30. ágúst bættist Suður-Ameríkuríkið Ekvador á listann yfir þær þjóðir sem hafa lýst yfir neyðarástandi vegna veðurfyrirbærisins. Margir hafa heyrt það nefnt en færri vita hvað það er nákvæmlega. Hallgrímur Indriðason rýnir í það og þær alvarlegu afleiðingar sem gætu fylgt fyrir fjölda fólks. Svo förum við til Suður-Afríku. Undir lok ágúst voru 40 ár frá því bandaríski tónlistarmaðurinn Paul Simon opnaði augu og eyru vesturlandabúa fyrir afrískri tónlist en líka ógn og ömurð apartheid-tímans í Suður-Afríku. Graceland platan á sér enn sérstakan stað í hjörtum íbúa því hún sýndi hvað Suður-Afríka er fær um, að tónlist Afríku ætti erindi við heimsbyggðina alla og hún hljómar enn á götum suðurafrískra borga - tákn um frelsi og gleði og allt það sem býr í álfunni og íbúum hennar. Við tölum við Suður-afríkumenn. Annan sem ólst upp innan aðskilnaðarstefnunnar og hinn eftir að hún var afnumin 1991. Þau tengja bæði við tónlistina á ólíkan hátt og segja hana lifa góðu lífi í Suður-Afríku í dag, 40 árum eftir að hún var gefin út.
  10. 261 - Pólitík í Úkraínu og sumarið sem leið

    44 minÉpisode 271

    Það gekk á ýmsu í úkraínskum stjórnmálum í sumar. Mótmæli brutust út þegar varnarmálaráðherranum, sem naut mikilla vinsælda, var vikið úr embætti. Síðsumars ruggaði hann bátnum allhressilega þegar hann sendi …

    Notes de l’épisode
    Það gekk á ýmsu í úkraínskum stjórnmálum í sumar. Mótmæli brutust út þegar varnarmálaráðherranum, sem naut mikilla vinsælda, var vikið úr embætti. Síðsumars ruggaði hann bátnum allhressilega þegar hann sendi frá sér myndband þar sem hann lagði til að efnt yrði til kosninga. Bannað er að halda kosningar samkvæmt herlögum sem hafa gilt síðan Rússlandsher hóf allsherjarinnrás 2022. Þá hafa orðið vendingar í spillingarmáli sem virðist teygja sig alla leið inn á skrifstofu forseta landsins, Volodymyrs Zelenskýs. Dagný Hulda Erlendsdóttir fer yfir stöðuna í úkraínskum stjórnmálum. Þau Birta og Bjarni Pétur fara svo yfir nokkrar af helstu fréttum sumarsins. Þar kemur meðal annars við sögu fatastíll Georgiu Meloni, tónlistarsmekkur Andy Brunham, frændsystkinin Margrét Þórhildur og Karl Gústaf og fleira.
  11. Sumarheimskviður - Flókin talning og áttræðir rapparar

    40 minÉpisode 270

    Nú fer sumrinu að ljúka og þetta er síðasti þáttur sumarsins. Við byrjum af fullum krafti næsta laugardag með splunknýjar Heimskviður, þar sem við ætlum að gera upp það helsta í fréttum sumarsins á erlendum …

    Notes de l’épisode
    Nú fer sumrinu að ljúka og þetta er síðasti þáttur sumarsins. Við byrjum af fullum krafti næsta laugardag með splunknýjar Heimskviður, þar sem við ætlum að gera upp það helsta í fréttum sumarsins á erlendum vettvangi. Í þættinum í dag ætlum við að rifja upp umfjöllun okkar frá því í vor um eitt flóknasta og umfangsmesta manntal sögunnar. Indverjar eru langt komnir með að telja fjölmennustu þjóð heims. Núna í lok september lýkur fyrri áfanga þessa flókna verkefnis en því á ekki að ljúka fyrr en um mitt næsta ár. Svo fjöllum við líka um Harry Potter og höfund bókanna um galdrastrákinn J.K. Rowling, og að lokum áttræðu rapparana Pete og Bas.
  12. Sumar-Heimskviður - Morð

    44 minÉpisode 269

    Fjöldi ungverskra kvenna tók upp á því að eitra fyrir eiginmönnum sínum með afleiðingum að yfir þrjú hundruð manns dóu. Höfuðpaurinn var ljósmóðir sem jafnan var kölluð Súsí frænka. Í störfum sínum kynntist hún …

