
Hlaðvarp Myntkaupa
- Folgen
- 132
- Erscheint
- wöchentlich
- Letzte Folge
- 7. Nov. 2026
Über den Podcast
Hlaðvarp Myntkaupa er nýtt hlaðvarp sem fjallar um allt tengt bitcoin og hvað er að gerast í hinum síbreytilega heimi rafmynta. Við fáum til okkar góða gesti og fjöllum um málefni sem tengjast rafmyntum. Myntkaup er vinsælasti staðurinn fyrir Íslendinga til að stunda viðskipti með Bitcoin og aðrar rafmyntir. Rúmlega 4% Íslendinga nota Myntkaup til þess að kaupa og selja bitcoin. Þú finnur okkur á myntkaup.is eða með því að sækja Myntkaup appið í App Store eða Google Play store.
Folgen 132
Bandarísk hlutabréf og crypto taka væna dýfu - HYPE og fleiri myntir bætast við vöruúrval Myntkaupa!
Meira en 1000 milljarðar dollara þurrkuðust út úr bandarískum hlutabréfum á fimmtudaginn og crypto markaðurinn tók væna dýfu samhliða. Nýjar atvinnutölur komu út í USA og sýndu fram á enn sterkara atvinnulíf en …
Shownotes
Meira en 1000 milljarðar dollara þurrkuðust út úr bandarískum hlutabréfum á fimmtudaginn og crypto markaðurinn tók væna dýfu samhliða. Nýjar atvinnutölur komu út í USA og sýndu fram á enn sterkara atvinnulíf en spár gerðu ráð fyrir. Rykið hefur að mörgu leyti sest í Binance málinu og var farið yfir það í þessum þætti. Myntkaup kynnti til leiks þrjár nýjar myntir, þar á meðal HYPE, TAO og NEAR og var fjallað um þær.
Stærsta rán crypto sögunnar - Markaðir nötra af hræðslu
Í þessum þætti er nær eingöngu fjallað um einn stæra viðburð crypto sögunnar, en um sex milljörðum dollara var stolið af Binance, stærstu rafmyntakauphöll heims. Viðburðurinn er sögulegur fyrir margra hluta …
Shownotes
Í þessum þætti er nær eingöngu fjallað um einn stæra viðburð crypto sögunnar, en um sex milljörðum dollara var stolið af Binance, stærstu rafmyntakauphöll heims. Viðburðurinn er sögulegur fyrir margra hluta sakir og er farið yfir öll þau atriði sem fram hafa komið í þessum þætti.
Markaðir fá skell - Bitcoin berst við að halda 80k
Í þessum þætti er fjallað um það helsta sem gerðist í vikunni á mörkuðum. Meira og minna allir markaðir lækkuðu töluvert, einkum hlutabréfamarkaðir um allan heim. Bitcoin hefur sýnt þrautseigju og ljóst er að …
Shownotes
Í þessum þætti er fjallað um það helsta sem gerðist í vikunni á mörkuðum. Meira og minna allir markaðir lækkuðu töluvert, einkum hlutabréfamarkaðir um allan heim. Bitcoin hefur sýnt þrautseigju og ljóst er að talsverður stuðningur er við 80k verðmiðann. Hvort hann haldi verður að fá að koma í ljós, en mikið útflæði úr kauphallarsjóðum í lok vikunnar setti strik í reikninginn. Þá er farið yfir helstu fréttir, þar með talið bálkakeðjuverkefni JP Morgan og HSBC.
Áhyggjur af gervigreindinni hjaðna - Útflæði heldur áfram úr kauphallarsjóðum
Í þessum þætti er farið yfir hreyfingar markaðarins. Bitcoin fór undir 80k í stutta stund en náði sér aftur yfir 80k. Verðbólga heldur áfram að aukast í Bandaríkjunum. Útflæði heldur sömuleiðis áfram úr …
Shownotes
Í þessum þætti er farið yfir hreyfingar markaðarins. Bitcoin fór undir 80k í stutta stund en náði sér aftur yfir 80k. Verðbólga heldur áfram að aukast í Bandaríkjunum. Útflæði heldur sömuleiðis áfram úr kauphallarsjóðunum, einkum ETH. Nýjar raddir heyrast í umræðunni um gervigreind og benda á að ekki sé tilefni til óðagots. Þetta og margt fleira í þessum þætti.
