
Tré sem mótuðu mannkynssöguna
Shownotes
Í þættinum eru einstaka tré eða vissar tegundir trjáa skoðuð í ljósi sögunnar; tré sem hafa mótað söguna og jafnvel haft mikil áhrif á framvindu hennar. Rætt er um Karl II Englandskonung sem átti eik einni líf sitt að launa. Rýnt er í útþenslu Rómaveldis til norðurs og velt upp hvernig sú ásókn tengist timburnytjum. Einnig er sagt frá gróðursetningum Napóleons á súlu-svartöspum frá Langbarðalandi. Þá er rætt um draugaskipið Jamestown sem strandaði utan við Hafnir og þann mikla eikarfarm sem það hafði að geyma. Eikurnar úr Jamestown höfðu mikil áhrif á húsa- og brúarsmíði á Íslandi sem enn má njóta góðs af í dag. Þá kemur einnig Möðrufellsreynirinn við sögu.
Viðmælendur: Stefán Pálsson, Guðmundur Árland Hannesson og Steinar Björgvinsson.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.