    Notes de l’épisode
    Fjöldi ungverskra kvenna tók upp á því að eitra fyrir eiginmönnum sínum með afleiðingum að yfir þrjú hundruð manns dóu. Höfuðpaurinn var ljósmóðir sem jafnan var kölluð Súsí frænka. Í störfum sínum kynntist hún vel aðstæðum fólks sem oft voru nöturlegar. Hún útvegaði konum því eitur og leiðbeindi þeim. Margir eiginmannanna í þorpinu beittu konur sínar ofbeldi og þær sáu enga aðra leið úr viðjum þess. Ástæðan fyrir því að við fjöllum um málið í vetur er sú að nýlega kom út bók þessa voveiflegu atburði í byrjun síðustu aldar. Bókin heitir The Women Are Not Fine, eða konurnar hafa það ekki gott. Dagný Hulda Erlendsdóttir talaði við höfund bókarinnir og hún segir að karlarnir hafi síður en svo haft það gott heldur. En voru konurnar kaldrifjaðir morðingjar eða þolendur ofbeldis sem í örvæntingu sinni fundu ekki aðra leið út? Bók og glæpir fortíðar er sömuleiðis útgangspunkturinn í seinni umfjöllun dagsins. Þá ætlum við að huga að geðheilsu þeirra sem fremja voðaverk. Kveikjan er bók sem kom út 2013 sem lýsir sambandi geðlæknisins Douglas M. Kelley við Hermann Göring sem honum var gert að meta í aðdraganda Nuremberg réttarhaldanna. Saga sem nú er búið að gera bíómynd um. Birta Björnsdóttir fjallar um málið.
  13. Sumar-Heimskviður - Barneignir og uppeldi

    41 minÉpisode 268

    Í Sumarheimsviðunum í dag ætlum við að huga að barneignum og barnauppeldi. Byrjum á byrjuninni, það þarf að eignast börnin áður en byrjað er að ala þau upp. En afhverju er fæðingartíðni stöðugt að lækka í …

    Notes de l’épisode
    Í Sumarheimsviðunum í dag ætlum við að huga að barneignum og barnauppeldi. Byrjum á byrjuninni, það þarf að eignast börnin áður en byrjað er að ala þau upp. En afhverju er fæðingartíðni stöðugt að lækka í heiminum og hvaða efnahagslegu og pólitísku afleiðingar hefur það á komandi árum? Jarðarbúum er vissulega enn að fjölga en nýjasta spá Sameinuðu þjóðanna gerir ráð fyrir að mannfjöldinn á jörðinni nái hámarki eftir rúma hálfa öld, árið 2084. Þá verði jarðarbúar samtals um tíu milljarðar og fimmti hver jarðarbúi verði þá eldri en sextíu og fimm ára. Björn Malmquist rýnir í framtíðina. Svo þegar börnin eru komin þá þarf að ala þau upp, og það er ekkert endilega alltaf auðvelt, sérstaklega á öld snjallsíma og samfélagsmiðla. Að deila eða ekki deila, það er spurningin. Hversu miklu af lífi barna er í lagi að deila á samfélagsmiðlum? Hvað þurfum við að hafa í huga og hverjar eru hætturnar? Ólöf Ragnarsdóttir ætlar að segja okkur allt um fyrirbæri sem kallast sharenting og stjórnvöld á Spáni vilja setja lög um.
  14. Sumar-Heimskviður - Færeyjar

    43 minÉpisode 267

    Sumarþættir Heimskviða halda ótrauðir áfram og í dag ætlum við að heimsækja nágranna okkar í Færeyjum og huga bæði að jarðgöngum og handbolta. Það eru fáir jafn duglegir að gera jarðgöng og Færeyingar - í það …

    Notes de l’épisode
    Sumarþættir Heimskviða halda ótrauðir áfram og í dag ætlum við að heimsækja nágranna okkar í Færeyjum og huga bæði að jarðgöngum og handbolta. Það eru fáir jafn duglegir að gera jarðgöng og Færeyingar - í það minnsta miðað við höfðatölu. 23 tvíbreið jarðgöng eru þar núna - ríflega tvöfalt fleiri en á Íslandi. Nú eru Færeyingar með háleitar áætlanir um næstlengstu neðansjávargöng í heimi, sem yrði jafnframt langdýrasta framkvæmd í sögu Færeyja. En þessar áætlanir er umdeildar, bæði efnahagslega og pólitískt. Hallgrímur Indriðason segir okkur allt um málið. En Færeyingar eru ekki bara duglegir að gera jarðgöng, þeir eru alltaf að verða betri í handbolta. Það sannaðist á Evrópumóti karla í handbolta í janúar þegar færeyska landsliðið sigraði hjörtu margra áhorfenda. Þeir komust reyndar ekki áfram á mótinu, en áfanginn og árangurinn vakti athygli víða. Og okkur langaði að forvitnast um uppgang handboltans í Færeyjum. Við tölum við íslenskan handboltaþjálfara í Færeyjum sem segir okkur frá ótrúlegum uppgangi handboltans þar, en Færeyingar fjölmenntu til Osló þar sem landsliðið þeirra vann sinn fyrsta leik á stórmóti. Þeir komast ekki áfram í milliriðil en hátt í sjö þúsund Færeyingar fylgdu liðinu.
  15. Sumar-Heimskviður - Dýrin stór og smá