Bitcoin slær aðeins til baka - Gætu framfarir gervigreindar falið í sér ógn við crypto?
Í þessum þætti er farið yfir það helsta sem gerðist síðustu viku. Vikan einkenndist af talsverðum lækkunum og eftir mikið innflæði í ágúst og september hjá kauphallarsjóðunum hefur verið töluvert útflæði úr …
Shownotes
Í þessum þætti er farið yfir það helsta sem gerðist síðustu viku. Vikan einkenndist af talsverðum lækkunum og eftir mikið innflæði í ágúst og september hjá kauphallarsjóðunum hefur verið töluvert útflæði úr þeim í október. Aðalfrétt vikunnar er þó án efa sú að OpenAi birti upplýsingar um að óútgefin gervigreind á vegum þeirra hefur náð áður óhugsandi árangri við að leysa stærðfræðivandamál sem mönnum hefur ekki tekist að leysa. Í kjölfarið hafa vaknað áhyggjur um hvort gervigreind gæti leyst þá dulritun sem verndar cryptoveski. Rætt er talsvert um þetta og margt fleira í þessum þætti.
Bitcoin heldur velli yfir 80k - Ekkert lát á innflæði kauphallarsjóða
Árið einkenndist framan af af útflæði rafmyntakauphallarsjóðanna. Eftir látlaust innflæði undanfarið upp á fleiri milljarða dollara eru þeir nú komnir í nettó innflæði. Að öðru leyti var fremur tíðindalítið á …
Shownotes
Árið einkenndist framan af af útflæði rafmyntakauphallarsjóðanna. Eftir látlaust innflæði undanfarið upp á fleiri milljarða dollara eru þeir nú komnir í nettó innflæði. Að öðru leyti var fremur tíðindalítið á rafmyntamörkuðum. Táknvæðing verðbréfa heldur áfram af fullum þunga. Einnig var farið yfir nokkrar makró efnahagstölur og margt fleira.
Meira en milljarður dollara flæðir inn í kauphallarsjóðina á einum degi
Mánudagurinn sá mesta innflæði á einum degi í rafmyntakauphallarsjóðina síðan október 2025. Tæplega milljarður dollara flæddi inn í BTC kauphallarsjóðina og um 270 milljónir dollara í ETH sjóðina. Í kjölfarið …
Shownotes
Mánudagurinn sá mesta innflæði á einum degi í rafmyntakauphallarsjóðina síðan október 2025. Tæplega milljarður dollara flæddi inn í BTC kauphallarsjóðina og um 270 milljónir dollara í ETH sjóðina. Í kjölfarið náði BTC yfir 87k og ETH yfir 2700$. Táknvæðing heldur áfram að gegna aðalhlutverki í umræðunni og nýjar fréttir um samstarf stórra aðila vekja athygli. Þá valdi Björn einnig skemmtilega bók í hinu mánaðarlega bókahorni. Þetta og margt fleira í þessum þætti.
Clarity frumvarpinu hafnað, stýrivextir hækkaðir í USA - Bitcoin segir "og hvað með það?"
Síðastliðinn þriðjudag voru greidd atkvæði um framgang Clarity frumvarpsins í Öldungardeildinni, þ.e. hvort það yrði tekið í efnislega meðferð og færi síðan í atkvæðagreiðslu um hvort það yrði að lögum …
Shownotes
Síðastliðinn þriðjudag voru greidd atkvæði um framgang Clarity frumvarpsins í Öldungardeildinni, þ.e. hvort það yrði tekið í efnislega meðferð og færi síðan í atkvæðagreiðslu um hvort það yrði að lögum. Frumvarpið þurfti 60 atkvæði en fékk aðeins 49. Í vikunni hækkuðu stýrivextir í USA einnig um 25 punkta og eru nú 3,75-4%. Einnig frestuðust samningaviðræður í Óman vegna Hormússundsins, en markaðurinn hafði bundið vonir við að lausn væri í sjónmáli. Hins vegar tilkynnti SEC afgerandi undanþágur til fimm ára fyrir crypto iðnaðinn vegna táknvæddra verðbréfa og ekki er annað að sjá en að markaðurinn hafi litið það svo jákvæðum augum að allt sem á undan var nefnt hafi verið léttvægt fundið af fjárfestum.
