
Þáttur 17: Hin dulda og föla birtingarmynd ljóssins
Notes de l’épisode
„Ég stóð mig ógeðslega vel í Candela Obscura“
- Stefán Ingvar, höfundur Teppavirkis
Reglan mætir einum af okkar öflugustu Örlagavöldum vorrar stéttar (Þorsteinn Sturla) í Miðbiki Meistaranna til að ræða Candela Obscura - fyrstu bók Darrington Press sem kom inn með hvelli en hvarf jafnskjótt.
Í gegnum eðerinn var Geitin Stingvar framkölluð með bellibrögðum tækninnar. Skilaboð hans, dulmögnuð sem þau voru, skilja bersýnilega rák á sál hvers þeirra sem þora sér að leggja við hlustir.
Í hlekkjum Reglunnar:
Eintak af bókinni finnurðu í Stórhofi Nördanna í Glæsibæ og hjá Darrington Press
Mothership: Warden's Operations Manual
Mánuður af Myrkri hjá Drive Thru RPG
She is the Ancient: A Genderbent Curse of Strahd
Stöff á Kickstarter:
Eidolon:The Ghost Market -DaggerHeart Setting by Keith Baker