Aller au contenu
Út að hlaupa

Út að hlaupa

Nouveau#144 Brjálaðir hundar og klikkaðir ökumenn!11 novembre 2026 · 1 h 24 min
Épisodes
147
Parution
toutes les deux semaines
Dernier épisode
11 Nov 2026

À propos du podcast

Létt spjall um hlaup og hlaupasenuna á Íslandi og víðar sem tilvalið er að hlusta á í rólegum hlaupatúr!

Épisodes 147

  1. #144 Brjálaðir hundar og klikkaðir ökumenn!

    1 h 24 min

    Það var maraþonþema í Bose stúdíóinu í dag, töluðum um Valencia blokkina, NY maraþonið og veltum því fyrir okkur hvort við værum farin að hafa það of gott. Umræðunni varðandi dvínandi skráningu í hlaup verður …

    Notes de l’épisode

    Það var maraþonþema í Bose stúdíóinu í dag, töluðum um Valencia blokkina, NY maraþonið og veltum því fyrir okkur hvort við værum farin að hafa það of gott. Umræðunni varðandi dvínandi skráningu í hlaup verður svarað í þættinum ásamt ótrúlega mörgu öðru!

  2. #143 Þáttur á góðri Ýslensku!

    1 h 1 min

    Það er endalaust hægt að tala um hlaup. Ný æfingavika býður upp á nýjar áskoranir, nýjar hugleiðingar, nýjar vörður til þess að láta sig hlakka til aftur og aftur og aftur!

  3. #142 Korean BBQ!

    1 h 11 min

    Bose stúdíóið var stútfullt af meðlimum Út að hlaupa að þessu sinni. Kóresk skýrsla, bakgarðurinn gerður upp, hvað þarftu að hlaupa mikið til þess að kalla þig hlaupara?

  4. #141 Bakgarðslandsliðið!

    1 h 2 min

    Þórdís Jóns og Tommi Jac mættu í Bose stúdíóið og ræddu komandi landsliðskeppni í bakgarðshlaupum!

  5. #140 Sumarið gert upp!

    1 h 53 min

    Bibba mætti í Bose stúdíóið og gerði upp hlaupasumarið með okkur. Einnig var Suður Kóresk skýrsla á boðstólum beint úr höfuðstaðnum. Mælum með að hlusta!

  6. #139 Gamli góði þátturinn!

    1 h 22 min

    Köben half gert upp frá okkar manni, Tobbi með Slóvenska skýrslu og bakgarðurinn búinn að eignast nýjan bad boy!

  7. #138 Nýtt Supermantrend!

    1 h 18 min

    Uppgjörið á íslandi, Kaupmannahafnarmaraþonið, bakgarðsupphitun og spurt og svarað frá hlustendum!

  8. #137 Einvígið á Vatnsendanum!

    1 h 24 min

    Dorrit á Esjunni, Þórsmerkurþrennan og vaskir Eyjaskokksmenn sem gerðu sér ferð í dalinn. Þetta ásamt upphitun fyrir Vatnsenda einvígið og margt fleira á boðstólum í dag!

  9. #136 Hefur þú farið á Esjuna?

    1 h 42 min

    Eldheitar Esju umræður, UTMB gert upp ásamt glóðvolgum hugleiðingum varðandi zone tvö.

  10. #135 Hlaupasumarið búið?

    1 h 38 min

    Fórum yfir Reykjavíkurmaraþonið, ræddum við ísmanninn um nýtt íslandsmet og hvernig bicarb hefur áhrif á hann ásamt góðri skýrslu frá hlaupadagskrá.is.

  11. #134 Reykjavíkurmaraþon pepp!

    1 h 40 min

    Fórum yfir síðustu hlaup hér heima, ræddum árangur íslendinga á EM og hituðum ykkur vel upp fyrir Reykjavíkurmaraþonið!

  12. #133 Endurkoman

    1 h 34 min

    Mættir aftur í Bose stúdíóið eftir stutt og gott sumarfrí. Fórum yfir síðustu hlaup hér heima, ræddum endurkomu Kingebrigtsen á brautina og framhaldið í hlaupum um allan heim!

  13. #132 Súldin styrkir!

    1 h 21 min

    Við fengum skýrslu frá Gunna Palla varðandi MÍ um helgina, ræddum 905 stigin hans Tobba, gerðum upp síðustu hlaup og fórum yfir þau sem framundan eru. Stravaliðurinn kom svo sterkur inn með allskonar …

    Notes de l’épisode

    Við fengum skýrslu frá Gunna Palla varðandi MÍ um helgina, ræddum 905 stigin hans Tobba, gerðum upp síðustu hlaup og fórum yfir þau sem framundan eru. Stravaliðurinn kom svo sterkur inn með allskonar skemmtilegum segmentum!

  14. #131 Daniel Pattis, Ítalski öðlingurinn!

