
Tékk-inn með Helgu og Örnu
- Épisodes
- 31
- Parution
- toutes les deux semaines
- Dernier épisode
- 16 Nov 2026
À propos du podcast
Þáttur um vinnustaðamenningu, leiðtogahlutverkið, stjórnun og hvernig meðvitund spilar inn í þetta allt saman.
Épisodes 31
#31 - Áhorfendur halda með þér
Þú stendur upp, hjartað hamast og allt í einu virðist heilinn hafa gleymt öllu sem þú ætlaðir að segja. Ræðukvíði er eitthvað sem ótrúlega mörg okkar þekkja, líka fólk sem hefur áratuga reynslu af því að standa …
Notes de l’épisode
Þú stendur upp, hjartað hamast og allt í einu virðist heilinn hafa gleymt öllu sem þú ætlaðir að segja. Ræðukvíði er eitthvað sem ótrúlega mörg okkar þekkja, líka fólk sem hefur áratuga reynslu af því að standa á sviði. Gestur okkar í þessum þætti er Gunnar Hansson, leikari og útvarpsmaður, sem hefur staðið fyrir framan áhorfendur í nær 30 ár. Við tölum um hvað gerist í okkur þegar við verðum stressuð, hvers vegna hræðslan við hræðsluna getur orðið stærsta hindrunin og hvað raunverulega hjálpar þegar við þurfum að stíga fram. Gunnar segir okkur meðal annars frá því þegar hann fraus á sviði, hvers vegna hann treystir á stikkorð og af hverju við ættum kannski að hætta að hugsa um áhorfendur sem ógn. Því þegar allt kemur til alls eru þeir yfirleitt á okkar bandi.#30 "From asshole to human being"
---This episode is in English, see text below--- Í þessum þætti fáum við til okkar Torben, stofnanda Conscious Consulting. Hann er danskur en eiginlega hálfíslenskur, og hann hefur fylgt okkur í gegnum árin …
Notes de l’épisode
---This episode is in English, see text below--- Í þessum þætti fáum við til okkar Torben, stofnanda Conscious Consulting. Hann er danskur en eiginlega hálfíslenskur, og hann hefur fylgt okkur í gegnum árin. Torben var áður fjármálastjóri í stóru alþjóðlegu fyrirtæki og lýsir eigin vegferð sem ferðalagi „frá skíthæl yfir í manneskju“. Í dag snýst allt hans starf um að hjálpa fólki og leiðtogum að vaxa. Við ræðum tengsl líkama og huga, orkuna sem myndast á milli fólks, innsæið, hvernig við stígum af hamstrahjólinu og hvers vegna manneskjan skiptir enn máli og kannski enn meira máli akkúrat núna á tímum gervigreindar. ___________________________________ In this episode of Tékk-inn, we sit down with Torben, founder of Conscious Consulting. He went from finance executive to consultant on a mission to elevate collective consciousness, a journey that has also been deeply personal, or as he puts it himself: “from asshole to human being.” We talk about somatic work, the energy in a room, why gut feeling is really data, getting off the hamster wheel, and why humans still matter in the age of AI.#29 - Samstarfsþáttur Tékk-inn & Gervigreindarklúbbsins
Gervigreind, ótti, borgaralaun, þriggja daga vinnuvika og nokkuð vandræðalegt AI-klúður. Stefán Atli úr Gervigreindarklúbbnum mætir í fyrsta crossover-þátt Tékk-Inn og að þessu sinni fáum við ekki bara að …
Notes de l’épisode
Gervigreind, ótti, borgaralaun, þriggja daga vinnuvika og nokkuð vandræðalegt AI-klúður. Stefán Atli úr Gervigreindarklúbbnum mætir í fyrsta crossover-þátt Tékk-Inn og að þessu sinni fáum við ekki bara að spyrja spurninganna. Við ræðum mannlegu hliðina á gervigreindinni og hvernig við getum nýtt hana án þess að láta dómgreindina fjúka út um gluggann.#28 - Teymisþjálfarinn
Í þessum þætti tékkum við okkur inn með Erni Haraldssyni, teymisþjálfara, markþjálfa og hlaðvarpsstjórnanda sem hefur helgað sig því að hjálpa teymum að ná meiri árangri. Örn er vottaður teymisþjálfari, heldur …
Notes de l’épisode
Í þessum þætti tékkum við okkur inn með Erni Haraldssyni, teymisþjálfara, markþjálfa og hlaðvarpsstjórnanda sem hefur helgað sig því að hjálpa teymum að ná meiri árangri. Örn er vottaður teymisþjálfari, heldur úti vinsælu hlaðvarpi um efnið og kennir öðrum listina að leiða og efla teymi. Flest okkar vinnum, lærum eða störfum innan einhvers konar teymis. Í þessu skemmtilega og hagnýta samtali ræðum við hvað einkennir sterk og heilbrigð teymi, hvernig traust verður til og hvað við getum öll gert til að bæta samstarf og árangur í okkar eigin teymum.#27 - Gervigreind sem vinnufélagi framtíðarinnar?