    41 minÉpisode 266

    Þá eru það dýrin stór og smá sem verða í aðalhlutverki hjá okkur í dag. Við fjölluðum um pöndupólitík fyrr á árinu, en það má eiginlega segja að pöndur séu krúttlegustu diplómatarnir. Talið er að pöndur í …

    Notes de l’épisode
    Þá eru það dýrin stór og smá sem verða í aðalhlutverki hjá okkur í dag. Við fjölluðum um pöndupólitík fyrr á árinu, en það má eiginlega segja að pöndur séu krúttlegustu diplómatarnir. Talið er að pöndur í heiminum séu nú um 2.700. Þar af lifa nærri 2.000 villtar í Kína. Kínverjar hafa í áratugi stundað pöndupólitík, ef ríki vilji fá til sín pöndur þurfi þau að vera í góðum samskiptum við yfirvöld í Kína. Og Kínverjar kölluðu til sín tvær pöndur frá Japan fyrr á árinu. Borgaryfirvöld í Tókýó hafa óskað eftir að fá aðrar pöndur í staðinn . Ætli svarið velti ekki á því hvernig samskipti Kína og Japans þróast á næstunni? Ólöf Ragnarsdóttir segir okkur allt um krúttlegustu diplómatana. Það er svo ekki hægt að fjalla um dýr án þess að minnast á afmælisbarn ársins, David Attenborough varð 100 ára þann 8.maí síðastliðinn. Attenborough er af mörgum talinn einn áhrifamesti maður samtíðarinnar. Hann hefur frætt og skemmt í áratugi og varð aðgerðasinni á efri árum. Anna Lilja Þórisdóttir fer yfir sögu og arfleið Attenborough.
  16. Sumar-Heimskviður - Sjónvarp

    53 minÉpisode 265

    Við ætlum að huga að sjónvarpinu í dag, þegar við höldum áfram að rifja upp brot frá liðnum Heimskviðuvetri. Við byrjum á einum vinsælustu og kannski óvæntustu þáttum ársins, Heated Rivalry. Þessi fremur ódýra …

    Notes de l’épisode
    Við ætlum að huga að sjónvarpinu í dag, þegar við höldum áfram að rifja upp brot frá liðnum Heimskviðuvetri. Við byrjum á einum vinsælustu og kannski óvæntustu þáttum ársins, Heated Rivalry. Þessi fremur ódýra framleiðsla á sjónvarpsþáttunum sex borgaði sig svo um munar. Aðalleikararnir tveir eru orðnir stórstjörnur, annar þeirra var gestgjafi í Saturday Night Live síðar í mánuðunum. Þeir voru meðal kyndilbera á vetrarólympíuleikunum og hafa dúkkað upp á öllum helstu rauðu dreglum ársins. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir segir okkur allt um þættina vinsælu og áhrifin sem þeir hafa haft. Það bárust fregnir af því fyrir áramót að sjónvarps og tónlistarstöðin góðkunna MTV væri að leggja upp laupana. Það er ekki alveg satt, en MTV er ekki svipur hjá sjón miðað við umfang og stöðu sem stöðin hafði eftir að hún var stofnuð árið 1981. Birta Björnsdóttir skoðaði sögu MTV og hvaða áhrif hún hafði á tónlistar- og kvikmyndaiðnaðinn
  17. Sumar-Heimskviður - Íþróttir

    45 minÉpisode 264

    Sumarið hefur líklega farið í áhorf á heimsmeistaramótið í fótbolta hjá mörgum og því fannst okkur við hæfi að helga þennan þátt íþróttum. Úrslitaleikurinn er á morgun og þá er hægt að stytta sér stundir með …

    Notes de l’épisode
    Sumarið hefur líklega farið í áhorf á heimsmeistaramótið í fótbolta hjá mörgum og því fannst okkur við hæfi að helga þennan þátt íþróttum. Úrslitaleikurinn er á morgun og þá er hægt að stytta sér stundir með því til dæmis að velta því fyrir sér af hverju Kínverjar eru ekki betri í fótbolta en raun ber vitni. Það er áhugavert að fjögur af fimm fjölmennustu ríkjum heims taka ekki þátt í HM, Indland, Indónesía, Pakistan og jú Kína. Þrátt fyrir að hinn annálaði fótboltaáhugamaður og forseti landsins, Xi Jinping, hafi sett ævintýralegar fjárhæðir í að byggja fótboltaskóla, fótboltavelli, að þjálfa upp stjórstjörnur heima við og flytja þær inn sömuleiðis til að spila í ört stækkandi efstu deild kínverska boltans, þá er Kína hvergi nærri háleitum markmiðum sínum. Sem eru að komast á HM karla í fótbolta, halda mótið og vinna það – allt fyrir árið 2050. Eða það eru yfirlýstu markmiðin. Vafalaust vakir sömuleiðis fyrir forsetanum að gera Kína meira gildandi í allri pólitíkinni í kringum fótboltann. Eins og Sádar og Katarar hafa gert með glimrandi árangri. En hvers vegna er þessi fjölmenna þjóð ekki betri í einni vinsælu íþrótt heims. Oddur Þórðarson reynir að svara því. Það hafa fleiri stórmót sett svip sinn á árið, vetrarólympíuleikarnir fóru fram fyrr á árinu og þar gekk á ýmsu. Játningar um framhjáhald, fótbrot og ásakanir um svindl og typpastækkanir er meðal þess sem var í umræðunni. Bjarni Pétur Jónsson fjallar um mál Sydney Milani sem var meinuð þátttaka á leikunum eftir að sterar mældust í henni. Hún þvertekur fyrir að hafa tekið stera og segir efnin hafa mælst í henni vegna kærasta hennar, hann hafi tekið stera og hún hafi annað hvort fengið efnin í sig eftir sopa af drykk sem hann blandaði eða með sæði úr kærastanum.
  18. Sumar-Heimskviður - Saga Palomu