    1 h 4 min

    Við fengum einn besta hlaupara heims um þessar mundir til þess að munda míkrafóninn í Bose stúdíóinu. Hann fór yfir það hvernig hann æfir, jafnvægi milli atvinnumannalífs og félagslífs, keppniskvíða og hvernig …

    Notes de l’épisode

    Við fengum einn besta hlaupara heims um þessar mundir til þess að munda míkrafóninn í Bose stúdíóinu. Hann fór yfir það hvernig hann æfir, jafnvægi milli atvinnumannalífs og félagslífs, keppniskvíða og hvernig hann tekst á við stærstu keppnir í heimi!

  15. #130 Laugavegs uppgjör!

    1 h 39 min

    Í þessum þætti snýst allt um Laugavegshlaupið sem var gert upp í allri sinni mynd. Við fórum einnig yfir íslandsmótið í 10 km hlaupi sem haldið var í Ármannshlaupinu um daginn.

  16. #129 Laugavegs upphitun!

    1 h 42 min

    Allt sem þú þarft að vita um Laugaveginn!

  17. #128 Elísa elskar Ítalíu!

    1 h 38 min

    Elísa Kristins, hlaupadrottningin sjálf kíkti til okkar í Bose stúdíóið og ræddi við okkur um frækinn sigur í Lavaredo, kom með predictions fyrir Laugarveginn og gerði upp síðustu hlaup á landinu!

  18. #127 Ísmaðurinn - alltaf í formi!

    1 h 22 min

    Fengum Davíð Frey Magnússon í Bose stúdíóið sem gestastjórnanda. Fórum yfir hans stutta en magnaða hlaupaferil til þessa ásamt því að ræða það sem hefur verið á döfinni í íslensku hlaupasamfélagi!

  19. #126 EM uppgjör!

    1 h 31 min

    Við vinirnir hittumst í Bose stúdíóinu og gerðum upp EM í Slóveníu ásamt síðustu hlaupum innanlands!

  20. #125 Þú fokkar ekki í landsliðinu!

    1 h 41 min

    Andrea Kolbeins mætti í Bose stúdíóið í dag og gerði upp Golden trail ferðina á Ítalíu. Við tókum hlaupauppgjör síðustu hlaupa á íslandi og svöruðum spurningum úr sal!

  21. #124 Tove Tvennan!

    1 h 35 min

    Tove Alexanderson mætir í Laugarveginn, stærstu fréttir ársins! Gerðum upp hlaup síðustu daga hér heima og snertum á Zegama veislunni miklu.

  22. #123 Búinn að krakka hlaupin!

    1 h 29 min

    Allt það helsta á dagskrá úr Bose stúdíóinu að vanda. Uppgjör á öllu því helsta úr hlaupum hérlendis og erlendis.

  23. #122 Bolirnir mættir!

    1 h 23 min

    Við strákarnir mættum í Bose stúdíóið til að gera upp Puffin run og Trabuco trail. Við heyrðum í Elísu og fengum prerace skýrslu frá La Palma og fórum yfir það sem framundan er í hlaupasenunni um heim allann!

  24. #121 Puffin run upphitun!

    1 h 20 min

    Uppgjör síðustu hlaupa, Víðavangshlaup ÍR, Vecct Mílan, Vormaraþonið og hið ótrúlega London maraþon. Upphitun fyrir Puffin run og góð ráð til fellow hlaupara inn í sumarið!

  25. #120 Allt sem þú þarft að vita um beinmeiðsli!

    1 h 34 min

    Magnús Birkir Hilmarsson sjúkraþjálfari kíkti til okkar í Bose stúdíóið og ræddi við okkur um beinmeiðsli. Hvað eru álagsmeiðsli í beini? Hverjir eru áhættuþættirnir? Skiptir hlaupastíll máli? Forvarnir og svo …

    Notes de l’épisode

    Magnús Birkir Hilmarsson sjúkraþjálfari kíkti til okkar í Bose stúdíóið og ræddi við okkur um beinmeiðsli. Hvað eru álagsmeiðsli í beini? Hverjir eru áhættuþættirnir? Skiptir hlaupastíll máli? Forvarnir og svo margt margt fleira. Maggi er rosalega fróður á sínu sviði, algjör skyldu hlustun fyrir alla hlaupara landsins!

  26. #119 Gott hugarform!

    1 h 34 min

    Nú er komið að því að hleypa af og blasta vetrarforminu því Víðavangshlaup ÍR er í fyrramálið! Við fengum hlaupadrottninguna Andreu Kolbeins í Bose stúdíóið til að fara yfir fyrstu keppni sumarsins!

  27. #118 Apríl þrennan!

    1 h 14 min

    Í þættinum í dag ræddum við um komandi hlaup hér heima. Við fengum skýrslu frá Guðmundi í Vecct, fórum yfir orðabók hlauparans, ræddum beinar útsendingar í hlaupum á Íslandi og ræddum Evrópumet í götuhlaupi!

