
#54 - Langamma njósnari
Notes de l’épisode
Hylmdi breska leyniþjónustan yfir sovéskum njósnara í London? Í áratugi var Melita Norwood, elskuleg langamma sem sauð sultu og ræktaði epli í úthverfi borgarinnar, einn mikilvægasti útsendari KGB í Bretlandi. Hún afhenti Sovétmönnum leyniskjöl úr kjarnorkuvopnaáætlun Breta, en þrátt fyrir að MI5 kæmist ítrekað á sporið var hún látin óáreitt. Í þessum þætti af Skuggavaldinu rekja Hulda og Eiríkur ótrúlega sögu Melitu og velta því fyrir sér hvernig staðalmyndin af hinni skaðlausu eldri konu reyndist hennar besti skjöldur.