Nýjar verðbólgutölur í USA - Er samkomulag um Hormússund í nánd?
Síðustu verðbólgutölur í Bandaríkjunum voru birtar föstudaginn, 11. september síðastliðinn. Þær voru nokkurn veginn í samræmi við væntingar, en þó ögn verri má segja. Rökrétt hefði því verið að ætla að markaðir …
Shownotes
Síðustu verðbólgutölur í Bandaríkjunum voru birtar föstudaginn, 11. september síðastliðinn. Þær voru nokkurn veginn í samræmi við væntingar, en þó ögn verri má segja. Rökrétt hefði því verið að ætla að markaðir myndu lækka örlítið en þvert á móti þá urðu talsverðar hækkanir á sama tíma. Skýrist það af því að samhliða birtingu á verðbólgutölum bárust fréttir um að fundað yrði í Óman um mögulegt samkomulag gagnvart Hormússundi. Ekkert er þó í hendi enn. Þá var fjallað um hinar ýmsu fréttir vikunnar, þar á meðal 100 milljón dollara fjárfestingu Nasdaq í Kraken, nýjustu jarmmynt Hunter Biden, Laptop, og margt fleira.
Sterkar atvinnutölur í USA slá BTC niður fyrir 80k
Í gær bárust tölur frá Bandaríkjunum sem sýndu fram á að störfum þar í landi hefði fjölgað umtalsvert meira en spár gerðu ráð fyrir. Fyrir vikið hafa líkur á hækkun stýrivaxta aukist töluvert og …
Shownotes
Í gær bárust tölur frá Bandaríkjunum sem sýndu fram á að störfum þar í landi hefði fjölgað umtalsvert meira en spár gerðu ráð fyrir. Fyrir vikið hafa líkur á hækkun stýrivaxta aukist töluvert og rafmyntamarkaðurinn seig nokkuð niður eftir gott gengi vikunnar. Innflæði í kauphallarsjóði helstu rafmynta var mjög sterkt í vikunni og svo virðist sem sífellt fleiri bankar og hefðbundin fjármálafyrirtæki séu í auknum mæli að vinna að stórum verkefnum á sviði bálkakeðjutækninnar.
Innflæði BTC kauphallarsjóða nálgast þrjá milljarða USD í ágúst
Í vikunni sem var að líða var minna um fréttir, en rafmyntamarkaðurinn hélt áfram góðri siglingu. Solana náði rétt tæpum 110$, ETH fór yfir 2500$ og BTC hefur sveiflast yfir og undir 80.000$. Þá hefur innflæði …
Shownotes
Í vikunni sem var að líða var minna um fréttir, en rafmyntamarkaðurinn hélt áfram góðri siglingu. Solana náði rétt tæpum 110$, ETH fór yfir 2500$ og BTC hefur sveiflast yfir og undir 80.000$. Þá hefur innflæði í rafmyntakauphallarsjóði verið með því mesta á árinu hingað til. Kevin Warsh, seðlabankastjóri USA, flutti árlega ræðu sína í Jackson Hole á sama tíma og hlaðvarpið var tekið upp og verður efni hennar gert skil í næsta þætti.
Nautin vakna til lífsins - BTC hótar 80k
Í þessum þætti er rætt um atburðarás vikunnar sem leiddi til gífurlegra hækkana á öllum helstu rafmyntum. BTC fór næstum í 80.000$, en ETH fór í stutta stund yfir 2.500$ og Solana snerti 100$. Margir …
Shownotes
Í þessum þætti er rætt um atburðarás vikunnar sem leiddi til gífurlegra hækkana á öllum helstu rafmyntum. BTC fór næstum í 80.000$, en ETH fór í stutta stund yfir 2.500$ og Solana snerti 100$. Margir samverkandi þættir búa að baki, en allt byrjaði á því að fjármálaráðuneyti Bandaríkjanna tilkynnti um aukin endurkaup á eigin ríkisskuldabréfum. Þá var einnig mikið innflæði í kauphallarsjóði, Trump var stóryrtur á blaðamannafundi um crypto, ásamt öðru.
