
Fotbolti.net
- Folgen
- 2.946
- Erscheint
- täglich
- Letzte Folge
- 12. Nov. 2026
Über den Podcast
Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.
Folgen 2.946
Beint frá Búlgaríu - Skyldusigur gegn buguðum Búlgörum
Sérstakur aukaþáttur frá Plovdiv í Búlgaríu þar sem Ísland mun mæta heimamönnum. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Valur Páll ræddu um komandi landsleik og aðrar fréttir úr boltanum. Þá er spilað viðtal sem …
Shownotes
Sérstakur aukaþáttur frá Plovdiv í Búlgaríu þar sem Ísland mun mæta heimamönnum. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Valur Páll ræddu um komandi landsleik og aðrar fréttir úr boltanum. Þá er spilað viðtal sem Sæbjörn tók við Andra Lucas Guðjohnsen. Thule léttöl og Eimskip bjóða þér upp á þáttinn.38 umferðir - Wayne Gretzky þekkir ekki Thierno Barry
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu til að kryfja 10. umferð og gefa hlustendum góð ráð farandi inn í landsleikjahléið. Einar tæknimaður frá Livey …
Shownotes
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu til að kryfja 10. umferð og gefa hlustendum góð ráð farandi inn í landsleikjahléið. Einar tæknimaður frá Livey kynnti splúnkunýja grafík til leiks og því ærin ástæða til að taka þennan þátt í mynd.Beint frá Benidorm - Horfast í augu við mistökin
Elvar Geir og Sæbjörn Steinke eru mættir til Spánar þar sem íslenska landsliðið býr sig undir landsleik gegn Búlgaríu sem fram fer á föstudag. Í þessum sérstaka aukaþætti ræða þeir komandi verkefni, skoða …
Shownotes
Elvar Geir og Sæbjörn Steinke eru mættir til Spánar þar sem íslenska landsliðið býr sig undir landsleik gegn Búlgaríu sem fram fer á föstudag. Í þessum sérstaka aukaþætti ræða þeir komandi verkefni, skoða líklegt byrjunarlið og spilað er viðtal við fyrirliðann Orra Stein Óskarsson sem tekið var á La Finca hótelsvæðinu. Landsliðsmenn tala agabrot síðasta glugga ekkert niður og horfast í augu við mistökin. Í boltaspjallinu er víðar komið við; rætt um stjóramál Manchester United, fréttir og tíðindi úr Bestu deildinni og fleira.Enski boltinn - Man Utd gæti fallið og Moyes í guðatölu
Manchester United fer inn í landsleikjahlé í nóvember í fallsæti. Það er raunin. Á meðan er Arsenal mjög líklegt til að stinga af í baráttunni um Englandsmeistaratitilinn; þeir hafa unnið níu leiki af tíu …
Shownotes
Manchester United fer inn í landsleikjahlé í nóvember í fallsæti. Það er raunin. Á meðan er Arsenal mjög líklegt til að stinga af í baráttunni um Englandsmeistaratitilinn; þeir hafa unnið níu leiki af tíu. Guðmundur Aðalsteinn og Haraldur Örn fara yfir helstu sögulínur eftir tíundu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Everton er á flottu róli þrátt fyrir erfiðleika utan vallar en til að fara yfir það kom Magnús Geir Eyjólfsson, fréttamaður á RÚV, í heimsókn í Coke stúdíóið. Þá var farið yfir það hvaða stjórar væru líklegastir til að missa starfið í landsleikjahléinu.Útvarpsþátturinn - Enginn í agabanni og lið fá einkunnir
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur á fimmtudegi þessa vikuna. Elvar Geir og Tómas Þór eru umsjónarmenn. Kári Snorrason er með þeim í umræðunni. Liðin í Bestu deildinni 2026 fá einkunnir fyrir …
Shownotes
