
Keikó - háhyrningurinn sem hreyfði við heimsbyggðinni
Shownotes
Háhyrningurinn Keikó sigraði hjörtu heimsbyggðarinnar í kvikmyndinni Free Willy. Talað var um að hann væri frægasti Íslendingurinn á tímabili og var hvalurinn fastagestur í fréttum um árabil. En þegar hann var fluttur til Vestmannaeyja frá Bandaríkjunum, þar sem átti að hleypa honum aftur í sitt náttúrulega umhverfi, spruttu upp ýmsar spurningar um dýravelferð, pólitíska hagsmuni og himinháar peningaupphæðir. Gísli Marteinn Baldursson var ungur fréttamaður þegar heimspressan fjallaði um heimkomu og frelsun Keikós. Hann fer yfir söguna með okkur í Eftirmálum.
Komdu í áskrift á eftirmal.is
Samsetning: Adelina Antal
Samstarfsaðilar Eftirmála: ✨Húðfegrun 🛒Krónan 🩺 Intuens 🌀Sjóvá 💻Giggó 🤸🏼♂️ World Class 🚗Go Bílaleiga 📲 Kosmos 🍬Góa ✈️ Icelandair
Vertu með okkur á Instagram