
Jökull Elísabetarson: Spennandi starf í Kópavogi og Halldór Árna þarf að hafa sig hægan
Shownotes
Jökull Elísabetarson tók í dag við sem þjálfari karlaliðs Breiðabliks í fótbolta. Jökull þekkir vel til í Kópavogi en hann var leikmaður liðsins sem vann fyrstu titla í sögu þess og varð bikarmeistari 2009 og Íslandsmeistari 2010. Hann þjálfaði þá annan flokk hjá liðinu og hóf sinn þjálfaraferil hjá venslafélaginu Augnabliki.
Jökull hefur stýrt Stjörnunni undanfarin ár en var sagt upp á miðju nýliðnu sumri vegna slaks árangurs. Hann tekur því fagnandi að fá nýja áskorun á nýjum stað. Við settumst niður með Jökli og ræddum nýtt starf.