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur á fimmtudegi þessa vikuna. Elvar Geir og Tómas Þór eru umsjónarmenn. Kári Snorrason er með þeim í umræðunni. Liðin í Bestu deildinni 2026 fá einkunnir fyrir tímabilið. Rætt er um valið á íslenska landsliðinu fyrir leikina gegn Búlgaríu og Lúxemborg í Þjóðadeildinni og spilað viðtal við Arnar Gunnlaugsson. Hvað er Bubka Sports Lab? Hallgrímur Heimisson svarar því. Þá segir Mate Dalmay frá heimsókn sinni á Old Trafford þar sem Manchester United vann magnaðan endurkomusigur á Roma í Meistaradeildinni og ræðir um Cristiano Ronaldo sem hefur lagt landsliðsskóna á hilluna.38 umferðir - Pálínuboð
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Sindri fékk frábæran gest í fjarveru Alberts. Hann og Pálína Njarðvík (farmlifeiceland) tylltu sér í Coke stúdíóinu en Pálína er frábær fantasy spilari og hefur …
Shownotes
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Sindri fékk frábæran gest í fjarveru Alberts. Hann og Pálína Njarðvík (farmlifeiceland) tylltu sér í Coke stúdíóinu en Pálína er frábær fantasy spilari og hefur farið vel af stað þetta tímabilið.Enski boltinn - Leiðinlegir en svo drullugóðir
Það var nóg að ræða eftir níundu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Það má segja að það hafi verið þrír stórleikir í umferðinni, sá síðasti í kvöld þegar Liverpool tók á móti Arsenal á Anfield. Arsenal-menn unnu …
Shownotes
Það var nóg að ræða eftir níundu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Það má segja að það hafi verið þrír stórleikir í umferðinni, sá síðasti í kvöld þegar Liverpool tók á móti Arsenal á Anfield. Arsenal-menn unnu þann leik og eru í hrikalega góðum málum. Manchester United er hins vegar ekki í góðum málum og eru bara fyrir ofan fallsvæðið á markatölu. Michael Carrick heldur sér samt í starfi. Brighton heldur þá áfram að koma á óvart á meðan Manchester City hefur tapað tveimur í röð. Rætt var um þetta og margt fleira í þætti kvöldsins. Guðmundur Aðalsteinn, Haraldur Örn og Magnús Atlason úr unglingastarfi Fótbolta.net fóru yfir málin í Coke stúdíóinu.Útvarpsþátturinn - Ljósin kveikt og allt á iði á skrifstofunum
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 31. október. Silly season special! Nú eru það leikmannahræringarnar og slúðrið sem ráða ríkjum og hinn frægi þjálfarakapall í fullum gangi. Ljósin kveikt og …
Shownotes
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 31. október. Silly season special! Nú eru það leikmannahræringarnar og slúðrið sem ráða ríkjum og hinn frægi þjálfarakapall í fullum gangi. Ljósin kveikt og allt á iði á skrifstofunum. Það er aðalmálið í þættinum í dag. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir allt það helsta og formaður fótboltans í Garðabænum, Halldór Orri Björnsson, kemur í heimsókn.38 umferðir - Aldrei treysta Joao Pedro
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu ásamt góðum gesti sem var enginn annar en Pálmi Freyr Hauksson fyrrum þáttastjórnandi Lélega Fantasy Podcastsins …
Shownotes
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu ásamt góðum gesti sem var enginn annar en Pálmi Freyr Hauksson fyrrum þáttastjórnandi Lélega Fantasy Podcastsins. Pálmi er ansi lunkinn Fantasy spilari og hefur farið vel af stað en deilir áhyggjum Sindra af framtíð Manchester United. Strákarnir fóru um víðan völl, ræddu 8. umferð, hvað á að gera við Joao Pedro og lögðu drög að 9. umferð.Uppbótartíminn - Einkunnir og verðlaun fyrir tímabilið
