Zum Inhalt springen
Börn tímans – samtal við listamann á heimavelli
PodcastKunstIS

Börn tímans – samtal við listamann á heimavelli

Folge 1Haraldur Jónsson19.01.2019 · 40 Min.
Folgen
14
Format
Serie – von Anfang an hören
Letzte Folge
28. Juni 2023

Über den Podcast

Börn tímans eru listamenn sem náð hafa viðurkenningu og góðum árangri í listsköpun sinni. Í hverjum þætti er rætt við listamann á heimavelli og spurt hvað drífur þig áfram, hver eru viðfangsefnin og áskoranirnar og hvað gerir leitina að inntaki listarinnar þess virði að haldið er í hana. Umsjón: Guðni Tómasson.

Folgen 14

  1. Daníel Ágús Haraldsson, tónlistarmaður

    55 Min.Folge 14

    Daníel Ágúst Haraldsson (f. 1969) er ein af merkustu röddum Íslands þegar kemur að söng í popp- og rokktónlist á undanförnum áratugum en með sveitum sínum, Ný dönsk og Gus Gus, hefur Daníel heillað áhorfendur …

    Shownotes
    Daníel Ágúst Haraldsson (f. 1969) er ein af merkustu röddum Íslands þegar kemur að söng í popp- og rokktónlist á undanförnum áratugum en með sveitum sínum, Ný dönsk og Gus Gus, hefur Daníel heillað áhorfendur með fallegri og blæbrigðaríki rödd og hispurslausri framkomu. Tónlistin í þættinum er úr smiðju Gus Gus og Ný dönsk. Umsjón: Guðni Tómasson.
  2. Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, leikkona

    50 Min.Folge 13

    Leikkonan Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir (f. 1969) viðurkennir fúslega að hún sé menningarbarn og þakkar fyrir það uppeldi. Steinunn hefur oft vakið mikla athygli fyrir leik sinn bæði á sviði og í kvikmyndum og …

    Shownotes
    Leikkonan Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir (f. 1969) viðurkennir fúslega að hún sé menningarbarn og þakkar fyrir það uppeldi. Steinunn hefur oft vakið mikla athygli fyrir leik sinn bæði á sviði og í kvikmyndum og sjónvarpi, en jafnframt líka tekið hraustlega til máls í samfélagsumræðunni. Tónlistin í þættinum: Alice Coltrane og félagar leika Lovely sky boat. Umsjón: Guðni Tómasson.
  3. Kees Visser, myndlistarmaður

    50 Min.Folge 12

    Allt frá árinu 1976 hefur hollenski myndlistarmaðurinn Kees Visser (f. 1948) verið hluti af íslensku myndlistarlífi, en þá hélt hann sína fyrstu einkasýningu í Gallerí SÚM. Aðferðir Kees eru nánast vísindalegar …

    Shownotes
    Allt frá árinu 1976 hefur hollenski myndlistarmaðurinn Kees Visser (f. 1948) verið hluti af íslensku myndlistarlífi, en þá hélt hann sína fyrstu einkasýningu í Gallerí SÚM. Aðferðir Kees eru nánast vísindalegar oft á tíðum, en helstu byggingarefni hans eru samt einfaldlega mikilvægustu atriði myndlistar; litir og form. Tónlistin í þættinum: Keith Jarrett leikur á píanó Helgan sálm eftir Gurdijeff. Umsjón: Guðni Tómasson.
  4. Sigríður Hagalín Björnsdóttir, rithöfundur

    54 Min.Folge 11

    Sigríður Hagalín Björnsdóttir rithöfundur (f. 1974) er landsþekkt andlit vegna fréttaflutnings á skjám landsmanna en hefur frá árinu 2016 sent frá sér fjórar skáldsögur við góðan orðstýr og viðtökur. Undirtónn …

    Shownotes
    Sigríður Hagalín Björnsdóttir rithöfundur (f. 1974) er landsþekkt andlit vegna fréttaflutnings á skjám landsmanna en hefur frá árinu 2016 sent frá sér fjórar skáldsögur við góðan orðstýr og viðtökur. Undirtónn þeirra flestra er sterk upplifun Sigríðar fyrir mikilvægi vandaðrar blaðamennsku, en líka mikill og djúpur áhugi á sögu og lífinu í landinu. Tónlistin í þættinum: Hjarta mitt - lag Himis Sindrasonar leikið af Gunnari Gunnarssyni og félögum. Umsjón: Guðni Tómasson.
  5. Sigríður Sigþórsdóttir, arkitekt