Í þessum þætti fáum við til okkar þær Gyðu Kristjáns hjá Isavia og Þórdísi Jónu stofnanda Revera, mikla talsmenn gervigreindar. Þær eru báðar einstaklega orkumiklar, forvitnar og óhræddar við að prófa nýjar …
Notes de l’épisode
Í þessum þætti fáum við til okkar þær Gyðu Kristjáns hjá Isavia og Þórdísi Jónu stofnanda Revera, mikla talsmenn gervigreindar. Þær eru báðar einstaklega orkumiklar, forvitnar og óhræddar við að prófa nýjar leiðir og deila með okkur sinni sýn á hvernig gervigreind getur hjálpað okkur að ná meiri árangri, bæði í vinnunni og lífinu almennt. Við spjöllum um þær áskoranir sem fyrirtæki standa frammi fyrir þegar kemur að innleiðingu gervigreindar, hvað er helst að halda aftur af okkur og hvernig við getum nýtt tæknina til að vinna snjallara en ekki endilega meira. Þær segja okkur líka frá því hvernig þær sjálfar nota gervigreind í sínum daglegu störfum, verkefnum og jafnvel einkalífinu. Þetta varð skemmtilegt og hressilegt tékk-inn fullt af hagnýtum ráðum, innblæstri og dæmum sem sýna að gervigreind er ekki bara eitthvað fyrir tæknifólk, heldur verkfæri sem getur hjálpað okkur öllum að gera meira af því sem skiptir máli.#26 - Tékk-inn með Mannauði
Mannauðsdagurinn er á næsta leyti og af því tilefni sláum við til samstarfs við Mannauð, félag mannauðsfólks á Íslandi. Tékk-inn að þessu sinni er því með Adriönu Pétursdóttur sem er formaður félagsins en hún …
Notes de l’épisode
Mannauðsdagurinn er á næsta leyti og af því tilefni sláum við til samstarfs við Mannauð, félag mannauðsfólks á Íslandi. Tékk-inn að þessu sinni er því með Adriönu Pétursdóttur sem er formaður félagsins en hún er einnig framkvæmdastjóri Mannauðs hjá Rio Tinto á Íslandi. Við fórum um víðan völl en hún segir okkur m.a. frá störfum sínum sem formaður Mannauðs og framkvæmdastjóri, hverjar hún telur áskoranir mannauðsfólks vera næstu árin og hverju við megum búast við á Mannauðsdaginn sjálfan.#25 - Vinnustaðir og geðrækt
Nú stendur Gulur september yfir þar sem viðfangsefnið er geðrækt og sjálfsvígsforvarnir. Af því tilefni buðum við Helgu Arnardóttur, ráðgjafa hjá Geðhjálp til okkar í tékk-inn. Helga þekkir vel inn á mikilvægi …
Notes de l’épisode
Nú stendur Gulur september yfir þar sem viðfangsefnið er geðrækt og sjálfsvígsforvarnir. Af því tilefni buðum við Helgu Arnardóttur, ráðgjafa hjá Geðhjálp til okkar í tékk-inn. Helga þekkir vel inn á mikilvægi geðræktar og hvernig við getum í daglegu lífi stutt hvort annað ásamt því að hlúa að eigin geðheilsu. Skilningur okkar er sífellt að aukast um að vinnuveitendur og stjórnendur spila stórt hlutverk í að skapa vinnuumhverfi sem styður við andlega heilsu starfsfólks og mikilvægi þess að við látum okkur hvort annað varða. Við komum víða við í þættinum en samtalið varð einnig persónulegt á köflum þar sem við ræddum einnig eigin geðrækt.#24 - Vöxtur byrjar þar sem öryggið endar
