Zum Inhalt springen
Hlaðvarp Lyfjastofnunar

Hlaðvarp Lyfjastofnunar

Neu35. Peptíð - Hjalti Kristinsson23.10.2026 · 33 Min.
Folgen
35
Erscheint
unregelmäßig
Letzte Folge
23. Okt. 2026

Über den Podcast

Fjallað um lyf og lyfjanotkun frá ýmsum sjónarhóli

Folgen 35

  1. 35. Peptíð - Hjalti Kristinsson

    33 Min.

    Peptíð virðast vera á allra vörum nú um stundir, umtal um þessi efni sem ganga kaupum og sölum eftir óhefðbundnum leiðum og eru sögð bæta heilsu og útlit með ýmsu móti. En hvað eru peptíð ? Hjalti Kristinsson …

    Shownotes
    Peptíð virðast vera á allra vörum nú um stundir, umtal um þessi efni sem ganga kaupum og sölum eftir óhefðbundnum leiðum og eru sögð bæta heilsu og útlit með ýmsu móti. En hvað eru peptíð ? Hjalti Kristinsson er doktor í lyfjafræði, sérfræðingur hjá Lyfjastofnun, og hann útskýrir hvað peptíð eru. Þetta séu efnakeðjur sem finnast í líkamanum en hafi líka verið nýtt í lyfjagerð um árabil, í meira mæli þó á síðari tímum. Og skyndilega jókst áhugi almennings svo um munaði, og margir virðast óhræddir við þá áhættu sem fylgir því að verða sér úti um það sem selt er sem peptíð utan löglegra leiða, og sprauta efnunum í líkamann. Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir
  2. 34. Hugtakið lyf - Viðar Guðjohnsen

    29 Min.

    Þótt flestir telji sig vita hvað lyf er, skiptir skilgreining hugtaksins miklu mál. Það getur til að mynda komið við sögu í sakamálum og einnig þegar verið er að greina á milli fæðubótarefna og lyfja. -Viðar …

    Shownotes
    Þótt flestir telji sig vita hvað lyf er, skiptir skilgreining hugtaksins miklu mál. Það getur til að mynda komið við sögu í sakamálum og einnig þegar verið er að greina á milli fæðubótarefna og lyfja. -Viðar Guðjohnsen lyfjafræðingur og sérfræðingur hjá Lyfjastofnun rýndi í hugtakið lyf í ritgerð sinnitil ML gráðu í lögfræði við Háskólann á Bifröst í vor. Hann segir frá í þessum þætti hlaðvarpsins. Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir
  3. 33. ADHD lyf í stórum skömmtum - Vilhjálmur Hjálmarsson; sérfræðingar Lyfjastofnunar í lyfjagát

    35 Min.

    Umræða um lyfjameðferð við ADHD kemur nokkuð reglulega upp, nú síðast með þeim upplýsingum að um fimmtungur ávísana á ADHD lyf sé upp á stærri skammta en ráðlagðir eru samkvæmt þeim rannsóknum sem markaðsleyfi …

    Shownotes
    Umræða um lyfjameðferð við ADHD kemur nokkuð reglulega upp, nú síðast með þeim upplýsingum að um fimmtungur ávísana á ADHD lyf sé upp á stærri skammta en ráðlagðir eru samkvæmt þeim rannsóknum sem markaðsleyfi byggja á. Í þessum þætti í hlaðvarpi Lyfjastofnunar er rætt um þessi mál við Vilhjálm Hjálmarsson, formann ADHD samtakanna, og Guðrúnu Stefánsdóttur og Guðrúnu Selmu Steinarsdóttur, sérfræðinga hjá Lyfjastofnun sem m.a. sinna vinnslu aukaverkanatilkynninga. -Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir
  4. 32. Lyfjaendurskoðun - Einar Stefán Björnsson

    22 Min.

    Umfjöllun hlaðvarpsins að þessu sinni tengist málþingi sem fram fór í byrjun októbermánaðar þar sem fjallað var um skynsamlega endurskoðun lyfjameðferða, með sérstaka áherslu á fjöllyfjanotkun. Einn frummælenda …