Verðbólga í USA sýnir merki um hjöðnun - Mikið útflæði úr kauphallarsjóðum í vikunni
Í þessum þætti er farið yfir nýjustu verðbólgutölur í USA, hvernig þær stóðust væntingar og hvaða áhrif þær virðast hafa á markaðinn. Þá er farið yfir uppfærða stöðu Clarity frumvarpsins, en það verður að …
Shownotes
Í þessum þætti er farið yfir nýjustu verðbólgutölur í USA, hvernig þær stóðust væntingar og hvaða áhrif þær virðast hafa á markaðinn. Þá er farið yfir uppfærða stöðu Clarity frumvarpsins, en það verður að teljast á brattann að sækja að ætla að ná að gera það að lögum á þessu ári. Þá er einnig fjallað talsvert um öryggismál og samspil þeirra við gervigreind. Þetta og margt fleira í þessum þætti.
Clarity frumvarpið verður líklega ekki að lögum í ár
Innflæði hefur einkennt síðustu daga hjá kauphallarsjóðunum. Þeir félagar taka aftur fyrir Coldcard hakkið og gera því betur skil. Sömuleiðis er rætt um stöðu Clarity frumvarpsins hjá öldungardeildinni en allt …
Shownotes
Innflæði hefur einkennt síðustu daga hjá kauphallarsjóðunum. Þeir félagar taka aftur fyrir Coldcard hakkið og gera því betur skil. Sömuleiðis er rætt um stöðu Clarity frumvarpsins hjá öldungardeildinni en allt lítur út fyrir að það verði ekki að lögum í ár. Scott Bessent, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, vitnaði í Satoshi þegar hann tjáði sig um mikilvægi þess að Bandaríkin myndu taka af skarið og leiða crypto markaðinn. Þetta og margt fleira í þessum þætti.
Hræðsla brýst út vegna öryggisbrests hjá Coldcard
Í vikunni bárust fréttir af því að um 38m USD virði af BTC hefði verið stolið af köldu veskjunum Coldcard vegna öryggisbrests hjá framleiðandanum. Mikil hræðsla brast út í kjölfarið og í kjölfarið vaknar …
Shownotes
Í vikunni bárust fréttir af því að um 38m USD virði af BTC hefði verið stolið af köldu veskjunum Coldcard vegna öryggisbrests hjá framleiðandanum. Mikil hræðsla brast út í kjölfarið og í kjölfarið vaknar spurningin: Hvernig geymir maður rafmyntir sínar með öruggum hætti? Í öðrum fréttum má nefna að Seðlabankinn í Bandaríkjunum ákvað að halda stýrivöxtum óbreyttum þar í landi í 3,5-3,75%. Þá hafa áhyggjur aukist af svokölluðum DAT fyrirtækjum, sem ganga út á það að kaupa BTC og hafa á efnahagsreikningi sínum, en fjölmörg þeirra hafa neyðst til að selja BTC til þess að geta staðið við skuldbindingar sínar. Þetta og margt fleira í þessum þætti.
Magnús Karl ræðir Nassim Taleb og ritverk hans
Í þessum þætti mætir Magnús Karl Ásmundsson, hagfræðingur, í annað sinn í stúdíóið. Viðfangsefni þáttarins er fjárfestirinn og tölfræðingurinn Nassim Taleb, sem hefur gefið út fjölda ritverka sem miða að því að …
Shownotes
Í þessum þætti mætir Magnús Karl Ásmundsson, hagfræðingur, í annað sinn í stúdíóið. Viðfangsefni þáttarins er fjárfestirinn og tölfræðingurinn Nassim Taleb, sem hefur gefið út fjölda ritverka sem miða að því að efla lesendur í ákvarðanatökum á mörkuðum. Taleb skrifaði formálann í The Bitcoin Standard en svo virðist sem undanfarin ár hafi hann misst trú á Bitcoin. Fjallað er um fjórar af hans helstu bókum og þær settar í samhengi við rafmyntamarkaðinn.