Þetta er persónulegur þáttur þar sem Helga ræðir síðustu mánuði í nýju starfi en hún tók nýlega við stjórnunarhlutverki hjá Isavia. Hún segir okkur frá því hvernig hún sér mannauðsstjórnunin nýtist í nýju …
Notes de l’épisode
Þetta er persónulegur þáttur þar sem Helga ræðir síðustu mánuði í nýju starfi en hún tók nýlega við stjórnunarhlutverki hjá Isavia. Hún segir okkur frá því hvernig hún sér mannauðsstjórnunin nýtist í nýju hlutverki, áskoranirnar, hvað kemur á óvart og hvað varð til þess að hún tók stökkið.#23 - Herdís Pála Pálsdóttir - Sjálfsforysta
Herdísi Pálu þarf vart að kynna fyrir fólki í mannauðsmálum og stjórnun. Hún er hafsjór af fróðleik og reynslu og margir myndu segja að hún sé einstaklega lunkin við að sjá hvernig vinnumarkaðurinn mun þróast …
Notes de l’épisode
Herdísi Pálu þarf vart að kynna fyrir fólki í mannauðsmálum og stjórnun. Hún er hafsjór af fróðleik og reynslu og margir myndu segja að hún sé einstaklega lunkin við að sjá hvernig vinnumarkaðurinn mun þróast og hvaða áherslur eru mikilvægar í framtíðinni. Í þessum þætti ræðum við m.a. um símenntun og mikilvægi sjálfsforystu fyrir einstaklinga. Við fundum það að við gátum átt þriggja tíma samtal um þessi málefni og fleiri en við erum ánægð að starta nýjum vetri á þessu skemmtilega samtali.#22 - Anna Signý Guðbjörnsdóttir - "Þú ert ráðin þarna sem manneskja"
Í þessum þætti ræðum við við Önnu Signýju sem er framkvæmdastjóri Kolibri. Anna Signý er þaulreynd í að taka tékk-inn þar sem það er eitt af tólunum sem þau nota í hennar starfsumhverfi ásamt mörgum öðrum …
Notes de l’épisode
Í þessum þætti ræðum við við Önnu Signýju sem er framkvæmdastjóri Kolibri. Anna Signý er þaulreynd í að taka tékk-inn þar sem það er eitt af tólunum sem þau nota í hennar starfsumhverfi ásamt mörgum öðrum. Óhætt er að segja að Kolibri er fyrirtæki sem er ólíkt öðrum fyrirtækjum sem við höfum heyrt af og að nálgun þeirra á stjórnun er einstök. Þegar maður heyrir smá um hvernig starfið þeirra er skipulagt þá vakna svo margar spurningar og við leitumst við að svara þeim í þessum þætti. Ekki láta þennan þátt framhjá þér fara!#21 - Helga Jóhanna - Þegar tækni og gögn styðja við innsæi og ákvarðanir í ráðningum
Helga Jóhanna er stofnandi Opus Futura sem er með nýja nálgun í ráðningum. Hún segir okkur frá lausninni og hvernig tæknin getur stutt okkur í þessu mikilvæga ferli sem ráðningar eru. Við fórum yfir mannlegu …
Notes de l’épisode
Helga Jóhanna er stofnandi Opus Futura sem er með nýja nálgun í ráðningum. Hún segir okkur frá lausninni og hvernig tæknin getur stutt okkur í þessu mikilvæga ferli sem ráðningar eru. Við fórum yfir mannlegu áskorarirnar sem oft fylgja og hvað mannauðsfólk og stjórnendur þurfa að vera vakandi fyrir hjá sjálfum sér. Á persónulegu nótunum fór hún yfir hvernig er að vera með nýsköpunarfyrirtæki og þær áskoranir sem hún hefur staðið frammi fyrir í þessu hraða tækniumhverfi.#20 - Harpa Hödd Sigurðardóttir - "Hvað er það besta sem gæti gerst?"