    Shownotes
    Umfjöllun hlaðvarpsins að þessu sinni tengist málþingi sem fram fór í byrjun októbermánaðar þar sem fjallað var um skynsamlega endurskoðun lyfjameðferða, með sérstaka áherslu á fjöllyfjanotkun. Einn frummælenda á málþinginu var Einar Stefán Björnsson, prófessor við HÍ og lyflæknir á Landspítala. Hann fræðir hér um hvernig slík endurskoðun fer fram, talar um að þessum þætti lækninga mætti sinna í meira mæli, og hver ávinningurinn getur orðið. Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir
  5. 31. Um heiti lyfja - Brynjar Örvarsson

    24 Min.

    Hvernig eru heiti lyfja valin, eru einhver viðmið sem þarf að fara eftir ? Þessum og fleiri spurningum er beint til Brynjars Örvarssonar, lyfjafræðings og sérfræðings hjá Lyfjastofnun. Hann hefur um árabil …

    Shownotes
    Hvernig eru heiti lyfja valin, eru einhver viðmið sem þarf að fara eftir ? Þessum og fleiri spurningum er beint til Brynjars Örvarssonar, lyfjafræðings og sérfræðings hjá Lyfjastofnun. Hann hefur um árabil setið í nefnd hjá Lyfjastofnun Evrópu þar sem fjallað er um tillögur að lyfjaheitum. Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir
  6. 30. Að ferðast með lyf - Viðar Guðjohnsen

    18 Min.

    Ákveðnar reglur gilda þegar ferðast er með lyf milli landa. Þær eru að einhverju marki mismunandi eftir löndum og heimssvæðum. Gott er að glöggva sig á þessum reglum áður en haldið er af stað, ferðalangar gætu …

    Shownotes
    Ákveðnar reglur gilda þegar ferðast er með lyf milli landa. Þær eru að einhverju marki mismunandi eftir löndum og heimssvæðum. Gott er að glöggva sig á þessum reglum áður en haldið er af stað, ferðalangar gætu þurft að gera grein fyrir lyfjunum sem þeir hafa meðferðis ef til tollskoðunar kemur. -Viðar Guðjohnsen lyfjafræðingur og eftirlitsmaður hjá Lyfjastofnun fer yfir helstu reglur sem gilda á þessu sviði. Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir
  7. 29. Lyf við sumartengdu ofnæmi - Erla Hlín Henrysdóttir

    14 Min.

    Í þessum þætti í Hlaðvarpi Lyfjastofnunar er fjallað um lyf við sumartengdu ofnæmi, ofnæmi vegna frjókorna og skordýrabita. Erla Hlín Henrysdóttir, lyfjafræðingur í samskiptadeild Lyfjastofnunar, segir frá því …

    Shownotes
    Í þessum þætti í Hlaðvarpi Lyfjastofnunar er fjallað um lyf við sumartengdu ofnæmi, ofnæmi vegna frjókorna og skordýrabita. Erla Hlín Henrysdóttir, lyfjafræðingur í samskiptadeild Lyfjastofnunar, segir frá því að ýmis lyf sem geta slegið á óþægindi vegna þessa séu í boði, þar á meðal lausasölulyf. Hún hvetur fólk til að afla sér upplýsinga um lyf áður en notkun þeirra hefst. Benda má á lyfjafræðinga og lyfjatækna apótekanna, og fylgiseðla sem finna má á lyf.is. Grein um sumartengt ofnæmi má lesa á vefnum lyfjastofnun.is. Umsjón hlaðvarps: Hanna G. Sigurðardóttir
  8. 28. Að þiggja ódýrari valkost í stað ávísaðs lyfs - Ólöf Þórhallsdóttir

    14 Min.

    Oft er hægt að draga úr lyfjakostnaði með því að velja ódýrara sambærilegt lyf. Lyfjastofnun raðar lyfjum í svokallaða skiptiskrá og þar eru flokkuð saman sambærileg lyf í sama viðmiðunarverðflokki, sem þó geta …