Bestu deild kvenna er lokið og í Uppbótartímanum er farið yfir liðið tímabil. Öll lið fá einkunn út frá væntingum og niðurstöðu, lið ársins er valið, leikmaður ársins er útnefndur sem og þjálfari ársins og …
Shownotes
Bestu deild kvenna er lokið og í Uppbótartímanum er farið yfir liðið tímabil. Öll lið fá einkunn út frá væntingum og niðurstöðu, lið ársins er valið, leikmaður ársins er útnefndur sem og þjálfari ársins og efnilegasti leikmaður tímabilsins. Guðmundur Aðalsteinn, Snæbjört Pálsdóttir og Arnar Páll Garðarsson komu sér vel fyrir í Coke stúdíóinu og fóru yfir allt það helsta.Enski boltinn - Búið spil hjá Carrick
Manchester United er mikið til umræðu í Enski boltinn hlaðvarpinu í dag eftir tvö hræðileg töp í röð. Þetta er búið spil hjá Michael Carrick en hvað tekur við næst? Tottenham virðist þá vera vaknað til lífsins …
Shownotes
Manchester United er mikið til umræðu í Enski boltinn hlaðvarpinu í dag eftir tvö hræðileg töp í röð. Þetta er búið spil hjá Michael Carrick en hvað tekur við næst? Tottenham virðist þá vera vaknað til lífsins en þeir unnu óvæntan sigur á Brúnni. Getur Liverpool barist um Englandsmeistaratitilinn og hvort er Aston Villa eða Newcastle á betri stað? Guðmundur Aðalsteinn, Haraldur Örn og Ólympíufarinn Brynjar Jökull Guðmundsson fóru yfir allt það helsta í Coke stúdíóinu.Innkastið - Bestu slúttað með sturlaðri lokaumferð
KA féll, Aron sló markametið og Lárus Orri var látinn fara frá ÍA. Innkastið eftir lokaumferð Bestu deildarinnar. Takk fyrir tímabilið! Elvar Geir, Valur Gunnars og Kári Snorra í hljóðveri.
Útvarpsþátturinn - Lífsbaráttu-laugardagur fyrir höfuðstað Norðurlands
Í útvarpsþættinum Fótbolti.net var hitað upp fyrir lokaumferð Bestu deildarinnar í beinni útsendingu og rætt um helstu fótboltafréttir vikunnar. Heyrt var í stuðningsmönnum og þeir fengnir til að meta …
Shownotes
Í útvarpsþættinum Fótbolti.net var hitað upp fyrir lokaumferð Bestu deildarinnar í beinni útsendingu og rætt um helstu fótboltafréttir vikunnar. Heyrt var í stuðningsmönnum og þeir fengnir til að meta tímabilið. Seinna í dag verður Innkastið svo í beinni útsendingu á X977, klukkan 18, þar sem umferðin verður gerð upp.Kiddi Jak fer yfir dómaramálin - Hvernig myndi VAR koma inn í Bestu?
Kristinn Jakobsson, fyrrverandi FIFA-dómari og einn fremsti knattspyrnudómari sem Ísland hefur átt, var gestur í hljóðveri þar sem hann ræddi stöðu dómgæslunnar hér á landi. Kristinn starfar nú sem …
Shownotes
Kristinn Jakobsson, fyrrverandi FIFA-dómari og einn fremsti knattspyrnudómari sem Ísland hefur átt, var gestur í hljóðveri þar sem hann ræddi stöðu dómgæslunnar hér á landi. Kristinn starfar nú sem eftirlitsdómari og veitti hann jafnframt innsýn í það starf.38 umferðir - Engilbert Aron special
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu ásamt fyrsta gesti vetrarins sem var enginn annar en Engilbert Aron fyrrum þáttastjórnandi Fantabragða. Engilbert …
Shownotes