Harpa Hödd er framkvæmdastjóri Mannauðs- og samskiptasviðs hjá Eimskip. Það sem ekki öll vita er að Eimskip er alþjóðlegt fyrirtæki með starfsemi í yfir 20 löndum, í nokkrum heimsálfum. Harpa segir okkur frá …
Notes de l’épisode
Harpa Hödd er framkvæmdastjóri Mannauðs- og samskiptasviðs hjá Eimskip. Það sem ekki öll vita er að Eimskip er alþjóðlegt fyrirtæki með starfsemi í yfir 20 löndum, í nokkrum heimsálfum. Harpa segir okkur frá þeim fjölmörgu verkefnum sem falla til á hennar sviði sem hefur nýlega kynnt nýja stefnu fyrirtækisins og eru í miðri innleiðingu á henni. Fyrirtækið er með öfluga leiðtogaþjálfun, arftakaáætlanir og leggur mikið upp úr jöfnum tækifærum kynjanna. …#19 - Brynjar Már Brynjólfsson - "Treystu ferlinu"
Brynjar Már er mannauðsstjóri Isavia er viðmælandi ékk-inn í þessum þætti og segir okkur frá því hvaða leiðir Isavia hefur farið við að vinna að uppbyggilegri menningu innan fyrirtækisins. Það er margt sem þarf …
Notes de l’épisode
Brynjar Már er mannauðsstjóri Isavia er viðmælandi ékk-inn í þessum þætti og segir okkur frá því hvaða leiðir Isavia hefur farið við að vinna að uppbyggilegri menningu innan fyrirtækisins. Það er margt sem þarf að spila saman þegar kemur að því að breyta menningu í svo stóru og fjölbreyttu fyrirtæki og þá þarf þolinmæðin, ákveðnin og seiglan að vera til staðar. Þetta er fróðlegur þáttur og Brynjar kann svo sannarlega að koma vel fyrir sig orði þegar hann segirokkur frá því helsta.#18 - Uppbygging trausts samhliða árangri
Við fengum tillögu að þessu skemmtilega umræðuefni og við höfum þó nokkra reynslu af því að vinna að þessu viðfangsefni með teymum. Við segjum frá nálgun Patrick Lencione um árangusrík teymi, eða það sem hann …
Notes de l’épisode
Við fengum tillögu að þessu skemmtilega umræðuefni og við höfum þó nokkra reynslu af því að vinna að þessu viðfangsefni með teymum. Við segjum frá nálgun Patrick Lencione um árangusrík teymi, eða það sem hann kallar á ensku; Five behaviors of a cohesive team. Fyrir áhugasama þá skrifaði hann bókina The Five disfunctions of a team sem við getum klárlega mælt með og einnig nefnir Arna bókina Overcoming the five disfunctions of a team í þættinum.#17 - Helga Halldórsdóttir - "Maður þarf að vera í jafnvægi sjálfur"
Helga Halldórsdóttir er forstöðumaður mannauðs hjá Arion og ræddi við okkur á persónulegu nótunum um hlutverk sitt sem stjórnandi, hvernig hún þróaðist í það hlutverk ásamt því að segja okkur frá þeim spennandi …
Notes de l’épisode
Helga Halldórsdóttir er forstöðumaður mannauðs hjá Arion og ræddi við okkur á persónulegu nótunum um hlutverk sitt sem stjórnandi, hvernig hún þróaðist í það hlutverk ásamt því að segja okkur frá þeim spennandi hlutum sem þau hafa verið að vinna að hjá Arion til að byggja upp góða liðsheild og sterka fyrirtækjamenningu. Þetta var virkilega gefandi og fróðlegt samtal og greinilega margt hægt að læra af Helgu og hennar teymi hjá Arion.#16 - Lisa Richardson - "I´m sorry but it´s complex"
Við ræddum við vinkonu okkar Lisu Richardson frá Conscious Consulting um hvernig margt þarf að haldast í hendur þegar kemur að umbreytingarverkefnum. M.a. þarf að stuðla að réttu hugarfari, réttu ferlunum …