    Shownotes
    Oft er hægt að draga úr lyfjakostnaði með því að velja ódýrara sambærilegt lyf. Lyfjastofnun raðar lyfjum í svokallaða skiptiskrá og þar eru flokkuð saman sambærileg lyf í sama viðmiðunarverðflokki, sem þó geta verið á mismunandi verði. Þetta er það sem um ræðir þegar sjúklingum er boðið samheitalyf í apóteki, þ.e. sama lyf frá öðrum framleiðanda. Þá er um ódýrari valkost að ræða en lyfið sem læknirinn ávísaði. Í hlaðvarpsþættinum fræðir Ólöf Þórhallsdóttir, lyfjafræðingur og sviðsstjóri Umsókna- og samskiptasviðs Lyfjastofnunar, um frumlyf og samheitalyf, hvernig ódýrari valkostur verkar á sama hátt og ávísaða lyfið, og hvernig slíkur valkostur kemur bæði sjúklingnum og samfélaginu til góða. Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir
  9. 27. Lyf fyrir lítil börn í Afríku - Sveinbjörn Gizurarson

    15 Min.

    Sveinbjörn Gizurarson prófessor í lyfjafræði segir frá verkefni sem hann hefur unnið að síðustu sex ár, við að þróa nýtt lyfjaform malaríulyfs, og koma á fót lyfjaverksmiðju í Malaví. -Þessi saga fylgdi óvænt …

    Shownotes
    Sveinbjörn Gizurarson prófessor í lyfjafræði segir frá verkefni sem hann hefur unnið að síðustu sex ár, við að þróa nýtt lyfjaform malaríulyfs, og koma á fót lyfjaverksmiðju í Malaví. -Þessi saga fylgdi óvænt með sem bónus þegar rætt var við Sveinbjörn um líftæknilyfshliðstæður í síðasta hlaðvarpsþætti. Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir
  10. 26. Líftæknilyf og líftæknilyfshliðstæður - Páll Þór Ingvarsson og Sveinbjörn Gizurarson

    40 Min.

    Í þessum þætti er fjallað um líftæknilyf og líftæknilyfshliðstæður. Töluverður munur er á líftæknilyfjum (e. biologics) og eldri hefðbundnum lyfjum. Þau síðarnefndu eru efnasmíðuð sem kallað er, líftæknilyfin …

    Shownotes
    Í þessum þætti er fjallað um líftæknilyf og líftæknilyfshliðstæður. Töluverður munur er á líftæknilyfjum (e. biologics) og eldri hefðbundnum lyfjum. Þau síðarnefndu eru efnasmíðuð sem kallað er, líftæknilyfin framleidd með aðstoð lífvera. Líftæknilyfshliðstæður (biosimilars) eru síðan nokkurs konar samheitalyf líftæknilyfja. -Rætt er við Pál Þór Ingvarsson lektor og Sveinbjörn Gizurarson prófessor við lyfjafræðideild Háskóla Íslands. Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir
  11. 25. Aðgerðir Lyfjastofnunar til að sporna gegn lyfjaskorti - Rúna Hauksdóttir Hvannberg

    15 Min.

    Rúna Hauksdóttir Hvannberg forstjóri Lyfjastofnunar segir frá þeim aðgerðum sem ráðist hefur verið í til að sporna gegn lyfjaskorti, og undirstrikar að eitt af hlutverkum stofnunarinnar samkvæmt lyfjalögum er …

    Shownotes
    Rúna Hauksdóttir Hvannberg forstjóri Lyfjastofnunar segir frá þeim aðgerðum sem ráðist hefur verið í til að sporna gegn lyfjaskorti, og undirstrikar að eitt af hlutverkum stofnunarinnar samkvæmt lyfjalögum er að sinna eftirliti með framboði lyfja. Meðal þess sem eflt hefur verið er lyfjaskortsteymið, en það miðlar upplýsingum um fyrirsjáanlegan skort á vef stofnunarinnar og leitar lausna til að draga úr áhrifum skorts. Ýmis konar einföldun vegna skráningarferla hefur komið til, og til skoðunar er hvernig rafrænar lausnir geta orðið til að draga úr líkum á lyfjaskorti. Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir
  12. 24. Lyf, ferðalög og sól - Jana Rós Reynisdóttir

    13 Min.

    Í þessum þætti í hlaðvarpi Lyfjastofnunar verður rætt um lyf í sumartengdu samhengi. Lyf meðferðis á ferðalögum til annarra landa annars vegar, lyf og sólarljós hins vegar. Hvað má t.d. taka lyf með sér til …

