Zum Inhalt springen
Bíóblaður
PodcastTV und FilmIS

Bíóblaður

Neu#340 Bíóspjall II með Kidda14.10.2026 · 1 Std. 59 Min.
Folgen
384
Erscheint
alle zwei Wochen
Letzte Folge
14. Okt. 2026

Über den Podcast

Podcast þar sem Hafsteinn Sæmundsson fær alls konar fólk til sín og spjallar við það um lífið og bíómyndir. Nýr þáttur alla miðvikudaga.

Folgen 384

  1. #340 Bíóspjall II með Kidda

    1 Std. 59 Min.Staffel 4 · Folge 340

    Það eru um fjögur ár síðan Kiddi kom síðast í spjall til Hafsteins og það var því tímabært að fá hann aftur í heimsókn. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars House of the Dragon, stöðuna á Star Wars í dag …

    Shownotes

    Það eru um fjögur ár síðan Kiddi kom síðast í spjall til Hafsteins og það var því tímabært að fá hann aftur í heimsókn.


    Í þættinum ræða strákarnir meðal annars House of the Dragon, stöðuna á Star Wars í dag, hvort það sé gott fyrir bransann að Paramount og WB séu að sameinast, hversu mikið Kiddi þolir ekki One Battle After Another, hvort A.I. geti bjargað okkur, hversu geggjuð Lanterns serían er og margt, margt fleira.


    00:00 - Intro

    00:15 - Kiddi snýr aftur eftir fjögurra ára hlé

    02:20 - Star Wars

    15:19 - DC

    46:15 - Paramount og WB samruninn

    53:09 - A.I.

    59:52 - Star Wars

    1:05:29 - Westeros heimurinn

    1:26:12 - One Battle After Another og pólitík

    1:45:51 - Tölvuleikjabíómyndir

  2. #339 The Odyssey og Marvel með Alex from Iceland

    2 Std. 43 Min.Staffel 4 · Folge 339

    Content creatorinn Alex Michael Green Svansson (Alex from Iceland) kíkti til Hafsteins til að ræða sérstaklega The Odyssey og stöðuna á Marvel í dag.Í þættinum ræða strákarnir meðal annars Spider-Man: Brand New …

    Shownotes

    Content creatorinn Alex Michael Green Svansson (Alex from Iceland) kíkti til Hafsteins til að ræða sérstaklega The Odyssey og stöðuna á Marvel í dag.


    Í þættinum ræða strákarnir meðal annars Spider-Man: Brand New Day, hversu vel The Odyssey heppnaðist, hvort Avengers: Doomsday geti bjargað Marvel heiminum, hvort Dune 3 verði betri en númer 2 og margt, margt fleira.


    00:00 - Intro

    00:15 - Coco Coast drykkurinn

    05:34 - The Odyssey

    1:00:00 - Brand New Day og Doomsday

    2:03:31 - Hvað klikkaði með Blade myndina?

    2:15:46 - The Batman Part II

    2:22:27 - Dune og Obsession

  3. #338 Topp 10 með Snorra Rafni

    2 Std. 23 Min.Staffel 4 · Folge 388

    Snorri Rafn Frímannsson er ungur leikari og tónlistarmaður. Snorri lék meðal annars eitt aðalhlutverkanna í kvikmyndinni Berdreymi árið 2022. Snorri kíkti til Hafsteins til að ræða sínar topp 10 uppáhalds …

    Shownotes

    Snorri Rafn Frímannsson er ungur leikari og tónlistarmaður. Snorri lék meðal annars eitt aðalhlutverkanna í kvikmyndinni Berdreymi árið 2022.


    Snorri kíkti til Hafsteins til að ræða sínar topp 10 uppáhalds kvikmyndir.


    Í þættinum ræða þeir meðal annars ástríðu Snorra á kvikmyndum, hversu mikill Daniel Day-Lewis aðdáandi Snorri er, hvort Stanley Kubrick sé ofmetinn leikstjóri, hversu vanmetin Joker 2 er og margt, margt fleira.


    00:00 - Intro

    00:15 - Snorri Rafn eða Snow Raven

    06:40 - Leiklist og kvikmyndaáhugi

    32:00 - Honorable mentions

    36:38 - Capote

    40:20 - Phantom Thread

    46:33 - There Will Be Blood

    54:42 - Joker

    1:03:28 - Dr. Strangelove

    1:20:38 - Vonarstræti

    1:32:55 - Eternal Sunshine of the Spotless Mind

    1:42:10 - The Piano Teacher

    1:46:44 - Forrest Gump

    1:54:10 - Uppáhalds myndin hans Snorra

    2:10:17 - Hot takes og grín

  4. #337 Topp 10 með Coach Clean

    2 Std. 47 Min.Staffel 4 · Folge 337

    Hreinn Orri Hreinsson, betur þekktur sem Coach Clean, er fjarþjálfari og mikill kvikmyndaáhugamaður. Hann kíkti til Hafsteins til að ræða sínar topp 10 uppáhalds kvikmyndir. Í þættinum ræða þeir meðal annars …

    Shownotes

    Hreinn Orri Hreinsson, betur þekktur sem Coach Clean, er fjarþjálfari og mikill kvikmyndaáhugamaður. Hann kíkti til Hafsteins til að ræða sínar topp 10 uppáhalds kvikmyndir.


    Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort Snatch sé betri en Lock Stock, hversu mikill Will Smith aðdáandi Orri er, hvort það ætti að gera enn eina Ocean’s Eleven mynd, hvort Heat 2 verði góð, hver er lélegasta Tarantino myndin og margt, margt fleira.


    00:00 - Intro

    00:15 - Hvað gerir Coach Clean?

