
#56 H-in tvö: hlaup og húðin
Shownotes
Það eru ýmis atriði sem við hlauparar þurfum að huga að í tengslum við hlaupin s.s styrktaræfingar, teygjur, hvíld og góð næring. Ekki má þó gleyma fyrirbyggjandi atriðum tengt stærsta líffærinu okkar: HÚÐINNI. En við hlauparar þurfum sannarlega að huga að atriðum tengt sólarvörnum, sólgleraugum, nuddsárum, rósroða, ofnæmi, sólarexemi og áhrifum hitaþjálfunar á húðina. Þetta eru allt umfjöllunarefni sem við förum yfir með sérsnámslækni á Húðdeild Landspítalans: Sunnu Kristínu Hannesdóttur. …