    Shownotes
    Í þessum þætti í hlaðvarpi Lyfjastofnunar verður rætt um lyf í sumartengdu samhengi. Lyf meðferðis á ferðalögum til annarra landa annars vegar, lyf og sólarljós hins vegar. Hvað má t.d. taka lyf með sér til langs tíma á ferðalögum til útlanda, og síðan er vakin athygli á því að sum lyf geta valdið húðútbrotum ef sá sem þau notar er óvarinn fyrir sólarljósi. -Jana Rós Reynisdóttir er deildarstjóri samskiptadeildar Lyfjastofnunar fer yfir það helsta í þessum málum í þættinum. Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir
  13. 23. Ópíóíðar - Magnús Karl Magnússon og Sigríður Zoëga

    41 Min.

    Í byrjun árs var í fjölmiðlum fjallað um misnotkun ópíóíð-lyfja hérlendis, um svipað leyti og margir landsmenn horfðu á sjónvarpsþáttaserínuna Dopesick. Sú þáttaröðrekur sögu ópíóíðafaraldursins í Bandaríkjunum …

    Shownotes
    Í byrjun árs var í fjölmiðlum fjallað um misnotkun ópíóíð-lyfja hérlendis, um svipað leyti og margir landsmenn horfðu á sjónvarpsþáttaserínuna Dopesick. Sú þáttaröðrekur sögu ópíóíðafaraldursins í Bandaríkjunum sem rekja má til vafasamrar markaðssetningar framleiðandans Purdue Pharma á lyfinu Oxycontin. Í þessum hlaðvarpsþætti er fjallað um ópíóíða. Hvers konar lyf eru þetta, hvernig verka þau á líkamann, hvað gerir að verkum að þau slá svo mjög á sársauka og eru jafn ávanabindandi og raun ber vitni. Rætt er við Magnús Karl Magnússon prófessor við læknadeild Háskóla Íslands, og Sigríði Zoëga, sérfræðing í hjúkrun á verkjamiðstöð Landspítala. -Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir
  14. 22. Hvernig er metið hvort lyf og bóluefni séu hæf til notkunar ? – Hrefna Guðmundsdóttir

    27 Min.

    Til að lyf og bóluefni komist á markað þurfa lyfjafyrirtæki að senda gögn úr rannsóknum sem lyfjayfirvöld yfirfara. Í Evrópu fer sú vinna fram á vettvangi Lyfjastofnunar Evrópu, meginvinnan í ýmsum …

    Shownotes
    Til að lyf og bóluefni komist á markað þurfa lyfjafyrirtæki að senda gögn úr rannsóknum sem lyfjayfirvöld yfirfara. Í Evrópu fer sú vinna fram á vettvangi Lyfjastofnunar Evrópu, meginvinnan í ýmsum sérfræðinganefndum. Í þessum hlaðvarpsþætti er sagt frá vinnu og verklagi í þeim helstu, með verkefnin sem snúa að COVID-19 faraldrinum sérstaklega í huga; hvernig unnið er að því að meta hvort lyf og bóluefni séu hæf til notkunar. Sérfræðingar Lyfjastofnunar taka þátt í starfi þessara nefnda. Einn þeirra, Hrefna Guðmundsdóttir yfirlæknir Lyfjastofnunar, segir hér frá starfi þriggja nefnda, m.a. sérfræðinganefndinni sem ráðleggur með hvaða hætti skal rannsaka lyf og bóluefni hjá börnum. -Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir
  15. 21. Saga bólusetninga á Íslandi - Haraldur Briem

    28 Min.

    Fjallað er um sögu bólusetninga á Íslandi, bólusetningar barna fyrst og fremst. Byrjað er á að rifja upp upphafið að þeirri byltingu í lýðheilsumálum sem kúabólusetningin var, framtak frumkvöðulsins Edwards …

    Shownotes
    Fjallað er um sögu bólusetninga á Íslandi, bólusetningar barna fyrst og fremst. Byrjað er á að rifja upp upphafið að þeirri byltingu í lýðheilsumálum sem kúabólusetningin var, framtak frumkvöðulsins Edwards Jenner. Síðan rakið hvenær byrjað var að bólusetja gegn helstu smitsjúkdómum á Íslandi, í frásögn Haraldar Briem fyrrverandi sóttvarnalæknis. Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir
  16. 20. COVID-19: Örvunarbólusetningar - Björn Rúnar Lúðvíksson