    47 minÉpisode 263

    Við höldum áfram með Sumar-Heimskviðurnar og rifjum upp mál frá liðnum vetri og þátturinn í dag er helgaður einu máli. Það er saga Palomu, sem við getum nú líklega ekki kallað annað en harmsögu. Paloma …

    Notes de l’épisode
    Við höldum áfram með Sumar-Heimskviðurnar og rifjum upp mál frá liðnum vetri og þátturinn í dag er helgaður einu máli. Það er saga Palomu, sem við getum nú líklega ekki kallað annað en harmsögu. Paloma Shemirani, frá suðausturhluta Bretlands, var aðeins 23 ára þegar hún lést úr eitilfrumukrabbameini í fyrrasumar. Þegar hún greindist sjö mánuðum áður, voru taldar 80% líkur á að hún næði fullum bata með lyfjameðferð. Móðir hennar, Kate Shemirani, er þekkt í Bretlandi. Hún missti leyfi sitt sem hjúkrunarfræðingur í kórónuveirufaraldrinum fyrir að dreifa skaðlegum upplýsingum um Covid-19. Kate Shemirani tókst að sannfæra dóttur sína um að hafna lyfjameðferð og gangast frekar undir óvísindalegar meðferðir skottulækna. Hún tapaði því baráttu sinni við meinið. Dánardómstjóri í Bretlandi segir umsjá Kate Shemirani yfir dóttur sinni ófullnægjandi og skammarlega, en ekki glæpsamlega. Bróðir Palomu er ósáttur við niðurstöðuna. Í viðtali við Odd Þórðarson segir bróðirinn, sem heitir Gabriel, að hann kenni móður þeirra um andlát systur sinnar. Mamma þeirra hafi á grundvelli samsæriskenninga og vantrúar á heilbrigðiskerfið, sannfært hana um að hafna lyfjameðferð.
  19. Sumar-Heimskviður - Breskur aðall

    47 minÉpisode 262

    Við höldum áfram að rifja upp valin brot frá liðnum vetri og nú er komið að þeim sem fæðast með silfurskeið í munninum. Þó sum þeirra hafi þurft að skila henni. Það er allavega raunin með fyrra umfjöllunarefnið …

    Notes de l’épisode
    Við höldum áfram að rifja upp valin brot frá liðnum vetri og nú er komið að þeim sem fæðast með silfurskeið í munninum. Þó sum þeirra hafi þurft að skila henni. Það er allavega raunin með fyrra umfjöllunarefnið okkar í dag, manninn sem áður var kallaður Andrés prins, en nú Andrew Mountbatten Windsor eftir að hann var sviptur öllum sínum tiltlum og meðfæddri meðgjöf í lífinu. Anna Lilja Þórisdóttir segir okkur söguna alla. Svanasöngur Downton Abbey kom í kvikmyndahús fyrir áramót. Þetta var þriðja og síðasta rmyndin sem kom í kjölfar feykivinsælla sjónvarpsþáttaraða um Crowley fjölskylduna og aðra íbúa á öllum hæðum Downton Abbey. Þættirnir hafa unnið alþjóðleg verðlaun um allan heim, slegið áhorfsmet og persónurnar eiga sér margar fastan sess í hjörtum aðdáenda. Birta Björnsdóttir fjallar um þættina vinsælu.
  20. Sumar-Heimskviður - Fréttaljósmyndir og framtíð fjölmiðla

    43 minÉpisode 261

    World Press Photo fögnuðu 70 ára afmæli í fyrra og samtökin fóru í naflaskoðun í tilefni tímamótana. Við ræddum við Joumana El Zein Khoury, framkvæmdastjóra World Press Photo, fyrr í vetur. Við rifjum upp …