Góðar verðbólgutölur í USA gefa Bitcoin byr í seglin
Vikan hófst á mjög góðum verðbólgutölum í USA og markaðir tóku við sér. Segja má að það sem hafi fylgt á eftir hafi þó dempað viðbrögðin talsvert, en Kevin Warsh, seðlabankastjóri í USA, sagði að of snemmt væri …
Shownotes
Vikan hófst á mjög góðum verðbólgutölum í USA og markaðir tóku við sér. Segja má að það sem hafi fylgt á eftir hafi þó dempað viðbrögðin talsvert, en Kevin Warsh, seðlabankastjóri í USA, sagði að of snemmt væri að tala um fullnægjandi grundvöll fyrir vaxtalækkanir. Þá hefur versnandi ástand í átökum Bandaríkjanna og Írans leitt til áhyggna af því að olíuverð hækki á ný sem gæti hleypt verðbólgunni aftur upp. Áfram heldur jákvæð þróun við að færa raunheimaeignir á bálkakeðjur. Citadel Securities fjárfestir í einu stærsta cryptofyrirtæki heims. Þetta og margt fleira í þessum þætti.
Óvissuástand skapast á ný milli Írans og USA - Bitcoin reynir að halda sér yfir 60k
Í þessum þætti ræða þeir félagar um það helsta sem gerst hefur frá því að þeir spjölluðu saman síðast. Er vopnahléi lokið milli USA og Írans? Það virtist mega lesa út úr orðum forseta Bandaríkjanna, en málið er …
Shownotes
Í þessum þætti ræða þeir félagar um það helsta sem gerst hefur frá því að þeir spjölluðu saman síðast. Er vopnahléi lokið milli USA og Írans? Það virtist mega lesa út úr orðum forseta Bandaríkjanna, en málið er kannski ekki svo einfalt eins og fjallað er um í þættinum. Áfram halda vandræði Saylor og Strategy, en Strategy seldi rúmlega 3500 BTC í tapi. Þá vakti umfjöllun Viðskiptablaðsins athygli Kjartans og ekki síst það sem blaðið fjallaði ekki um í tengslum við CASP starfsleyfi á grundvelli MiCA. Þetta og margt fleira í þessum þætti.
Lokafrestur MiCA liðinn í Evrópu - Hvaða áhrif hefur það?
Í þessum þætti fara þeir félagar yfir það helsta á markaðnum. Í upphafi mánaðar leið lokafrestur samkvæmt MiCA löggjöfinni í Evrópu. Það þýðir að þjónustuveitendur sýndareigna (rafmyntakauphallir) verða að hafa …
Shownotes
Í þessum þætti fara þeir félagar yfir það helsta á markaðnum. Í upphafi mánaðar leið lokafrestur samkvæmt MiCA löggjöfinni í Evrópu. Það þýðir að þjónustuveitendur sýndareigna (rafmyntakauphallir) verða að hafa starfsleyfi sem slíkir (CASP) til að mega veita viðskiptavinum þjónustu innan ESB og EES. Töluvert hátt hlutfall af áður starfandi þjónustuveitendum hefur ekki tekist að tryggja sér starfsleyfið innan frestsins og ber þar helst að nefna stærstu rafmyntakauphöll heims, Binance. Farið er yfir nokkur grundvallaratriði sem fylgja MiCA og hvaða þýðingu þetta hefur fyrir neytendur. Einnig er bókahorn og margt fleira í þessum þætti.