    11:41 - Orra gæði

    14:51 - Kvikmyndaspjall

    24:27 - Honorable mentions og Will Smith

    33:38 - Topp 10 listinn

    35:17 - Tropic Thunder

    49:57 - Snatch

    56:17 - Ocean’s Eleven

    1:07:11 - The Hateful Eight

    1:19:22 - The Rock

    1:30:30 - The Departed

    1:40:25 - Die Hard with a Vengeance

    1:54:04 - The Dark Knight

    2:07:13 - Heat

    2:21:42 - Uppáhalds myndin hans Orra

    2:43:41 - Lokaorð

  5. #336 Bransaspjall með Christof Wehmeier

    2 Std. 41 Min.Staffel 4 · Folge 336

    Christof Wehmeier er sérfræðingur í markaðs- og kynningarmálum og hefur yfir 30 ára reynslu af markaðssetningu kvikmynda. Christof hefur meðal annars séð um kvikmyndamarkaðssetningu hjá Stjörnubíó, Sambíóunum …

    Shownotes

    Christof Wehmeier er sérfræðingur í markaðs- og kynningarmálum og hefur yfir 30 ára reynslu af markaðssetningu kvikmynda.


    Christof hefur meðal annars séð um kvikmyndamarkaðssetningu hjá Stjörnubíó, Sambíóunum og Skífunni. Frá árunum 2007 til 2025 starfaði hann sem kynningarstjóri hjá Kvikmyndamiðstöð Íslands þar sem hann kynntist vel innlendri kvikmyndagerð.


    Christof hefur einnig leikið lítil hlutverk í ýmsum verkefnum og hefur skrifað handrit.


    Hafsteinn var spenntur að spjalla við hann en í þættinum ræða þeir meðal annars ferilinn hans Christof, bestu Michael Mann myndina, stöðuna á Star Wars í dag, hversu mikil áhrif A.I. mun hafa á bransann, hvort Christopher Nolan sé stærsti leikstjóri heims í dag og margt, margt fleira.


    00:00 - Intro

    00:15 - Hver er Christof Wehmeier?

    04:41 - Christof og markaðssetning á kvikmyndum

    20:53 - Christof, KMÍ og innlend kvikmyndagerð

    35:17 - Innlend og erlend kvikmyndagerð á Íslandi

    42:11 - Unga kynslóðin í kvikmyndagerð

    53:35 - Christopher Nolan

    57:20 - Nýjar raddir fyrir unga fólkið

    1:00:26 - Christopher Nolan

    1:03:43 - Ofurhetjur og Dunesday

    1:11:29 - Netflix myndir og streymisveitur

    1:21:08 - Er Hollywood á góðum stað í dag?

    1:31:27 - Kvikmyndafókus hefur breyst

    1:33:53 - Eldri kvikmyndir vs. nýjar

    1:41:20 - Norræn kvikmyndagerð

    1:48:26 - Star Wars

    1:56:39 - Framhaldsmyndir

    2:02:26 - Michael Mann

    2:06:01 - Handritagerð

    2:19:12 - James Bond

    2:31:13 - Gervigreind

    2:35:45 - Ásgeir Kolbeins fór með rangt mál

    2:37:41 - Tom Cruise

  6. #335 2025 með Ásgeiri Kolbeins

    3 Std. 26 Min.Staffel 4 · Folge 335

    Athafnamaðurinn Ásgeir Kolbeins kíkti til Hafsteins til að ræða árið 2025. Strákarnir leggja helst áherslu á stóru kvikmyndirnar sem komu út á árinu en þeir voru sammála um að árið sem slíkt hafi verið fullt af …

    Shownotes

    Athafnamaðurinn Ásgeir Kolbeins kíkti til Hafsteins til að ræða árið 2025.


    Strákarnir leggja helst áherslu á stóru kvikmyndirnar sem komu út á árinu en þeir voru sammála um að árið sem slíkt hafi verið fullt af vonbrigðum.


    Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort Leonardo DiCaprio hafi staðið sig vel sem aumingi í One Battle After Another, hvort Avatar: Fire and Ash sé besta Avatar myndin, hvort Ballerina hafi gengið vel sem John Wick mynd, hvort Ásgeir gæti sjálfur skrifað betri Jurassic Park mynd en myndirnar sem hafa komið út undanfarin ár, hversu slæmt ár þetta var fyrir Marvel, hvort það sé einhver von fyrir DC heiminn og margt, margt fleira.


    00:00 - Bíóblaður spurningaspil er komið í verslanir!

    00:14 - Intro

    00:29 - Ásgeir Kolbeins fær gjöf

    03:19 - Avatar: Fire and Ash

    23:20 - Var árið gott?

    32:42 - One Battle After Another

    51:03 - Sinners

    1:10:07 - Weapons

    1:30:35 - Jurassic World: Rebirth

    1:37:51 - Marvel myndir ársins

    1:57:50 - Ballerina og Nobody 2

    2:24:19 - Grínmyndir ársins

    2:39:16 - Mission Impossible: The Final Reckoning

    2:55:35 - F1

    2:58:36 - Superman

    3:12:55 - Sjónvarpsseríur og Alien: Earth

  7. #334 Best of the Best - The Final Round: Kilo og Ísrael vs. Óli og Máni

    2 Std. 4 Min.Staffel 4 · Folge 334

    Það er komið að úrslitum í fyrsta spurningamóti Bíóblaðurs! Kilo og Ísrael unnu Odd og Tóta í undanúrslitunum og Óli og Máni unnu Hugleik Dagsson og Ævar.Í þessum þætti mætast því sterkustu liðin í mótinu, Kilo …

    Shownotes

    Það er komið að úrslitum í fyrsta spurningamóti Bíóblaðurs! Kilo og Ísrael unnu Odd og Tóta í undanúrslitunum og Óli og Máni unnu Hugleik Dagsson og Ævar.


    Í þessum þætti mætast því sterkustu liðin í mótinu, Kilo og Ísrael á móti Óla og Mána. Í þættinum þurfa keppendur að svara alls konar bíómyndatengdum spurningum en þar á meðal er spurt um plaköt, ártöl, persónur úr bíómyndum, löggur og bófa, nörda stuff, bardagastjörnur og margt, margt fleira.


    Þessi þáttur er skylduáhorf fyrir alla sem elska keppnir og kvikmyndir.


    00:00 - Bíóblaður er jólagjöfin í ár!

    00:10 - Intro

    00:25 - Jólaþátturinn í ár!

    00:48 - Er Die Hard jólamynd?

    03:22 - Bíóblaður spurningaspilið er komið í verslanir!