    50 Min.Folge 10

    Sigríður Sigþórsdóttir arkitekt (f. 1953) er ein af eigendum og stofnendum arkitektastofunnar Basalt arkitektar. Sigríður hefur tekist á við fjölbreytt verkefni bæði á höfuðbogarsvæðinu og í kringum landið, oft …

    Shownotes
    Sigríður Sigþórsdóttir arkitekt (f. 1953) er ein af eigendum og stofnendum arkitektastofunnar Basalt arkitektar. Sigríður hefur tekist á við fjölbreytt verkefni bæði á höfuðbogarsvæðinu og í kringum landið, oft í samspili við viðkvæma náttúru landsins. Hún hefur sterkar skoðanir á skipulagsmálum og víða yfirsýn yfir íslenska byggingalist. Tónlistin í þættinum: Danil Trifanov leikur á píanó kafla úr Fúgulistinni eftir Johann Sebastian Bach. Umsjón: Guðni Tómasson.
  6. Ingvar E. Sigurðsson, leikari

    50 Min.Folge 9

    Ingvar E. Sigurðsson leikari (f. 1963) hefur um árabil verið einhver fremsti leikari þjóðarinnar, bæði á sviði, í sjónvarpi og á hvíta tjaldinu. Frá útskrift úr Leiklistarskóla Íslands 1990 hefur Ingvar tekist …

    Shownotes
    Ingvar E. Sigurðsson leikari (f. 1963) hefur um árabil verið einhver fremsti leikari þjóðarinnar, bæði á sviði, í sjónvarpi og á hvíta tjaldinu. Frá útskrift úr Leiklistarskóla Íslands 1990 hefur Ingvar tekist á við krefjandi aðalhlutverk í mörgum leiklistarperlum og fengið smjörþefinn af stjörnulífinu í stórum kvikmyndaverkefnum. Tónlistin í þættinum: Ingvar leikur á harmonikku og syngur með á rússnesku. Umsjón: Guðni Tómasson.
  7. Arndís Hrönn Egilsdóttir

    57 Min.Folge 8

    Börn tímans - samtal við listamann á heimavelli Önnur sería - 4. þáttur af fjórum Börn tímans eru listamenn sem náð hafa viðurkenningu og góðum árangri í listsköpun sinni. Í hverjum þætti er rætt við listamann …

    Shownotes
    Börn tímans - samtal við listamann á heimavelli Önnur sería - 4. þáttur af fjórum Börn tímans eru listamenn sem náð hafa viðurkenningu og góðum árangri í listsköpun sinni. Í hverjum þætti er rætt við listamann á heimavelli og spurt hvað drífur þig áfram, hver eru viðfangsefnin og áskoranirnar og hvað gerir leitina að inntaki listarinnar þess virði að haldið er í hana. Barn tímans að þessu sinni er leikkonan Arndís Hrönn Egilsdóttir. Umsjón: Guðni Tómasson. Tónlistin í þættinum er eftir Eric Satie.
  8. Rúrí

    56 Min.Folge 7

    Börn tímans - samtal við listamann á heimavelli Önnur sería - 3. þáttur Börn tímans eru listamenn sem náð hafa viðurkenningu og góðum árangri í listsköpun sinni. Í hverjum þætti er rætt við listamann á …

    Shownotes
    Börn tímans - samtal við listamann á heimavelli Önnur sería - 3. þáttur Börn tímans eru listamenn sem náð hafa viðurkenningu og góðum árangri í listsköpun sinni. Í hverjum þætti er rætt við listamann á heimavelli og spurt hvað drífur þig áfram, hver eru viðfangsefnin og áskoranirnar og hvað gerir leitina að inntaki listarinnar þess virði að haldið er í hana. Barn tímans að þessu sinni er myndlistarmaðurinn Rúrí Umsjón: Guðni Tómasson. Tónlistin í þættinum er eftir Benjamin Britten.
  9. María Reyndal

    57 Min.Folge 6

    Börn tímans - samtal við listamann á heimavelli Önnur sería - 2. þáttur Börn tímans eru listamenn sem náð hafa viðurkenningu og góðum árangri í listsköpun sinni. Í hverjum þætti er rætt við listamann á …