    Notes de l’épisode
    World Press Photo fögnuðu 70 ára afmæli í fyrra og samtökin fóru í naflaskoðun í tilefni tímamótana. Við ræddum við Joumana El Zein Khoury, framkvæmdastjóra World Press Photo, fyrr í vetur. Við rifjum upp eftirminnilegustu fréttaljósmyndir sögunnar. Myndir sem breyttu heiminum. Svo eru það möguleg endalok almannaþjónustumiðla í Bandaríkjunum. Það er stefna bandaríkjastjórnar að draga úr umfangi þessara miðla sem reka staðbundnar útvarps- og sjónvarpsstöðvar um öll Bandaríkin. Núna séu komnir fjöldi sjálfstæðra miðla og það sé ekki aðeins úrelt fyrirkomulag að ríkið fjármagni miðlana heldur spilli það fyrir sjálfstæðri blaðamennsku. Hallgrímir Indriðason vann þessa umfjöllun í febrúar og ræddi við Ingibjörgu Þórðardóttur sem er fyrrverandi fréttastjóri BBC og CNN í Bandaríkjunum. Hún sagði umræðuna um að ríkismiðlar hafi of mikil áhrif á fjölmiðlamarkaðinn góða og gilda en hún eigi ekki við Bandaríkjunum. Almannaþjónustumiðlarnir, NPR og PBS, eigi ekki roð í stærstu einkamiðlana og hvarf þeirra hefði lítil eða engin áhrif á þá. En það myndi hins vegar gera fjölmiðlalandslandslagið bæði einhæfara og fátæklegra.
  21. Sumar-Heimskviður - Afmælisþátturinn

    47 minÉpisode 260

    Við sendum út Heimskviðuþátt númer 250 í mars og héldum upp á það með því að segja örsögur utan úr heimi. Í tilefni dagsins sögðum við sögur fólks sem við þekkjum vel, en grófum upp hluti sem færri þekkja. Svo …

    Notes de l’épisode
    Við sendum út Heimskviðuþátt númer 250 í mars og héldum upp á það með því að segja örsögur utan úr heimi. Í tilefni dagsins sögðum við sögur fólks sem við þekkjum vel, en grófum upp hluti sem færri þekkja. Svo kynntumst við fleirum sem ekki eru eins vel þekktir, en ættu kannski að vera það. Við fjölluðum um hundakallinn Lars Lökke Rasmussen, badmintonmeistarann Jens Frederik Nielsen, áhrifavald frá Gaza, næsta leiðtoga Norður-Kóreu og mann sem hefur verið kallaður George Clooney seðlabankanna.
  22. Sumar-Heimskviður - Netið

    39 minÉpisode 259

    Umfjallanir dagsins tengjast allar netinu sem við notum allan daginn og oft allt og mikið. Við notum það mikið, @ merkið gamla góða. Við hömrum það inn oft á dag en þekkjum kannski ekki öll söguna. Það var …

    Notes de l’épisode
    Umfjallanir dagsins tengjast allar netinu sem við notum allan daginn og oft allt og mikið. Við notum það mikið, @ merkið gamla góða. Við hömrum það inn oft á dag en þekkjum kannski ekki öll söguna. Það var sýningargripur á nýlistasafninu í New York þegar við fjölluðum um það í október í fyrra. Það sem kannski færri vita er að merkið sjálft á sér nokkur þúsund ára sögu og hefur þar af leiðandi ekki aðeins verið notað í hinum stafræna heimi. Hallgrímur Indriðason segir okkur allt um sögu @ merkisins. Svo eru það dekkri hliðar netsins, það er orð ársins 2025 hjá Oxford-orðabókinni, bræðibeita. Í desember fjölluðum við um þetta orð síðasta árs, bræðibeita eða rage bait á ensku. Orðið er notað yfir efni á netinu sem er ætlað að kveikja bræði eða reiði lesenda til þess að fá fólk til að smella á efnið. Notkun orðsis hafði þrefaldast síðustu tólf mánuði þegar það varð fyrir valinu sem orð ársins. Oddur Þórðarson fjallar um málið.
  23. Sumar-Heimskviður - Tækni

    41 minÉpisode 258

    Hálfleiðara þekkja fæstir en þeir eru engu að síður í lífi okkar allra, nauðsynlegir í öllum helsta tæknibúnaði samtímans. Stærsti hluti þeirra er framleiddur í Taívan. Hvernig tókst Taívan að verða svona …