    20 Min.

    Rætt er við Björn Rúnar Lúðvíksson yfirlækni á ónæmisfræðideild Landspítalans og prófessor í ónæmisfræði við Háskóla Íslands. Björn Rúnar skýrir hvers vegna örvunarskammtur til viðbótar við fullbólusetningu er …

    Shownotes
    Rætt er við Björn Rúnar Lúðvíksson yfirlækni á ónæmisfræðideild Landspítalans og prófessor í ónæmisfræði við Háskóla Íslands. Björn Rúnar skýrir hvers vegna örvunarskammtur til viðbótar við fullbólusetningu er mikilvægur, hvaða rannsóknir liggja fyrir um áhrif örvunarskammts, og hverjar niðurstöður þeirra eru. Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir
  17. 19. COVID-19: Bólusetning barna og unglinga 12-15 ára - Valtýr Stefánsson Thors

    22 Min.

    Rætt við Valtý Stefánsson Thors barnasmitsjúkdómalækni um hvað rannsóknir segja um bólusetningu þessa aldurshóps, um aukaverkanir bæði algengar og sjaldgæfari, hugsanlegar áhyggjur foreldra, og mat á því hvort …

    Shownotes
    Rætt við Valtý Stefánsson Thors barnasmitsjúkdómalækni um hvað rannsóknir segja um bólusetningu þessa aldurshóps, um aukaverkanir bæði algengar og sjaldgæfari, hugsanlegar áhyggjur foreldra, og mat á því hvort kostir bólusetningar vegi þyngra en mögulegir ókostir. Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir
  18. 18. Meira um bóluefni gegn COVID-19 - Ingileif Jónsdóttir

    39 Min.

    Nú er tæplega hálft ár síðan fyrsta bóluefnið gegn COVID-19 fékk íslenskt markaðsleyfi, sem og frá bólusetningarátakinu sem hófst nokkrum dögum síðar. Við ætlum því að nýju að ræða um bóluefnin í Hlaðvarpi …

    Shownotes
    Nú er tæplega hálft ár síðan fyrsta bóluefnið gegn COVID-19 fékk íslenskt markaðsleyfi, sem og frá bólusetningarátakinu sem hófst nokkrum dögum síðar. Við ætlum því að nýju að ræða um bóluefnin í Hlaðvarpi Lyfjastofnunar, þau bóluefni sem hafa verið notuð hérlendis. Um með hvaða hætti þeim er ætlað að ræsa ónæmiskerfið til varna, um virkni þeirra, og hugsanlegar aukaverkanir sem þeim geta fylgt. -Rætt er við Ingileif Jónsdóttur, prófessor í ónæmisfræði við læknadeild Háskóla Íslands, og deildarstjóra hjá Íslenskri erfðagreiningu í smit- og bólgusjúkdómum. Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir
  19. 17. Bóluefni gegn COVID-19 - Rúna Hauksdóttir Hvannberg og Kolbeinn Guðmundsson

    24 Min.

    Fjallað um þróun bóluefna gegn COVID-19. Hvernig öllum ferlum hefur verið flýtt, þar á meðal matsferlum Lyfjastofnunar Evrópu (EMA), og rætt um áhyggjur fólks af hinni hröðu framvindu. Þá er sagt frá hvernig …

    Shownotes
    Fjallað um þróun bóluefna gegn COVID-19. Hvernig öllum ferlum hefur verið flýtt, þar á meðal matsferlum Lyfjastofnunar Evrópu (EMA), og rætt um áhyggjur fólks af hinni hröðu framvindu. Þá er sagt frá hvernig þeim bóluefnum sem hafa komið við sögu hjá EMA fram til þessa er ætlað að verka í líkamanum til að kalla fram ónæmi gegn sjúkdómnum. Rætt við Rúnu Hauksdóttur Hvannberg forstjóra Lyfjastofnunar, og Kolbein Guðmundsson yfirlækni stofnunarinnar. Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir
  20. 16. Lyf á meðgöngu og við brjóstagjöf - Guðrún Stefánsdóttir