Notes de l’épisode
Við ræddum við vinkonu okkar Lisu Richardson frá Conscious Consulting um hvernig margt þarf að haldast í hendur þegar kemur að umbreytingarverkefnum. M.a. þarf að stuðla að réttu hugarfari, réttu ferlunum, réttu hegðuninni og því miður er þetta ekki alltaf einfalt. Hér deilir hún reynslu sinni sem ráðgjafi og ræðir þær áskoranir sem hún hefur séð og upplifað í tengslum við umbreytingar hjá fyrirtækjum.#15 - Ella Björnsdóttir - Þekkir þú þínar lífsgildrur?
Í þessum þætti áttum við samtal við Ellu Björnsdóttur, stofnanda og ráðgjafa hjá Valhalla. Hún er reyndur leiðtogi og ráðgjafi sem leggur áherslu á mannlega nálgun, sjálfsþekkingu og meðvitaða forystu. Við …
Notes de l’épisode
Í þessum þætti áttum við samtal við Ellu Björnsdóttur, stofnanda og ráðgjafa hjá Valhalla. Hún er reyndur leiðtogi og ráðgjafi sem leggur áherslu á mannlega nálgun, sjálfsþekkingu og meðvitaða forystu. Við krufðum aðeins svokallaðar lífsgildrur (blind spots), hvernig þær verða til, hvernig þær hafa áhrif á okkur í daglegu lífi og hvers vegna það er lykilatriði fyrir leiðtoga að vera meðvitaðir um sínar lífsgildrur og vinna með þær. Ella deildi einnig innsýn í bókina sem hún er að skrifa og kemur út á árinu. Bókin er sko komin á óskalistann okkar!#14 - Dominic Gourley - "If we´re going to change culture we have to step out of the current culture"
Dominic is an experienced consultant with Human Synergistics Australia and the host of our favourite podcast Culture Bites. He has worked with organizations around the world to build stronger, healthier, and …
Notes de l’épisode
Dominic is an experienced consultant with Human Synergistics Australia and the host of our favourite podcast Culture Bites. He has worked with organizations around the world to build stronger, healthier, and more effective workplace cultures. In our conversation with Dominic, we hear his experience in working with culture and the challenges organizations face when leading culture change.#13 - Valgerður Skúladóttir, - "Mér er ekki sama"
Þurfum við að vera klárasta fólkið í herberginu til að vera góðir stjórnendur? Hér ræðum við Tékk-inn konur við Valgerði Skúladóttur, fyrrum stofnanda og framkvæmdastjórai Sensa. Valgerður er brautriðjandi á …
Notes de l’épisode
Þurfum við að vera klárasta fólkið í herberginu til að vera góðir stjórnendur? Hér ræðum við Tékk-inn konur við Valgerði Skúladóttur, fyrrum stofnanda og framkvæmdastjórai Sensa. Valgerður er brautriðjandi á sínu sviði, áttaði sig snemma á ferlinum á því hversu mikilvæg sjálfsskoðun er til að verða betri stjórnandi og styðja teymin sín til árangurs. Auðmýktin og heiðarleikinn leynir sér ekki í þessu einlæga samtali.#12 - Christian Grønbjerg - "We can´t seperate personal development from business development"
Hér ræðum við við Christian hjá Conscious Consulting um persónulega þróun og vöxt. Hvernig finnum við tilgang okkar? Hvað er l"óðrétt" markþjálfun (vertical coaching)? Hvað þýðir það að vera meðvitaður og til …
Notes de l’épisode