    Shownotes
    Börn tímans - samtal við listamann á heimavelli Önnur sería - 2. þáttur Börn tímans eru listamenn sem náð hafa viðurkenningu og góðum árangri í listsköpun sinni. Í hverjum þætti er rætt við listamann á heimavelli og spurt hvað drífur þig áfram, hver eru viðfangsefnin og áskoranirnar og hvað gerir leitina að inntaki listarinnar þess virði að haldið er í hana. Barn tímans að þessu sinni er María Reyndal leikstjóri Umsjón: Guðni Tómasson. Tónlistin: Silence með Charlie Haden og félögum.
  10. Bragi Ólafsson rithöfundur

    55 Min.Folge 5

    Börn tímans - samtal við listamann á heimavelli Önnur sería - 1. þáttur Börn tímans eru listamenn sem náð hafa viðurkenningu og góðum árangri í listsköpun sinni. Í hverjum þætti er rætt við listamann á …

    Shownotes
    Börn tímans - samtal við listamann á heimavelli Önnur sería - 1. þáttur Börn tímans eru listamenn sem náð hafa viðurkenningu og góðum árangri í listsköpun sinni. Í hverjum þætti er rætt við listamann á heimavelli og spurt hvað drífur þig áfram, hver eru viðfangsefnin og áskoranirnar og hvað gerir leitina að inntaki listarinnar þess virði að haldið er í hana. Barn tímans að þessu sinni er Bragi Ólfafsson rithöfundur Umsjón: Guðni Tómasson. Tónlistin: Poeme Eleqtronique eftir Edgard Varese
  11. Linda Vilhjálmsdóttir

    41 Min.Folge 4

    Guðni Tómasson ræðir við Lindu Vilhjálmsdóttur rithöfund um drifkraftinn, viðfangsefnin, áskoranirnar og hvað það er sem gerir leitina að inntaki listarinnar þess virði að haldið er í hana.

  12. Sigurður Sigurjónsson

    40 Min.Folge 3

    Guðni Tómasson ræðir við Sigurð Sigurjónsson leikara um drifkraftinn, viðfangsefnin, áskoranirnar og hvað það er sem gerir leitina að inntaki listarinnar þess virði að haldið er í hana.

  13. Guðrún Eva Mínervudóttir

    41 Min.Folge 2

    Guðni Tómasson ræðir við Guðrúnu Evu Mínervudóttur um drifkraftinn, viðfangsefnin, áskoranirnar og hvað það er sem gerir leitina að inntaki listarinnar þess virði að haldið er í hana.

  14. Haraldur Jónsson

    40 Min.Folge 1

    Börn tímans eru listamenn sem náð hafa viðurkenningu og góðum árangri í listsköpun sinni. Í hverjum þætti er rætt við listamann á heimavelli og spurt hvað drífur þig áfram, hver eru viðfangsefnin og …

    Shownotes
    Börn tímans eru listamenn sem náð hafa viðurkenningu og góðum árangri í listsköpun sinni. Í hverjum þætti er rætt við listamann á heimavelli og spurt hvað drífur þig áfram, hver eru viðfangsefnin og áskoranirnar og hvað gerir leitina að inntaki listarinnar þess virði að haldið er í hana. Rætt er við myndlistarmanninn Harald Jónsson í fyrsta þættinum af fjórum.

Ähnliche Podcasts

Mehr Kunst-Podcasts
Ist das dein Podcast?

Bestätige es mit einem Eintrag in deinem Feed: Du bekommst hier einen Code, trägst ihn als podcast:txt in den Kanal deines Feeds ein, und wir prüfen ihn. Danach steht dein Podcast als „verifiziert“ bei SoundNode.

Einstellungen

Darstellung

Sprache

Bestimmt, welche Sender dir auf der Startseite zuerst gezeigt werden.

Verlauf

Zuletzt gehörte Sender und Folgen und deine letzten Suchen liegen nur in diesem Browser.

Hinweise

Ein kurzer Hinweis, wenn ein Podcast, dem du folgst, eine neue Folge hat. Einzelne Podcasts stellst du über die Glocke auf ihrer Seite ab.

Konto

Favoriten speichern – in der App und auf der Website.

Tastenkürzel

/
Suche öffnen
Leertaste
Abspielen oder anhalten
← →
Im Player: 15 s zurück, 30 s vor (Folgen) · im Regal: nächste Kachel
↑ ↓
Im Regal: Ziel innerhalb der Kachel
Pos1 / Ende
Im Regal: erste bzw. letzte Kachel
Esc
Fenster oder Menü schließen
?
Diese Übersicht
Läuft gerade

Zur Senderseite

Als Nächstes

    Folgen mit „Als Nächstes“ vormerken – sie laufen nach der aktuellen Folge.