    13 Min.

    Þegar kona verður barnshafandi er að mörgu að hyggja í því sem snýr að heilsufari. Eitt af því er lyfjanotkun, hvað er óhætt og hvað þarf að varast í þeim efnum. Því eins og segir á vef heilsugæslunnar berast …

    Shownotes
    Þegar kona verður barnshafandi er að mörgu að hyggja í því sem snýr að heilsufari. Eitt af því er lyfjanotkun, hvað er óhætt og hvað þarf að varast í þeim efnum. Því eins og segir á vef heilsugæslunnar berast flest lyf sem mælast í blóði móður, í gegnum fylgjuna til fóstursins. -Rætt er við Guðrúnu Stefánsdóttur lyfjafræðing, teymisstjóra í matsdeild Lyfjastofnunar, og einn helsta sérfræðing stofnunarinnar í því sem snýr að aukaverkunum lyfja. - Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir
  21. 15. Covid-tengd umræða - Klínískar lyfjarannsóknir. Kolbeinn Guðmundsson og Hjalti Kristinsson

    33 Min.

    Nú á tímum Covid-19 faraldursins heyrist oftar en áður talað um klínískar rannsóknir á lyfjum og bóluefnum, rannsóknir sem ýmist eru að hefjast eða þegar hafnar. En hvað eru klínískar lyfjarannsóknir, hvernig …

    Shownotes
    Nú á tímum Covid-19 faraldursins heyrist oftar en áður talað um klínískar rannsóknir á lyfjum og bóluefnum, rannsóknir sem ýmist eru að hefjast eða þegar hafnar. En hvað eru klínískar lyfjarannsóknir, hvernig fara þær fram, hverjir taka þátt í þeim, hvernig er eftirliti með þeim háttað ? –Í þessum hlaðvarpsþætti Lyfjastofnunar útskýra tveir af sérfræðingum stofnunarinnar, þeir Kolbeinn Guðmundsson yfirlæknir og Hjalti Kristinsson deildarstjóri lyfjaöryggisdeildar, í hverju þessar rannsóknir felast, og hversu mikilvægur þáttur þær eru í því sem snýr að öryggi lyfja áður en þau eru sett á markað. – Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir
  22. 14. Verkefni Lyfjastofnunar á tímum COVID-19 - Rúna Hauksdóttir Hvannberg og Kolbein Guðmundss.

    30 Min.

    Á tímum COVID-19 hefur starfsemi Lyfjastofnunar að stærstum hluta snúist um verkefni sem tengjast heimsfaraldrinum. Hér er rætt við Rúnu Hauksdóttur Hvannberg forstjóra um hvernig unnið hefur verið að því að …

    Shownotes
    Á tímum COVID-19 hefur starfsemi Lyfjastofnunar að stærstum hluta snúist um verkefni sem tengjast heimsfaraldrinum. Hér er rætt við Rúnu Hauksdóttur Hvannberg forstjóra um hvernig unnið hefur verið að því að tryggja lyfjabirgðir í landinu og koma í veg fyrir skort vegna hamsturs. Þá er rætt við Kolbein Guðmundsson lækni og sérfræðing hjá Lyfjastofnun um samvinnu lyfjastofnana í Evrópu við að flýta fyrir rannsóknum og þróun lyfja og bóluefnis við sjúkdómnum. Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir
  23. 13. Lyfjaskortur - ástæður og úrræði - Hjalti Kristinsson

    24 Min.

    Síðustu misseri hefur í auknum mæli verið fjallað um lyfjaskort í fjölmiðlum enda hefur vandi vegna lyfjaskorts farið vaxandi. -Lengi var viðtekinn skilningur hér heima sá, að lyfjaskorts yrði sérstaklega vart …

    Shownotes
    Síðustu misseri hefur í auknum mæli verið fjallað um lyfjaskort í fjölmiðlum enda hefur vandi vegna lyfjaskorts farið vaxandi. -Lengi var viðtekinn skilningur hér heima sá, að lyfjaskorts yrði sérstaklega vart á Íslandi og einangrun væri um að kenna en svo er ekki; lyfjaskortur er alþjóðlegt vandamál. Hér er rætt við Hjalta Kristinsson deildarstjóra lyfjaöryggisdeildar Lyfjastofnunar. Talað erum ástæður lyfjaskorts, hvort skortur tengist ákveðnum lyfjaflokkum, til hvaða úrræða Lyfjastofnun hefur gripið, og samvinnu lyfjastofnana í Evrópu til að takast á við vanda vegna lyfjaskorts. Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir
  24. 12. Aukaverkanatilkynningar - Guðrún Stefánsdóttir