    04:35 - Best of the Best úrslitaþáttur

    14:48 - Atriði

    30:22 - Almennar spurningar

    41:48 - Plakatleikur

    52:45 - Rétt eða rangt

    1:02:19 - Persónur og leikarar

    1:19:38 - Valmöguleikar

    1:35:34 - Flokkar (Ártöl, Löggur og bófar, Nörda stuff, Bardagastjörnur)

    1:57:29 - Sigurvegarar krýndir

  8. #333 Avatar: The Way of Water með Jóhanni Leplat

    1 Std. 49 Min.Staffel 4 · Folge 333

    Í tilefni þess að nú er stutt í að þriðja Avatar myndin verði frumsýnd, þá ákvað Hafsteinn að opna fyrir gamlan áskriftarþátt þar sem hann og Jóhann Leplat Ágústsson, stofnandi Facebook grúppunnar …

    Shownotes

    Í tilefni þess að nú er stutt í að þriðja Avatar myndin verði frumsýnd, þá ákvað Hafsteinn að opna fyrir gamlan áskriftarþátt þar sem hann og Jóhann Leplat Ágústsson, stofnandi Facebook grúppunnar Kvikmyndaáhugamenn, ræddu Avatar: The Way of Water.


    Jóhann og Hafsteinn voru ekki sammála um gæði myndarinnar og úr myndaðist skemmtileg umræða. Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort biðin hafi verið þess virði, hversu sturlaðar tæknibrellur eru í myndinni, hvort hún sé í rauninni bara endurgerð af fyrstu myndinni og margt, margt fleira.

  9. #332 Best of the Best: Hugleikur og Ævar vs. Óli og Máni

    1 Std. 41 Min.Staffel 4 · Folge 332

    Það er komið að fyrsta spurningamóti Bíóblaðurs! Í þessari seinni lotu keppa uppistandarinn og rithöfundurinn Hugleikur Dagsson og handritshöfundurinn Jóhann Ævar Grímsson við Bíóblaðurs fastagestina og quiz …

    Shownotes

    Það er komið að fyrsta spurningamóti Bíóblaðurs!


    Í þessari seinni lotu keppa uppistandarinn og rithöfundurinn Hugleikur Dagsson og handritshöfundurinn Jóhann Ævar Grímsson við Bíóblaðurs fastagestina og quiz meistarana Óla Bjarka og Mána Frey.


    Fyrir rúmu ári síðan keppti Hugleikur við strákana sem endaði með einungis tveggja stiga mun. Óli og Máni unnu þá keppni og nú er komið að stærsta rematch quiz-i ársins.


    Í þættinum þurfa keppendur að svara alls konar bíómyndatengdum spurningum en þar á meðal er spurt um plaköt, ártöl, persónur úr bíómyndum, James Bond, hryllingsmyndir, klassískar myndir og atriði úr bíómyndum. Þessi þáttur er skylduáhorf fyrir alla sem elska keppnir og kvikmyndir.


    00:00 - Intro

    00:15 - Bíóblaður spurningaspil er komið í verslanir!

    00:38 - Hugleikur er að gefa út spil fyrir jólin

    07:10 - Best of the Best

    11:40 - Plakatleikur

    31:31 - Almennar spurningar

    42:11 - Persóna og leikari

    55:01 - Rétt eða rangt

    1:02:25 - Atriði

    1:11:08 - Flokkar (James Bond, Hryllingur, 1984, Bíómix)

    1:35:58 - Sigurvegarar krýndir

  10. #331 Best of the Best: Oddur og Tóti vs. Kilo og Ísrael

    1 Std. 41 Min.Staffel 4 · Folge 331

    Það er komið að fyrsta spurningamóti Bíóblaðurs!Í þessari fyrstu lotu keppa hlaðvarpsstjórnendurnir Oddur Ævar og Tóti á móti Bíóblaðurs fastagestunum Kilo og Ísrael. Oddur og Tóti eru með kvikmyndahlaðvarpið …

    Shownotes

    Það er komið að fyrsta spurningamóti Bíóblaðurs!


    Í þessari fyrstu lotu keppa hlaðvarpsstjórnendurnir Oddur Ævar og Tóti á móti Bíóblaðurs fastagestunum Kilo og Ísrael. Oddur og Tóti eru með kvikmyndahlaðvarpið Tveir á toppnum og eru því vel undirbúnir fyrir þetta mót. Kilo og Ísrael hafa áður keppt á móti hvor öðrum en í þetta skipti snúa þeir bökum saman gegn Oddi og Tóta.


    Í þættinum þurfa keppendur að svara alls konar bíómyndatengdum spurningum en þar á meðal er spurt um plaköt, ártöl, persónur úr bíómyndum, evrópskar myndir, Clint Eastwood og Jessica Chastain. Þessi þáttur er skylduáhorf fyrir alla sem elska keppnir og kvikmyndir.


    00:00 - Intro

    00:15 - Bíóblaður spurningaspil er komið í verslanir!

    01:58 - Ísrael og Kilo

    03:04 - Tveir á toppnum (Oddur og Tóti)

    10:40 - Almennar spurningar

    16:00 - Plakatleikur

    25:19 - Rétt eða rangt

    38:09 - Atriði

    50:06 - Hugh Jackman eða Jessica Chastain

    59:17 - Persónur og leikarar

    1:14:32 - Flokkar (Clint Eastwood, DC, Evrópa, Klassískar myndir)

    1:36:40 - Sigurvegarar krýndir

  11. #330 Nördaspjall með John Inga Matta

    3 Std. 39 Min.Staffel 4 · Folge 330

    John Ingi Matta hefur verið í kvikmyndabransanum síðan 2008. Hann hefur gert ýmislegt í bransanum en hefur þó undanfarið einbeitt sér að flest öllu sem snertir sjálfar tökuvélarnar.John Ingi hefur meðal annars …

    Shownotes

    John Ingi Matta hefur verið í kvikmyndabransanum síðan 2008. Hann hefur gert ýmislegt í bransanum en hefur þó undanfarið einbeitt sér að flest öllu sem snertir sjálfar tökuvélarnar.


    John Ingi hefur meðal annars unnið við Game of Thrones, þrjár Star Wars myndir, tvær Transformers myndir, Sveppamyndirnar og The Marvels.