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu ásamt fyrsta gesti vetrarins sem var enginn annar en Engilbert Aron fyrrum þáttastjórnandi Fantabragða. Engilbert Aron mætti í þáttinn á hentugum tíma þar sem hann átti frábæra umferð og fékk heil 97 stig. Strákarnir fóru um víðan völl, ræddu 7. umferð, meistaradeildina og lögðu drög að 8. umferð. Einnig kynntu þeir félagar gjafaleik sem þeir eru með í gangi og hlustendur geta tekið þátt í á Instagram. Til mikils að vinna en vinningar að þessu sinni eru 15.000 kr gjafabréf á Matarkjallarann, 2 miðar á Improv Ísland, 2 rútur af Thule, fæðubótarefni frá Ingling og gjafabréf í partípílu á Bullseye. Fresturinn til að gera breytingar rennur út föstudaginn 23. október kl. 17:30 en umferðin hefst á leik Ipswich - Nottingham Forest kl 19:00 sama dag.Innkastið - Yrði dýrasta liðið til að falla
Innkastið eftir næstsíðustu umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og sérstakur gestur er Haukur Páll Sigurðsson. Farið er yfir liðna umferð og spáð í spilin fyrir komandi umferð. Þá er sérstakt …
Shownotes
Innkastið eftir næstsíðustu umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og sérstakur gestur er Haukur Páll Sigurðsson. Farið er yfir liðna umferð og spáð í spilin fyrir komandi umferð. Þá er sérstakt lokahóf þar sem opinberað er val á liði ársins og bestu mönnum.Uppbótartíminn - Meistarar þriðja árið í röð
Breiðablik er Íslandsmeistari kvenna eftir sigur á Stjörnunni í kvöld, en FH tapaði gegn Þrótti á heimavelli í gær. Blikar hafa núna orðið Íslandsmeistarar þrjú ár í röð, virkilega vel gert hjá …
Shownotes
Breiðablik er Íslandsmeistari kvenna eftir sigur á Stjörnunni í kvöld, en FH tapaði gegn Þrótti á heimavelli í gær. Blikar hafa núna orðið Íslandsmeistarar þrjú ár í röð, virkilega vel gert hjá Kópavogsfélaginu. Í Uppbótaratímanum fóru Guðmundur Aðalsteinn, Arnar Páll og Snæbjört yfir leikina í síðustu umferð Bestu deildar kvenna, Íslandsmeistaratitil Blika, íslenska landsliðið og rústið gegn Króatíu og svo slúður.Enski boltinn - Best rekna félagið í deildinni?
Enski boltinn hlaðvarpið með breyttu og fersku sniði á sunnudegi. Guðmundur Aðalsteinn, Haraldur Örn og Sölvi Haralds fóru yfir helstu sögulínur í enska boltanum. Lisandro Martinez málið, sóknarmenn Liverpool …
Shownotes
Enski boltinn hlaðvarpið með breyttu og fersku sniði á sunnudegi. Guðmundur Aðalsteinn, Haraldur Örn og Sölvi Haralds fóru yfir helstu sögulínur í enska boltanum. Lisandro Martinez málið, sóknarmenn Liverpool skiluðu, Manchester City vinnur alla leiki þó það sé skuggi þar yfir, Brighton er fáránlega skemmtilegt lið og Fulham vann lífsnauðsynlegan sigur. Í lok þáttarins var þá farið í skemmtilegan leik.Útvarpsþátturinn - Spurningar í Bestu og enska hringborðið
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 17. október. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Fyrri hluti þáttarins fer í íslenska boltann, og spurningar fyrir lið Bestu deildarinnar. Valur Páll og Haraldur Örn á völlunum. Þá er …
Shownotes
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 17. október. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Fyrri hluti þáttarins fer í íslenska boltann, og spurningar fyrir lið Bestu deildarinnar. Valur Páll og Haraldur Örn á völlunum. Þá er rætt um agavandamál íslenska landsliðsins. Enska hringborðið er dregið fram seinni hlutann og gamall vinur þáttarins mætir í heimsókn, Kristján Atli Ragnarsson fer yfir stóru málin í enska boltanum.38 umferðir - Er of seint að kaupa De Cuyper?