    16 Min.

    Aukaverkanatilkynningar veita miklivægar upplýsingar um verkun og öryggi lyfja. Rætt við Guðrúnu Stefánsdóttur lyfjafræðing, einn helsta sérfræðing Lyfjastofnunar í því sem snýr að aukaverkunum lyfja. M.a …

    Shownotes
    Aukaverkanatilkynningar veita miklivægar upplýsingar um verkun og öryggi lyfja. Rætt við Guðrúnu Stefánsdóttur lyfjafræðing, einn helsta sérfræðing Lyfjastofnunar í því sem snýr að aukaverkunum lyfja. M.a. fjallað um hvernig tilkynningar um aukaverkanir eru unnar og meðhöndlaðar, hverju slíkar tilkynningar skila, og spurt hvort ekki séu til nein lyf sem eru án aukaverkana. Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir
  25. 11. Sýklalyfjaónæmi - Kolbeinn Guðmundsson

    13 Min.

    Dagana 18. -24. nóvember 2019 stendur yfir alþjóðleg vitundarvika um sýklalyfjaónæmi og skynsamlega notkun sýklalyfja. -Rætt við Kolbein Guðmundsson, yfirlækni Lyfjastofnunar um hvernig sýklalyf verka, og …

    Shownotes
    Dagana 18. -24. nóvember 2019 stendur yfir alþjóðleg vitundarvika um sýklalyfjaónæmi og skynsamlega notkun sýklalyfja. -Rætt við Kolbein Guðmundsson, yfirlækni Lyfjastofnunar um hvernig sýklalyf verka, og hvernig ónæmi gegn sýklalyfjum getur orðið til. Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir
  26. 10. Insúlín - alþjóðlegur dagur sykursýki - Hrefna Guðmundsdóttir

    14 Min.

    Þann 14. nóvember er árlega haldinn alþjóðlegur dagur sykursýki til að vekja athygli á sjúkdómnum. Sykursýki stafar af ójafnvægi í insúlínbúskap líkamans, eða jafnvel algjörum skorti á insúlíni. Úr því þarf að …

    Shownotes
    Þann 14. nóvember er árlega haldinn alþjóðlegur dagur sykursýki til að vekja athygli á sjúkdómnum. Sykursýki stafar af ójafnvægi í insúlínbúskap líkamans, eða jafnvel algjörum skorti á insúlíni. Úr því þarf að bæta með lyfjagjöf. -Rætt við Hrefnu Guðmundsdóttur lyflækni og sérfræðing hjá Lyfjastofnun. Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir
  27. 9. - Hlutverk Lyfjastofnunar - Rúna Hauksdóttir Hvannberg

    16 Min.

    Þegar þetta hlaðvarp fer í loftið eru nákvæmlega 19 ár frá því að Lyfjastofnun hóf starfsemi. Af því tilefni er fjallað um hlutverk og starfsemi stofnunarinnar. Rætt við Rúnu Hauksdóttur Hvannberg, forstjóra …

    Shownotes
    Þegar þetta hlaðvarp fer í loftið eru nákvæmlega 19 ár frá því að Lyfjastofnun hóf starfsemi. Af því tilefni er fjallað um hlutverk og starfsemi stofnunarinnar. Rætt við Rúnu Hauksdóttur Hvannberg, forstjóra Lyfjastofnunar, sem segir frá ýmsum áskorunum í starfinu svo sem lyfjaskorti, eftirliti með lækningalækjum og Brexit. Einnig eru nefndar til sögunnar systur tvær frá Sjanghæ ! Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir
  28. 8. Netverslun með lyf – Sindri Kristjánsson

    20 Min.

    Verslun og viðskipti á netinu færast í vöxt, og lyf eru seld þar eins og hver annar varningur. Og þó - því lyf eru ekki eins og hver annar varningur að því leyti að um framleiðslu þeirra, dreifingu og geymslu …