    Notes de l’épisode
    Hálfleiðara þekkja fæstir en þeir eru engu að síður í lífi okkar allra, nauðsynlegir í öllum helsta tæknibúnaði samtímans. Stærsti hluti þeirra er framleiddur í Taívan. Hvernig tókst Taívan að verða svona framarlega í framleiðslu á þessari tækninauðsyn? Og hvað þýðir þetta fyrir öryggi landsins? Eru meiri líkur á innrás vegna þessarar dýrmætu tæknikunnáttu? Eða virkar hún sem skjöldur? Dagný Hulda segir okkur allt um hálfleiðarana og stöðu Taívan. Íbúar í borginni Kherson í Úkraínu fara síður út þegar veðrið er gott. En þegar það er þoka, rigning og snjór má búast við að sjá fólk á gangi úti við. Og ástæðan? Skyggnið er verra og þá eru minni líkur á að fólk sé sært eða drepið af drónum Rússlandshers. Kherson er í suðurhluta Úkraínu, við ána Dnipro. Hinum megin við ána eru rússneskir hermenn sem herja á borgarbúa alla daga með drónum. Á drónunum er myndavél og sprengiefni. Sá sem stýrir dróna sér því hvert hann stefnir og viljandi er þeim beint að fólki á gangi úti, jafnvel börnum, og að bílum á ferð. Borgarbúar kalla þetta „human safari“ eða mannaveiðar. Það sé eins og Rússarnir séu á eftir almennum borgurum til að særa þá eða drepa. Dagný Hulda segir frá.
  24. 260 - Hraðstefnumót í Heimskviðum

    57 minÉpisode 257

    Þetta er síðasti þátturinn fyrir sumarfrí og hann verður af því tilefni með óhefðbundnu sniði. Við ætlum að kynnast fjölda einstaklinga sem eru eða hafa verið áberandi í heimsmálunum og kynnast þeim betur …

    Notes de l’épisode
    Þetta er síðasti þátturinn fyrir sumarfrí og hann verður af því tilefni með óhefðbundnu sniði. Við ætlum að kynnast fjölda einstaklinga sem eru eða hafa verið áberandi í heimsmálunum og kynnast þeim betur. Þarna eru meðal annars stjórnmálamenn, sjónvarpslæknar, áhrifavaldar, tónlistarmenn og ferfætlingar svo eitthvað sé nefnt.
  25. 259 - Afganistan og óumflýjanlegur samruni í Hollywood

    44 minÉpisode 256

    Það styttist í þau tímamót að fimm ár verði liðin frá því að Afganistan féll í hendur talibana. Reglulega hafa borist fréttir af síversnandi aðstæðum Afgana, sér í lagi stúlkna og kvenna. En hvernig er staðan í …

    Notes de l’épisode
    Það styttist í þau tímamót að fimm ár verði liðin frá því að Afganistan féll í hendur talibana. Reglulega hafa borist fréttir af síversnandi aðstæðum Afgana, sér í lagi stúlkna og kvenna. En hvernig er staðan í Afganistan, nú þegar talibana hafa verið við völd í tæp fimm ár ílandinu? Við kynnum okkur það í þættinum og heyrum líka af samruna tveggja af stærstu kvikmyndaverunum í Hollywood. Eftir uppboðsstríð við streymisveituna Netflix tókst Paramount að tryggja sér Warner Bros. á 111 milljarða Bandaríkjadala, jafnvirði um 13.800 milljarða íslenskra króna. Yfirvöld þurfa að samþykkja samrunann en ef af honum verður verða aðeins fjögur stór kvikmyndaver eftir í Bandaríkjunum. Leikarar, framleiðendur, leikstjórar og aðrir hafa áhyggjur af færri tækifærum gangi samruninn í gegn, störfum fækki, kostnaður hækki og að úrval fyrir neytendur verði minna. Sigurjón Sighvatsson framleiðandi sem hefur unnið í Hollywood til áratuga segir að samruninn hafi verið óumflýjanlegur.
  26. 258 - Styr um Starmer, fjölþáttaógnir og þjóðvegur 66

    46 minÉpisode 255

    Það er kjördagur og Heimskviður fjalla um samgöngumál, húsnæðismál og þjóðfélagsumræðuna, reyndar með sínu nefi. Allra augu eru á Downingstræti 10 þessa dagana. Þetta hefur verið erfið vika hjá Keir Starmer …

    Notes de l’épisode
    Það er kjördagur og Heimskviður fjalla um samgöngumál, húsnæðismál og þjóðfélagsumræðuna, reyndar með sínu nefi. Allra augu eru á Downingstræti 10 þessa dagana. Þetta hefur verið erfið vika hjá Keir Starmer forsætisráðherra Breta, og margir sem spá því að hann verði ekki langlífur í embætti. Ég ætla aðeins að skoða hvers vegna hann er svona óvinsæll og hvað taki við. Kjördagur í dag og annar dagur síðar í sumar þar sem landsmenn þurfa að gera upp hug sinn og nýta kosningaréttinn. Það er raunhæft að óttast tilraunir utanaðkomandi aðila til að hafa áhrif á þjóðmálaumræðuna hér á landi í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræður við Evrópusambandið. Þetta segja sérfræðingar sem fást við upplýsingaóreiðu og svokallaðar fjölþáttaógnir - sem eru sífellt stærri hluti af því sem öryggisstofnanir fást við. Ógnir af þessu tagi eru hins vegar daglegt brauð í ríkjum sem standa okkur tiltölulega nærri; til dæmis í Noregi - og Eistlandi - þangað sem Björn Malmquist ætlar að fara með okkur í Heimskviðum í dag. Síðar á þessu ári verður hinn goðsagnarkenndi þjóðvegur 66 í Bandarikjunum hundrað ára og tímamótanna minnst með ýmsum hætti. Það má alveg halda því fram að hluti sögu Bandaríkjanna liggi í malbikinu á þessum 4000 km vegi sem liggur þvert yfir landið. Birta skoðaði sögu þessa líklega þekktasta þjóðvegar heims, sem lifir nú meira á fornri frægð en sem samgönguæðin sem honum var upphaflega ætlað að vera.
  27. 257 - Staðan í Venesúela og leikvangar fyrir kvennknattspyrnu

