
#27 - Hlynur Bragason
Notes de l’épisode
Í þættinum í dag er gestur minn Hlynur Bragason.
Hlynur, sem margir þekkja sem Hlyn Sæta, hóf skólaakstur fyrir Fellahrepp haustið 1990. Þá var hann 24 ára með eina Mitsubishi Rosa-rútu og hafði varla hugmynd um hvað þetta eina verkefni ætti eftir að verða stór hluti af lífi hans.
Síðan hefur margt breyst. Rúturnar urðu fleiri, verkefnin stærri og reksturinn teygði sig meðal annars til Reykjavíkur. En það sem hefur fylgt þessu öllu er ábyrgðin á fólkinu sem treystir á að komast leiðar sinnar.
Við ræðum meðal annars:
– Hvernig ein rúta og skólaakstur urðu að ævistarfi.
– Uppbyggingu rekstrarins, hópferðirnar og árin í Reykjavík.
– Ákvörðunina um að draga úr eigin akstri og einbeita sér að rekstrinum.
– Skólaakstur í aftakaveðrum og ábyrgðina á að taka ákvörðun um hvort sé fært.
– Sveitauppeldið, tilraunagleðina og verkefnin sem Hlynur hefur tekið sér fyrir hendur í gegnum tíðina.
Mjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna.
Þátturinn er í boði VÍS, Hjá Línu, M Fitness og Austurfréttar.