
Nike og smásalarnir: Hjónaband, ráðgjöf eða skilnaður?
Notes de l’épisode
Hvað eiga samstarf Nike og smásala og hjónaband sameiginlegt? Meira en þú heldur, stundum þarf meira að segja hjónabandsráðgjöf.
Árni Ingi Pétursson, Strategic Account Director hjá Nike, er gestur þáttarins. Við ræðum hvernig vörumerki og smásalar fara frá því að kaupa og selja vörur yfir í náið samstarf þar sem traust, gegnsæi og gögn leggja grunn að sameiginlegum árangri og betri upplifun viðskiptavina.
Árni segir frá stefnubreytingunni hjá Nike sem opnaði dyrnar fyrir samkeppninni, hvers vegna það snýst ekki alltaf um að selja meira og hvað gerist þegar samstarfið reynir á. Hann deilir líka ráðum fyrir stjórnendur sem vilja styrkja tengslin við sín mikilvægustu vörumerki.
Og gesturinn er mér óvenju kunnugur því við Árni erum hjón. Í þessum þætti ræðum við þó fyrst og fremst annars konar hjónaband.