    Shownotes
    Verslun og viðskipti á netinu færast í vöxt, og lyf eru seld þar eins og hver annar varningur. Og þó - því lyf eru ekki eins og hver annar varningur að því leyti að um framleiðslu þeirra, dreifingu og geymslu gilda strangari reglur en um flestar aðrar vörur. Allt er það með öryggi notandans í huga, því afleiðingar af notkun lyfs sem ekki hefur fengið vottun lyfjayfirvalda um ítrustu kröfur, geta verið alvarlegar. Ríki heims hafa því víðast hvar sett skýrar reglur um sölu lyfja gegnum netið. Á EES svæðinu hefur þannig verið innleitt sameiginlegt kennimerki fyrir netapótek, til að aðstoða neytendur við að beina viðskiptum sínum til lögmætra vefverslana með lyf. Kennimerkinu er ætlað að fyrirbyggja að ólögleg og fölsuð lyf fari í dreifingu til almennings. –Rætt við Sindra Kristjánsson, lögfræðing hjá Lyfjastofnun. Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir
  29. 7. Samheitalyf – þau lúta sömu gæðakröfum og frumlyf - Rúnar Guðlaugsson

    16 Min.

    Hefur þér verið boðið samheitalyf í apóteki og þú verið á báðum áttum ? Hér er skýrt hvað samheitalyf eru og að hvaða leyti þau eru frábrugðin frumlyfinu sem þau eru byggð á. –Rætt við Rúnar Guðlaugsson …

    Shownotes
    Hefur þér verið boðið samheitalyf í apóteki og þú verið á báðum áttum ? Hér er skýrt hvað samheitalyf eru og að hvaða leyti þau eru frábrugðin frumlyfinu sem þau eru byggð á. –Rætt við Rúnar Guðlaugsson lyfjafræðing, sérfræðing á upplýsingadeild Lyfjastofnunar. Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir
  30. 6. Fylgiseðlar lyfja - uppáhaldslesningin þín ? - Jana Rós Reynisdóttir

    11 Min.

    Öllum lyfjum sem eru á markaði fylgja upplýsingar fyrir notendur. Í pakkningum lyfja eru þannig prentaðir fylgiseðlar á blaði, en fylgiseðla má líka nálgast rafrænt á serlyfjaskra.is -En hvaða upplýsingar …

    Shownotes
    Öllum lyfjum sem eru á markaði fylgja upplýsingar fyrir notendur. Í pakkningum lyfja eru þannig prentaðir fylgiseðlar á blaði, en fylgiseðla má líka nálgast rafrænt á serlyfjaskra.is -En hvaða upplýsingar geymir fylgiseðillinn ? Jana Rós Reynisdóttir deildarstjóri hjá Lyfjastofnun fer yfir það og segir litla dæmisögu sem sýnir hve mikilvægt er að lesa fylgiseðilinn áður en byrjað er að nota lyfið. Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir
Ist das dein Podcast?

Bestätige es mit einem Eintrag in deinem Feed: Du bekommst hier einen Code, trägst ihn als podcast:txt in den Kanal deines Feeds ein, und wir prüfen ihn. Danach steht dein Podcast als „verifiziert“ bei SoundNode.

Einstellungen

Darstellung

Sprache

Bestimmt, welche Sender dir auf der Startseite zuerst gezeigt werden.

Verlauf

Zuletzt gehörte Sender und Folgen und deine letzten Suchen liegen nur in diesem Browser.

Hinweise

Ein kurzer Hinweis, wenn ein Podcast, dem du folgst, eine neue Folge hat. Einzelne Podcasts stellst du über die Glocke auf ihrer Seite ab.

Konto

Favoriten speichern – in der App und auf der Website.

Tastenkürzel

/
Suche öffnen
Leertaste
Abspielen oder anhalten
← →
Im Player: 15 s zurück, 30 s vor (Folgen) · im Regal: nächste Kachel
↑ ↓
Im Regal: Ziel innerhalb der Kachel
Pos1 / Ende
Im Regal: erste bzw. letzte Kachel
Esc
Fenster oder Menü schließen
?
Diese Übersicht
Läuft gerade

Zur Senderseite

Als Nächstes

    Folgen mit „Als Nächstes“ vormerken – sie laufen nach der aktuellen Folge.