
Þáttur 4: Að flytja ræður og fyrirlestra með hjálp stóuspekinnar
Shownotes
Að standa upp og tala fyrir framan hóp af fólki getur reynst ótrúlega erfitt. Hjartað slær hraðar, hendurnar skjálfa og hugurinn fer á fullt við að ímynda sér allt sem gæti farið úrskeiðis.
En hvað ef við erum að nálgast verkefnið á rangan hátt?
Í þessum þætti skoðum við hvað stóuspekin og nútímasálfræði geta kennt okkur um ræðukvíða og frammistöðukvíða. Hvernig getum við breytt því hvernig við túlkum kvíðann og lært að takast á við hann?
Upphafsstef hlaðvarpsins er samið og flutt af Óttari Guðbirni Birgissyni.