    Hafsteinn var spenntur fyrir því að fá John Inga í spjall þar sem John vinnur ekki einungis í bransanum heldur er hann algjört bíónörd.


    Í þessum risa þætti fara strákarnir um víðan völl en þeir ræða meðal annars bransann, franskar hryllingsmyndir, asískar hasarmyndir, John Woo, Marvel, stöðuna á Star Wars í dag, hvort James Gunn eigi eftir að standa sig vel með DC heiminn, Sinners, Weapons, One Battle After Another og margt, margt fleira.


    00:00 - Intro

    00:15 - Samanburður á ólíkum myndum

    09:16 - Hver er John Ingi?

    16:17 - Íslenski bransinn

    24:55 - Hryllingsmyndir

    48:40 - The Raid og erlendir aðilar í Hollywood

    51:39 - Franskar hryllingsmyndir og A Serbian Film

    1:05:25 - Suður-Kóreskar og japanskar myndir

    1:18:53 - Tony Jaa og Chow-Yun Fat

    1:29:10 - John Wick og Ballerina

    1:35:05 - Weapons og Sinners

    1:51:04 - One Battle After Another

    2:10:46 - Keanu Reeves, John Wick og The Matrix

    2:22:55 - Star Wars, Disney og Netflix

    2:58:59 - Marvel

    3:12:14 - DC

    3:27:45 - Ástríða fyrir bíómyndum og gervigreind

  12. #329 Horror Quiz: Pétur vs. Jökull

    1 Std. 26 Min.Staffel 4 · Folge 329

    Hryllingsmyndaaðdáendurnir Pétur Ragnhildarson og Jökull Jónsson eru fastagestir Bíóblaðurs en strákarnir eru vanir að mæta í þáttinn og ræða einhverja hryllingsmyndaseríu.Hafsteinn ákvað að breyta til í þetta …

    Shownotes

    Hryllingsmyndaaðdáendurnir Pétur Ragnhildarson og Jökull Jónsson eru fastagestir Bíóblaðurs en strákarnir eru vanir að mæta í þáttinn og ræða einhverja hryllingsmyndaseríu.


    Hafsteinn ákvað að breyta til í þetta skiptið og láta strákana keppa í spurningakeppni!


    Pétur og Jökull þurfa að svara ýmsum spurningum sem allar eiga það sameiginlegt að tengjast hryllingsmyndum. Spurningaliðirnir eru meðal annars atriði úr myndum, scream queens, alls konar plaköt og almennar spurningar.


    00:00 - Intro

    00:15 - Pétur og Jökull hittust fyrir utan podcastið

    10:17 - Atriði

    22:00 - Plakatleikur

    28:23 - Almennar spurningar

    36:39 - Scream queens

    46:54 - Rétt eða rangt

    56:01 - Flokkar (Draugagangur, Beittar tennur, Blóðug slóð, Óþekk börn)

    1:13:16 - Sigurvegari krýndur

    1:17:29 - Hrekkjavöku meðmæli

  13. #328 Old School Quiz: Kilo vs. Ísrael

    1 Std. 30 Min.Staffel 4 · Folge 328

    Ísrael Daníel Hanssen og Kilo eru báðir fastagestir Bíóblaðurs og Hafsteini datt í hug að fá þá til sín til að keppa í spurningakeppni. Þema þáttarins eru 80’s og 90’s kvikmyndir og strákarnir keppa í nokkrum …

    Shownotes

    Ísrael Daníel Hanssen og Kilo eru báðir fastagestir Bíóblaðurs og Hafsteini datt í hug að fá þá til sín til að keppa í spurningakeppni.


    Þema þáttarins eru 80’s og 90’s kvikmyndir og strákarnir keppa í nokkrum liðum.


    Í þættinum eru meðal annars Tom Cruise spurningar, strákarnir fá að sjá nokkur plaköt þar sem titilinn vantar og þurfa að fylla í eyðurnar, þeir fá að sjá einn ramma úr bíómynd og þurfa að giska á úr hvaða mynd ramminn er og margt, margt fleira.


    00:00 - Intro

    01:37 - Bíóblaður spurningaspil kemur út fyrir jól!

    03:07 - Kilo og Ísrael

    12:35 - Plakatleikur

    25:41 - Valmöguleikar

    46:39 - IMDB leikur

    56:42 - Atriði

    1:12:02 - Flokkar (1999, Tom Cruise, Julia Roberts, 1989)

    1:22:00 - Sigurvegari krýndur

    1:25:12 - Kilo og Ísrael team up?

  14. #327 Dahmer með Kiddu Svarfdal

    2 Std. 8 Min.Staffel 4 · Folge 327

    Ritstjóri hun.is, Kidda Svarfdal, kíkti aftur til Hafsteins og í þetta skipti til að ræða hina umdeildu Netflix seríu, Monster: The Jeffrey Dahmer Story. Í þættinum ræða þau meðal annars hversu erfið serían er …

    Shownotes

    Ritstjóri hun.is, Kidda Svarfdal, kíkti aftur til Hafsteins og í þetta skipti til að ræða hina umdeildu Netflix seríu, Monster: The Jeffrey Dahmer Story.


    Í þættinum ræða þau meðal annars hversu erfið serían er, hvort hægt hefði verið að koma í veg fyrir þetta, hvort serían fari eftir öllum staðreyndum, hversu frábær Evan Peters er sem Dahmer, hvort það ætti yfirhöfuð að vera að fjalla um svona menn og margt, margt fleira.

  15. #326 Bransaspjall með Ólöfu Birnu

    2 Std. 20 Min.Staffel 4 · Folge 326

    Ólöf Birna Torfadóttir er handritshöfundur og leikstjóri. Hún hefur meðal annars gert kvikmyndirnar Hvernig á að vera klassadrusla sem kom út árið 2021 og Topp 10 möst sem kom út árið 2024. Ólöf kíkti til …

    Shownotes

    Ólöf Birna Torfadóttir er handritshöfundur og leikstjóri. Hún hefur meðal annars gert kvikmyndirnar Hvernig á að vera klassadrusla sem kom út árið 2021 og Topp 10 möst sem kom út árið 2024.