Hér ræðum við við Christian hjá Conscious Consulting um persónulega þróun og vöxt. Hvernig finnum við tilgang okkar? Hvað er l"óðrétt" markþjálfun (vertical coaching)? Hvað þýðir það að vera meðvitaður og til hvers að vera það? Við förum alveg á dýptina í þessum þætti og við fundum algjörlega kraftinn sem felst í því að spyrja sig góðra spurninga.#11- Tékk-inn konur og Sísí - "Gerum að normi að tala um hegðun"
Við fengum spurningu frá hlustanda sem snéri að því hvernig stjórnendur geta unnið með starfsfólk sem eru ekki góðir liðsfélagar. Við fengum Sisí til liðs við okkur og gerðum tilraun til að svara þeirri …
Notes de l’épisode
Við fengum spurningu frá hlustanda sem snéri að því hvernig stjórnendur geta unnið með starfsfólk sem eru ekki góðir liðsfélagar. Við fengum Sisí til liðs við okkur og gerðum tilraun til að svara þeirri spurningu með þeim ráðum sem við höfum í pokahorninu. Við fórum svo líka um víðan völl, tókum almennilegt tékk-inn og niðurstaðan varð gott og heiðarlegt samtal samstarfs- og vinkvenna.Slökunarhugleiðsla
Hér er stutt hugleiðsla sem er hægt að nýta sér til að róa hugann í dagsins önn. Hugleiðslan er leidd af Örnu og við vonum að þið njótið vel.
#9 - María Rós Skúladóttir - "Það sem ég vildi að stjórnandinn minn vissi"
Í þessum þætti ræðum við við Maríu Rós sem er ráðgjafi hjá KPMG en hún hefur m.a. mikla reynslu af stjórnun hjá sveitarfélögum og hefur bakgrunn í félagsráðgjöf. Spjallið fer inn á meðvirkni á vinnustöðum, hvað …
Notes de l’épisode
Í þessum þætti ræðum við við Maríu Rós sem er ráðgjafi hjá KPMG en hún hefur m.a. mikla reynslu af stjórnun hjá sveitarfélögum og hefur bakgrunn í félagsráðgjöf. Spjallið fer inn á meðvirkni á vinnustöðum, hvað það er mikilvægt að setja skýr mörk og hvað hugrekkið er mikilvægt í stjórnunarhlutverkinu. https://vb.is/skodun/thad-sem-eg-vildi-ad-stjornandinn-vissi/#8 - Þórhallur Gunnarsson, "Það er mikilvægt að velja fólk sem er betra en þú sjálfur"
Í þessum þætti fer Þórhallur Gunnarsson um víðan völl, hann ræðir við okkur um æskuna og það sem mótaði hann þar, reynsluna sína sem stjórnandi í fjölmiðlabransanum og deilir því sem hann telur mikilvægt að …
Notes de l’épisode
Í þessum þætti fer Þórhallur Gunnarsson um víðan völl, hann ræðir við okkur um æskuna og það sem mótaði hann þar, reynsluna sína sem stjórnandi í fjölmiðlabransanum og deilir því sem hann telur mikilvægt að stjórnendur spyrji sig reglulega. Þetta er lifandi og skemmtilegur þáttur en hér lærum við margt um Þórhall sem við vissum ekki fyrir!#7 - Helena Jónsdóttir hjá Mental um geðheilbrigði starfsfólks
Í þessum þætti ræðir Helena við okkur almennt um geðheilbrigði, hvernig það hefur áhrif á vinnustaðnum okkar og hvernig fyrirtæki og stjórnendur geta betur stutt við starfsfólkið sitt. Þetta var virkilega …
Notes de l’épisode
Í þessum þætti ræðir Helena við okkur almennt um geðheilbrigði, hvernig það hefur áhrif á vinnustaðnum okkar og hvernig fyrirtæki og stjórnendur geta betur stutt við starfsfólkið sitt. Þetta var virkilega fróðlegt og áhugavert samtal um mikilvægt málefni sem við vonum svo sannarlega að fái meiri skilning og umræðu í samfélaginu okkar.#6 - Vangaveltur á sunnudegi
Hér erum við tvær að fara yfir síðustu þætti, okkar vangaveltur og komum aðeins inn á okkar persónulegu þróun.
