
Þáttur 5: Þurfum við að hafa skoðun á öllu?
Shownotes
Þurfum við að hafa skoðun á öllu? Og hvers vegna vekja sumar hörmungar heimsins miklu sterkari viðbrögð hjá okkur en aðrar?
Í þessum þætti skoðum við hvernig stóuspekin og nútímasálfræði geta hjálpað okkur að hugsa skýrar um heimsmálin. Við ræðum meðal annars átökin milli Ísraela og Palestínumanna, stríðið í Súdan, reiði á samfélagsmiðlum og hvernig eigin skoðanir og hugmyndafræði geta mótað sýn okkar á heiminn.
Er það alltaf merki um hugrekki að hafa sterka skoðun? Eða getur stundum verið meiri viska að viðurkenna að við vitum ekki nóg?
Bónus: Í lok þáttarins flyt ég íslenska þýðingu mína á texta eftir Carl Sagan sem á einstaklega vel við umfjöllunarefni þáttarins.
Upphafsstef hlaðvarpsins er samið og flutt af Óttari Guðbirni Birgissyni.