    39 minÉpisode 254

    Athygli heimsbyggðarinnar var á Venesúela í byrjun árs þegar bandarískir hermenn tóku forseta landsins, Nicolás Maduro og eiginkonu hans Ciliu Flores, höndum og fluttu í fangelsi í New York þar sem þeim er enn …

    Notes de l’épisode
    Athygli heimsbyggðarinnar var á Venesúela í byrjun árs þegar bandarískir hermenn tóku forseta landsins, Nicolás Maduro og eiginkonu hans Ciliu Flores, höndum og fluttu í fangelsi í New York þar sem þeim er enn haldið. Trump lýsti því yfir að boðað yrði til kosninga og að Bandaríkin tækju yfir olíuframleiðslu landsins. Þrátt fyrir að vera risastórt fréttamál féll það fljótlega í skuggann af öðrum málum, eins og hótunum Trumps um að taka yfir Grænland, árásum Bandaríkjanna og Ísraels á Íran og árásum Ísraela á Líbanon, svo fátt eitt sé nefnt. Í Heimskviðum í dag ætlum við að reyna að glöggva okkur á því hvort eitthvað hafi breyst í Venesúela eftir að Maduro var steypt af stóli. Dagný Hulda Erlendsdóttir fjallar um málið. Enska fótboltafélagið Brighton and Howe Albion tilkynnti nýlega um byggingu nýs leikvangs sem verður eingöngu fyrir kvennafótbolta. Þetta yrði fyrsti völlur sinnar tegundar í Evrópu en sá fyrsti í heiminum var tekinn í notkun í Kansas City í Bandaríkjunum fyrir tveimur árum. En hvað gerir þessa velli vænlegri fyrir kvennafótbolta og af hverju er ástæða til hafa slíka velli? Hallgrímur Indriðason, sem hefur horft á ófáa fótboltaleikina um ævina, kannar þetta.
  28. 256 - Aldarafmæli Attenborough og áttræðir rapparar

    43 minÉpisode 253

    Þátturinn í dag er eins konar óður til öldunga. Annars vegar fjöllum við um einn virtasta og dáðasta mann samtímans, David Attenborough. Hann veðrur 100 ára þann 8.maí næstkomandi. Anna Lilja Þórisdóttir fer …

    Notes de l’épisode
    Þátturinn í dag er eins konar óður til öldunga. Annars vegar fjöllum við um einn virtasta og dáðasta mann samtímans, David Attenborough. Hann veðrur 100 ára þann 8.maí næstkomandi. Anna Lilja Þórisdóttir fer yfir sögu og arfleið Attenborough. Og svo eru það Pete og Bas, Bretar sem eru að nálgast áttrætt en eru að rappa á fullu, nýkomnir frá Bandaríkjunum, eru núna á Evróputúr. Bjarni Pétur segir okkur frá þeim.
  29. 255 - Skálmöld í Nígeríu og Læknar án landamæra á ófriðarsvæðum

    40 minÉpisode 252

    Það hefur verið ófriðlegt í norðurhluta Nígeríu stærstan hluta aldarinnar, meðal annars vegna uppgangs hryðjuverkasamtakanna Boko Haram. Mannrán, morð og önnur ofbeldisverk hafa verið tíð. Eftir að dregið hafði …

    Notes de l’épisode
    Það hefur verið ófriðlegt í norðurhluta Nígeríu stærstan hluta aldarinnar, meðal annars vegna uppgangs hryðjuverkasamtakanna Boko Haram. Mannrán, morð og önnur ofbeldisverk hafa verið tíð. Eftir að dregið hafði úr ofbeldisverkum blossuðu þau upp aftur í fyrra, og nú er ástandið verra en nokkru sinni. Margir samverkandi þættir skýra ástæðuna, bæði samfélagslegir og efnahagslegir. Hallgrímur Indriðason fer yfir það. Læknar án landamæra eru meðal virtustu mannúðarsamtaka heims. Í rúma hálfa öld hafa starfsmenn þeirra lagt líf sitt að veði til þess að koma þeim allra hjálparlausustu meðal okkar til aðstoðar. Samtökin starfa á mörgum af hættulegustu stöðum í heimi og starfsmenn þeirra hraða sér gjarnan í áttina að hörmungum sem aðrir leggja á sig mikið að flýja. Þessi samtök, sem við heyrum svo oft minnst á í fréttum, eru þekkt fyrir að vera sumpart djarfari en önnur álíka mannúðarsamtök, og veigra sér ekki við því að storka yfirvöldum í þeim löndum sem þau starfa - á meðan önnur samtök starfa þar ekki nema með samþykki yfirvalda. Þessi djarfa nálgun hefur orðið öðrum innblástur og stofnuð hafa verið önnur samtök, með svipaða hugmyndafræði, eins og Blaðamenn án landamæra, Kennarar án landamæra, Lögfræðingar án landamæra og Verkfræðingar án landamæra, svo fáein séu nefnd. En hvernig er að starfa fyrir Lækna án landamæra og hvað er það, sem fær fólk til þess að stofna lífi sínu - síendurtekið - í hættu, til þess að hjálpa öðrum? Oddur Þórðarson ræðir við Íslending sem hefur gert nákvæmlega þetta í heil 10 ár.
  30. 254 - Kjarnorka, 40 ár frá Chernobyl og Rússar lokka útlendinga á vígvöllinn