Samtal við Magnús Karl Ásmundsson, hagfræðing
Í þessum þætti mætti góður gestur í sitt fyrsta skipti í hlaðvarpið. Magnús Karl Ásmundsson er hagfræðingur að mennt, en starfar sem framkvæmdastjóri fyrirtækisins Tímaveru. Magnús fer yfir víðan völl, en …
Shownotes
Í þessum þætti mætti góður gestur í sitt fyrsta skipti í hlaðvarpið. Magnús Karl Ásmundsson er hagfræðingur að mennt, en starfar sem framkvæmdastjóri fyrirtækisins Tímaveru. Magnús fer yfir víðan völl, en fjallar meðal annars um mörg grundvallaratriði hagfræðinnar, Bitcoin, hagkerfið og hvernig lífið og þroskinn sem fylgir því fær mann til að átta sig á að stundum er raunveruleikinn flóknari en svo að hægt sé að leysa öll heimsins vandamál með því að beita einfaldri hugmyndafræði. Þetta og margt fleira í þessu skemmtilega spjalli.
Nýr seðlabankastjóri USA slær á þunga strengi - Rauðu flöggin halda áfram að versna hjá Strategy
Í þessum þætti er rætt um það helsta sem gerst hefur á mörkuðum. Kevin Warsh, nýskipaður seðlabankastjóri Federal Reserve, fjallaði um í fyrstu ræðu sinni sem seðlabankastjóri hvernig hann sér fyrir sér breytt …
Shownotes
Í þessum þætti er rætt um það helsta sem gerst hefur á mörkuðum. Kevin Warsh, nýskipaður seðlabankastjóri Federal Reserve, fjallaði um í fyrstu ræðu sinni sem seðlabankastjóri hvernig hann sér fyrir sér breytt hlutverk seðlabankans gagnvart mörkuðum. Til þessa hafa fjárfestar treyst á leiðbeinandi stef frá seðlabankastjóra og jafnframt treyst því að seðlabankinn myndi alltaf grípa inn í þegar markaðir hafa lækkað verulega, að hleypa lífi í markaðinn með lækkun vaxta og öðrum tilslökunum. Warsh sagði að fjárfestar skyldu ekki treysta á slík inngrip. Þá halda áhyggjur af Michael Saylor, Strategy og Stretch áfram að aukast og í vikunni fór gengi Stretch, sem á almennt að haldast sem næst genginu 100, niður í 82. Samhliða þessu er Saylor að dreifa óábyrgu myndefni sem gefur til kynna að það að fjárfesta í Stretch sé ávísun á fjárhagslegt öryggi. Þetta og margt fleira í þessum þætti.
Verðbólga heldur áfram að aukast í USA - Örlög Clarity Act orðin tvísýn?
Verðbólga jókst um 0,5% á ársgrundvelli milli mánaða í USA og nýjum seðlabankastjóra þar í landi virðist ansi þröngur stakkur sniðinn gagnvart breytingu stýrivaxta. Þá hafa líkur lækkað verulega á …
Shownotes
Verðbólga jókst um 0,5% á ársgrundvelli milli mánaða í USA og nýjum seðlabankastjóra þar í landi virðist ansi þröngur stakkur sniðinn gagnvart breytingu stýrivaxta. Þá hafa líkur lækkað verulega á veðmálamörkuðum á því að Clarity frumvarpið verði samþykkt á þessu ári og eru þær nú metnar á um 50%. Fjallað er talsvert um þessi atriði, en sömuleiðis fjallar Björn ítarlega um þróun og sögu síðustu tveggja bjarnarmarkaða og varpar fram spurningunni hvort eitthvað megi læra af sögunni. Þetta og margt fleira í þessum þætti.
Þrettán dagar af samfelldu útflæði úr kauphallarsjóðum keyrir BTC undir 60k
Í þessum þætti er rætt um stöðuna á crypto mörkuðum sem er vægast sagt uggvænleg um þessar mundir. Látlaust útflæði hefur verið úr kauphallarsjóðum eða um 4,4 milljarðar dollara á 13 dögum. Samhliða því hefur …
Shownotes
Í þessum þætti er rætt um stöðuna á crypto mörkuðum sem er vægast sagt uggvænleg um þessar mundir. Látlaust útflæði hefur verið úr kauphallarsjóðum eða um 4,4 milljarðar dollara á 13 dögum. Samhliða því hefur Fear and Greed mælikvarðinn hrapað niður á við og mælist nú 15, eða sem öfgakennd hræðsla. Sömu sögu, og reyndar verri, er að segja um aðrar helstu rafmyntir markaðarins. Tímar sem þessir reyna á jafnvel reyndustu fjárfesta og spurningin sem allir þátttakendur ættu að spyrja sig er einfaldlega: Hef ég trú á þessu fyrirbæri til framtíðar?