#5 Auður Ýr Sveinsdóttir - "Er ég að hlusta, heyra og finna hvað er að gerast með mig?"
Í þessum þætti ræðum við við Auði Ýr Sveinsdóttur, leiðtoga sem segir frá hvaða aðferðir hún hefur notað til að styrkja og efla sig sem leiðtoga. Mjög áhugavert spjall við sterkan stjórnanda sem er óhrædd við …
Notes de l’épisode
Í þessum þætti ræðum við við Auði Ýr Sveinsdóttur, leiðtoga sem segir frá hvaða aðferðir hún hefur notað til að styrkja og efla sig sem leiðtoga. Mjög áhugavert spjall við sterkan stjórnanda sem er óhrædd við að skoða inn á við allt með því markmiði að sjá aðra vaxa. Hversu geggjað er það? Skoða sjálfan sig og aðrir njóta góðs af? Auður talaði m.a. um bókina Lífsreglurnar fjórar sem hún hefur hlustað á ótal sinnum en við mælum líka heilshugar með lestri á þeirri bók!#4 Maríanna Magnúsdóttir - "Þetta byrjar alltaf hjá okkur sjálfum"
Maríanna Magnúsdóttir, ráðgjafi og leiðtogi breytinga, kom til okkar og ræddi við okkur um breytingastjórnun og hlutverk leiðtogans í stórum umbreytingaverkefnum. Hvað ber að hugsa vel og hvað ber að varast …
Notes de l’épisode
Maríanna Magnúsdóttir, ráðgjafi og leiðtogi breytinga, kom til okkar og ræddi við okkur um breytingastjórnun og hlutverk leiðtogans í stórum umbreytingaverkefnum. Hvað ber að hugsa vel og hvað ber að varast þegar breytingar eru annars vegar? Ef ykkur vantar innblástur fyrir breytingarnar framundan, þá er þetta þátturinn fyrir ykkur!#3 Trausti Björgvinsson - "Árangurinn minn hefur margfaldast við það að sleppa aðeins tökunum"
Við fáum til okkar Trausta Björgvinsson, framkvæmdastjóra Lotu verkfræðistofu og ráðgjöf. Hjá Lotu fara allir stjórnendur í markþjálfanám. Hann segir okkur frá því hvernig það hefur virkað og þeirr persónulegri …
Notes de l’épisode
Við fáum til okkar Trausta Björgvinsson, framkvæmdastjóra Lotu verkfræðistofu og ráðgjöf. Hjá Lotu fara allir stjórnendur í markþjálfanám. Hann segir okkur frá því hvernig það hefur virkað og þeirr persónulegri þróun sem hann hefur verið að vinna að síðustu ár og hvernig það hefur styrkt hann í starfi.#2 Sveinbjörn Indriðason - "Við verðum að vera tilbúin að takast á"
Gestur þáttarins er Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia. Hann ræðir við okkur á persónulegum nótum um vegferð Isavia í áttina að uppbyggilegri menningu, af hverju var lagt í mikla umbreytingarvinnu og …
Notes de l’épisode
Gestur þáttarins er Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia. Hann ræðir við okkur á persónulegum nótum um vegferð Isavia í áttina að uppbyggilegri menningu, af hverju var lagt í mikla umbreytingarvinnu og áskoranirnar sem hann og fyrirtækið hafa staðið frammi fyrir.
Podcasts similaires
Plus de podcasts : AffairesC’est votre podcast ?
Confirmez-le avec une entrée dans votre flux : vous recevez ici un code, vous l’ajoutez comme podcast:txt dans le canal de votre flux, et nous le vérifions. Votre podcast apparaît ensuite comme « vérifié » sur SoundNode.