    Ólöf kíkti til Hafsteins og sagði honum aðeins frá ferlinu á bakvið þessar kvikmyndir.


    Þau ræða einnig hvernig gervigreind mun breyta kvikmyndaiðnaðinum, hversu mikilvægt það er að vera með gott handrit, hvernig Ólöf nálgast handritagerð þegar hún kennir nemum í Kvikmyndaskólanum, hvort sjónvarpsefni sé betra í dag en í gamla daga og margt, margt fleira.


    00:00 - Intro

    00:15 - Bíóblaður spurningaspil

    02:01 - Handrit skipta máli

    15:05 - Framtíð kvikmynda og A.I.

    25:07 - Kvikmyndanám og gæði handrita

    38:46 - Sjónvarpsþættir

    45:49 - Streymisveitur og bíóaðsókn

    59:07 - Hvernig á að vera klassa drusla

    1:09:35 - Topp 10 möst

    1:14:41 - Kvikmyndasjóður

    1:28:20 - Genre myndir á Íslandi

    1:30:36 - Topp 10 möst

    1:50:16 - Grín er ekki að selja

    2:06:57 - Kvikmyndasjóður

    2:12:06 - Draumaverkefni og lokaorð

  16. #325 Grindhouse með Pétri Ragnhildar

    1 Std. 48 Min.Staffel 4 · Folge 325

    Grindhouse myndin hafði mikil áhrif á kvikmyndaáhugamanninn Pétur Ragnhildarson þegar hún kom út árið 2007. Pétur kíkti til Hafsteins til að ræða þessa áhugaverðu kvikmynd.Strákarnir ræða einnig Quentin …

    Shownotes

    Grindhouse myndin hafði mikil áhrif á kvikmyndaáhugamanninn Pétur Ragnhildarson þegar hún kom út árið 2007. Pétur kíkti til Hafsteins til að ræða þessa áhugaverðu kvikmynd.


    Strákarnir ræða einnig Quentin Tarantino, Robert Rodriguez, Machete, hvort Grindhouse myndi virka betur í dag, af hverju myndin floppaði á sínum tíma, hvort Tarantino geri nokkurn tímann tíundu myndina sína og margt fleira.


    00:00 - Intro

    00:15 - Pétur er loksins í solo þætti

    03:03 - Af hverju Grindhouse?

    09:37 - Rodriguez og Tarantino

    14:11 - Grindhouse myndir og samband R og T

    29:45 - Machete og Planet Terror

    1:00:53 - Fake trailerarnir

    1:09:23 - Death Proof og Tarantino

  17. #324 90’s Gullmolar III með Bjarna Thor

    2 Std. 57 Min.Staffel 4 · Folge 324

    Kvikmyndaáhugamaðurinn og 90’s sérfræðingurinn Bjarni Thor kíkti til Hafsteins til að ræða nokkra 90’s gullmola. Strákarnir völdu 10 myndir á mann og skiptust á að rökstyðja sitt val. Í þættinum ræða þeir meðal …

    Shownotes

    Kvikmyndaáhugamaðurinn og 90’s sérfræðingurinn Bjarni Thor kíkti til Hafsteins til að ræða nokkra 90’s gullmola. Strákarnir völdu 10 myndir á mann og skiptust á að rökstyðja sitt val.


    Í þættinum ræða þeir meðal annars myndirnar The Siege, Cop Land, Red Rock West, Clifford, Split Second, Bordello of Blood, Fair Game og margar fleiri.


    00:00 Intro

    00:16 - 90’s Gullmolar III

    12:16 - My Blue Heaven 1990

    25:45 - Dazed and Confused 1993

    37:14 - Sneakers 1992

    45:26 - Bulletproof 1996

    54:39 - Raising Cain 1992

    1:01:15 - The Full Monty 1997

    1:12:05 - Split Second 1992

    1:19:45 - Falling Down 1993

    1:27:09 - Leap of Faith 1992

    1:36:23 - Clifford 1994

    1:43:39 - Red Rock West 1993

    1:55:18 - Fair Game 1995

    2:00:50 - Judgment Night 1993

    2:07:44 - Bordello of Blood 1996

    2:13:34 - The Paper 1994

    2:17:09 - Fled 1996

    2:22:49 - Cop land 1997

    2:38:21 - The Siege 1998

    2:43:55 - Stir of Echoes 1999

    2:47:45 - Kolamolinn hans Hafsteins

  18. #323 Bíóspjall með Benjamín Fannari

    1 Std. 45 Min.Staffel 4 · Folge 323

    Benjamín Fannar útskrifaðist sem leikari árið 2020 frá Kvikmyndaskóla Íslands og þrátt fyrir hæga leiklistarbyrjun þá stefnir hann ótrauður á leiklistarframa. Benjamín kíkti til Hafsteins og sagði honum aðeins …

    Shownotes

    Benjamín Fannar útskrifaðist sem leikari árið 2020 frá Kvikmyndaskóla Íslands og þrátt fyrir hæga leiklistarbyrjun þá stefnir hann ótrauður á leiklistarframa.


    Benjamín kíkti til Hafsteins og sagði honum aðeins frá náminu og leiklistardraumum.


    Í þættinum ræða þeir einnig sjónvarpsseríuna The Boys, rithöfundinn Stephen King, Game of Thrones, Harry Potter, Jim Carrey myndir og margt fleira.


    00:00 - Intro

    00:15 - Bíóblaður spurningaspil er jólagjöfin í ár

    03:25 - Benjamín og leiklistin

    09:21 - Benjamín hefur leikið Jesú

    13:19 - Draumahlutverk

    15:50 - Jim Carrey

    20:09 - Grínmyndir

    25:14 - Streymisveitur, Plex og videoleigur

    30:12 - Blockbusters

    35:35 - Prisoners

    40:30 - Marvel og DC

    53:40 - Nýlegar bíóferðir

    59:17 - Harry Potter

    1:07:15 - Sjónvarpsseríur

    1:24:59 - Game of Thrones og Stephen King

  19. #322 The Infinity Saga: Part II með Degi, Ragga og Ara

    2 Std. 8 Min.Staffel 4 · Folge 322

    Það er komið að stærsta Marvel þætti sem Hafsteinn hefur nokkurn tímann gert! Fastagestirnir Ari Ólafs, Raggi Ólafs og Dagur Landvörður kíktu til Hafsteins til að ræða fyrstu 22 MCU myndirnar. Í þessum seinni …

    Shownotes

    Það er komið að stærsta Marvel þætti sem Hafsteinn hefur nokkurn tímann gert! Fastagestirnir Ari Ólafs, Raggi Ólafs og Dagur Landvörður kíktu til Hafsteins til að ræða fyrstu 22 MCU myndirnar.