Útflæði úr kauphallarsjóðum eykst verulega - Bitcoin nálgast 70k
Í þessum þætti er rætt um það helsta á mörkuðum. Crypto markaðurinn heldur áfram að síga niður sem verður að teljast nokkur vonbrigði í ljósi þess að S&P500 vísitalan heldur áfram góðri siglingu. Áfram er …
Shownotes
Í þessum þætti er rætt um það helsta á mörkuðum. Crypto markaðurinn heldur áfram að síga niður sem verður að teljast nokkur vonbrigði í ljósi þess að S&P500 vísitalan heldur áfram góðri siglingu. Áfram er óbreytt staða á Clarity frumvarpinu, þ.e. ekki er annað að segja en að reiknað er með því að frumvarpið verði tekið til afgreiðslu öldungardeildarinnar á næstunni. Þá er einnig fjallað talsvert um Ethereum og ýmsar vendingar þar á bæ í bókahorninu.
Bitcoin missir dampinn og strögglar við að komast yfir 80k á ný
Í þessum þætti er rætt um það helsta sem gerst hefur á mörkuðum. Ekkert nýtt er að segja um Clarity-frumvarpið en væntingar standa áfram til þess að það verði lagt fyrir öldungardeildina á næstunni. Útflæði …
Shownotes
Í þessum þætti er rætt um það helsta sem gerst hefur á mörkuðum. Ekkert nýtt er að segja um Clarity-frumvarpið en væntingar standa áfram til þess að það verði lagt fyrir öldungardeildina á næstunni. Útflæði heldur áfram úr BTC og ETH kauphallarsjóðum, en innflæði er sterkt í XRP, SOL og HYPE kauphallarsjóðina. Þá búa fjárfestar sig undir aukna táknvæðingu á eignamörkuðum. Þetta og margt fleira í þessum þætti.
Verðbólgutölur valda vonbrigðum - Clarity frumvarpið færist nær lagasetningu
Í þessum þætti er farið yfir viðburðaríka viku. Vikan hófst á slæmum fréttum, en verðbólga í Bandaríkjunum virðist vera að aukast umfram spár og bjartsýni fjárfesta um stýrivaxtalækkanir þar í landi fer …
Shownotes
Í þessum þætti er farið yfir viðburðaríka viku. Vikan hófst á slæmum fréttum, en verðbólga í Bandaríkjunum virðist vera að aukast umfram spár og bjartsýni fjárfesta um stýrivaxtalækkanir þar í landi fer minnkandi. Ekki bætti úr skák að 13. maí var sá dagur sem mest útflæði var úr BTC kauphallarsjóðum, meira en 630 milljónir dollara. Hins vegar bárust stór tíðindi úr öldungardeildinni en Clarity frumvarpið var afgreitt úr bankanefnd öldungardeildarinnar með 15 atkvæðum gegn 9. Í kjölfarið þykja líkurnar hafa aukist allverulega á að lagasetning sé innan seilingar og virðist markaðurinn fastlega gera ráð fyrir því að frumvarpið verði að lögum í nánustu framtíð. En hvað þýðir það nákvæmlega fyrir rafmyntamarkaðinn? Þetta og margt fleira er rætt í þessum þætti.
Ætlar Michael Saylor að selja BTC??