    48 minÉpisode 251

    Það styttist í að það verði heil 40 liðin frá kjarnorkuslysinu í Chernobyl. Áhrifanna gætir enn, söguna þekkja flestir en það tók nokkurn tíma að fyrir önnur lönd að átta sig á því sem hafði gerst. Sovésk …

    Notes de l’épisode
    Það styttist í að það verði heil 40 liðin frá kjarnorkuslysinu í Chernobyl. Áhrifanna gætir enn, söguna þekkja flestir en það tók nokkurn tíma að fyrir önnur lönd að átta sig á því sem hafði gerst. Sovésk yfirvöld reyndu að halda slysinu leyndu og það var ekki fyrr en geislavirk efni voru farin að berast til og mælast í andrúmslofti nágrannaríkjanna að ljós var að eitthvað verulega alvarlegt hafði gerst. Við rifjum upp söguna. Kjarnorka er þó ekki alslæm og má segja að hún sé komin aftur í tísku eftir orkukreppur síðustu ára, sérstaklega í Evrópu. Við skoðum orkunotkur Evrópuríkja og hvaða áhrif hækkandi orkuverð hefur. En þó að kjarnorkan sé í tísku þá fylgja henni margir ókostir, sá stærsti er kjarnorkuúrgangurinn og hvað á að gera við hann. Finnar opna á næstu vikum fyrstu geymslustöðina fyrir kjarnorkuúrgang, sem er neðanjarðar undir stærsta kjarnorkuveri Finna. Talið er að á milli tuttugu og þrjátíu þúsund erlendir hermenn berjist með Rússlandsher á vígvellinum í Úkraínu, langflestir frá fátækum ríkjum. Hluti þeirra hélt að sín biði vinna í Rússlandi, til dæmis við trukkaakstur eða í landbúnaði, en endaði svo á víglínunni. Vegabréfin eru tekin af þeim, rússnesk stjórnvöld geta upp á sitt eindæmi framlengt herþjónustuna þangað til stríðinu lýkur og margir hafa greint frá því að vera hótað ofbeldi og dauða reyni þeir að flýja. Danski fræðimaðurinn Karen Philippa Larsen fór til Úkraínu og ræddi við nokkra þessara erlendu hermanna sem teknir höfðu verið til fanga. Þeir sögðust helst hafa ráðið sig í vinnu til Rússlands í von um ríkisborgararétt og mannsæmandi laun. Hún segir aðstæður þeirra minna á mansal. Dagný Hulda Erlendsdóttir fjallar um málið.

Voici les 60 derniers épisodes sur 280. Les épisodes plus anciens se trouvent dans le flux du podcast.

C’est votre podcast ?

Confirmez-le avec une entrée dans votre flux : vous recevez ici un code, vous l’ajoutez comme podcast:txt dans le canal de votre flux, et nous le vérifions. Votre podcast apparaît ensuite comme « vérifié » sur SoundNode.

Paramètres

Affichage

Langue

Détermine les stations affichées en premier sur la page d’accueil.

Historique

Les stations et épisodes écoutés récemment et tes dernières recherches sont seulement enregistrés dans ce navigateur.

Notifications

Un court message quand un podcast que tu suis publie un nouvel épisode. Désactive un podcast précis avec la cloche sur sa page.

Compte

Enregistrez vos favoris – dans l’app et sur le site.

Raccourcis clavier

/
Ouvrir la recherche
Espace
Lecture ou pause
← →
Dans le lecteur : 15 s en arrière, 30 s en avant (épisodes) · dans une rangée : tuile suivante
↑ ↓
Dans une rangée : cible dans la tuile
Début / Fin
Dans une rangée : première ou dernière tuile
Esc
Fermer la fenêtre ou le menu
?
Cet aperçu
En cours de lecture

Voir la station

À suivre

    Ajoutez des épisodes avec « À suivre » – ils seront lus après l'épisode en cours.