    Í þessum seinni hluta ræða strákarnir meðal annars myndirnar Captain America: Civil War, Spider-Man: Homecoming, Black Panther, Avengers: Infinity War og margar fleiri.


    00:00 - Intro

    00:43 - Ant-Man 2015

    14:49 - Captain America: Civil War 2016

    30:52 - Doctor Strange 2016

    43:05 - Guardians 2 2017

    56:58 - Spiderman: Homecoming 2017

    1:09:28 - Thor: Ragnarök 2017

    1:18:12 - Black Panther 2018

    1:25:27 - Avengers: Infinity War 2018

    1:35:42 - Ant-Man and the Wasp 2018

    1:38:27 - Captain Marvel 2019

    1:47:10 - Avengers: Endgame 2019

  20. #321 The Infinity Saga: Part I með Degi, Ragga og Ara

    2 Std. 53 Min.Staffel 4 · Folge 321

    Það er komið að stærsta Marvel þætti sem Hafsteinn hefur nokkurn tímann gert! Fastagestirnir Ari Ólafs, Raggi Ólafs og Dagur Landvörður kíktu til Hafsteins til að ræða fyrstu 22 MCU myndirnar. Í þessum fyrri …

    Shownotes

    Það er komið að stærsta Marvel þætti sem Hafsteinn hefur nokkurn tímann gert! Fastagestirnir Ari Ólafs, Raggi Ólafs og Dagur Landvörður kíktu til Hafsteins til að ræða fyrstu 22 MCU myndirnar.


    Í þessum fyrri hluta ræða strákarnir meðal annars myndirnar Iron Man, The Incredible Hulk, The Avengers, Thor, Guardians of the Galaxy og margar fleiri.


    00:00 - Rétt MCU röð?

    05:16 - Iron Man 2008

    32:35 - The Incredible Hulk 2008

    49:26 - Iron Man 2 2010

    1:03:25 - Thor 2011

    1:22:35 - Captain America 2011

    1:38:03 - The Avengers 2012

    1:54:16 - Iron Man 3 2013

    2:05:59 - Thor: The Dark World 2013

    2:17:31 - Captain America: The Winter Soldier 2014

    2:28:16 - Guardians of the Galaxy 2014

    2:40:37 - Avengers: Age of Ultron 2015

  21. #320 Topp 10 með Vilhjálmi Þór

    2 Std. 36 Min.Staffel 4 · Folge 320

    Karate/einkaþjálfarinn Vilhjálmur Þór Þóruson er mikill kvikmyndaáhugamaður með sterkar skoðanir. Hann hefur fylgst með Bíóblaðri í nokkur ár og Hafsteinn var því spenntur að fá hann í heimsókn. Í þættinum ræða …

    Shownotes

    Karate/einkaþjálfarinn Vilhjálmur Þór Þóruson er mikill kvikmyndaáhugamaður með sterkar skoðanir. Hann hefur fylgst með Bíóblaðri í nokkur ár og Hafsteinn var því spenntur að fá hann í heimsókn.


    Í þættinum ræða strákarnir meðal annars topp 10 listann hans Villa, nokkur “hot takes” sem Villi er með, hvort Snape sé besta Harry Potter persónan, hversu vönduð Snerting er, hvort Marvel séu alveg búnir að missa það og margt, margt fleira.


    00:00 - Intro

    00:15 - NCIS og ótrúlegir hlutir

    03:18 - The Amazing Spider-Man 2

    05:19 - Villi og karate

    14:02 - Eldamennska og kvikmyndir

    15:49 - Villi er með hot takes!

    31:25 - Snerting

    40:39 - The Whale

    48:11 - Primal Fear

    1:03:08 - Sleepers

    1:17:03 - Good Will Hunting

    1:23:45 - Warrior

    1:32:39 - Harry Potter and the Half-Blood Prince

    1:58:41 - Captain America: Civil War

    2:10:16 - Under Siege

    2:19:05 - Uppáhalds myndin hans Villa

  22. #319 Superman 2025 með Gumma Sósu

    1 Std. 48 Min.Staffel 4 · Folge 319

    Kvikmyndaáhugamaðurinn og DC sérfræðingurinn Gummi Sósa kíkti til Hafsteins til að ræða nýjustu Superman myndina eftir James Gunn. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hvort Gunn hafi tekist að gera góða …

    Shownotes

    Kvikmyndaáhugamaðurinn og DC sérfræðingurinn Gummi Sósa kíkti til Hafsteins til að ræða nýjustu Superman myndina eftir James Gunn.


    Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hvort Gunn hafi tekist að gera góða mynd, hvort búningurinn sé flottur, hversu björt DCU framtíðin er, hvort þetta sé besti Lex Luthor sem fólk hefur fengið að sjá, hvort Lois Lane fái nóg að gera í myndinni og margt, margt fleira.


    00:00 - Intro

    00:15 - Gummi er DC gaurinn

    02:00 - Bíóblaður spurningaspil er væntanlegt fyrir jólin

    04:59 - Superman 2025 (SPOILER FREE)

    29:27 - Superman 2025 (SPOILER SPJALL)

    1:35:00 - DCU framtíðin

  23. #318 DCEU með Gumma Sósu

    1 Std. 59 Min.Staffel 4 · Folge 318

    Kvikmyndaáhugamaðurinn og DC sérfræðingurinn Gummi Sósa kíkti til Hafsteins til að ræða stærstu DC myndir frá upphafi. Í þessum seinni hluta setja strákarnir sérstakan fókus á DCEU myndirnar en það eru meðal …

    Shownotes

    Kvikmyndaáhugamaðurinn og DC sérfræðingurinn Gummi Sósa kíkti til Hafsteins til að ræða stærstu DC myndir frá upphafi.


