
Fréttir vikunnar | Stóra stöðnunin, hin óþarfa unga kynslóð, betlandi ráðherra og hagvöxtur fyrir hvern?
Notes de l’épisode
Ritstjórinn lifir góðu lífi og rifjar upp nýleg samskipti við Fjölmiðlanefnd sem stendur blessunarlega vaktina. Mikilvægt er að nú verði myndað jákvætt samband við þennan mikilvæga hagaðila.
Dagskrá þáttarins: Hagkerfi sem stækkar án þess að allir njóti endilega góðs af, vaxtarplan ríkisstjórnarinnar og aðferðir hennar til að vinna gegn markmiðum þess, ungt fólk á tímum gervigreindar og skipulagðir glæpahópar á Íslandi. Síðan reiknum við út hvað fást margir sérsveitarmenn fyrir 150 milljónir sem sendar eru til útlanda í staðinn.
Hagkerfið hefur sannarlega stækkað en Ísland hefur ekki beint orðið ríkara. Við förum yfir stóru stöðnunina og nýtt vaxtarplan ríkisstjórnarinnar, sem var enn volgt úr prentaranum þegar atvinnuvegaráðherra mætti í ræðustól til að útskýra að það væri bara svona almennt um gott atvinnulíf, en ekki ætlað að taka á raunverulegum vanda hagkerfisins. Hver vill ekki almennt gott atvinnulíf?
Síðan er það unga fólkið. Maður heyrir stundum að ungir Íslendingar séu bara svo latir að hreinlegast sé að ráða útlending. En ef atvinnulífið gefst upp á unga fólkinu, þá er ekki nema von að þau öðlist ekki trú á sjálfum sér heldur. Nú bætist gervigreindin við. Líkamlegu störfin mönnuð erlendis frá, skrifstofustörfin farin til gervigreindarinnar og hvað á þá að gera við ungu kynslóðina?
Að lokum: Yfir tuttugu skipulagðir glæpahópar á okkar litla Íslandi og dómsmálaráðherra heldur blaðamannafund um fyrirhuguð verkefni sem enginn peningur er til í. Kannski væri hreinlegra að byrja á að ræða við formann eigin flokks. Það er nefnilega til nægur peningur í ýmislegt annað. Hvað eru það margir sérsveitarmenn?