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu eftir 6. umferð og lögðu á ráðin fyrir 7. umferð. Fresturinn til að gera breytingar rennur út laugardaginn 17 …
Shownotes
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu eftir 6. umferð og lögðu á ráðin fyrir 7. umferð. Fresturinn til að gera breytingar rennur út laugardaginn 17. október kl. 10:00 en umferðin hefst á leik Everton - Chelsea kl 11:30 sama dag.Enski boltinn - City á toppnum í storminum og hiti á Carrick
Enska úrvalsdeildin er aftur farin af stað eftir þriggja vikna landsleikjahlé. Það var nóg að ræða í Enski boltinn hlaðvarpinu að þessu sinni. Manchester City fór á Anfield og vann þar 0-3 sigur í skugga þess …
Shownotes
Enska úrvalsdeildin er aftur farin af stað eftir þriggja vikna landsleikjahlé. Það var nóg að ræða í Enski boltinn hlaðvarpinu að þessu sinni. Manchester City fór á Anfield og vann þar 0-3 sigur í skugga þess að hafa verið fundið sekt í 114 af 115 ákæruliðum í landsleikjahléinu. City er á toppnum en það veit enginn hvað gerist í framhaldinu. Það er mikill hiti á Michael Carrick eftir 1-1 jafntefli Manchester United og Tottenham, Jordan Henderson blés til sýningar hjá Chelsea og Arsenal vann endurkomusigur á sprækum Leedsurum. Farið var yfir allt þetta helsta. Guðmundur Aðalsteinn, Haraldur Örn og Arnór Gauti Ragnarsson eru í þættinum.Innkastið - Hvaða félög taka þátt í þjálfarakaplinum?
Innkastið eftir 25. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Kári Snorrason. Eyjamenn eru fallnir og annað af Akureyrarliðunum mun fylgja, KR-ingar hafa svo gott sem tryggt sér annað sætið og það …
Shownotes
Innkastið eftir 25. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Kári Snorrason. Eyjamenn eru fallnir og annað af Akureyrarliðunum mun fylgja, KR-ingar hafa svo gott sem tryggt sér annað sætið og það vantar ekki slúðursögurnar á þessum árstíma.Útvarpsþátturinn - Bestu agabrotin og U21 einvígi frá EM
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 10. október. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Farið er yfir fótboltafréttir vikunnar þar sem agabrot innan íslenska landsliðs bar hæst. Besta deildin fer aftur af stað …
Shownotes
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 10. október. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Farið er yfir fótboltafréttir vikunnar þar sem agabrot innan íslenska landsliðs bar hæst. Besta deildin fer aftur af stað og rýnt er í slúðrið. Sævar Pétursson framkvæmdastjóri KA kemur í heimsókn og ræðir um sínar pælingar varðandi umræðuna um að breyta fyrirkomulagi Bestu deildarinnar. Þá mætir Lúðvík Gunnarsson, þjálfari U21 landsliðsins, en liðið er einu einvígi gegn Grikklandi frá því að komast á EM.Gummi Torfa fer yfir allt sviðið fyrir stórleikinn
Fram hefur átt mjög gott tímabil, karlalið félagsins verður í Evrópukeppni næsta sumar í fyrsta sinn í rúman áratug og kvennaliðið hélt sæti sínu í Bestu deildinni þvert á spár. Fyrrum atvinnu- og …
Shownotes
Fram hefur átt mjög gott tímabil, karlalið félagsins verður í Evrópukeppni næsta sumar í fyrsta sinn í rúman áratug og kvennaliðið hélt sæti sínu í Bestu deildinni þvert á spár. Fyrrum atvinnu- og landsliðsmaðurinn Guðmundur Torfason, meðlimur í 19 marka klúbbnum, er formaður fótboltadeildar Fram. Gummi mætti á skrifstofu Fótbolta.net og ræddi við Sæbjörn Steinke í tilefni af stórleik Fram og KR sem fram fer annað kvöld og góðu tímabili Framara.Íslandsmeistarar fara yfir tímabilið
Óskar Borgþórsson og Daníel Hafsteinsson mættu í hljóðver til Kára Snorrasonar og fóru yfir tímabilið hjá Íslandsmeisturum Víkings. Víkingar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn á Meistaravöllum undir lok …