    Í þessum seinni hluta setja strákarnir sérstakan fókus á DCEU myndirnar en það eru meðal annars myndirnar Man of Steel, Batman v Superman, Suicide Squad, Aquaman, Wonder Woman, Justice League og Snyder Cut.


    00:00 - Intro

    00:15 - DCEU

    01:08 - Man of Steel 2013

    28:40 - Batman v Superman 2016

    43:57 - Suicide Squad 2016

    52:06 - DC og James Gunn

    1:01:28 - Birds of Prey 2020

    1:07:48 - Wonder Woman og WW84

    1:17:51 - Aquaman 2018

    1:27:06 - Shazam 2019

    1:35:29 - Justice League 2017 og Snyder Cut

    1:43:47 - Joker og The Batman

  24. #317 DC með Gumma Sósu

    3 Std. 7 Min.Staffel 4 · Folge 317

    Kvikmyndaáhugamaðurinn og DC sérfræðingurinn Gummi Sósa kíkti til Hafsteins til að ræða stærstu DC myndir frá upphafi. Í þessum fyrri hluta setja strákarnir sérstakan fókus á Superman (1978), Superman II …

    Shownotes

    Kvikmyndaáhugamaðurinn og DC sérfræðingurinn Gummi Sósa kíkti til Hafsteins til að ræða stærstu DC myndir frá upphafi.


    Í þessum fyrri hluta setja strákarnir sérstakan fókus á Superman (1978), Superman II, Batman, Batman Returns, Batman Forever, Batman & Robin, Mask of the Phantasm, Constantine, Nolan Batman þríleikinn, Superman Returns, Watchmen og Green Lantern.


    00:00 - Intro

    00:13 - DC/WB þessa dagana

    06:45 - Af hverju er Gummi DC aðdáandi?

    13:37 - Superman 1978

    30:06 - Superman II 1980

    47:29 - Batman 1989

    1:05:52 - Batman Returns 1992

    1:14:13 - Batman Forever 1995 og Batman & Robin 1997

    1:35:47 - Mask of the Phantasm 1993

    1:42:13 - Constantine 2005

    1:59:59 - Nolan Batman þríleikurinn 2005-2012

    2:25:45 - Superman Returns 2006

    2:41:08 - Watchmen 2009

    2:49:40 - Green Lantern 2011

  25. #316 John Wick: Chapters 1-3 með Adam Sebastian

    2 Std. 34 Min.Staffel 4 · Folge 316

    Kvikmyndaáhugamaðurinn Adam Sebastian Ástmundsson er mikill John Wick aðdáandi og kíkti hann til Hafsteins til að ræða fyrstu þrjár John Wick myndirnar. Í þættinum ræða þeir meðal annars hver er þeirra …

    Shownotes

    Kvikmyndaáhugamaðurinn Adam Sebastian Ástmundsson er mikill John Wick aðdáandi og kíkti hann til Hafsteins til að ræða fyrstu þrjár John Wick myndirnar.


    Í þættinum ræða þeir meðal annars hver er þeirra uppáhalds mynd, hvernig Wick er kominn inn í pop-culture-ið, hvort John Wick sé besti leigumorðingi kvikmyndasögunnar, hversu geðveikt hnífaatriðið er í þriðju myndinni, hversu flottur Common var sem Cassian, John Wick: Chapter 4 pælingar og margt, margt fleira.


    00:00 - Intro

    01:07 - Af hverju vildi Adam tala um John Wick?

    08:42 - John Wick

    1:01:04 - John Wick: Chapter 2

    1:37:59 - John Wick: Chapter 3

    2:18:05 - John Wick: Chapter 4 pælingar

  26. #315 1994 vs. 1999 með Bjarna Thor og Hödda

    2 Std. 18 Min.Staffel 4 · Folge 315

    Fyrirtækjaeigandinn Bjarni Thor og grafíski hönnuðurinn Hörður Ásbjörnsson eru miklir 90’s menn og þeir kíktu til Hafsteins í sérstakan 1994 vs. 1999 þátt. Hafsteinn stillti upp 12 kvikmyndum frá 1994 og setti …

    Shownotes

    Fyrirtækjaeigandinn Bjarni Thor og grafíski hönnuðurinn Hörður Ásbjörnsson eru miklir 90’s menn og þeir kíktu til Hafsteins í sérstakan 1994 vs. 1999 þátt.


    Hafsteinn stillti upp 12 kvikmyndum frá 1994 og setti þær á móti 12 kvikmyndum frá 1999. Strákarnir velja síðan í sameiningu einn sigurvegara í hverri lotu og komast að því í lokin hvort árið sé betra kvikmyndaár.


    Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hvort Forrest Gump sé betri en The Green Mile, hvort Ace Ventura sé betri en Office Space og margt, margt fleira.


    00:00 - Intro

    00:12 - 1994 vs. 1999

    07:46 - Pulp Fiction vs. Magnolia

    15:22 - The Shawshank Redemption vs. American Beauty

    21:54 - The Lion King vs. The Iron Giant

    28:04 - Ace Ventura vs. Office Space

    40:32 - Dumb and Dumber vs. Being John Malkovich

    53:39 - Leon vs. The Matrix

    1:08:01 - True Lies vs. Fight Club

    1:15:36 - Forrest Gump vs. The Green Mile

    1:25:30 - Once Were Warriors vs. The Insider

    1:35:01 - The Crow vs. The Sixth Sense

    1:39:16 - The Legends of the Fall vs. Eyes Wide Shut

    1:46:51 - Ed Wood vs. Sleepy Hollow

    1:56:18 - Almennt bíóspjall

  27. #314 Star Wars: Andor með Birgi Ársæls

    1 Std. 59 Min.Staffel 4 · Folge 314

    Kvikmyndafræðingurinn Birgir Smári Ársælsson er mikill Star Wars áhugamaður og hann kíkti til Hafsteins til að ræða fjórðu Disney+ Star Wars seríuna, Andor. Birgir og Hafsteinn ræða meðal annars hversu vönduð …

    Shownotes

    Kvikmyndafræðingurinn Birgir Smári Ársælsson er mikill Star Wars áhugamaður og hann kíkti til Hafsteins til að ræða fjórðu Disney+ Star Wars seríuna, Andor.