Í þessum þætti ræða þeir félagar helstu vendingar á markaðnum. Bjartsýni heldur áfram að aukast á mörkuðum, en BTC hefur haldið sæmilega velli yfir 80k síðustu daga og hlutabréfavísitölur víðs vegar um heiminn …
Shownotes
Í þessum þætti ræða þeir félagar helstu vendingar á markaðnum. Bjartsýni heldur áfram að aukast á mörkuðum, en BTC hefur haldið sæmilega velli yfir 80k síðustu daga og hlutabréfavísitölur víðs vegar um heiminn slá endurtekið ný met. Þá hafa líkur á samþykki Clarity Act á þessu ári aukist talsvert og er reiknað með því að það verði að lögum á þessu ári. Helsta fréttin er hins vegar án nokkurs vafa að Michael Saylor, dyggasti kaupandi og talsmaður Bitcoin, sem hefur jafnframt ávallt haldið því fram að hann muni aldrei selja Bitcoin, virðist hafa skipt um skoðun. Hvernig mun markaðurinn bregðast við?
Tveir grænir mánuðir í röð fyrir Bitcoin - Mesta innflæði í kauphallarsjóði á árinu í apríl
Í þessum þætti ræða þeir félagar það helsta sem gerðist á markaðnum í vikunni. Stýrivöxtum var haldið óbreyttum í Bandaríkjunum. Bitcoin ráðstefnan í Las Vegas vekur lítinn áhuga og lítið umtal …
Shownotes
Í þessum þætti ræða þeir félagar það helsta sem gerðist á markaðnum í vikunni. Stýrivöxtum var haldið óbreyttum í Bandaríkjunum. Bitcoin ráðstefnan í Las Vegas vekur lítinn áhuga og lítið umtal. Stofnanafjárfestar virðast mjög bjartsýnir gagnvart Bitcoin og bálkakeðjutækninni. Bókahornið og margt fleira í þessum þætti.
Norður-kóreskir tölvuþrjótar valda enn á ný titringi
Bitcoin hefur aðeins sótt í sig veðrið samhliða sannfærandi hækkunum á öðrum mörkuðum. Því miður varð DeFi markaðurinn hins vegar fyrir áfalli þegar hakkarar, sem taldir eru vera á vegum Norður-Kóreu, náðu að …
Shownotes
Bitcoin hefur aðeins sótt í sig veðrið samhliða sannfærandi hækkunum á öðrum mörkuðum. Því miður varð DeFi markaðurinn hins vegar fyrir áfalli þegar hakkarar, sem taldir eru vera á vegum Norður-Kóreu, náðu að komast yfir umtalsverð verðmæti af svokölluðu rsETH og nota það til að taka gríðarleg verðmæti af einum rótgrónasta DeFi vettvangi markaðarins, Aave. Fjárfestar spyrja sig nú hvort raunverulega sé hægt að treysta dreifstýrðum fjármálalausnum eða hvort bæta þurfi öryggi enn frekar áður en slíkt traust er verðskuldað. Þetta og margt fleira í þessum þætti.
S&P500 og Nikkei ná hæstu hæðum - Bitcoin hótar 80k
Í þessum þætti er farið yfir það helsta á rafmyntamarkaðnum. Hlutabréf í Bandaríkjunum hafa, þrátt fyrir ólguna í heimsmálunum, náð hæstu hæðum á ný og rafmyntir hafa sömuleiðis haldið áfram upp á við eftir …
Shownotes
Í þessum þætti er farið yfir það helsta á rafmyntamarkaðnum. Hlutabréf í Bandaríkjunum hafa, þrátt fyrir ólguna í heimsmálunum, náð hæstu hæðum á ný og rafmyntir hafa sömuleiðis haldið áfram upp á við eftir miklar lægðir á undan. Goldman Sachs, einn stærsti fjárfestingabankinn í Bandaríkjunum, hefur bæst í hóp þeirra aðila sem munu bjóða upp á Bitcoin kauphallarsjóð. Þetta og margt fleira er rætt í þessum þætti.
Hier stehen die neuesten 40 von 132 Folgen. Ältere Folgen findest du im Feed des Podcasts.
Ähnliche Podcasts
Mehr Wirtschaft-PodcastsIst das dein Podcast?
Bestätige es mit einem Eintrag in deinem Feed: Du bekommst hier einen Code, trägst ihn als podcast:txt in den Kanal deines Feeds ein, und wir prüfen ihn. Danach steht dein Podcast als „verifiziert“ bei SoundNode.