  28. #117 Konur í íþróttum með Láru Hafliða!

    1 h 17 min

    Hin sprenglærða Lára Hafliðadóttir kíkti á okkur í Bose stúdíóið í dag og ræddi við okkur um konur í íþróttum (aðallega hlaupum). Lára er með meistaragráðu í íþróttavísindum og þjálfun KSÍ-B þjálfaragráðu. Hún …

    Notes de l’épisode

    Hin sprenglærða Lára Hafliðadóttir kíkti á okkur í Bose stúdíóið í dag og ræddi við okkur um konur í íþróttum (aðallega hlaupum). Lára er með meistaragráðu í íþróttavísindum og þjálfun KSÍ-B þjálfaragráðu. Hún er í doktorsnámi í líkamlegri þjálfun knattspyrnukvenna. Lára sérhæfir sig í mælingum, álagsstýringu, styrktar- og þolþjálfun og hefur kennt á KSÍ þjálfaranámskeiðum sem leiðbeinandi með KSÍ A leiðbeinendagráðu. Hún starfar sem fitnessþjálfari meistaraflokks kvenna Víkings og U23 landsliðs kvenna, sinnir rannsóknum við Háskólann í Reykjavík og kennir íþróttavísindi við grunnskólann NÚ. Lára hefur margra ára reynslu í líkamlegri þjálfun og knattspyrnu, bæði sem þjálfari og leikmaður yngri landsliða Íslands.

  29. #116 DNF aftur elskan mín?

    52 min

    Chianti uppgjör, nýungin frá Nóa Siríus og frí æfing fyrir hlaupaóða hlustendur! ÆFINGIN er frá okkar allra besta fólki í Fjallahlaupaþjálfun! 15 mín upphitun 2-3 sett af 3x3 mín í 9% - 6% - 3% halla á bretti …

    Notes de l’épisode

    Chianti uppgjör, nýungin frá Nóa Siríus og frí æfing fyrir hlaupaóða hlustendur!

    ÆFINGIN er frá okkar allra besta fólki í Fjallahlaupaþjálfun!

    • 15 mín upphitun
    • 2-3 sett af 3x3 mín í 9% - 6% - 3% halla á bretti með 2 mín rólegu á milli setta Tekið á zone 3 ákefð og farið upp í zone 4, byrja frekar of hægt en of hratt.
      • Halla æfingar eru erfiðar, byrja rólega og sá hraði getur verið orðinn erfiður í lokin. Byrjar í 9% halla í 3 mín, 6% halla í 3 mín og svo 3% halla í 3 mín. Eykur hraðann eftir því sem brettið hallar minna þannig að ákefðin sé alltaf sú sama.
    • 15 mín niðurskokk
  30. #115 Tilbúinn að slá Íslandsmet!

    55 min

    Við fengum glóðvolga skýrslu út partýbílnum í Flórens. Sá var ekki illa skipaður, Andrea, Elísa, Gréta og Raggi á rútunni ræddu við okkur um Chianti sem fram fer um helgina. Einnig heyrðum við í Hlyni …

    Notes de l’épisode

    Við fengum glóðvolga skýrslu út partýbílnum í Flórens. Sá var ekki illa skipaður, Andrea, Elísa, Gréta og Raggi á rútunni ræddu við okkur um Chianti sem fram fer um helgina. Einnig heyrðum við í Hlyni Andréssyni sem ræddi við okkur um nýjasta Íslandsmetið sitt, puffin run og næstu áskorun sína sem er heilt maraþon í Hannover!

Voici les 40 derniers épisodes sur 147. Les épisodes plus anciens se trouvent dans le flux du podcast.

C’est votre podcast ?

Confirmez-le avec une entrée dans votre flux : vous recevez ici un code, vous l’ajoutez comme podcast:txt dans le canal de votre flux, et nous le vérifions. Votre podcast apparaît ensuite comme « vérifié » sur SoundNode.

Paramètres

Affichage

Langue

Détermine les stations affichées en premier sur la page d’accueil.

Historique

Les stations et épisodes écoutés récemment et tes dernières recherches sont seulement enregistrés dans ce navigateur.

Notifications

Un court message quand un podcast que tu suis publie un nouvel épisode. Désactive un podcast précis avec la cloche sur sa page.

Compte

Enregistrez vos favoris – dans l’app et sur le site.

Raccourcis clavier

/
Ouvrir la recherche
Espace
Lecture ou pause
← →
Dans le lecteur : 15 s en arrière, 30 s en avant (épisodes) · dans une rangée : tuile suivante
↑ ↓
Dans une rangée : cible dans la tuile
Début / Fin
Dans une rangée : première ou dernière tuile
Esc
Fermer la fenêtre ou le menu
?
Cet aperçu
En cours de lecture

Voir la station

À suivre

    Ajoutez des épisodes avec « À suivre » – ils seront lus après l'épisode en cours.