
#176 – ETS viðskiptakerfið í endurskoðun – engin varanleg lausn í hendi en vilji til að framlengja sérlausn fyrir flugið – Kristinn Már Reynisson og Ágúst Elvar Bjarnason
Shownotes
ETS viðskiptakerfi ESB með kolefnisheimildir var mikið til umræðu á umhverfisdegi atvinnulífsins fyrir skömmu. Af því tilefni er í þessum þætti rætt við Kristin Má Reynisson lögfræðing hjá Samtökum verslunar- og þjónustu og Ágúst Elvar Bjarnason verkefnisstjóra hjá Samtökum ferðaþjónustunnar, en bæði þessi samtök standa í hagsmunagæslu við enduskoðun á ETS kerfinu og eru að senda umsagnir til Evrópusambandsins í tengslum við það. Farið er yfir stöðu þessara mála í dag og einkum hvernig samkeppnisskekkja í kerfinu hefur áhrif á íslenskan flugrekstur – og þar með íslenskt atvinnulíf.