    Birgir og Hafsteinn ræða meðal annars hversu vönduð serían er, hversu sterk persónusköpun er í þáttunum og hvernig serían nær að sýna andspyrnuna í nýju ljósi.


    Strákarnir fara einnig aðeins út fyrir Andor og ræða Star Wars heiminn í heild sinni, hversu spennandi persóna Thrawn er, hvernig The Clone Wars styrkti prequel þríleikinn, hvort Star Wars eigi frekar heima í kvikmyndahúsum og margt, margt fleira.

  28. #313 The Last of Us með Agli Nielsen

    2 Std. 15 Min.Staffel 4 · Folge 313

    Kvikmyndagerðarmaðurinn Egill Nielsen er rosalegur The Last of Us aðdáandi og hann kíkti til Hafsteins til að ræða hina vinsælu HBO seríu sem hefur vakið mikla lukku meðal áhorfenda og gagnrýnenda. Strákarnir …

    Shownotes

    Kvikmyndagerðarmaðurinn Egill Nielsen er rosalegur The Last of Us aðdáandi og hann kíkti til Hafsteins til að ræða hina vinsælu HBO seríu sem hefur vakið mikla lukku meðal áhorfenda og gagnrýnenda.


    Strákarnir ræða einnig tölvuleikinn, The Last of Us Part II, hversu góð Pedro og Bella eru í sínum hlutverkum, hvort það hefði ekki mátt vera aðeins meiri hasar í seríunni, hvort peningurinn hafi klárast í síðasta þættinum, hversu góð aðlögun serían er og margt, margt fleira.


    00:00 - Intro

    00:15 - Egill er grjótharður The Last of Us maður

    01:38 - The Last of Us tölvuleikurinn 2013

    04:54 - The Last of Us Part II 2020

    06:20 - The Last of Us - HBO serían

    1:46:41 - The Last of Us Part II - SPOILERSPJALL

  29. #312 Indiana Jones með Óla og Mána

    3 Std. 9 Min.Staffel 4 · Folge 312

    Kvikmyndasérfræðingarnir Óli Bjarki og Máni Freyr kíktu til Hafsteins til að ræða eina stærstu kvikmyndapersónu allra tíma, Indiana Jones. Strákarnir fara yfir fyrstu fjórar Indiana Jones myndirnar og ræða …

    Shownotes

    Kvikmyndasérfræðingarnir Óli Bjarki og Máni Freyr kíktu til Hafsteins til að ræða eina stærstu kvikmyndapersónu allra tíma, Indiana Jones.


    Strákarnir fara yfir fyrstu fjórar Indiana Jones myndirnar og ræða meðal annars hversu magnaður Harrison Ford er fyrir framan myndavélina, hvort The Last Crusade sé betri en Raiders of the Lost Ark, hvort gamall Ford eigi eftir að virka í fimmtu myndinni, hvort Temple of Doom sé vanmetin og margt, margt fleira.


    00:00 - Intro

    00:15 - Af hverju gerðu þeir Indiana Jones?

    05:37 - Raiders of the Lost Ark

    53:23 - The Temple of Doom

    1:09:26 - Sögur um mýs

    1:16:02 - The Temple of Doom

    1:29:37 - The Last Crusade

    2:20:28 - The Kingdom of the Crystal Skull

    2:47:26 - Warner Bros og Ezra Miller

    2:49:41 - Indy og Tinni

    2:54:36 - Indiana Jones 5

  30. #311 Bíóblaður spurningaspil: Egill vs. Ísrael vs. Teitur

    51 Min.Staffel 4 · Folge 311

    Kvikmyndagerðarmaðurinn Egill Nielsen, Óskarsverðlaunasérfræðingurinn Ísrael Daníel Hanssen og kvikmyndagerðarmaðurinn Teitur Magnússon mættu til Hafsteins í Óskarsverðlaunaþátt en Hafsteinn kom þeim fyrst á …

    Shownotes

    Kvikmyndagerðarmaðurinn Egill Nielsen, Óskarsverðlaunasérfræðingurinn Ísrael Daníel Hanssen og kvikmyndagerðarmaðurinn Teitur Magnússon mættu til Hafsteins í Óskarsverðlaunaþátt en Hafsteinn kom þeim fyrst á óvart með stuttri spurningakeppni.


    Hafsteinn er að vinna í kvikmyndaspurningaspili sem hann ætlar að gefa út fyrir næstu jól og honum datt í hug að prófa nokkrar spurningar á strákunum.


    Úr varð skemmtileg keppni sem enginn má missa af!

Hier stehen die neuesten 40 von 384 Folgen. Ältere Folgen findest du im Feed des Podcasts.

Ist das dein Podcast?

Bestätige es mit einem Eintrag in deinem Feed: Du bekommst hier einen Code, trägst ihn als podcast:txt in den Kanal deines Feeds ein, und wir prüfen ihn. Danach steht dein Podcast als „verifiziert“ bei SoundNode.

Einstellungen

Darstellung

Sprache

Bestimmt, welche Sender dir auf der Startseite zuerst gezeigt werden.

Verlauf

Zuletzt gehörte Sender und Folgen und deine letzten Suchen liegen nur in diesem Browser.

Hinweise

Ein kurzer Hinweis, wenn ein Podcast, dem du folgst, eine neue Folge hat. Einzelne Podcasts stellst du über die Glocke auf ihrer Seite ab.

Konto

Favoriten speichern – in der App und auf der Website.

Tastenkürzel

/
Suche öffnen
Leertaste
Abspielen oder anhalten
← →
Im Player: 15 s zurück, 30 s vor (Folgen) · im Regal: nächste Kachel
↑ ↓
Im Regal: Ziel innerhalb der Kachel
Pos1 / Ende
Im Regal: erste bzw. letzte Kachel
Esc
Fenster oder Menü schließen
?
Diese Übersicht
Läuft gerade

Zur Senderseite

Als Nächstes

    Folgen mit „Als Nächstes“ vormerken – sie laufen nach der aktuellen Folge.