Shownotes
Óskar Borgþórsson og Daníel Hafsteinsson mættu í hljóðver til Kára Snorrasonar og fóru yfir tímabilið hjá Íslandsmeisturum Víkings. Víkingar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn á Meistaravöllum undir lok síðasta mánaðar og urðu þar með fyrsta liðið í tæpan áratug sem tekst að verja titilinn. Meðal umræðuefna var árangurinn í deildinni, rígurinn gegn KR og Evrópa.38 umferðir - Wildcard og vítamín
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu eftir lengsta landsleikjahlé sögunnar og lögðu á ráðin fyrir næstu umferð. Fresturinn til að gera breytingar rennur …
Shownotes
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu eftir lengsta landsleikjahlé sögunnar og lögðu á ráðin fyrir næstu umferð. Fresturinn til að gera breytingar rennur út laugardaginn 10. október kl. 10:00 en umferðin hefst á leik Arsenal - Leeds kl 11:30 sama dag.Innkastið - Ósáttir en ósigraðir
Innkastið gerir upp landsleikjagluggann hjá Íslandi og skoðar hvaða leiki verða um næstu helgi í Bestu deildinni. Elvar Geir, Valur Gunnars og Valur Páll Eiríksson í hljóðveri. Íslandi mistókst að vinna …
Shownotes
Innkastið gerir upp landsleikjagluggann hjá Íslandi og skoðar hvaða leiki verða um næstu helgi í Bestu deildinni. Elvar Geir, Valur Gunnars og Valur Páll Eiríksson í hljóðveri. Íslandi mistókst að vinna Eistland en er samt á toppi riðilsins, U21 landsliðið komst í umspil með frábærum lokakafla í riðli sínum og Besta deildin hefst loks að nýju eftir endalausan landsleikjaglugga.Uppbótartíminn - Leikur ársins og hvað verður um Val og Víking?
Valur og Víkingur féllu úr Bestu deild kvenna síðasta föstudag eftir rosalega lokaumferð í neðri hluta deildarinnar. Báðum liðum var spáð talsvert betra gengi en sumarið var virkilega erfitt. Í efri hlutanum …
Shownotes
Valur og Víkingur féllu úr Bestu deild kvenna síðasta föstudag eftir rosalega lokaumferð í neðri hluta deildarinnar. Báðum liðum var spáð talsvert betra gengi en sumarið var virkilega erfitt. Í efri hlutanum var líklega leikur ársins spilaður í dag þegar Þróttur heimsótti Breiðablik. Það er vonin að við fáum úrslitaleik í lokaumferðinni. Guðmundur Aðalsteinn og Arnar Páll Garðarsson fóru yfir þetta allt saman.Útvarpsþátturinn - Breytingar í Bestu og landsliðsleikdagur
Úvarpsþátturinn Fótbolti.net 3. október. Elvar Geir, Kári Snorra og Baldvin Borgars fara yfir það helsta í fótboltanum. Þátturinn er sendur út á leikdegi hjá landsliðinu. Frammistaða Íslands í Þjóðadeildinni er …
Shownotes
Úvarpsþátturinn Fótbolti.net 3. október. Elvar Geir, Kári Snorra og Baldvin Borgars fara yfir það helsta í fótboltanum. Þátturinn er sendur út á leikdegi hjá landsliðinu. Frammistaða Íslands í Þjóðadeildinni er skoðuð og hitað upp fyrir leik gegn Búlgaríu. Þá er farið yfir allt það helsta sem er í gangi í boltanum; mögulegar breytingar á Bestu deildinni, U21 landsliðið, mál Manchester City og fýluna í Ronaldo. Á línunni: Börkur Edvardsson og Benedikt Bóas Hinriksson.Hvað verður um Man City?
Fjármálaráðgjafinn Björn Berg Gunnarsson kom í hljóðver og ræddi við Kára Snorrason um stóra Manchester City-málið. Farið var yfir brotin, mögulegar refsingar, áfrýjunina og hvað gæti tekið við.
Hier stehen die neuesten 40 von 2.946 Folgen. Ältere Folgen findest du im Feed des Podcasts.
Ist das dein Podcast?
Bestätige es mit einem Eintrag in deinem Feed: Du bekommst hier einen Code, trägst ihn als podcast:txt in den Kanal deines Feeds ein, und wir prüfen ihn. Danach steht dein Podcast als „verifiziert“ bei SoundNode.