
Dagur 72 - Óvenjuleg kraftaverk
Shownotes
Velkomin í Biblían á mannamáli: Við fylgjum Páli á þriðju trúboðsferðinni (um 53–57 e.Kr.), þegar hann stofnar og styrkir kirkjur víða í Asíu og tekur mikilvægar ákvarðanir fyrir framtíð boðunarinnar.
Þátturinn fjallar um þrjár lykilákvarðanir Páls — fjáröflun fyrir fátæka í Jerúsalem, þjálfun nýrra starfsmanna og áform um að fara til Rómar og áfram til Spánar. Auk þess skoðum við aðeins starfið í Efesus; óvenjuleg kraftaverk og síð'ast en ekki síst, átök við andasæringar(sjö synir Skeva).
Sagan sýnir hvernig kraftaverk, trúaruppbygging og sameining kirkjunnar breyttu samfélaginu og undirstrikar mikilvægi bænar, einingar og þjónustu innan kirkjunnar.
Kapitel (12)