
Þáttaröð 2 - Þáttur 10. - Bjargey Ingólfsdóttir
Notes de l’épisode
Hæ og velkomin í þátt númer 10 í annarri seríu af Taboo.
Bjargey Ingólfsdóttir er sennilega mörgum kunn enda hefur hún verið áberandi á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum undanfarin ár. Hún er félagsráðgjafi að mennt, jógakennari, fyrirlesari og fararstjóri en umfram allt bara ótrúlega opin og skemmtileg manneskja sem er óhrædd við að tala um lífið eins og það er.
Við fengum Bjargeyju til okkar í virkilega skemmtilegt og einlægt spjall þar sem við fórum út um víðan völl. Við ræddum meðal annars sambönd, kynlíf, sjálfsmynd, stefnumótaheiminn og hvernig það er að byrja aftur að deita á fullorðinsárum með aðeins meiri lífsreynslu og kannski aðeins skýrari hugmynd um hvað maður vill.
Ótrúlega skemmtilegt spjall og eins og alltaf fórum við um víðan völl! Njótið vel :)